Morgunblaðið - 25.03.2006, Page 11

Morgunblaðið - 25.03.2006, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 11 FRÉTTIR fimmtudag, föstudag og laugardag Opið til kl. 16 laugardag FERÐATÖSKUDAGAR Stærsta töskuverslun landsins Skólavörðustíg 7, Rvík, sími 551 5814 Góðar fermingargjafir 20%afsláttur afferðatöskum STJÓRNARFUNDUR hjá Hitaveitu Suðurnesja var haldinn í gærdag en þar var farið yfir stöðuna sem upp er kominn í samskiptum hitaveitunnar við varnarliðið á Keflavíkurflugvelli. Hitaveita Suðurnesja sér Keflavíkur- flugvelli fyrir heitu vatni og rafmagni en óljóst er hver afdrif samningsins um vatnsveituna verða. Í honum er kveðið á um að varn- arliðið kaupi heitt vatn um ótilgreind- an tíma og geti ekki skorið kaupin nið- ur nema um 4% á ári. Var samningurinn gerður árið 1998 við Bandaríkjastjórn og mátu yfirmenn hitaveitunnar varnarliðið sem ótrygg- an viðskiptavin sem hætt gæti kaup- um fyrirvaralaust og kröfðust því að samningurinn yrði um ótilgreindan tíma og semja þarf um samningslok hans. Bandaríkjamenn hafa minnkað kaupin um 22% frá upphafi samnings- tímans árið 1999 en hefðu í raun getað skorið niður um rúmt 31%. Júlíus Jónsson, forstjóri hitaveit- unnar, segir þá hafa lækkað minna til að byrja með en eftir að tilkynning kom um brottflutning árið 2003 hafa þeir nær nýtt sér ákvæðið til fulln- ustu. Samningur varnarliðsins og hitaveitunnar um rafmagnsveitu er hins vegar í gegnum ríkið og frá- brugðinn, því þar er aðeins getið um þriggja mánaða uppsagnarfrest. 25 ára samstarf Júlíus sagði eftir fundinn að þar hefði mönnum aðallega verið gerð grein fyrir stöðunni og hvernig samn- ingar standa. Hann segir forsendur vanta svo hægt sé að taka ákvarðanir um framhaldið og bindur vonir við að málin komist á hreint í varnarviðræð- unum í lok mánaðarins. „Það er von- andi að stjórnvöld fái á hreint hvað Bandaríkjamenn ætla að gera en þeir hafa ekki sagt neitt við okkur. Það verður að fá það á hreint að þeir virði alla samninga sem gerðir voru á Ís- landi,“ segir Júlíus. Varnarliðið og Hitaveita Suður- nesja hafa verið í samstarfi í 25 ár og þykir forstjóranum mikilvægt að því verði slitið með sóma en varnarliðið er stærsti einstaki kaupandinn að heitu vatni hjá hitaveitunni. Stjórnarfundur í Hitaveitu Suðurnesja vegna samnings við Varnarliðið Ótímabundinn samningur um vatn FRUMVARP til laga um fimm manna kjararáð í stað Kjaradóms og kjaranefndar var samþykkt á ríkisstjórnarfundi í gær. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra væntir þess að frumvarpið fari fljótt í gegnum þingið og verði af- greitt sem lög fyrir vorið. Frumvarpið byggir á tillögum nefndar, skipuð fulltrúum allra þingflokka, sem falið var að fara yfir lög um Kjaradóm og kjara- nefnd. Halldór sagði við frétta- menn eftir ríkisstjórnarfundinn í gær að hann teldi niðurstöðu nefndarinnar góða. Um eitt þúsund manns heyra undir Kjaradóm og kjaranefnd, þar á meðal forseti Íslands, þingmenn, ráðherrar, dómarar og ýmsir emb- ættismenn. Halldór sagði aðspurð- ur að ræddar hefðu verið hug- myndir um að fækka í þessum hópi, þannig að einhverjir þeirra gætu samið um sín kjör sjálfir. „En eftir ítarlegar viðræður við alla sem hafa átt aðild að Kjaradómi og kjaranefnd virðast allir sem þar hafa verið vilja vera þar áfram.“ Ekki yrðu því lagðar til breytingar í þessa veru þótt opnað væri fyrir þann möguleika í frumvarpinu. Í frumvarpinu verður gert ráð fyrir því að kjararáð taki mið af al- mennri þróun kjaramála á vinnu- markaði. Halldór sagði aðspurður að hann teldi að með því væri verið að ganga til móts við gagnrýni Al- þýðusambands Íslands. Hann sagði, í því sambandi, að í fyrr- greindri nefnd hefðu verið aðilar sem þekktu vel til vinnumarkaðar- ins og verkalýðsfélaganna. „Ég er viss um að þeir hafi lagt sitt af mörkum til að taka tillit til þeirra sjónarmiða sem hafa komið fram hjá ASÍ.“ Frumvarp um kjara- ráð verði afgreitt fyrir vorið ÓLAFUR Ragnar Grímsson forseti Íslands verður viðstadd- ur útför Lennarts Meri, fyrrum forseta Eistlands. Útför Lennarts Meri fer fram á morgun, sunnudag, og hefst kl. 12 að hádegi í Karli kirkjunni í höfuðborg Eist- lands, Tallin. Viðstaddur útför Lennart Meri Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.