Morgunblaðið - 11.03.2006, Side 19

Morgunblaðið - 11.03.2006, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MARS 2006 19 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF www.urvalutsyn.is 59.940 kr. Netverð á mann í tvíbýli á Domina Grand 23. mars í 3 nætur. *Innifalið: Beint flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn. Fáðu ferðatilh ögun og nána ri upplýsingar hjá Úrval-Úts ýn, Lágmúla 4 , sími 585 40 00 Verðdæmi: * Ljubljana, höfuðborg Slóveníu, hefur allt það sem aðrar höfuðborgir bjóða þó hún sé ein fámennasta höfuðborg Evrópu. Ljubljana er mikil menningarborg með sinfóníu- hljómsveit, óperu og leikhúsum. Listir og menning hafa alltaf skipað veglegan sess meðal Slóvena og síðan ríkið varð sjálfstætt hefur menningarlífið blómstrað. Í nágrenni borgarinnar eru hinir undirfögru dalir Alpa- fjallanna þar sem náttúran skartar sínu fegurstu litum. FORMLEGA var gengið frá stofnun norsks-íslensks viðskiptaráðs í Ósló í gær. Utanríkisráðherrar Íslands og Noregs, Geir H. Haarde og Jonas Gahr Störe, fluttu ræður í tilefni stofnunar ráðsins og lögðu báðir áherslu á langa og mikilvæga við- skiptasögu Íslands og Noregs allt frá samþykkt Gamla sáttmála árinu 1262. Í tilefni af stofnun viðskiptaráðsins tilkynnti Bjarni Ármannsson, for- stjóri Íslandsbanka, um styrk til lax- averndunarsamtaka við Þrándheims- fjörðinn í Noregi að upphæð 630 þúsund norskra króna. Þessi samtök hafa gengið til liðs við Orra Vigfússon sem barist hefur fyrir friðun laxa- stofnsins í Atlantshafi. Geir H. Haarde afhenti styrkinn en eftir stofnfundinn sagði hann að við- skiptaráðið gæti haft mikla þýðingu fyrir bæði löndin. Hann sagði að allt sem greiddi fyrir viðskiptum og yki vilja á samstarfi milli atvinnulífsins í löndunum væri af hinu góða. Velkomin til Noregs Geir sagði einnig að velgengni í ís- lensku atvinnulífi væri að vissu marki kveikjan fyrir stofnun þessa ráðs. Mörg fyrirtæki á Íslandi væru orðin það stór að þau þyrftu að leita út fyrir landsteinana eftir frekari vaxtarskil- yrðum. Hann sagðist hafa orðið var við það í heimsókn sinni til Noregs að Norðmenn hefðu tekið eftir vexti ís- lenskra fyrirtækja og byðu þau vel- komin til Noregs. Því væri tími til kominn að stofna viðskiptaráð milli þessara landa enda væri búið að stofna viðskiptaráð milli Íslands og fleiri landa áður. Aðspurður um hvort stofnun við- skiptaráðsins væri liður í að styrkja löndin gagnvart ESB sagði Geir það ekki vera. Hann sagði að efnahags- árangurinn bæði á Íslandi og í Noregi benti til þess að hægt væri að komast vel af án þess að vera í ESB. Hann sagði að þeir Jonas Gahr Störe hefðu einmitt rætt það sín á milli að hvorugt landanna hefðu neinar áætlanir um að ganga í ESB í náinni framtíð. Ljósmyndir/Guðni Ölversson Styrkur Í tilefni stofnunar norsks-íslensks viðskiptaráðs gaf dótturfélag Ís- landsbanka í Noregi, DN bank, laxaverndunarsamtökum í Þrándheimi styrk sem Geir H. Haarde afhenti fulltrúa samtakanna í gær. Norskt-íslenskt við- skiptaráð stofnað Eftir Guðna Ölversson í Osló Noregur Bjarni Ármannsson, for- stjóri Íslandsbanka, flutti erindi á stofnfundinum og greindi m.a. frá starfsemi bankans í Noregi. Fréttasíminn 904 1100

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.