Morgunblaðið - 11.03.2006, Síða 45

Morgunblaðið - 11.03.2006, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MARS 2006 45 UMRÆÐAN OPIÐ HÚS Á DREKAVÖLLUM 18, HAFNARFIRÐI LAUGARDAG OG SUNNUDAG KL.13-17 Kíktu í heimsókn til okkar á Drekavöllum 18 í dag frá kl. 13-17. Sölumenn verða á staðnum. Tvær glæsilegar fullbúnar sýningar íbúðir. Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is Magnús Emilsson, löggiltur fasteignasali Komdu og skoðaðu fallegar og vandaðar íbúðir í glæsilegu 9 hæða lyftuhúsi. MARGIR hafa tekið eftir og furðað sig á stólpum sem eru ut- aná Kjarvalsstöðum. Varla er hægt að segja að óprýði sé að þeim en margir hafa spáð í tilgang þeirra. Því skal segja hér sögu á fárra vit- orði og senn gleymd. Hannes Davíðsson var góður arkitekt en einþykkur og þver. Þessir stólpar eru sorglegar leyfar af þeirri ágætu hug- mynd hans að láta steinsteypta gálga halda uppi þakinu. Húsið hefði fengið það sviflétta yf- irbragð sem gjarnan einkennir hengibrýr. Þetta mátti sjá á þeim módelum sem hann lét smíða og eru hugsanlega enn til. En mikilúðlegir fjár- haldsmenn taka oftar en ekki nota- gildi og sparnað fram yfir feg- urðina. Og Hannes átti bara tvo kosti – að beygja sig eða ganga frá verki. Nauðugur kaus hann fyrri kostinn. Af þrákelkni hélt hann sorglegum leyfum af hinni upp- runalegu hugmynd, veggbitunum utan á húsinu, sem vekja oft at- hygli, stundum undrun. Og ekki brást honum hugarflugið. Hann ákvað að stjórna flæði ljóssins eins og pípulagningarmaður stjórnar vatnsrennsli. Og upp komu þessir hræðilegu ljósakassar í loftinu, sem hann hafði tröllatrú á. Á þak- inu voru fjöldi glerkúfla sem hleyptu inn því fegursta ofanljósi sem hugsast gat, en eru nú bara blind augu. Hæð sal- anna var í kórréttum hlutföllum við gólfflöt. Nú eru salirnir rúnir tign sinni. Myndlista- og handíðaskóli Ís- lands fékk að halda skólasýningu í vest- ursal meðan húsið var í smíðum og var það einhver besta umgerð um sýningu sem ég hef séð, einstaka sól- argeisli kyssti norð- urvegg af glettni sinni, en það kom ekki að sök. Teóríur Hannesar hrundu eins og spila- borg. Þegar kveikt var á ljósunum í fyrsta sinn, 40 þúsund vött, varð hitinn í húsinu eins og í helvíti og síð- an þá hefur verið keyrt á hálfum dampi, 20 þúsund vött. Og dagsljósið grætur. Það væri Guðsþakkarvert að rífa þetta drasl niður, svo að birtan geti hætt að gráta. En hver verða þá við- brögð erfingja Hannesar? Þetta er ekki fyrsta né seinasta dellan í ís- lenskri byggingarlist. Kotríkið blífur. Mér fannst ég þurfa að koma þessu frá mér, senn er eng- inn á lífi til frásagnar. Og dagsljósið grætur Kjartan Guðjónsson fjallar um Kjarvalsstaði Kjartan Guðjónsson ’Þetta er ekkifyrsta né sein- asta dellan í ís- lenskri bygging- arlist. ‘ Höfundur er listmálari. UMRÆÐAN um stóriðjustefnu ríkisstjórnarinnar hefur vakið áhuga minn. Ég hef fylgst með rökræðum fulltrúa mismunandi fylkinga og blaðri þeirra um hvaða hagsmuni ber að verja og upphefja án þess að heyra sannfærandi niðurstöðu. Ástæðan fyrir þessu ósamsætti er sú að menn eru að bera saman mjög ólík gildi. Annars vegar er lögð áhersla á fag- urfræðilegt gildismat þar sem rökin snúast aðallega um að við eig- um ekki, af siðferðileg- um ástæðum, að eyði- leggja landið okkar og hins vegar eru það fjár- hagsleg hagsmunasjón- armið sem liggja að baki. Sem heimspeki- menntaður maður (m.a. í umhverfissiðfræði) er það mín nið- urstaða að fjárhagslegur ávinningur sé ekki nægjanlegur til þess að rétt- læta byggingu stóriðju á Íslandi en samt sem áður er ég hræddur um að þegar kemur að viðhorfi almennings muni fagurfræðilegu rökin tapa mætti sínum fyrir hugmyndum um auðveldan skyndigróða. Þessar vangaveltur mínar valda mér hugarangri og því langar mig að reyna að hafa áhrif á lesendur með því að gagnrýna ríkjandi stefnu (við- horf) ríkisstjórnarinnar þegar kemur að stóriðju. Til þess hef ég kosið að nota líkindamál sem er einföld leið til að útskýra sjónarmið og oft bæði áhugaverð og árangursrík. Leiðin sem ég hef kosið er sú að líkja stór- iðjustefnu ríkisstjórnarinnar við hór- mang. Það er hvorki ólöglegt né siðlaust að stunda vændi á Íslandi, að selja ut- anaðkomandi aðilum aðgang að lík- ama sínum fyrir fjárhagslegan gróða, svo lengi sem það er ekki aðal- innkoma viðkomandi. Þetta á einnig við um stóriðju. Ef Ísland væri mann- eskja væri hún (í þessu tilfelli) hóra og ríkisstjórnin væri hórmangarinn því það er enginn gildismunur á stór- iðjustefnu ríkisstjórn- arinnar og hórmangi. Stóriðjustefna rík- isstjórnarinnar beinist að því að selja ut- anaðkomandi aðilum aðgang að náttúru Ís- lands til að misnota hana og eyðileggja. Vissulega eru til hórur sem lifa góðu lífi því þær hafa, á stuttu lífs- skeiði sínu, nóg að gera og græða mikinn pen- ing. Þær „hafa það gott“ svo lengi sem nóga vinnu er að fá og þær hafa lík- amlega burði til að sinna þeirri vinnu. Svo er það náttúrulega viðskiptavin- urinn sem er fylgjandi vændi því hann hefur af því bæði gagn og gam- an. En við vitum öll að lífið snýst ekki bara um (fjárhagslega) hagsmuni heldur líka viðhorf. Hvaða hóra myndi stolt segja börnum sínum frá því að hún hefði nú einu sinni verið hóra? Réttlætir það athöfn við- skiptavinarins að misnota ástand ein- hvers svo lengi sem viðkomandi hafi grætt sæmilega á því? Eigum við Ís- lendingar að selja líkama okkar fyrir skyndigróða? Það er óumdeilanlegt að með uppsetningu fleiri álvera munum við auka þjóðartekjur okkar en fyrir hvað viljum við standa? Er- um við virkilega í svo slæmri stöðu að við neyðumst til að yfirgefa sæmd okkar og fórna líkama okkar fyrir skjótan fjárhagslegan ávinning? Er ekki alltaf annar möguleiki? (Nýjasta dæmið um það er útrás stórbankanna og gífurlegar skattgreiðslur þeirra inn í þjóðarbúið.) Þetta er mitt viðhorf og þó svo að ég sé að nota einfalt líkindamál því til stuðnings finnst mér vera mikið í húfi. Ég er ekki endilega að græta landspildurnar sem hverfa á flot vegna stíflugerðar heldur finnst mér miður að tilheyra þriðjaheimsríkj- andi hugsunargangi svokallaðra leið- toga minna sem tilneyða mig í að- stöðu sem einkennist af skammsýni og undirgefni. Ég vil ekki að sérstaða mín sem Íslendings einkennist af misnotkun og vanvirðingu þegar ég veit að styrkur þjóðar minnar hefur upp á mun meira merkilegra að bjóða. Íslendingar eru stolt þjóð og eru vel búnir til að sýna öðrum þjóðum gott fordæmi. Forfeður okkar voru sterkir og hugrakkir menn og konur sem stóðu fyrir sjálfstæði og dug og létu hvergi bilbug á sér finna þótt harðnaði í ári. Við eigum að halda uppi heiðri þeirra með því að standa fast á skoðunum okkar og skilja eftir okkur arfleifð sem bæði við, forfeður okkar og afkomendur mega vera stoltir af. Við eigum ekki náttúruna, við erum hluti af henni! Sýnum nú hvers megnug við erum og höfum fordæmisleg áhrif á Íslandssöguna. Hættum að misbjóða líkama okkar. Stöðvum stóriðju! Er Ísland hóra? Ottó Tynes fjallar um stóriðju ’Sýnum nú hvers megn-ug við erum og höfum fordæmisleg áhrif á Ís- landssöguna. Hættum að misbjóða líkama okkar. Stöðvum stóriðju!‘ Ottó Tynes Höfundur er auglýsingaleikstjóri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.