Morgunblaðið - 11.03.2006, Side 37

Morgunblaðið - 11.03.2006, Side 37
á svæðinu og sótti Freysteinn um vinnu þar. Fór hann í atvinnuviðtal sem var tekið upp á segulband. Sótti hann um að fá að kenna yf- irmönnum í Bandaríkjaher rúss- nesku. Taldi hann að samkeppnin sem væri í geimferðum milli Bandaríkjamanna og Rússa mundi leiða til þess að geimferðir yrðu af- lagðar vegna fjárskorts ef svo héldi fram sem horfði. Taldi hann nauðsynlegt að þjóðirnar ynnu sameiginlega að svo stóru verkefni til að nýta fjármagn og hugvit bet- ur. Til þess að svo gæti orðið þyrftu yfirmenn í Bandaríkjaher að læra rússnesku. Einnig lýsti hann framtíðarsýn sinni varðandi þessi mál. Varð strax svo mikill áhugi fyrir hugmyndum Frey- steins að hann var beðinn að koma eins fljótt aftur til Bandaríkjanna og hann gæti. Freysteinn lést hins vegar hálfum mánuði eftir að hann kom heim úr þessari för. Hug- myndir hans voru notaðar, rúss- neskukennsla meðal yfirmanna í Bandaríkjaher varð staðreynd og unnu Bandaríkjamenn og Rússar saman að geimferðum. Freysteinn var einyrki í þessu máli og veltur því á stjórnmálamönnum hvort verk hans eru viðurkennd eður ei. Einnig má segja að Fischer hafi lagt nokkuð til friðarmála með sigri sínum yfir Spassky því þar vann hann einnig sigur á rúss- neska kerfinu. Ekki veit ég hvaða tillögur páfi hafði fram að færa til að eyða kalda stríðinu en líklega getur menntamálaráðherra upplýst les- endur um það. ’… fleiri lögðu þó hönd áplóginn og þar á meðal Íslendingur þótt ekki virðist taka því að nefna hann.‘ Höfundur var gift Freysteini Þorbergssyni. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MARS 2006 37 UMRÆÐAN sem eru á fleygiferð með Frístunda- skólabílunum á degi hverjum um Reykjanesbæ. Það var ljóst frá fyrsta vetri að Frístundaskólinn var kominn til að vera. Starfseminni vex stöðugt fiskur um hrygg. Foreldrum finnst gott að geta verið róleg í vinnunni sinni vitandi að börnin þeirra eru í öruggum höndum og eru glöð og ánægð að iðka sínar tóm- stundir á meðan foreldrarnir sinna sínum skyldustörfum. Að mörgu er að hyggja í þessum efnum. Það er langur tími fyrir yngstu skólabörnin að vera að heim- an frá sér 8–9 tíma á dag. Þess vegna þarf að huga vel að aðstæðum og skipulagi innan skólanna til að börnunum líði sem best. Foreldrar þurfa líka að vera sér meðvitandi um að þessi lausn hentar ekki öllum börnum, sum börn þrífast ekki í hóp- samveru af þessu tagi. Í skóla- samfélagi nútímans, þar sem boð- orðið er einstaklingsmiðað nám, þarf sú hugsun og stefna líka að ná til Frístundaskólans. Það er verkefni sem leysa þarf í nánustu framtíð. Höfundur er verkefnisstjóri Frístundaskóla Reykjanesbæjar. Saab KLASSI, ÖRYGGI, STÍLL! Saab 9-3 er margverðlaunuð nýjung þar sem öryggi og mýkt í akstri er í fyrirrúmi. Stórkostleg hönnun, öflug vél, frábærir hemlar og ríkulegur staðalbúnaður gera Saab 9-3 að byltingu í klassíska geiranum. Saab 9-3 Örugg athygli! Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00 E N N E M M / S ÍA / N M 2 0 7 9 5 Selfossi 482 3100 Umboðsmenn um land allt Njarðvík 421 8808 Akranesi 431 1376 Höfn í Hornafirði 478 1990 Reyðarfirði 474 1453 Akureyri 461 2960 Nánari upplýsingar á heimasíðu okkar www.geymslusvaedid.is og í síma 565 4599 Útboð á bifreiðum og ýmsu öðru frá Varnarliðinu verður 9.-14. mars. Bifreiðarnar verða til sýnis á plani Geymslusvæðisins Við Reykjanesbraut gegnt álverinu. Hægt er að skila inn tilboðum á vefslóðinni www.geymslusvaedid.is Útboð Útboð Útboð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.