Morgunblaðið - 25.03.2006, Side 4
4 LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÍSLENSKIR jeppamenn í Hinu
mikla heimskautafélagi, sem tókust
á hendur tröllaukinn leiðangur um
norðurslóðir Kanada í febrúar, hafa
nú lagt að baki nærri þriðjung leiðar
sinnar sem nær frá Yelloknife í
North West Territories, norðan við
Alberta-fylki, til Gimli.
Ekki er farin stysta leið því ekið
er norður að Beufort hafi og austur
að Cambridge flóa áður en stefnan
er tekin suður á bóginn niður að
Gimli. Leiðin er um 6.200 kílómetrar
og er ekið utan vega að mestu leyti.
Svefnaðstaða er í jeppunum og verð-
ur m.a. ekið um ísbjarnarslóðir og
reynt að verjast fimbulkuldum á
leiðinni.
Leiðangursmenn eru sex, Frið-
þjófur Helgason, Halldór Sveinsson,
Kristján Kristjánsson, Karl Rútsson,
og Ómar Friðþjófsson leiðang-
ursstjóri. Farið er á þrem sér-
útbúnum jeppum og er eitt mark-
miðið með ferðinni að vekja athygli
á hluta þess landsvæðis sem Vil-
hjálmur Stefánsson landkönnuður
fór um á sinni tíð.
Mikil snjóblinda
Í dagbók leiðangursins á netinu
sagði í fyrradag að gríðarleg snjó-
blinda hefði sett sitt mark á daginn
en skyggnið batnaði þegar frá leið.
Nýr þátttakandi í leiðangrinum er
kominn um borð, sleðahundur nokk-
ur sem varð á vegi þeirra. Hefur
hann fengið nafnið Blueberry og vill
helst pylsur í hvert mál.
Hið mikla heimskautafélag er fé-
lag áhugamanna um ferðir um norð-
urslóðir, sérstaklega þar sem fáfarið
er og vill félagið stuðla að nánari
samskiptum íbúa norðursins.
Leiðangurinn kostar 36 milljónir
króna og er styrktur af fyrirtækjum
og stofnunum.
Morgunblaðið náði í gærkvöldi
tali af Kristjáni Kristjánssyni, einum
leiðangursmanna, þegar stutt var í
bæinn Coppermine. Hann sagði að
ferðin hefði gengið vel fyrir utan
smábilanir en að öðru leyti áfalla-
laust. Veðrið hefði verið frábært,
heiðskírt og sól næstum alla leiðina
fyrir utan snjóbyl á leið norður frá
Montreal, og höfðu þeir félagarnir
verið að aðstoða fólk á illa búnum
bílum við þjóðveginn. Kristján sagði
að bílarnir hefðu vakið mikla athygli
í Kanada og hefðu stærstu blöð
landsins fjallað um leiðangur þeirra
enda hefðu þeir farið margar slóðir
sem ekki hefðu verið farnar áður.
Jeppamenn á slóðum
Vilhjálms Stefánssonar
Jeppaleiðangurinn hefur vakið
mikla athygli í Kanada.
LEIKSKÓLINN Laufskálar í
Grafarvogi fagnar 10 ára af-
mæli sínu í dag og verður gest-
um boðið til mikillar veislu á
milli kl. 11:00 og 13:00. Þar
munu meðal annars kór leik-
skólabarna syngja vel valin lög
auk þess sem nemendur munu
sýna vinnu sína. Þegar ljós-
myndara Morgunblaðsins bar að
garði í gær voru krakkarnir á
leikskólanum að æfa afmæl-
issönginn og eins og sjá má
skemmtu þau sér konunglega
við þá iðju og má búast við
miklu fjöru í afmælinu í dag.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Fjör á leikskólanum Laufskálum.
Kór leikskólans Laufskála æfir afmælissönginn.
Fagna tíu ára
afmæli Laufskála
UNDIRBÚNINGUR að gerð nýs
fjölmiðlafrumvarps er á lokastigi,
að því er fram kom í máli Þorgerð-
ar K. Gunnarsdóttur menntamála-
ráðherra eftir ríkisstjórnarfund í
gær. „Ég sé frekar fram á að þess-
ari vinnu ljúki á allra næstu dög-
um,“ sagði ráðherrann í samtali við
fréttamenn. Hún vildi ekki kveða
upp úr um það hvenær hún myndi
leggja nýtt fjölmiðlafrumvarp fram
á Alþingi. Aðalatriðið væri að
leggja fram frumvarp sem sátt væri um, stæðist tím-
ans tönn og efldi og yki fjölbreytni á fjölmiðlamarkaði.
„Ég tel mikilvægt að hafa gott samráð við alla
stjórnmálaflokkana og það er verið að funda þessa
dagana. Þegar menn eru búnir að því og fara yfir málið
geri ég ráð fyrir að ég muni leggja fram nýtt fjölmiðla-
frumvarp, það fer allt eftir því hvernig þessi vinna
næstu daga kemur til með að ganga.“
Menntamálaráðherra skipaði lögfræðinga og fjöl-
miðlafræðing, fyrr á þessu ári til að smíða frumvarpið.
Þeir hafa haft samráð við fulltrúa allra þingflokka og
fleiri aðila. Ráðherra sagði í gær að frumvarpið yrði
byggt á skýrslu fjölmiðlanefndarinnar frá liðnu vori.
Undirbúningur
á lokastigi
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
Nýtt fjölmiðlafrumvarp
AÐGENGI að salernum fyrir fatl-
aða er víða slæmt á veitingahús-
um. Einnig hefur borið á því að
salernin séu læst og þau notuð
sem geymslur.
Sigurður Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Sjálfsbjargar, lands-
sambands fatlaðra, segir að mjög
algengt sé að fatlaðir lendi í vand-
ræðum með að komast á salernið á
veitingastöðum og öðrum opinber-
um stöðum. Að sögn Sigurðar er
eins og þessi salerni virðist ekki
skipta menn neinu máli nema þeg-
ar von sé á hópum sem þeir vita af
fyrirfram, þá séu salernin rudd.
„Svo þegar fólk kemur eitt og sér
þá eru salernin full af drasli, notuð
sem geymslur og jafnvel læst,“
segir Sigurður.
Erna Hauksdóttir, fram-
kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón-
ustunnar, sagði að ef rétt væri að
staðan væri sú að aðgengi væri
víða slæmt bæri að harma það.
Hún sagði að Samtök ferðaþjón-
ustunnar væru í samstarfi við Ör-
yrkjabandalag Íslands, Ferða-
málastofu, Ferðamálasamtök
Íslands og Ferðaþjónustu bænda
um að fara að vinna að aðgeng-
ismálum fyrir fatlaða. „Við héldum
ráðstefnu fyrir stuttu þar sem far-
ið var yfir öll þessi mál. Þetta er
gríðarlega mikilvægt mál sem
Samtök ferðaþjónustunnar leggja
mikla áherslu á og þær stofnanir
sem við vinnum með,“ sagði Erna.
Markmiðið hjá Samtökum ferða-
þjónustunnar er að hvetja fyrir-
tæki til að vera með aðgengi í lagi
og koma svo upplýsingum um þá
staði sem eru með gott aðgengi til
ferðamanna og annarra.
Að sögn Ernu sitja Samtök
ferðaþjónustunnar þessa dagana
fundi með fulltrúum stjórnvalda til
þess að sjá á hvaða leið lög og
reglur um þessi mál eru hjá hinu
opinbera.
Aðgengi að
salernum
fyrir fatlaða
víða slæmt
Eftir Lilju Björk Hauksdóttur,
meistaranema í blaða- og fréttamennsku
JÓN Kristjánsson félags-
málaráðherra sagði við frétta-
menn eftir ríkisstjórnarfund í
gær að nýtt álit umboðs-
manns Alþingis um skipun í
embætti ráðuneytisstjóra
myndi ekki hafa áhrif á þá
ráðningu sem þar væri fjallað
um, þ.e. ráðningu Ragnhildar
Arnljótsdóttur í starf ráðu-
neytisstjóra í félagsmálaráðu-
neytinu. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra
tók í sama streng.
Jón sagði hins vegar að álit umboðsmannsins
væri að sjálfsögðu leiðbeinandi um það hvernig að
svona ráðningum yrði staðið í framtíðinni.
Í áliti sínu komst umboðsmaður m.a. að þeirri
niðurstöðu að þáverandi félagsmálaráðherra,
Árni Magnússon, hefði ekki sýnt fram á að
ákvörðun hans um að skipa Ragnhildi í starfið
hefði uppfyllt þær kröfur sem leiddi af almennum
grundvallarreglum í stjórnsýslurétti um undir-
búning stöðuveitingar og mati á hæfni umsækj-
enda.
Halldór Ásgrímsson sagði að umboðsmaður Al-
þingis hefði fyrst og fremst gert athugasemdir við
rökstuðning ráðningar Ragnhildar, en ekki ráðn-
inguna sem slíka „enda hef ég litið þannig á að
það séu fyrst og fremst ráðherrarnir sem þurfa að
endingu að ráða því hverjir taka við starfi ráðu-
neytisstjóra. Þannig hefur það alltaf verið. Ég er
búinn að gegna ýmsum ráðherraembættum og
hef staðið að ráðningu ráðuneytisstjóra. Það er
afskaplega mikilvægt að viðkomandi ráðherra
hafi mest um það að segja í öllum þeim tilvikum
þar sem yfirmenn eru ráðnir,“ sagði hann.
Halldór sagði að upp úr stæði að ráðningin
hefði átt sér stað og að viðkomandi einstaklingur,
þ.e. Ragnhildur, hefði staðið sig mjög vel í emb-
ætti ráðuneytisstjóra. Hann vissi ekki til þess að
nokkur maður hefði gert athugasemdir við henn-
ar ágætu störf.
Félagsmálaráðherra um álit Umboðsmanns Alþingis
Hefur ekki áhrif
á ráðninguna
Jón Kristjánsson