Morgunblaðið - 11.03.2006, Page 26

Morgunblaðið - 11.03.2006, Page 26
Reykjavík | Heldur hefur verið rysjótt tíð að undanförnu. Það er eins gott fyrir gangandi veg- farendur í Reykjavík að vera vel búnir. Nú er aftur spáð norðan- átt og kólnandi veðri, með slyddu eða snjókomu norð- anlands en bjartara veðri sunn- anlands. Morgunblaðið/Ásdís Rysjótt tíð í borginni Veður Austurland | Akureyri | Suðurnes | Árborg | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Margrét Þóra Þórs- dóttir, maggath@mbl.is, 669-1117 og Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Það var líflegt í safnaðarheimili Þórs- hafnarkirkju þegar nemendur grunnskól- anna á Þórshöfn og Svalbarði fjölmenntu til að hlusta á tónlist. Á dagskrá var verk- efnið „Tónlist fyrir alla“ og tónlistarmenn- irnir voru að þessu sinni þeir Jón Rafns- son, Ásgeir Óskarsson og Pálmi Sigur- hjartarson en Þórshöfn er síðasti við- komustaður þeirra á Norðurlandi. Til- gangur verkefnisins „Tónlist fyrir alla“ er að kynna íslenskum grunnskólabörnum ólíkar tegundir tónlistar í lifandi flutningi listamanna og markmiðið er að efla þekk- ingu þeirra og skilning á tónlist. Krakk- arnir tóku undir sönginn af fullum krafti með Pálma enda búin að æfa sig, því skól- arnir fengu fyrr í vetur sendan geisladisk með nokkrum laganna sem flytja átti. Að loknum tónleikum flykktust krakkarnir kringum „poppstjörnurnar“ og báðu um eiginhandaráritanir. Félagarnir þrír brugðust vel við og eyddu góðum tíma við skriftir fyrir þessa áhugasömu og þakk- látu áheyrendur.    Hjá elstu bekkjum grunnskólans er allt- af nóg að gera, ekki síst þegar árshátíð stendur fyrir dyrum. Næsta sunnudag sýna þeir söngleikinn „Grasee “ svo stífar æfingar eru þessa dagana. Veikindi hafa herjað á unglingana, eins og víða annars staðar, svo mikinn tíma þarf að vinna upp.    Það er jafnan gleðiefni þegar fjölgar í einhverju bæjarfélagi en átta ungar konur eignuðust börn hér í fyrra. Leikskóli er til staðar á Þórshöfn en börnin þurfa að vera orðin átján mánaða til að fá vist þar. Sum- ar mæður gætu gjarnan þegið að eiga þess kost að koma börnum sínum í gæslu nokk- uð fyrr og því sendu þær beiðni til sveit- arstjórnar þar sem þær óska eftir aðstoð sveitaryfirvalda til að koma að málinu. Beiðninni var vel tekið og hún rædd á fundi hreppsnefndar þar sem samþykkt var að auglýsa eftir einstaklingum til að sinna daggæslu í eigin húsnæði. Ætlunin er að vinna að fyrirkomulagi þjónustunnar í samráði við félags- og skólaþjónustu Þingeyinga. Úr bæjarlífinu ÞÓRSHÖFN EFTIR LÍNEYJU SIGURÐARDÓTTUR Fjögur ný sveit-arfélög, öll fá-menn, skrifuðu undir svokallaða Ólafsvík- uryfirlýsingu á nýafstað- inni landsráðstefnu Stað- ardagskrár 21 sem haldin var í Reykholti fyrir skömmu. Með yfirlýsing- unni skuldbinda sveit- arfélögin sig til að leggja sitt af mörkum til sjálf- bærrar þróunar, meðal annars með því að virkja íbúa, félagasamtök og að- ila atvinnulífsins til öfl- ugrar þátttöku í verk- efnum sem hafa sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Sveitarfélögin fjögur eru Fljótsdalshreppur og Borgarfjarðarhreppur á Austurlandi og Hörg- árbyggð og Svalbarðs- strandarhreppur á Norð- urlandi. Síðustu þrjú árin hefur verið unnið að sér- stöku verkefni sem miðar að því að aðstoða fámenn sveitarfélög við að innleiða sjálfbæra þróun í sínu byggðarlagi undir merkj- um Staðardagskrár 21. Verkefnið um fámenn sveitarfélög er á vegum umhverfisráðherra og iðn- aðarráðherra en lands- skrifstofa Staðardagskrár 21, sem er staðsett í Borg- arnesi, sér um fram- kvæmdina. Með þessari viðbót hafa samtals fjörutíu sveit- arfélög á landsvísu skrifað undir Ólafsvíkuryfirlýs- inguna og í þessum sveit- arfélögum búa um 218.000 manns, eða um 73% þjóð- arinnar. Ljósmynd/Anne Maria Sparf Skrifað undir Ráðherra og fulltrúar sveitarfélaga, fv. Sigríður Anna Þórðardóttir, Kristjana Björnsdóttir, Árni K. Bjarnason og Birna Jóhannesdóttir. Fámenn sveitarfélög sam- þykkja Ólafsvíkuryfirlýsingu Ólafur Stefánssonyrkir um sígandisól Framsóknar í höfuðborginni: Fyrirlíta Framsókn mest, forhertir í kvölinni, þeir sem áður áttu hest, en eru nú á mölinni. Jóhannes Sigmundsson í Syðra-Langholti leggur út af vísu Ólafs: Eitt sinn Framsókn átti hest, efnilegan fola. Hann í banka hefur sest, hrun má Framsókn þola. Davíð Hjálmar Haraldsson las um það í Morgunblaðinu að japönskum vísindamönnum hefði tekist að búa til vanillulykt úr mykju. Hann orti: Hugvitið í hæðir rís, heimsmet ótal féllu byggju þeir til Brynjuís beint úr kúadellu. Af fylgi Framsóknar pebl@mbl.is Ísafjörður | Stjórn Sparisjóðs Vestfirðinga hefur ákveðið að flytja afgreiðslu sína og aðra starfsemi á Ísafirði í nýbyggingu sem nú rís við Hafnarstræti. Er nýja húsið um þriðjungi stærra en núverandi húsnæði Sparisjóðsins í Aðalstræti 20. Þá verður starfsemin öll á einni hæð en er nú á tveim- ur hæðum. Kemur þetta fram á vef Bæj- arins besta á Ísafirði. Að sögn Eiríks Finns Greipssonar að- stoðarsparisjóðsstjóra er reiknað með því að sparisjóðurinn verði kominn í hið nýja húsnæði í haust. „Ástæða þess að við ger- um þetta nú er sú að okkur hefur verið tek- ið mjög vel og viðskipti okkar eru sífellt að aukast, sérstaklega á sviði einstaklinga og smærri fyrirtækja,“ segir Eiríkur Finnur við bb.is. Sparisjóður Vestfirðinga í nýtt húsnæði Ólafsvík | Aðalfundur Ferðamálasamtaka Snæfellsness, sem haldinn var í Ólafsvík fyrir skömmu, fagnaði í ályktun fjölgun og uppsetningu góðra merkinga við bæi og stofnanir í sveitum á Snæfellsnesi. Jafn- framt beindi fundurinn þeim tilmælum til sveitarstjórna í þéttbýlisstöðum á Snæ- fellsnesi að sjá til þess að húsa-, götu- og umferðarmerkingar séu í góðu ástandi. Fundurinn telur áríðandi að í nágrenni allra þéttbýlisstaðanna verði skipulagðar frístundabyggðir, séu slíkar byggðir ekki fyrir í skipulagi. Marteinn Njálsson var kjörinn formaður stjórnar Ferðamálasamtakanna og með honum í stjórn eru Svanborg Siggeirsdótt- ir, Skúli Alexandersson, Kristín Jóhann- esdóttir og Þorkell Símonarson.    Hugað verði að merkingum í þéttbýli ♦♦♦ Byggja björgunarmiðstöð | Hvera- gerðisbær áformar að byggja björg- unarmiðstöð við Austurmörk. Miðstöðin gæti hýst starfsemi slökkviliðs, Hjálp- arsveitar skáta og skátafélagsins Stróks. Félögin tvö misstu húsnæði sitt í bruna. Á fundi bæjarráðs Hveragerðis var bæj- arstjóra heimilað að selja Orkuveitu Reykjavíkur áhaldahús bæjarins fyrir 34 milljónir kr. og jafnframt ákveðið að flytja starfsemi áhaldahúss í hús slökkvistöðv- arinnar þegar hún flytur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.