Morgunblaðið - 11.03.2006, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MARS 2006 29
MINNSTAÐUR
Vorsýning Kynjakatta verður
haldin 11. og 12. mars 2006 í
reiðhöll Gusts, Álalind, Kópavogi
Skaftafell | Átján taka þátt í landvarðanámskeiði sem
Umhverfisstofnun heldur um þessar mundir. Námið fer
fram í Reykjavík og í ferðum umhverfis borgina. Einnig
í mikilli ferð í þjóðgarðinn Skaftafell. Myndin var tekin
af hópnum í heimsókninni þangað.
Allir geta sótt um að komast á landvarðanámskeið,
þeir sem náð hafa tvítugsaldri. Þetta er kvöld- og helg-
arnámskeið sem dreifist á tveggja mánaða tímabil.
Kennd er náttúruvernd í breiðum skilningi, jafnt verk-
legir þættir sem eftirlit og umhverfistúlkun.
Umhverfisstofnun hefur nú auglýst laus störf land-
varða og verkafólks í sumar og ganga þeir fyrir í störfin
sem hafa landvarðaréttaindi. Alls eru þetta á bilinu 30 til
45 störf, samkvæmt upplýsingum Umhverfisstofnunar.
Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson
Landvarðanemar heimsækja þjóðgarð
LANDIÐ
AKUREYRI
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
LÖGREGLAN á Akureyri hafði afskipti af
hátt í 30 ökumönnum innanbæjar í gær, en
þeir óku á bilinu 70 til 97 kílómetra hraða, þar
sem hámarkshraði er 50 kílómetrar á klukku-
stund. Kærufjöldi vegna hraðaksturs hefur
sexfaldast í umdæmi lögreglunnar á Akureyri
á þessu ári miðað við sama tíma í fyrra.
Hermann Karlsson, varðstjóri hjá Lögregl-
unni á Akureyri, segir að þrátt fyrir mikla
umræðu um umferðarmál síðastliðnar vikur,
m.a. um ökuhraða ungmenna í kjölfar þess að
höggvin hafi verið stór skörð í þann aldurshóp
með þremur banaslysum og í öðrum tilvikum
hafi menn hlotið af varanlegan skaða, þá virð-
ist ekki lát á hraðakstri. Það sem af er árinu
hefur lögreglan á Akureyri haft afskipti af og
kært 350 ökumenn vegna hraðaksturs, þeir
voru 58 á sama tíma í fyrra.
Skýringarnar eru margar, segir Hermann,
m.a. að lögreglan hafi skipulagt eftirlit sitt
betur, veður- og tíðarfar hafi verið gott, götur
auðar og þurrar mestan part ársins og þá hafi
umferð aukist, mikið sé um að fólk úr ná-
grannabyggðarlögum bregði sér bæjarleið og
skjótist til Akureyrar. Þá hefur lögreglan nú
yfir að ráða hraðamyndavél sem komið er fyr-
ir víðs vegar um bæinn, „og hún smellir og
smellir, ætli einn fjórði af þeim kærum sem
við höfum lagt fram séu ekki tilkomnar vegna
hennar,“ segir Hermann.
Hann nefndi að þrátt fyrir alvarleg slys og
að algengar sektir við hraðakstursbrotum séu
á bilinu 10 til 20 þúsund krónur virðist ástand-
ið ekki breytast. „Það er engin ein lausn til í
þessu máli, en það verður að höfða til sam-
visku manna,“ segir hann.
Lögregla hefur m.a. verið með eftirlit í svo-
nefndum 30 kílómetra hverfum, þar sem há-
markshraði er 30 kílómetrar, „og þar höfum
við mælt ökumenn á allt að 90 kílómetra
hraða, þetta er ekki annað en hraðakstur í
íbúahverfi þar sem grunnskólar eru yfirleitt í
nágrenninu, svona akstur við þær aðstæður er
alveg út úr kú“.
Sektir virðast ekki skipta fólk miklu máli,
en það sé helst að svíði ef menn séu sviptir
ökuréttindum, „þá svona staldra menn aðeins
við“.
Lögregla hafði afskipti af hátt í 30 ökumönnum vegna hraðaksturs í gær
Sexfalt fleiri kærðir í ár
en á sama tíma í fyrra
eftir Margréti Þóru Þórsdóttur
maggath@mbl.is
ÁFORMAÐ er að bjóða út uppsteypu
menningarhúss á Akureyri um miðjan
næsta mánuð, en hönnunarvinna er á
lokastigi. Ingi Björnsson, formaður
byggingarnefndar menningarhúss,
sagði þó alls óvíst hvort unnt yrði að
bjóða verkið út, jarðvegssig gæti kom-
ið í veg fyrir það. „Það var alltaf vitað
að þarna myndi síga, því settum við
farg jafnþungt húsinu þarna ofan á
síðastliðið haust, í október, nóvember,
og töldum að það myndi taka sig á
þessum fjórum mánuðum. Það er hins
vegar ekki farið að hægja á sér,“ sagði
Ingi.
Hann sagði ekki ástæðu til að fara á
taugum vegna þessa, en menn væru
vissulega dálítið órólegir. „Hugsan-
lega þarf þetta meiri tíma, við ætlum
að skoða stöðuna um miðjan apríl og
sjá hvort eitthvað hafi breyst. Ef sigið
er enn á fullri ferð þá verðum við ef til
vill að fresta framkvæmdum um ein-
hverja mánuði,“ sagði Ingi. Áætlanir
ganga út á að bjóða uppsteypuna út
sem fyrr segir í næsta mánuði og að
allt verði klárt fyrir framkvæmdir á
komandi hausti, í október. Húsið átti
svo að taka í notkun fullbúið í mars
árið 2008. „Ef ekki hægir á siginu get-
ur það haft í för með sér að tímaplön
raskist eitthvað, en enn sem komið er
höldum við okkar striki,“ sagði Ingi.
Til þess gæti komið að fresta þyrfti
útboðinu, „en staðan er sú núna að við
bíðum bara og sjáum til hvað gerist.“
Jarðvegs-
sig hægir
ekki á sér
Áformað að bjóða út upp-
steypu menningarhúss
Álver | Stefna, félag vinstri manna heldur
umræðufund um álver og efnahagslegt
sjálfstæði í Lárusarhúsi við Eiðsvallagötu í
dag 11. mars. kl. 14 Ræðumaður er Þór-
arinn Hjartarson
NÚ er unnið að því að koma
Hamborg, Hafnarstræti 94, á
horni Kaupvangsstrætis og Hafn-
arstrætis, í upprunalegt horf.
Sigmundur Einarsson, vert á
Bláu könnunni, keypti húsið á
liðnu ári og stendur að end-
urbótum þess. „Þetta verður gert
í einum rykk,“ sagði Sigmundur,
en stefnt er að því að lagfær-
ingum verði lokið í byrjun sum-
ars, í júní.
Jóhannes Þorsteinsson, kaup-
maður á Akureyri, reisti húsið
árið 1909. Hann stofnaði þar og
rak verslunina Hamborg til dán-
ardags, árið 1920, en þá tók kona
hans, Laufey, dóttir Páls Árdals
skálds, og seinni maður hennar,
Jón E. Sigurðsson, við og ráku
Hamborg fram yfir 1930 að því
er segir í bók Steindórs Stein-
dórssonar frá Hlöðum, Akureyri,
Höfuðborg hins bjarta norðurs.
Nafnið festist við húsið, þótt
rekstri verslunarinnar væri hætt.
Fram kemur í umsögn um hús-
ið að þar hafi fæðst, Steingrímur
J. Þorsteinsson prófessor, sonur
Laufeyjar og Jóhannesar. Stein-
grímur læknir Matthíasson fram-
kvæmdi þá fyrsta keisaraskurð
utan Reykjavíkur sem heppn-
aðist fullkomlega.
Í æviminningum Huldu Stef-
ánsdóttur segir frá því að Ham-
borg hafi verið langvinsælasta
verslunin meðal krakka í bænum
og að eigandinn, Jóhann, hafi
verið mikill sómamaður, barna-
vinur með afbrigðum, lipur versl-
unarmaður og greiðugur við
börnin. „Hann vigtaði handa
þeim fíkjur, döðlur og jafnvel
brjóstsykur fyrir tvo aura, þótt
fimm aurar væru lágmarkið hjá
hinum kaupmönnunum,“ segir
þar. Kaupmenn fundu að þessu
við Jóhannes, töldu ekki borga
sig að gera sér ómak fyrir tvo
aura, en hann svarði því til að
kornið fyllti mælinn. Sum börnin
höfðu ekki fimm aura til að bæta
sér í munni og hann væri ekkert
of góður til að fara þessa snún-
inga fyrir krakkana.
Hamborg færð í upprunalegt horf
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Grafið undan flokknum? Sjálfstæðisflokkurinn leigir jarðhæðina í Ham-
borg og þar verður kosningaskrifstofan fyrir sveitarstjórnarkosningar
í vor. Halda mætti að Egill Þór Valgeirsson og Gunnar Örn Birgisson
væru að grafa undan flokknum en svo er ekki, þarna eru þeir að brjóta
niður tröppur sunnan við hús.
Sýning | Margeir Sigurðarson opnað sýn-
ingu á verkum sínum í Studio 6, Skipagötu
6, í gær. Hún stendur til loka mars. Mar-
geir hefur sýnt á fjölda samsýninga, á Ak-
ureyri, New York, Alicante og Barcelona en
þetta er fyrsta einkasýning hans.