Morgunblaðið - 25.03.2006, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
LÆKKANIR Á MARKAÐI
Gengi krónunnar veiktist á mark-
aði í gær, auk þess sem lækkanir
einkenndu íslenskan hlutabréfa-
markað. Greiningardeildir skýrðu
lækkunina með fréttum af því að
bandarískir fjárfestar ætli ekki að
endurfjárfesta í skuldabréfum í
bönkunum.
Handtökur fordæmdar
Ráðamenn á Vesturlöndum for-
dæmdu í gær harkalegar aðgerðir
yfirvalda í Hvíta-Rússlandi gegn
mótmælendum og kröfðust þess að
þeir yrðu látnir lausir án tafar.
Stjórn Bandaríkjanna og leiðtogar
landa Evrópusambandsins sögðust
ætla að grípa til refsiaðgerða gegn
Alexander Lúkasjenkó forseta og
fleiri ráðamönnum í Hvíta-
Rússlandi. Meðal annars verður
þeim bannað að ferðast til landanna
og eignir þeirra verða frystar.
Langur biðtími hjá TR
Umboðsmaður Alþingis hefur
vakið athygli heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðherra á slæmri verkefn-
isstöðu Tryggingastofnunar ríkisins,
en ekki hefur fengist fé til að bæta
við starfsfólki.
Vill vísa klerkum úr landi
Bendt Bendtsen, efnahags-
málaráðherra Danmerkur, sagði í
gær að Danir ættu að íhuga að vísa
Ahmed Akkari og fleiri róttækum
múslímaklerkum úr landi. Akkari er
fæddur í Líbanon en er með dansk-
an ríkisborgararétt.
Geir hitti Lavrov
Geir H. Haarde utanríkisráðherra
hitti Sergei V. Lavrov, utanrík-
isráðherra Rússlands í gær. Ræddu
þeir m.a. varnarmál Íslands og
framboð Íslands til Öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna.
Y f i r l i t
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson,
fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is
Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H.
Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 33/39
Fréttaskýring 8 Bréf 39
Úr verinu 14 Minningar 40/46
Viðskipti 18/20 Kirkjustarf 47/49
Erlent 21/22 Myndasögur 52
Minn staður 23 Dagbók 54/57
Akureyri 24 Víkverji 54
Suðurnes 24 Velvakandi 55
Landið 26 Staður og stund 56
Árborg 26 Bíó 62/65
Daglegt líf 29/31 Ljósvakamiðlar 66
Menning 32, 58/59 Staksteinar 66
Forystugrein 34 Veður 67
* * *
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
vestra dæmdi í gær karlmann í sjö
mánaða fangelsi fyrir að bíta lög-
reglumann á Sauðárkróki til blóðs
á lögreglustöð þar í bæ fyrir þrem-
ur árum. Maðurinn var smitaður af
lifrarbólgu C og lét í veðri vaka að
hann væri líka HIV-smitaður sem
ekki var raunin. Lögreglumaðurinn
þurfti hins vegar að bíða í 10 mán-
uði eftir niðurstöðum lækna varð-
andi hugsanlegt smit.
Refsingu sína fékk ákærði fyrir
brot gegn valdstjórninni en einnig
var honum dæmdur hegningarauki
vegna fyrri brota sem var ódæmt
fyrir þegar hann beit lögreglu-
manninn. Á hinn bóginn var það
metið til refsilækkunar hversu
lengi tók að rannsaka málið en tvö
og hálft ár liðu frá brotinu til út-
gáfu ákæru.
Halldór Halldórsson dómstjóri
dæmdi málið. Verjandi var Hilmar
Ingimundarson hrl. og sækjandi
Sigríður J. Friðjónsdóttir, saksókn-
ari hjá ríkissaksóknara.
7 mánaða fangelsi
fyrir að bíta
lögregluþjón
DC-10 flugvél með 275 farþega inn-
anborðs frá flugfélaginu North-
western lenti skömmu fyrir klukk-
an sjö í gærkvöldi á
Keflavíkurflugvelli en viðvör-
unarljós í stjórnborði vélarinnar
gaf til kynna að eldur væri í farang-
ursrými. Ljósið slokknaði þó en
flugstjóri vélarinnar taldi öruggast
að kanna málið nánar og ákvað að
lenda vélinni en óskaði ekki eftir
viðbúnaði. Við nánari athugun kom
í ljós að einungis var um bilun að
ræða og um tíuleytið í gærkvöldi
hélt hún áfram leið sinni, en hún
var á leið frá Amsterdam til
Minneapolis.
Lenti á Kefla-
víkurflugvelli
vegna bilunar
ÞAÐ ríkti spenna í verkfræðideild
Háskóla Íslands þegar 75 nemar í
véla- og iðnaðarverkfræði efndu til
keppni í brúarbroti! Þessi keppni er
árlegur viðburður en að þessu sinni
var þátttakan mjög góð en 42 hópar
skiluðu inn tillögum.
Keppendur, sem allir eru á fyrsta
ári í verkfræði, áttu að hanna og
byggja létta og sterka brú úr balsa-
viði. Brúin átti að vera 50 cm breið
og mátti ekki vera þyngri en 70
grömm. Gerð var sú krafa til brúar-
innar að hún myndi þola 20 kg þrýst-
ing. Magnús Þór Jónsson prófessor
sagði að nemendur hefðu mátt nota
lím og tvinna við brúarsmíðina. 27
brýr hefðu staðist kröfur, þ.e. 15
brotnuðu áður en 20 kílóa þrýstingi
var náð.
Máni Arnarson og Ósk Hilm-
arsdóttir sigruðu í flokki léttustu
brúa, en þeirra brú, sem var 30,9
grömm að þyngd, brotnaði við 47,5
kg þrýsting. Í flokki þyngri brúa
sigruðu Eiður Ágústsson og Helgi
Sigurðarson, en þeirra brú var 48,2
grömm og brotnaði við 41,3 kg
þrýsting. Þá fengu Erna Guðríður
Benediktsdóttir og Valgerður Hall-
dórsdóttir verðlaun fyrir fallegustu
brúna, en það var einkum litavalið
sem þar réði úrslitum.
Morgunblaðið/ÞÖK
Nemendur voru einbeittir á svip þegar þeir bjuggu sig undir að brjóta brýrnar.
Máni og Ósk sigruðu í brúarbroti
LEIKFÉLAG Akureyrar frumsýndi í gærkvöldi
Litlu hryllingsbúðina. Leikkonurnar Ardís Ólöf Vík-
ingsdóttir, Vigdís Hrefna Pálsdóttir og Álfrún Örn-
ólfsdóttir voru í förðun fyrir sýninguna og eins og
búast mátti við var góð stemning á þessum loka-
mínútum fyrir sýninguna. Sást það berlega á andliti
Ester Talíu Casey sem stendur fyrir aftan þær stöll-
ur.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
LA frumsýnir Litlu hryllingsbúðina
HALLDÓR Ásgrímsson forsætisráð-
herra sagði aðspurður við fréttamenn
fyrir hádegi í gær að engin ástæða
væri til að hafa neinar sérstakar
áhyggjur af því að bandarískir sjóðir
væru að segja upp skuldabréfum sem
þeir hefðu keypt af íslensku viðskipta-
bönkunum fyrir andvirði á annan
milljarð Bandaríkjadala. „Ég hef rætt
þetta mál við bankana og þeir sjá ekki
ástæðu til annars en að þetta fari allt
saman vel. Það þýðir að vextirnir
munu ef til vill hækka eitthvað og
vextir hafa farið hækkandi, en ég tel
ekki ástæðu til að hafa neinar sér-
stakar áhyggjur af þessu.“
Inntur eftir því hvort ástæða væri
til að hafa áhyggjur af því að gengið
félli snöggt í kjölfarið kvað hann svo
ekki vera. „Gengið hefur fallið nokkuð
síðustu daga og það hefur verið að
leita jafnvægis. Hins vegar er því ekki
að leyna að þessi umræða sem hefur
átt sér stað er áhyggjuefni, vegna
þess að margt af því sem hefur komið
fram í henni er hreinlega rangt og
auðvitað leiðir allt þetta mál hugann
að því að það er erfitt að reka lítinn
gjaldmiðil á alþjóðamarkaði þegar al-
gjört frjálsræði er í peningastraum-
um. Það er umhugsunarefni fyrir
okkur Íslendinga og við þurfum að
draga af því ályktanir og lærdóm á
næstunni, þannig að það er vissulega
ástæða til að taka alla þessa umræðu
alvarlega.“
Engin ástæða til
að hafa áhyggjur
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is
ÞYRLUSVEIT Landhelgisgæslu Ís-
lands verður efld í tveimur áföng-
um, með nánu samstarfi við ná-
grannaþjóðir og leigu til
bráðabirgða á þyrlum, og síðar með
kaupum eða leigu á nýjum þyrlum.
Greindi Björn Bjarnason, dóms- og
kirkjumálaráðherra, frá þessu á
ríkisstjórnarfundi í gærmorgun.
Vegna þess þrönga tímaramma
sem Bandaríkjastjórn hefur sett við
brottflutning á orrustuþotunum
fjórum, og með þeim björg-
unarþyrlunum, segir Björn óhjá-
kvæmilegt að leysa verkefnið með
þessum hætti. Stefáni Eiríkssyni,
skrifstofustjóra í dóms- og kirkju-
málaráðuneytinu, hefur verið falið
að stýra starfinu á vegum ráðu-
neytisins í samráði við Georg Lár-
usson, forstjóra Landhelgisgæslu
Íslands, og samstarfsmenn hans.
Þar að auki hefur Leifur Magn-
ússon verkfræðingur tekið að sér
starf ráðgjafa dóms- og kirkju-
málaráðuneytis um þyrluval, sem
og í viðræðum við aðila, innlenda
sem erlenda.
Miðað er að því að tillögur um
bráðabirgðalausn liggi fyrir innan
þriggja vikna og tillögur um fram-
tíðarskipulag ættu að liggja fyrir
innan tveggja mánaða. Í kjölfarið
mun ráðherra leggja málið fyrir
ríkisstjórn.
Þyrlusveitin efld í
tveimur áföngum