Morgunblaðið - 11.03.2006, Side 24
24 LAUGARDAGUR 11. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Los Angeles. AP, AFP. | Geimfarið
Cassini hefur sent myndir af gufu-
strókum, sem minna á goshveri, á
einu af ístunglum Satúrnusar, En-
keladus, að sögn Geimrann-
sóknastofnunar Bandaríkjanna,
NASA.
Er þetta ein af skýrustu vísbend-
ingunum til þessa um að vatn sé að
finna víðar en á jörðinni. Nokkrir
vísindamenn sögðu að bæta þyrfti
Enkeladus á lista yfir þá fáu hnetti
í sólkerfinu þar sem líf gæti hugs-
anlega þrifist.
Vísindamenn segja að vatn sé
ein af helstu forsendunum fyrir því
að líf geti kviknað en hingað til
hafa aðeins fundist óbeinar vís-
bendingar um að vatn sé að finna á
öðrum hnöttum en jörðinni. Þessar
vísbendingar hafa einkum byggst á
rannsóknum á bergi og öðrum
gögnum.
Vísindamenn NASA segja að
Cassini hafi nýlega tekið myndir
sem sýni stróka af vatnsgufu og
ísögnum á Enkeladus. Þeir telja að
ísagnirnar og gufan hljóti að koma
frá vatni undir yfirborði tunglsins.
Torrence Johnson, einn geimvís-
indamannanna, sagði að þetta væri
í fyrsta skipti sem fundist hefðu
vísbendingar um vatn svo nálægt
yfirborðinu á öðrum hnetti.
Ef líf þrífst á Enkeladus er lík-
lega um að ræða örverur eða aðr-
ar frumstæðar lífverur sem geta
lifað við mjög erfiðar aðstæður.
Vísindamennirnir skýra frá
þessum niðurstöðum sínum í vís-
indatímaritinu Science sem kom út
í gær.
Cassini, geimfari NASA, var
skotið á loft í október 1997 og það
flutti evrópska geimkannann
Huygens sem losnaði frá geim-
farinu í desember 2004 og lenti á
stærsta tungli Satúrnusar, Títan.
Cassini rannsakar nú hringa og
tungl reikistjörnunnar og áætlað
er að rannsókningarnar taki fjög-
ur ár.
+
, " % %
# ')-'.
-' . (
'- #
'
- +'
. , %%)
% )) $ ) %&%'
)-
'%*%.
'%.)
'% '%#* %/ 0 %0&
'0.
)
'%1 )%*%2
) %3 4 %( %0&%/))%5% 5' )
%36)6%5%7
!"#$%&'!()#"&')*+#+%',"&
8.#
9
2495*)
/,
1
*
%
* ?
9':0
;$':0
; )-$
; )
, 2 ,
, '
34
%<%5 =%*%#.)
'
> %/)% %
% '%#
,
%/) )) %%0&
%'% %% 6! ?
!
5 ,%
'
6 :?! ,
!"#$%
O
(!? ,?P
&' ' (
'' ' ) %
,%
+#+%',"& $-
. -
2
'
2 =
'
2 %#
,4 =
( ) 7
/ =
/)&
*%5
)
0
=
$
%*
5 )
2%%5
39
) %
0#* )
5 )- '))% '%/ 0 % ))
'
)-%0&%1 )% ? % %
)-
0#* %) -
% @%' % 0
( )%*%'
)- %/ 0%* /(% '
9<%5 .)
'%*%
0
6' 7
*' %&%#
%
'
3 <)
%%?<)5
!%>% % )) /) %*%
)
?.)
))
A '%2 6/
0 ))%
)
& %
, %/0
))
)
( )
0
( ) )%*
0) '#.)-
' )%*% * (5 4)
B
) %%)0) %0 % 5 )
% %5%5 %* 07
B
) %
<0) =
*%( ) =
5 Vísbendingar
um vatn á einu
tungla Satúrnusar
Telja Enkeladus á meðal hnatta þar
sem líf geti hugsanlega þrifist
SAKSÓKNARAR á Ítalíu hafa beðið
dómara að gefa út ákæru á hendur
Silvio Berlusconi, forsætisráðherra
landsins, og David Mills, eiginmanni
breska menningarmálaráðherrans
Tessa Jowell, vegna spillingarmáls.
Sakar Fabio De Pasquale saksókn-
ari Mills um að hafa tvívegis gefið
rangan vitnisburð í spillingarmáli á
hendur Berlusconi gegn greiðslu.
Samkvæmt ítölskum skýrslum
gerði Mills m.a. þau „mistök“ við
réttarhöldin að minnast ekki á sam-
tal sitt við Berlusconi árið 1995, þar
sem þeir ræddu það sem saksókn-
arar telja ólöglegar greiðslur for-
sætisráðherrans til embættismanns-
ins Bettino Craxi.
Verði dómari við óskum saksókn-
ara um að gefa út ákærur á hendur
Berlusconi og Mills er reiknað með
að þau geti hafist í maí.
Samstarf Mills og Berlusconi á
sviði fjármála var afar náið á síðustu
tveimur áratugum, þegar sá fyrr-
nefndi veitti forsætisráðherranum
ráðgjöf um hvernig komast mætti
hjá greiðslu skatta með stofnun er-
lendra félaga og fjárfestingasjóða.
Mills og forsætisráðherrann hafa
báðir neitað sök.
Stuðningsfólk Berlusconis gagn-
rýndi í gær harðlega það sem það
telur „útreiknaða árás“ dómstóla, en
forsætisráðherrann hefur árum
saman sakað þá um að vilja skaða
pólitískan feril sinn.
Tímasetningin óheppileg
Tímasetning þessa málareksturs
er óheppileg fyrir Berlusconi, því að
þingkosningar fara fram á Ítalíu 9.
og 10. apríl nk. Beiðni lögmanna
hans um að upptöku málsins verði
frestað þar til fram yfir kosningarn-
ar var hins vegar hafnað.
„Enn og aftur koma ákveðnir lög-
menn fram rétt fyrir kosningar og
leggja leitina að sannleikanum til
hliðar í pólitískum tilgangi,“ sagði
Sandro Bondi, einn helsti skipu-
leggjandi Forza Italia, flokks Ber-
lusconis.
Til að auka á vanda Berlusconis
sagði Francesco Storace, heilbrigð-
isráðherra Ítalíu, af sér embætti í
gær vegna gruns um að hann hefði
staðið fyrir skipulögðum njósnum
um pólitíska andstæðinga sína.
Kemur afsögnin á slæmum tíma,
enda hefur stjórn hægri flokka Ber-
lusconis að undanförnu mælst með
minna fylgi í könnunum en stjórn-
arandstaðan undir forystu Romano
Prodis.
Ákærurnar á hendur Mills og Ber-
lusconi eru byggðar á 18 mánaða
rannsókn á ásökunum um að sá fyrr-
nefndi hafi þegið mútur frá forsætis-
ráðherranum, en saksóknarar telja
sig hafa nægar sannanir fyrir því að
árið 1997 hafi fyrirtæki í eigu Ber-
lusconis greitt jafnvirði fjörutíu
milljóna íslenskra króna inn á
bankareikning Mills fyrir að hafa
borið ljúgvitni í málinu.
Mills er sem fyrr segir kvæntur
Tessu Jowell, nánum bandamanni
Tonys Blairs, forsætisráðherra
Bretlands.
Má segja að mál Jowells hafi tekið
óvænta stefnu í síðustu viku þegar
fjölmiðlum barst tilkynning um að
hún hygðist slíta sambandi sínu við
Mills eftir 27 ára hjónaband um
óákveðinn tíma vegna ásakananna.
Hefur þess verið krafist að Jowell
segi af sér vegna málsins, sem sumir
andstæðingar bresku stjórnarinnar
hafa kallað „Jowellgate-hneykslið“.
Vilja að Berlusconi og
Mills verði ákærðir
David Mills
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ítalski leiðtoginn í vanda nokkrum vikum fyrir kosningar
Silvio Berlusconi
KÍNVERSKUR veiðimaður stríðir skörfunum sínum
á fljóti í grennd við Sjanghæ í Kína í gær. Kínversk-
ir veiðimenn hafa notað skarfa í margar aldir við
fiskveiðar. Þeir binda hampreipi um háls fuglanna
til að koma í veg fyrir að þeir gleypi fiskinn við
veiðarnar.
AP
Fiskisæld skarfanna nýtt
Sameinuðu þjóðunum. AFP, AP. | Sam-
tök starfsmanna Sameinuðu þjóð-
anna lýstu í fyrrakvöld yfir „van-
trausti“ á hendur Kofi Annan,
framkvæmdastjóra SÞ, vegna til-
lagna hans um róttækar skipulags-
breytingar hjá samtökunum. Snýst
óánægjan um þá tillögu Annans að
flytja þúsundir starfa úr höfuðstöðv-
um SÞ í New York með því að færa
til starfsmenn og með því að flytja
störf úr landi.
Alls er fjöldi starfsmanna undir
stjórn Annans um 13.000, þar af eru
um 4.200 í New York. Störfin sem
um ræðir eru m.a. á sviði þýðinga,
eftirlits með heilsutryggingum, upp-
lýsingatækni og útgáfustarfsemi.
Héldu samtök starfsmanna SÞ
skyndifund á fimmtudag, tveimur
dögum eftir að Annan birti skýrslu
þar sem lagt er til að gerðar verði
róttækar breytingar á skrifstofu-
stjórnkerfi höfuðstöðva SÞ, svo það
megi verða skilvirkara og ábyrgara.
Talsmaður samtakanna sagði að
þótt starfsmenn SÞ hefðu ekki vald
til að víkja framkvæmdastjóranum
úr embætti vildu þeir lýsa yfir
megnri óánægju sinni í „yfirlýsingu
um vantraust á hendur fram-
kvæmdastjóranum og stjórn hans“.
Að auki vildu samtökin lýsa yfir
samhug með þeim starfsmönnum
sem eiga á hættu að missa störf sín
verði tillögur skýrslunnar að veru-
leika.
Umrædd skýrsla ber heitið „In-
vesting in the United Nations: For a
Stronger Organization Worldwide“
og er 34 síðna plagg sem fylgir eftir
vinnu vegna tillagna um umbætur
sem hófst í fyrra.
Er markmið skýrslunnar að bæta
siðferði og auka ábyrgð innan SÞ,
ásamt því sem henni er ætlað að lag-
færa þær brotalamir sem voru af-
hjúpaðar í „olíu fyrir mat“-hneyksl-
inu svokallaða, fjárdrátt og
skjalafölsun innan SÞ og kynferðis-
lega misnotkun starfsmanna í til-
teknum friðargæsluaðgerðum.
Áætlaður kostnaður vegna til-
lagna skýrslunnar er allt að 35 millj-
arðar íslenskra króna, en þær þurfa
samþykki 191 aðildarþjóðar Samein-
uðu þjóðanna.
Lýstu vantrausti á Annan