Morgunblaðið - 11.03.2006, Page 38

Morgunblaðið - 11.03.2006, Page 38
38 LAUGARDAGUR 11. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Í SKÝRSLUNNI „Hver gerir hvað í heilbrigðisþjónustunni“ er lagt til að þjónustugjöld sjúklinga verði endurskoðuð, samræmd og forsendur þeirra skilgreindar á gagnsæjan hátt. Sjúklingar greiði sama verð fyrir sams konar þjónustu án tillits til þess hvort meðferð er veitt í legu á sjúkrahúsi, á dag- eða göngudeild- um eða hjá sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmönnum. Þá er lagt til að við ákvörðun þjónustugjalda verði einkum litið til þess hvernig þau geta stuðlað að hagkvæmum rekstri, hagræðingu og eðlilegri samkeppni en jafnframt viðhaldið valfrelsi sjúklinganna. Að mati nefndarinnar eru forsendur greiðsluþátttöku sjúklinga á stundum óljósar og telur hún brýnt að forsendur fyrir greiðslu- þátttöku verði skilgreindar betur og með gagnsæjum hætti. Skoð- að verði hvernig hagsmunum fólks með lágar tekjur verði best borgið og hvernig heppilegast sé að jafna aðgengi að heilbrigð- isþjónustu m.t.t. búsetu og ferðakostnaðar. Jafnframt verði kann- að, að hvaða marki viðbótargreiðslur eru réttmætar ef jafnframt er tryggt að slíkt leiði ekki til lakari þjónusta fyrir aðra. Nefndin telur eðlilegt að þjónustugjöld verði notuð til stýringar innan heilbrigðisþjónustunnar og að við ákvörðun þeirra verði einkum litið til þess hvernig rekstri, hagræðingu og eðli eðlilegt valfrelsi sjúklinga. J ustugjalda að gæta þess að þeir geti leitað eftir nauðsy eðlilegt að sjúklingar greiði án tillits til þess hvar hún e hvort sem meðferð fer fram Ójafnræði sjúklinga og ó Í skýrslunni eru tekin dæ sjúklinga í lögum og reglug veitt (þ.e. á einkastofu eða s dóm eða hvers konar aðger taka sjúklinga er t.d. verule ingu eftir ófrjósemisaðgerð sjónmælingar, sálfræðiþjónu aðgerðir, sjónlagsaðgerðir, Regluleg endurskoðun á þes Forsendur greiðsluþátt Lagt til að þjónustugjöld verði endurskoðuð M ikill samhljómur er í drög- um að frumvarpi til nýrra laga um heilbrigðisþjón- ustu og skýrslu hinnar svokölluðu Jónínunefndar, Hver á að gera hvað í heilbrigðisþjónust- unni?, en efni bæði skýrslunnar og frum- varpsdraganna var kynnt á fjölmennum fundi í Öskju í gær. Það er þó engin til- viljun að innihaldið rími, því nokkurt sam- starf var með þeim nefndum sem unnu að málunum. Margir litu enda svo á að ekki væri hægt að endurskoða heilbrigðislögin, sem eru að uppleggi frá árinu 1973, fyrr en fyrir lægi hvert hlutverk allra aðila sem veita heilbrigðisþjónustu ætti að vera, þ.e. hver ætti að gera hvað. Báðar nefndirnar lögðu áherslu á þau grundvallaratriði og lagaramma sem íslensku heilbrigðiskerfi er ætlað að mótast af á komandi árum. Bæði leggja áherslu á skiptingu landsins í heilbrigðisumdæmi þar sem hlutverk hverrar stofnunar sem veitir heilbrigð- isþjónustu er skilgreint nokkuð ítarlega. Þá er hjá báðum lögð áhersla á að skil- greina kennsluhlutverk stofnananna og er m.a. í fyrsta sinn skilgreint hvert hlutverk háskólasjúkrahúss eigi að vera Þá er hlut- verk Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, sem reyndar er nefnt Sjúkrahús Akureyr- ar í drögunum, skilgreint í þessu sam- bandi sem kennslusjúkrahús. Einnig er í fyrsta sinn fest í lög, samkvæmt frum- varpinu, að heilsugæslan eigi að jafnaði að vera fyrsti viðkomustaður fólks í heilbrigð- iskerfinu, þótt það hafi lengi verið stefna stjórnvalda. Grunnskipulag þjónustunnar Guðríður Þorsteindóttir, skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu, sagði í kynningu sinni í gær að markmið með frumvarpinu væri m.a. að mæla fyrir um grunnskipulag heilbrigðisþjónustunnar og að setja skýr- an lagaramma um málaflokkinn. Lagt er til að landinu verði skipt upp í heilbrigðisumdæmi og í drögum að reglu- gerð þar sem nánar er kveðið á um skipt- hliðum. Nefndi um hvernig bre fjárþörf vegna skoðað verði hv brigðisþjónustu auknar frá því skuli þjónustug þá að hvaða ma staklingum að mennum sjúkli þjónustu eða fá veitendum heil greiðslur að ein aðilum án þess ustu fyrir aðra „Við þurfum þarfar sem allir iskerfinu,“ segi maður nefndar „Ætlum við að þjónustugjöldu framlög ríkisin annarra leiða t sem geta fullko fyrir þjónustun fólkið á ofurlau lokasamningan á öðrum, að þei eigum við að hu að huga að útle okkar heilbrigð Fjármögnun Nefndin leggur húsþjónustu ve ig að greiðslur hluta til í formi til verktengdar fall verktengdr nefndarinnar a vera hvatning t virkni. Telur ne verði farið í fyr inguna, er lagt til að þau verði sjö talsins. Tilgangurinn er að styrkja stofnanir innan hvers umdæmis og gera þær sjálfstæðari. Í hverju umdæmi verði ein heilbrigð- isstofnun sem veiti almenna heilbrigð- isþjónustu sem þó geti veitt sérhæfðari þjónustu í vissum tilvikum. Það verði ann- ars LSH og FSA sem veiti sérhæfðustu sjúkrahúsþjónustuna. Í frumvarpinu er hlutverk LSH í raun skilgreint í fyrsta sinn sem meginsjúkrahús landsins og há- skólasjúkrahús sem veiti sérhæfða þjón- ustu fyrir alla landsmenn og veiti almenna þjónustu í sínu umdæmi. Þá er kveðið á um ráðgefandi nefnd spítalans og stjórn- arnefnd hans þar með felld niður. Hlut- verk ráðgefandi nefndarinnar á að vera að tryggja tengsl spítalans við þjóðfélagið, styðja við starfsemi hans og veita stjórn- endum ráðgjöf og álit. Guðríður segir um 100 umsagnir hafa borist vegna frumvarpsdraganna sem nú fái meðferð hjá nefndinni. Er vonast til þess að drögunum verði skilað til ráðherra innan skamms. Siv Friðleifsdóttir heil- brigðisráðherra sagði í samtali við Morg- unblaðið að hún teldi ákjósanlegt að frum- varpið yrði lagt fram á yfirstandandi þingi til skoðunar en að ólíklegt væri að hægt yrði að afgreiða það frá þinginu þar sem tíminn væri naumur. „Jónínunefndin“ fer víða Nefnd undir formennsku þingmannsins Jónínu Bjartmarz, hefur frá árinu 2003 unnið að tillögum um endurskilgreiningu verksviða innan heilbrigðisþjónustunnar. Í fjölþættum tillögum nefndarinnar í skýrsl- unni Hver gerir hvað í heilbrigðisþjónust- unni? er tekið á mjög mörgum þáttum. Þar er m.a. fjallað um verkaskiptingu milli heilbrigðisstofnana og fjármögnun heil- brigðisþjónustu framtíðarinnar frá ýmsum Línurnar lagðar fyrir heilbrigðisþjónustu fram Nauðsynlegt að mæta á aukinni Á að vera heimilt að greiða fyrir forgang í heilbrigð- isþjónustu? Þessum spurningum er m.a. varp- að fram í skýrslunni Hver á að gera hvað í heilbrigð- isþjónustunni? Sunna Ósk Logadóttir sat kynning- arfund þar sem einnig var fjallað um drög að nýjum heilbrigðislögum. „VIÐ verðum sjálf, hvert og eitt okkar, að læra að taka me um, og áratugum, muni einstaklingurinn og ábyrgð hans á ismál. Forvarnir, lýðheilsa og ábyrgðin á eigin heilsufari e því að reka öfluga, sérhæfða spítalaþjónustu, sagði Siv Fri Einstaklingurinn axli ábyrgð á HVERS KONAR ÞJÓÐFÉLAG ER ÞETTA ORÐIÐ? Fyrir nokkrum dögum fór fjöl-skyldufaðir út úr húsi með tvöbörn sín til þess að keyra þau í píanótíma. Slíkur akstur með börn, hvort sem er í tónlistartíma, íþrótta- æfingu eða til einhvers náms eða tómstundaiðju, er daglegt brauð hjá fjölmörgum fjölskyldum um höfuð- borgarsvæðið allt. Í viðtali við Morgunblaðið í gær segir fjölskyldufaðirinn: „Þau voru nýfarin út úr bílnum og ég á leið heim um Gagnveg, þegar ég fann hressilegt högg og áttaði mig á, að það hafði verið ekið aftan á mig. Ég hélt ró minni og ætlaði að stöðva bílinn eftir ákeyrsluna en þá fann ég annan og verri skell dynja á bílnum. Við það hrökk mælaborðið í sundur og bíllinn þeyttist út fyrir veg og snerist þversum.“ Þegar þessi friðsami borgari var að komast til sjálfs sín eftir höggin tvö leit hann út um hliðarrúðu bílsins. Þá sá hann bílinn, sem ekið hafði á hann, nálgast. „Þeir eltu mig út fyrir veginn og óku af afli inn í vinstri hlið bílsins.“ Það liggur í augum uppi, að ef börnin hefðu verið í bílnum hefðu þau stórslasast. Þetta er óhugnanlegur atburður. Hann ætti að verða dropinn, sem fyll- ir mælinn. Ofbeldisverk af margvís- legu tagi færast í aukana. Það er því miður ekki hægt að nota annað orð yfir ákveðinn hóp í þessu þjóðfélagi okkar en að þar sé glæpalýður á ferð. Það er umhugsunarefni fyrir okkur öll hvernig hann er orðinn til. En það er ekki hægt að horfa fram hjá því, að svo er. Og það er ekki lengur hægt að taka þessa ofbeldismenn neinum vettlingatökum. Í stórborgum úti í heimi hefur tek- izt ótrúlega vel að hreinsa götur þeirra af ofbeldismönnum. Í því felst ekki að ráðin hafi verið bót á þeim þjóðfélagsmeinum, sem að baki liggja. Það er tímabært að stórauka lög- gæzlu á höfuðborgarsvæðinu. Það þýðir að ekki verður hjá því komizt að fjölga lögreglumönnum, sem eru á ferð. Fólk getur ekki lengur búið óhult í húsum sínum heldur verður hinn al- menni borgari að kaupa dýra þjón- ustu öryggisgæzlufyrirtækja, sem á að einhverju leyti að auka öryggi hans. Fyrir allmörgum árum fylgdumst við Íslendingar úr fjarlægð með um- ræðum í löndum beggja vegna Atl- antshafsins, sem gengu undir heitinu Lög og reglur. Þær snerust um það hvernig ætti að tryggja öryggi hins almenna borgara. Við skildum tæpast þessar umræður þá. Við skiljum þær nú. Umræður um öryggi hins almenna borgara gagnvart glæpalýð, sem læt- ur greipar sópa, eyðileggur eigur fólks og stofnar lífi þess í hættu, eru tímabærar. Svo vill til, að í vor fara fram kosningar til sveitarstjórna. Það er ástæða til að þessi málaflokk- ur verði tekinn á dagskrá í þessum umræðum og að kjósendur í hverju sveitarfélagi a.m.k. á höfuðborgar- svæðinu krefji stjórnmálaflokkana sagna um það, hvernig þeir ætla að tryggja öryggi almennra borgara í þessu þjóðfélagi. Árásin á friðsaman fjölskylduföð- ur, sem fór um hábjartan dag að keyra börn sín í skóla, sýnir að ekki verður lengur undan því vikizt að taka fast á þessum málum. SKJÖLDUR FYRIR BÖRN MEÐ GEÐRASKANIR Skóli fyrir börn og unglinga meðgeðraskanir var formlega tek- inn í notkun í Skjaldarvík í Hörg- árbyggð, skammt norðan Akureyr- ar, í fyrradag. Skólinn nefnist Skjöldur og er sérdeild við Hlíð- arskóla. Soffía Pálmadóttir og Erla Hilmisdóttir, kennarar við skólann, segja að þetta úrræði fyrir börn og ungmenni með geðraskanir sé nýj- ung. Aðdragandinn að stofnun Skjaldar sé sívaxandi vandi lang- veikra barna og unglinga með alvar- legar geð- og þroskaraskanir, sem átt hafi fá úrræði í skólakerfinu. Það er við hæfi að Skjöldur sé sérdeild við Hlíðarskóla vegna þess að þar eru við nám 15 drengir, sem flestir stríða við hegðunarerfiðleika. Rekstur og ráðgjöf vegna Skjaldar er á margra hendi og áhersla lögð á að vinna þvert á faggreinar og stofnanir. Að verkefninu standa Ak- ureyrarbær, Barna- og unglinga- geðdeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri og Heilsugæslustöðin á Akureyri ásamt Fjölskyldudeild bæjarins. Markmiðið er að skapa sérhæft og hnitmiðað nám og með- ferð þannig að nemendum líði vel, þeir þroskist og nái árangri í námi, eins og kemur fram í frétt í Morg- unblaðinu í gær. Lögð er áhersla á þátttöku foreldra í starfi Skjaldar og hefur hver nemandi sinn umsjón- arkennara. Mest verða fimm nem- endur í skólanum. Skólastarfið verður fjölbreytt og munu nemendur eiga þess kost að hugsa um dýr, stunda útivist á borð við siglingar og náttúruskoðun og leggja stund á skógrækt þannig að þeir gefi gaum að umhverfi sínu og læri af því. Akureyrarbær hefur lagt sérstaka áherslu á að efla þjónustu við fatl- aða frá því að hann gerði samning þar að lútandi við félagsmálaráðu- neytið árið 1997. Þar hefur verið lögð áhersla á búsetu fjölfatlaðra og haft að leiðarljósi að fólk með fötlun eigi að geta valið sér búsetuform líkt og aðrir borgarar. Sú uppbygg- ingarstarfsemi, sem farið hefur fram á Akureyri, er merkileg. Skjöldur er hluti af þessari viðleitni til að leyfa hverjum einstaklingi að blómstra. Skóli á borð við Skjöld er mikilvægur, enda er brýnt að börn með alvarlegar geðraskanir fái tækifæri og verði ekki fórnarlömb úrræðaleysis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.