Morgunblaðið - 11.03.2006, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MARS 2006 25
ERLENT
Sheer Driving Pleasure
BMW X5
www.bmw.is
London. AFP, AP. | John Profumo, fyrrverandi ráðherra í
bresku ríkisstjórninni, lést í fyrrinótt úr heilablæðingu
91 árs að aldri. Nafn Profumos komst á allra varir
snemma á sjöunda áratug síðustu aldar en ástarsamband
hans og vændiskonunnar Christine Keeler er talið hafa
stuðlað að falli ríkisstjórnar íhaldsmanna í kosningunum
1964.
Profumo-málið var án efa eitt helsta hneykslismál
breskra stjórnmála á síðustu öld. Profumo var stríðs-
málaráðherra þegar hann hóf stutt samband við Keeler
árið 1961. Keeler, sem var nítján ára gömul, var þá hins
vegar einnig í tygjum við sovéskan flotasendifulltrúa og
leyniþjónustumann, Jevgení Ívanov.
Kalda stríðið var á þessum árum í algleymingi og hið
óviðurkvæmilega samband Profumos við Keeler vakti
því enn meiri athygli en ella þegar það komst upp.
Rannsókn leiddi síðar í ljós að sambandið hefði ekki
ógnað þjóðaröryggi Bretlands en engu að síður hrikti í
stoðum ríkisstjórnar Harolds Macmillan og dagblaðales-
endur um allan heim fylgdust hugfangnir með fram-
vindu málsins. Sögur um svallveislur fyrirmanna komust
á kreik og gerðu dagblöð sér mat úr því.
Af ítölskum aðalsættum
Profumo var efnaður maður af ítölskum aðalsættum
og lauk námi frá Oxford. Hann þjónaði í breska hernum í
síðari heimsstyrjöldinni en var fyrst kjörinn á þing 1940,
þá 25 ára gamall. Á sjötta áratugnum var hann um tíma
utanríkisráðherra og þótti eiga bjarta framtíð fyrir sér í
stjórnmálum, jafnvel var rætt um hann sem hugsanlegan
leiðtoga íhaldsmanna.
Profumo-málið, sem ávallt var kallað svo, batt hins
vegar enda á stjórnmálaferil hans.
Profumo neitaði því í fyrstu þegar upp komst um sam-
band hans og Keeler snemma árs 1963. Eftir að dagblöð í
Bretlandi birtu opinberlega bréf sem hann skrifaði Keel-
er sagði Profumo hins vegar af sér bæði ráðherradómi
og þingmennsku í júní 1963. Harold Macmillan forsætis-
ráðherra sagði af sér í október sama ár af heilsufars-
ástæðum, en rætt var um að heilsu hans hefði hrakað
vegna Profumo-málsins. Og í kosningum árið eftir töp-
uðu íhaldsmenn völdunum til Verkamannaflokksins.
Búinn að bæta fyrir mistökin
Profumo ræddi aldrei um málið opinberlega en reyndi
hins vegar að endurheimta æru sína, hann starfaði lengi
launalaust við að hjálpa fátækum í London og var haft
eftir Deedes lávarði, blaðamanni og vini Profumos, í gær
að hann hefði fyrir löngu verið búinn að bæta fyrir mis-
tök sín.
Saga Christine Keeler og sambands hennar við Prof-
umo og Ívanov, en þó ekki síður við Stephen nokkurn
Ward, sem gerði Keeler og fleiri stúlkur út sem vænd-
iskonur, var kvikmynduð árið 1989 en þar fór Sir Ian
McKellen með hlutverk Profumos. Myndin hét Scandal
og lék Joanne Whalley þar Keeler. Keeler sat síðar í
fangelsi um níu mánaða skeið en Ward var hins vegar
ákærður fyrir að hafa viðurværi sitt af ósiðlegri iðju og
framdi hann sjálfsmorð á síðasta degi réttarhaldanna yf-
ir honum.
Eitt helsta hneykslismál
Bretlands á síðustu öld
AP
John Profumo ásamt eiginkonu sinni, Valerie Hobson,
árið 1963. Valerie Hobson, sem lést árið 1988, stóð með
manni sínum í gegnum þykkt og þunnt.
John Profumo, sem lést í fyrri-
nótt, eyddi fjörutíu árum ævi
sinnar í að bæta fyrir mistök sín
STÚLKA víkur sér undan er lituðu dufti er slett á hana á vorhátíð í Rab-
indra Bharati-háskóla í Kalkútta á Indlandi í gær. Háskólinn er nefndur
eftir skáldinu Rabindra Nath Tagore, sem var sæmdur Nóbelsverðlaunum
árið 1913, fyrstur Indverja.
AP
Vorhátíð á Indlandi
Los Olivos, Kaliforníu. AP. | Yfirvöld í
Kaliforníu hafa bannað starfsmönn-
um á Neverland-búgarði Michaels
Jacksons að mæta til vinnu sinnar og
sektað söngvarann um tæpar fimm
milljónir íslenskra króna vegna
ógoldinna launa og tryggingaiðgjalda.
Alls telja yfirvöld að söngvarinn
hafi látið tryggingar 69 starfsmanna
sinna á búgarðinum renna út þann 10.
janúar sl., en að sögn Deans Fryers,
talsmanns vinnumálaráðuneytis Kali-
forníu, þýðir þetta að óbreyttu að
Neverland verði lokað.
„Þeir eru ekki að gera starfsmönn-
um sínum kleift að vera löglegt vinnu-
afl,“ sagði Fryers.
Sjálfur hefur Jackson búið í Barein
við Persaflóa síðan hann var sýknað-
ur í júní sl. af ákærum um kynferð-
islega misnotkun á börnum. Vegna
þeirrar stöðu sem er komin upp munu
yfirvöld taka í sína vörslu dýr sem eru
í dýragarði á búgarði söngvarans, þ.á
m. fíla, gíraffa, snáka, órangútanapa,
tígrisdýr og krókódíl. Búgarðurinn er
á um 1.100 hektara svæði í mið-Kali-
forníu.
Neverland-búgarði
Jacksons lokað