Morgunblaðið - 11.03.2006, Side 56
56 LAUGARDAGUR 11. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR Á MORGUN
ÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11, gítarleikari
Pétur Þór Benediktsson, organisti Kári Þor-
mar, prestur sr. Þórhildur Ólafs. Guðsþjón-
usta kl. 14, félagar úr kór Áskirkju syngja,
organisti Kári Þormar, prestur sr. Þórhildur
Ólafs. Kaffisala Safnaðarfélags Áskirkju í
efri safnaðarsal eftir guðsþjónustu.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Söngur, fræðsla, gleði. Foreldrar, afar
og ömmur hvött til þátttöku með börn-
unum. Guðsþjónusta kl. 14. Félagar úr Kór
Bústaðakirkju syngja. Organisti Guð-
mundur Sigurðsson. Kaffisopi eftir messu.
Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Sr. Hjálmar
Jónsson predikar. Dómkórinn syngur. Org-
anisti Marteinn H. Friðriksson. Einnig syng-
ur Skólakór Kársness undir stjórn Þór-
unnar Björnsdóttur. Tónlistin í messunni er
að mestu eftir Jón Nordal, í tilefni áttræð-
isafmælis hans nú í vikunni. Barnastarf á
kirkjuloftinu meðan á messu stendur. Að
messu lokinni er fundur í safnaðarfélaginu.
Þar mun Þorvaldur Friðriksson, sagnfræð-
ingur og fréttamaður, flytja erindi um „kelt-
nesk áhrif á íslensku“.
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11 í
umsjá Jóhönnu Sesselju Erludóttur (Lellu)
og unglinga úr kirkjustarfinu. Guðsþjónusta
kl. 11. Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Org-
anisti Árni Arinbjarnarson. Samskot til
ABC-barnahjálpar. Molasopi að lokinni
guðsþjónustu. Ólafur Jóhannsson.
GRUND DVALAR- OG HJÚKRUNARHEIM-
ILI: Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Kjartan
Ólafsson. Sr. Hjálmar Jónsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Fræðslumorgunn kl.
10. Er kirkjan á undanhaldi? Steinunn Arn-
þrúður Björnsdóttir, verkefnisstjóri á Bisk-
upsstofu. Messa og barnastarf kl. 11. Sr.
Sigurður Pálsson predikar og þjónar fyrir
altari. Barnastarfið er í umsjá Magneu
Sverrisdóttur djákna. Hópur úr Mótettukór
Hallgrímskirkju syngur. Organisti er Hörður
Áskelsson. Kaffisopi eftir messu. Klassísk
messa kl. 20 á vegum Lux Aeterna, áhuga-
hóps um klassíska messu og iðkun greg-
orssöngs. Prestur sr. Sigurður Pálsson.
Kynning og æfing fyrir messuna hefst kl.
19.30.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa og barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Douglas A.
Brotchie. Umsjón með barnaguðsþjón-
ustu: Erla Guðrún Arnmundardóttir, Þóra
Marteinsdóttir og Annika Neumann. Léttar
veitingar eftir messu. Sr. Helga Soffía Kon-
ráðsdóttir.
LANDSPÍTALI HÁSKÓLASJÚKRAHÚS:
Guðsþjónusta kl. 14 á Landspítala Landa-
koti. Sr. Vigfús Bjarni Albertsson, organisti
Birgir Ás Guðmundsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Messa og barnastarf kl. 11. Grad-
ualekór Langholtskirkju syngur. Prestur sr.
Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Jón Stef-
ánsson. Messunni er útvarpað. Barna-
starfið verður í safnaðarheimilinu undir
stjórn Rutar, Steinunnar og Arnórs. Kaffi-
sopi eftir messuna.
LAUGARNESKIRKJA: Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Kór Laugarneskirkju syng-
ur undir stjórn Gunnars Gunnarssonar org-
anista. Sigurbjörn Þorkelsson
framkvæmdastjóri og meðhjálpari safn-
aðarins þjónar ásamt fulltrúum lesarahóps
sem flytja texta dagsins. Sunnudagaskól-
ann annast sr. Hildur Eir Bolladóttir, Þor-
valdur Þorvaldsson og Heimir Haraldsson.
Messukaffi. Kvöldmessa kl. 20.30. Sr.
Hildur Eir Bolladóttir þjónar við sína fyrstu
messu. Kór Laugarneskirkju syngur við
undirleik djasskvartetts Gunnars Gunn-
arssonar. Sigurbjörn Þorkelsson er með-
hjálpari. Messukaffi Gunnhildar Ein-
arsdóttur kirkjuvarðar bíður svo allra að
messu lokinni.
NESKIRKJA: Messa og barnastarf kl. 11.
Kór Neskirkju leiðir safnaðarsöng. Org-
anisti Steingrímur Þórhallsson. Sr. Halldór
Reynisson predikar og þjónar fyrir altari.
Börnin byrja í kirkjunni en fara síðan í safn-
aðarheimilið. Eftir messu er boðið upp á
kaffi á Torginu.
SELTJARNARNESKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Kammerkór Seltjarnarneskirkju
syngur. Organisti. Pavel Manasek. Sr. Sig-
urður Grétar Helgason. Sunnudagaskóli á
sama tíma. Minnum á æskulýðsfélagið kl.
20.Velkomin.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Fjölskyldumessa
kl. 14. Að henni lokinni verður kaffisala
kvenfélagsins til ágóða fyrir Bjargarsjóð,
líknarsjóð safnaðarins. Munu kvenfélags-
konurnar reiða fram margs konar kræs-
ingar, sem verða til áts eftir fjöl-
skyldumessuna. Er í messunni
sérstaklega höfðað til barna og unglinga,
en allir eru vitaskuld velkomnir í þessa fjöl-
skylduguðsþjónustu.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Barnaguðsþjón-
usta kl. 14. Við fáum leikritið „Við Guð er-
um vinir“ inn í stundina. Helgisaga verður
sögð, við syngjum saman, biðjum og gef-
um öndunum brauð í lokin. Umsjón með
stundinni er í höndum Ásu Bjarkar Ólafs-
dóttur Fríkirkjuprests.
ÁRBÆJARKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Rebbi refur og Gulla gæs koma
og uppfræðast af börnunum. Mikill söngur
og gleði. Kaffi, ávaxtasafi og meðlæti á eft-
ir í safnaðarheimilinu.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Messa kl. 11. Prest-
ur sr. Gísli Jónasson. Organisti Keith Reed.
Barnaguðsþjónusta á sama tíma í umsjón
Jóhanns, Sólveigar og Þóru Jennýjar. Léttar
veitingar eftir messuna í safnaðarheimili.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl 11. Prestur
sr. Gunnar Sigurjónsson. Organisti Kjartan
Sigurjónsson. Kór Digraneskirkju, B-hópur.
Sunnudagaskóli á sama tíma í kapellu á
neðri hæð. Súpa í safnaðarsal eftir messu.
Kvöldmessa með Þorvaldi Halldórssyni kl.
20. www.digraneskirkja.is.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta
með altarisgöngu kl. 11. Prestur sr. Svavar
Stefánsson. Kór kirkjunnar leiðir safn-
aðarsöng og organisti er Lenka Mateova.
Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Sig-
ríðar R. Tryggvadóttur. Eftir messuna er
boðið upp á kaffi, djús og kex.
GRAFARHOLTSSÓKN: Sunnudagaskóli í
Ingunnarskóla kl. 11, Astrid, Björn Tómas
og séra Sigríður sjá um stundina, Messa í
Þórðarsveig 3 kl. 14. Séra Sigríður Guð-
marsdóttir messar, hljóðfæraleik annast
Þorvaldur Halldórsson.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Séra Bjarni Þór Bjarnason, séra Ágúst
Sigurðsson, fyrrverandi prófastur, og séra
Sigfús Jón Árnason, fyrrverandi prófastur,
þjóna fyrir altari. Félagar úr Kvennakór
Reykjavíkur syngja undir stjórn Sigrúnar
Þorgeirsdóttur. Undirleikari: Vignir Þór Stef-
ánsson. Boðið upp á kaffi og kleinur að
messu lokinni. Barnaguðsþjónusta í Graf-
arvogskirkju kl. 11. Umsjón: Hjörtur og
Rúna. Undirleikari: Stefán Birkisson.
Barnaguðsþjónusta í Borgarholtsskóla kl.
11. Umsjón: Gummi og Tinna. Undirleikari:
Guðlaugur Viktorsson.
HJALLAKIRKJA: Passíumessa kl. 11. Sr.
Íris Kristjánsdóttir þjónar. Sálmar mess-
unnar valdir úr Passíusálmum Hallgríms
Péturssonar. Félagar úr kór kirkjunnar
syngja og leiða safnaðarsöng. Organisti
Jón Ólafur Sigurðsson. Barnaguðsþjónusta
kl. 13. Við minnum á bæna- og kyrrð-
arstund á þriðjudag kl. 18 og opið hús á
fimmtudag kl. 12. Sjá einnig á www.hjalla-
kirkja.is.
KÓPAVOGSKIRKJA: Messa kl. 11. Ferm-
ingarbörn og foreldrar eru hvött til þátttöku
en fundur verður með þeim í safnaðarheim-
ilinu Borgum að messu lokinni. Sr. Ægir Fr.
Sigurgeirsson predikar og þjónar fyrir altari
ásamt sr. Karli V. Matthíassyni. Kór Kópa-
vogskirkju syngur og leiðir safnaðarsöng.
Organisti Sigrún Steingrímsdóttir. Boðið
verður upp á hressingu að lokinni messu.
Barnastarf í kirkjunni kl. 12.30 í umsjón
Önnu Kristínar, Péturs Þórs og Sigríðar.
Bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl.
12.10.
LINDASÓKN í Kópavogi: Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli í Lindaskóla kl. 11. Kór
Lindakirkju leiðir safnaðarsöng undir stjórn
Hannesar Baldurssonar organista. Sr. Guð-
mundur Karl Brynjarsson þjónar. Kaffi,
djús, kex og spjall að lokinni guðsþjónustu.
Skoðið www.lindakirkja.is.
SELJAKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11.
Söngur, sögur, líf og fjör. Allir krakkar fá
myndir í myndamöppuna sína. Almenn
guðsþjónusta kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðs-
son predikar. Organisti Bjartur Logi Guðna-
son.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Morgunguð-
sþjónusta kl. 11. Friðrik Schram kennir um
efnið: Hvernig kenndi og læknaði Jesú?
Krakkakirkjan sýnir leikþáttinn Salomons-
dómur. Barnapössun fyrir 1–2 ára, sunnu-
dagaskóli fyrir 3–6 ára og Krakkakirkja í
Lofgjörðarlandi fyrir 7–13 ára. Samkoma
kl. 20 með mikilli lofgjörð, vitnisburðum og
fyrirbænum. Þáttur kirkjunnar, „Um trúna
og tilveruna“, sýndur á Ómega kl. 14.
BOÐUNARKIRKJAN, Hlíðasmára 9, Kóp:
Samkomur alla laugardaga kl. 11.00.
Bænastund alla miðvikudaga kl. 20.00.
Biblíufræðsla allan sólarhringinn í Útvarpi
Boðun FM 105,5. Allir alltaf velkomnir.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ: Sangur
og hugni í kvöld kl. 21. Kór av Strondum í
heimsókn. Samkoma á morgun kl. 20.30.
Kór av Strondum í heimsókn. Kaffi á eftir.
Allir velkomnir.
FRÍKIRKJAN KEFAS, Fagraþingi 2a: Sam-
koma kl. 14. Hreimur Garðarsson talar um
Orð Guðs. Lofgjörð og fyrirbænir. Barna-
starf á samkomutíma og kaffisala á eftir.
Allir velkomnir.
FÍLADELFÍA: English speaking service at
12.30 pm. Jeffrey Gilbert preaches. Eve-
ryone is welcome. Almenn samkoma kl.
16.30. Ræðum. Hafliði Kristinsson. Gosp-
elkór Fíladelfíu leiðir lofgjörð. Fyrirbænir í
lok samkomu. Allir velkomnir. Barnakirkja
meðan á samkomu stendur, öll börn frá 1–
12 ára velkomin. Hægt er að hlusta á
beina útsendingu á Lindinni fm 102,9 eða
horfa á www.gospel.is. Á Omega er sýnd
samkoma frá Fíladelfíu kl. 20. www.go-
spel.is.
KROSSINN: Almenn samkoma í Hlíða-
smára 5 kl. 16.30.
BETANÍA, Lynghálsi 3: Samkoma kl. 11
sunnudaga. Einnig samkomur kl. 19.30 á
föstudögum.
KIRKJA JESÚ KRISTS hinna síðari daga
heilögu, Mormónar, Ásabraut 2, Garða-
bæ: Guðsþjónusta sunnudag kl. 9 árdegis
á ensku og kl. 12 á hádegi á íslensku.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Reykjavík, Krists-
kirkja í Landakoti, dómkirkja og basilíka:
Sunnudaga: Messa kl. 10.30. Messa á
ensku kl. 18. Alla virka daga: Messa kl.
18. Tilbeiðslustund er haldin í Kristskirkju
á hverju fimmtudagskvöldi að messu lok-
inni, þ.e. frá kl. 18.30 til 19.15. Trú-
fræðsla barnanna fer fram á laugardögum
kl. 13. í Landakotsskóla. Barnamessan er
kl. 14 í Kristskirkju. Reykjavík, Mar-
íukirkja við Raufarsel: Sunnudaga: Messa
kl. 11. Laugardaga: Messa á ensku kl.
18.30. Virka daga: Messa kl. 18.30. Til-
beiðslustund á mánudögum frá kl. 19 til
20. Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl.
16. Miðvikudaga kl. 20. Hafnarfjörður, Jós-
efskirkja: Sunnudaga: Messa kl. 10.30
Alla virka daga: Messa kl. 18.30. Til-
beiðslustund á hverjum degi kl. 17.15.
Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa kl.
8.30. Virka daga: Messa kl. 8. Keflavík,
Barbörukapella: Skólavegi 38: Sunnu-
daga: Messa kl. 14. Stykkishólmur, Aust-
urgötu 7: Alla virka daga: Messa kl. 18.30.
Sunnudaga: Messa kl. 10. Ísafjörður:
Sunnudaga: Messa kl. 11. Flateyri: Laug-
ardaga: Messa kl. 18. Bolungarvík:
Sunnudaga kl. 16. Suðureyri: Sunnudaga:
Messa kl. 19. Akureyri, Kaþólska kirkjan:
Péturskirkja, Hrafnagilsstræti 2: Laug-
ardaga: Messa kl. 18. Sunnudaga: Messa
kl. 11. Tilbeiðslustund á hverjum föstudegi
kl. 17. og messa kl. 18.
KIRKJA SJÖUNDA DAGS AÐVENTISTA:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti 19, Reykja-
vík. Biblíufræðsla kl. 10.00. Guðþjónusta
kl. 11.00. Ræðumenn: Amigos-hópurinn.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði:
Guðþjónusta/Biblíufræðsla kl. 11.00.
Ræðumaður: Gavin Anthony. Safn-
aðarheimili aðventista, Gagnheiði 40, Sel-
fossi: Biblíufræðsla kl. 10.00. Guðþjón-
usta kl. 11.00. Ræðumaður: ungmenni.
Safnaðarheimili aðventista, Blikabraut 2,
Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðþjón-
usta kl. 11.00. Ræðumaður: Björgvin
Snorrason. Aðventkirkjan, Brekastíg 17,
Vestmannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10.00.
Guðsþjónusta kl. 11.00. Ræðumaður Eric
Guðmundsson.
BRAUTARHOLTSKIRKJA á Kjalarnesi:
Messa kl. 11. Stuttur fundur um ferming-
arnar með fermingarbörnum og foreldrum
þeirra eftir messu. Gunnar Kristjánsson
sóknarprestur.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Sunnu-
dagaskóli kl. 11 í Landakirkju. Gulur dagur
í sunnudagaskólanum, litur sólar, ljóss og
lífs. Biblíusaga, brúðuleikrit og barnasálm-
ar. Barnafræðarar og prestar kirkjunnar.
Kirkjuprakkarar hefja stund sína í sunnu-
dagaskólanum kl. 11 en ganga svo til dag-
skrár í fræðslustofu. Ingveldur og Vala. Kl.
12.30 TTT í fræðslustofu. Fer ekki að stytt-
ast í mót? Vala og Ingveldur. Messa í
Landakirkju kl. 14. Fermingarbörn lesa ritn-
ingarlestra. Frásagan af kanversku kon-
unni í Mattheusarguðspjalli er guðspjall
dagsins. Kór Landakirkju syngur undir
stjórn Guðmundar H. Guðjónssonar. Geng-
ið verður að borði Drottins. Prestur sr. Þor-
valdur Víðisson.
ÞINGVALLAKIRKJA: Messa kl. 14. Org-
anisti Guðmundur Vilhjálmsson, prestur
Kristján Valur Ingólfsson.
LÁGAFELLSKIRKJA: Messa kl. 11. Anna
Elísabet Gestsdóttir djáknanemi, sem ver-
ið hefur í starfsþjálfun hjá Þórdísi Ásgeirs-
dóttur, djákna safnaðarins, flytur hugvekju.
Kammerkór Mosfellsbæjar og barnakór úr
Lindaskóla leiða safnaðarsöng. Stjórn-
endur: Símon H. Ívarsson og Bragi Þór Vals-
son. Organisti: Jónas Þórir. Kirkjukaffi í
skrúðhússalnum. Sunnudagaskóli í Lága-
fellskirkju kl. 13.00 í umsjá Hreiðars Arnar
og Jónasar Þóris.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Sunnu-
dagaskólinn kl. 11. Skemmtileg stund fyrir
börn á öllum aldri. Guðsþjónusta kl. 13.
Rannveig Káradóttir og Ómar Guðjónsson
sjá um tónlistarflutning í léttum dúr.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Barnasamkoma
kl. 11. Umsjón hafa Sigríður Kristín, Hera
og Skarphéðinn. Kvöldvaka kl. 20. Umfjöll-
unarefni kvöldvökunnar er fastan. Kór og
hljómsveit kirkjunnar leiða tónlist í anda
föstunnar.
ÁSTJARNARKIRKJA: Barnaguðsþjónustur
í samkomusal Hauka á Ásvöllum á sunnu-
dögum kl. 11–12. Léttar veitingar og hlý-
legt samfélag eftir helgihaldið.
KÁLFATJARNARSÓKN: Kirkjuskóli í Tjarn-
arsal Stóru-Vogaskóla á sunnudögum kl.
11–12. Léttar veitingar og hlýlegt samfélag
eftir helgihaldið. Fjölskylduguðsþjónusta
með margvíslegum uppákomum í Tjarn-
arsal Stóru-Vogaskóla kl. 14. Börn fædd ár-
ið 2000 boðin sérstaklega velkomin og fá
bók að gjöf. Kirkjukaffi eftir helgihald.
VÍDALÍNSKIRKJA: Messa kl. 11. Messan
er liður í Vídalínshátíð. Rósa Dögg Æg-
isdóttir leikur á þverflautu. Arnar Jónsson
leikari bregður sér í hlutverk sr. Jóns Vídal-
íns og flytur kjarnyrt predikunarefni eftir
hann. Kór Vídalínskirkju leiðir safn-
aðarsönginn, en sálmalögin eru eftir sam-
tímamenn Vídalíns. Organisti Jóhann Bald-
vinsson. Sr. Friðrik J. Hjartar og Nanna
Guðrún Zoëga djákni þjóna. Sunnudaga-
skólinn er á sama tíma. Lionsmenn annast
veitingar í hádeginu í safnaðarheimilinu, en
aðalsafnaðarfundur Garðasóknar hefst þar
kl. 12.45. Sóknarbörn hvött til að mæta og
láta sig varða hag safnaðarins.
BESSASTAÐASÓKN: Sunnudagaskóli kl.
11 í sal Álftanesskóla. Umsjón: Kristjana,
Ásgeir Páll, Sara og Oddur. Foreldrar hvattir
til að koma með börnum sínum. Allir vel-
komnir!
GRINDAVÍKURKIRKJA: Barnastarfið kl.
11. Messa kl. 14. „Altarisganga“. Ferming-
arbörn og foreldrar sérstaklega hvött til að
koma. Sr. Hjörtur Hjartarson þjónar. Kór
Grindavíkurkirkju syngur. Organisti Örn
Falkner. Sóknarnefnd og sóknarprestur.
ÞORLÁKSKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11.
Sigþrúður, Julian og sr. Baldur. Messa kl.
14. Vænst er þátttöku fermingarbarna og
foreldra þeirra. Fermingarfræðsla kl. 13.
Sóknarprestur.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Messa og sunnu-
dagaskóli kl. 11 árd. Laufey Gísladóttir,
umsjónarmaður sunnudagaskólans, Sara
Valbergsdóttir, Sigríður H.Karlsdóttir, Víðir
Guðmundsson og Kristjana Kjartansdótt-
ir.Altarisganga. Prestur: Sr. Kjartan Jóns-
son. Kór Keflavíkurkirkju leiðir söng. Org-
anisti og stjórnandi: Hákon Leifsson.
Meðhjálpari: Helga Bjarnadóttir. Kaffi og
djús eftir messu.
NJARÐVÍKURKIRKJA: Sunnudagaskólinn
verður í Ytri-Njarðvíkurkirkju kl. 11. Börnum
ekið frá safnaðarheimili Njarðvíkurkirkju kl.
10.45. Baldur Rafn Sigurðsson sókn-
arprestur.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11 í umsjá Ástríðar Helgu Sigurð-
ardóttur, Natalíu Chow Hewlett, Arnars
Inga Tryggvasonar og sóknarprests. Kirkju-
trúðurinn mætir. Nemendur frá Tónlistar-
skóla Reykjanesbæjar koma fram. Barn
borið til skírnar.
HOFSÓS- OG HÓLAPRESTAKALL: Messa
kl. 14 í Hóladómkirkju ásamt altarisgöngu.
Dómkirkjukórinn leiðir safnaðarsönginn
undir stjórn Jóhanns Bjarnasonar org-
anista. Sr. Jón A. Baldvinsson vígslubiskup
þjónar fyrir altari og prédikar. Eigum saman
góða stund á góðum degi. Fermingarbörn
vetrarins eru boðin velkomin ásamt for-
eldrum sínum.Verið öll velkomin. Sókn-
arprestur
AKUREYRARKIRKJA: Hátíðarmessa kl.
14. Lok kirkjuviku. Sr. Sigurður Árni Þórð-
arson, prestur í Neskirkju, predikar. Sr.
Óskar H. Óskarsson, sr. Sólveig Halla
Kristjánsdóttir, sr. Guðmundur Guðmunds-
son og Valgerður Valgarðsdóttir djákni
þjóna fyrir altari. Kór Akureyrarkirkju syng-
ur. Organisti: Björn Steinar Sólbergsson.
Sunnudagaskóli í safnaðarheimili á sama
tíma. Vöfflukaffi eftir messu. Æðruleys-
ismessa kl. 20.30. Sr. Sólveig Halla Krist-
jánsdóttir og sr. Óskar H. Óskarsson. Arna
Valsdóttir, Eiríkur Bóasson og Stefán Ing-
ólfsson leiða söng og annast undirleik.
Kaffi að messu lokinni.
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Sunnu-
dagsskóli kl. 12. Almenn samkoma kl. 17.
Kafteinn Rannvá Olsen talar. Bæn kl.
16.30
LAUFÁSPRESTAKALL: Svalbarðskirkja:
Guðsþjónusta kl. 14.
LJÓSAVATNSPRESTAKALL: Þorgeirs-
kirkja: Kyrrðarstund kl. 20.30.
VÍKURKIRKJA í Mýrdal: Æskulýðs- og fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 14. Athugið að
þessi guðsþjónusta er jafnframt loka-
samvera Kirkjuskólans í Mýrdal í vetur. Kór
Víkurkirkju leiðir almennan söng undir
stjórn Kristínar Waage organista. Anna
Björnsdóttir leikur undir á gítar. Væntanleg
fermingarbörn og foreldrar sérstaklega
hvött til að mæta. Fjölmennum og eigum
saman skemmtilega stund í Víkurkirkju.
Sóknarprestur.
STÓRÓLFSHVOLSKIRKJA: Guðsþjónusta
og sunnudagaskóli kl. 11. Allir velkomnir.
Kirkjuhvoll: helgistund kl. 10.15
ODDAKIRKJA á Rangárvöllum: Guðsþjón-
usta kl. 11. Stúlknakórinn Hekla leiðir
sönginn. Organisti Nína María Morávek. Að
guðsþjónustu lokinni annast ferming-
arbörn vorsins um kirkjukaffi í safn-
aðarheimili Oddasóknar að Dynskálum 8 á
Hellu. Þar afhenda fulltrúar frá Rangárþingi
ytra og Orkuveitu Reykjavíkur fjárframlög í
hljóðfærasjóð safnaðarheimilisins. Gísli
Stefánsson tekur lagið við píanóundirleik
Nínu Morávek og Glódís Margrét Guð-
mundsdóttir, nemandi í píanóleik við Tón-
listarskóla Rangæinga, leikur á hljóðfærið.
Sóknarprestur.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa kl. 11.
Sóknarprestur.
BRÆÐRATUNGUKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 14. Félagar úr Skálholtskórnum leiða
sönginn. Sóknarprestur.
HAUKADALSKIRKJA: Kvöldguðsþjónusta
kl. 20.30. Félagar úr Skálholtskórnum
leiða sönginn. Aðalsafnaðarfundur verður
strax að messu lokinni. Sóknarprestur.
SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 11. Léttur há-
degisverður eftir athöfnina. Aðalsafn-
aðarfundur Selfosssóknar haldinn að lok-
inni messunni. Barna- og
fjölskyldusamkoma kl. 11.15. Eygló J.
Gunnarsdóttir djákni og Guðbjörg Arn-
ardóttir cand. theol. annast um stundina.
Sigfús Ólafsson leikur á píanó undir söngn-
um. Fermingarbörn og foreldrar þeirra sér-
staklega hvött til þess að koma. Kirkjuskóli
í Félagsmiðstöðinni við Tryggvagötu þriðju-
daginn 14. mars kl. 14. Foreldramorgunn
miðvikudaginn 15. mars kl. 11. Opið hús.
Hressing og spjall. Jónína Kristjánsdóttir
hjúkrunarfræðingur ræðir um höfuðmeiðsl
ungbarna eftir fall. Fundur í Æskulýðsfélagi
Selfosskirkju fimmtudaginn 16. mars kl.
19.30. Vorferðalag fermingarbarna í Skál-
holt þriðjudag og miðvikudag 14. og 15.
mars kl. 9. 8. GBG og 8. SIÞ fara á þriðju-
deginum, en 8. BA og 8. SÞ á miðvikudeg-
inum. Sr. Gunnar Björnsson.
HVERAGERÐISKIRKJA: Sunnudagaskóli
kl. 11. Heilsustofnun NLFÍ: Guðsþjónusta
kl. 11. Sóknarprestur.
VILLINGAHOLTSKIRKJA í Flóa: Guðsþjón-
usta kl. 13.30. Söngkór Hraungerði-
sprestakalls syngur undir stjórn Inga Heið-
mars Jónssonar. Vænst er þátttöku
fermingarbarna og aðstandenda þeirra. Sr.
Kristinn Á. Friðfinnsson.
Guðspjall dagsins:
Kanverska konan.
(Matt. 15.)
Sauðárkrókskirkja.