Morgunblaðið - 11.03.2006, Side 33

Morgunblaðið - 11.03.2006, Side 33
Sumar stelpur eru í eilítið víðum pilsum með mynstri. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MARS 2006 33 DAGLEGT LÍF Í MARS RANNSÓKNIR benda til þess að líkamsrækt geti hjálpað Parkinsons-sjúklingum að stjórna hreyfingum sínum betur og jafnvel hægt á sjúk- dómnum. Þetta kemur m.a. fram á heilsuvef MSNBC. Vísindamenn við Háskólann í Pittsburgh hafa rannsakað þetta og vonast til þess að hægt sé að hægja á og jafnvel stöðva þróun sjúkdómsins með markvissri líkamsrækt, þótt ekki sé hægt að snúa þegar orðinni þróun við. Rætt er við Heat- her MacTavish sem greindist með Parkinsons fyrir áratug. Hún dansar til að halda sér í formi og segir að þegar hún heyri tónlist eigi hún auð- velt með að hreyfa sig, líkaminn geri það nánast sjálfur. Parkinsons-sjúkdómurinn lýsir sér þann- ig að smátt og smátt eyðileggjast heilafrumur sem framleiða dópamín sem er nauðsynlegt til að stjórna vöðvahreyfingum. Afleiðingarnar eru m.a. skjálfti og stirðleiki í útlim- um, hægar hreyfingar, skert jafn- vægi og samhæfingargeta. Lyf sem gefin eru við sjúkdómnum lækna hann ekki en geta minnkað skjálfta. Parkinsonssjúklingar geta lent í vítahring sem líkamsrækt getur rof- ið. Vítahringurinn lýsir sér þannig að því erfiðara sem sjúklingunum reynist að hreyfa sig eðlilega, því síður reyna þeir. Fljótlega veikjast vöðvarnir og erfiðara verður að þvinga þá til að hreyfa útlimina. Reglu- bundin hreyfing viðheldur hins vegar vöðvastyrk. Dýratilraunir sýna fram á að hreyf- ing örvar framleiðslu á efni sem vernd- ar taugafrumurnar fyrir eyðileggjandi áhrifum Parkinsons. Rannsóknir á Parkinsons-sjúklingum sýna fram á góð áhrif hreyfingar á þá, þ.e. klukku- tími á stigvél þrisvar í viku, hafði þau áhrif að sjúklingarnir gengu hraðar og duttu síður. Áhrifin hafa ekki verið sönnuð en margt bendir til þess að þau séu afar jákvæð. Í undirbúningi er vís- indatilraun þar sem ýmis próf og heila- myndir verða teknar af Parkinsons- sjúklingum fyrir, á meðan, og eftir líkamsæfingar, til að athuga hver áhrifin eru á heilann. Hreyfing hefur a.m.k. ekki slæm áhrif á Parkinsonssjúklinga. Líkamsrækt hjálpar Parkinsons-sjúklingum  HREYFING ferðalag. Barnið velur mynd af and- liti, brosandi eða reiðu og festir á mælinn allt eftir því hversu mikið var gaman eða leiðinlegt. „Þannig er þeim kennt að tilfinning hefur ákveðin blæbrigði og kannski er óþarfi að reiðast upp í tíu. Fimm nægja kannski alveg,“ segir Ás- gerður. „Þarna er einnig unnið með orð, því þau átta sig ekki á að það geta verið mörg orð yfir sömu til- finninguna.“ Þrjár nýjar handbækur „Það þarf að læra á kassann,“ segir Sigrún. „Það er reyndar hægt að fylgja handbókinni, hún er það ýtarleg og þar er að finna frábærar hugmyndir en það er gott að fá leið- beiningar á dagsnámskeiði eins og við höfum verið að bjóða uppá. Í haust ætlum við að fá hingað til lands höfunda CAT-kassans og hug- myndin er að setja upp vinnustofu fyrir þá kennara sem þegar eru farnir að nota kassann.“ Ásgerður segir að í framtíðinni sé stefnt að útgáfu þriggja annarra CAT-handbóka, ein er fyrir þá sem haldnir eru átröskun, önnur fyrir þá sem þjást af kvíða og enn önnur fyrir þá sem eru þunglyndir. Hægt er að panta CAT- kassann á heimasíðu www.cat-kit.com eða með því að hafa samband við þýð- endur. www.cat-kit.com Einhverfuráðgjöfin Ás asgol@ismennt.is sighjart@ismennt.is Margir strákar nota nú hlið- artöskur. Kostum hlaðinn Hiace www.toyota.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 31 74 8 03 /2 00 6 Toyota Nýbýlavegi 4 Kópavogur Sími: 570 5070 Toyota Akureyri Baldursnesi 1 Akureyri Sími: 460 4300 Toyota Reykjanesbæ Njarðarbraut 19 Reykjanesbær Sími: 421 4888 Toyota Selfossi Fossnesi 14 Selfoss Sími: 480 8000 Verð frá 1.810.000 kr. Vinnustaður á hjólum Íslenskir atvinnubílstjórar hafa aðeins góða reynslu af Hiace, enda þjónar hönnunin þeim tilgangi að draga úr óeðlilegu álagi á líkamann. Fjölbreytilegar aðstæður kalla á fjölhæfan bíl, lipran, háan, breiðan, stöðugan, öruggan og umfram allt meðfærilegan. Þetta færðu allt með Hiace.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.