Morgunblaðið - 25.03.2006, Side 14
14 LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
RÆTT var um niðurfellingu tolla
og afnám útflutningsálags á fersk-
an óunnin fisk frá íslandi á fundi
sjávarútvegsráðherra Íslands og
Bretlands nú í vikunni. Einnig var
fjallað um sjóræningjaveiðar og
hvalveiðar.
Einar K. Guðfinnsson sjávarút-
vegsráðherra átti í vikulokin fund í
Lundúnum með Ben Bradshaw,
sjávarútvegsráðherra Bretlands, í
kjölfar heimsóknar til helstu mark-
aðsfyrirtækja Íslendinga á sviði
sjávarútvegs, flutninga og mat-
vælaframleiðslu. Á fundi ráð-
herranna var farið yfir sameiginleg
hagsmunamál ríkjanna á vettvangi
sjávarútvegs og hvað betur má
fara, ekki hvað síst er snertir sam-
skipti Íslands og Evrópusam-
bandsins.
Meðal annars var rætt um tolla
sem Evrópusambandið leggur á
nokkrar íslenskar sjávarafurðir,
sem fluttar eru út til sam-
bandslandanna. Ben Bradshaw tók
vel í að liðsinna Íslendingum að fá
tollana fellda niður, gegn hugsan-
legu afnámi útflutningsálags á
ferskan óveginn fisk frá Íslandi.
Fiskimálanefnd Evrópusambands-
ins hittist í næstu viku í Brussel og
reiknar Bradshaw jafnvel með að
Bretar taki málið upp þá þegar.
Ráðherrarnir lýstu gagnkvæmri
ánægju með aðgerðir þjóðanna
tveggja gegn ólöglegum og óábyrg-
um veiðum, svokölluðum sjóræn-
ingjaveiðum. Bradshaw hvatti ís-
lensk stjórnvöld til að leggja
Bretum og fleiri þjóðum enn meira
lið í baráttunni og á breiðari
grunni en þegar er. Einar K. Guð-
finnsson greindi Bradshaw frá vís-
indaveiðum Íslendinga á hrefnu og
hvert verður framhald þeirra. Enn-
fremur gerði sjávarútvegsráðherra
grein fyrir bráðabirgðaniðurstöð-
um vísindarannsóknanna sem
kynntar voru í síðustu viku. Ben
Bradshaw lýsti afstöðu Breta til
hvalveiða og andstöðu sinni við
þær, en um leið áhuga á að kynna
sér niðurstöður vísindarannsókn-
anna betur.
Sjávarútvegsráðherra átti einnig
fund með Bill Wiggin skuggamála-
ráðherra Íhaldsflokksins í sjávar-
útvegsmálum, þar sem einnig var
farið yfir helstu hagsmunamálin
Lýsti Wiggin hrifningu sinni á ís-
lenskum sjávarútvegi, sem taka
ætti til fyrirmyndar. Að lokum hitti
sjávarútvegsráðherra nokkra þing-
menn sem láta sig sjávarútvegsmál
miklu varða og hafa sýnt málefnum
Íslands sérstakan áhuga.
Ræddu niðurfellingu tolla
og afnám útflutningsálags
Sjávarútvegsráðherra, Einar K. Guðfinnsson, fundar með
Ben Bradshaw, breskum starfsbróður sínum, í London
Starfsbræður Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra hitti starfs-
bróður sinn á Bretlandi, Ben Bradshaw, og ræddu þeir ýmisleg mál.
VERÐ á sjávarafurðum lækkaði
mikið í febrúarmánuði, eða um 2,6%
mælt í erlendri mynt (SDR). Til
samanburðar hækkaði afurðaverðið
um 1,8% í janúar. Þetta kemur fram
í tölum Hagstofunnar sem birtar
voru í gær. Afurðaverðið er enn hátt
mælt í erlendri mynt þrátt fyrir
lækkunina nú og er 4,5% hærra en
það var í febrúar í fyrra.
Afurðaverð mælt í íslenskum
krónum hækkaði um 0,8% í febrúar
frá mánuðinum á undan vegna veik-
ingar krónunnar. Afurðaverð í ís-
lenskum krónum hefur hækkað um
2,5% síðastliðið ár.
Morgunkorn Glitnis fjallaði um
þetta í gær. „Hagur sjávarútvegs-
fyrirtækjanna hefur vænkast veru-
lega undanfarnar vikur með veik-
ingu krónunnar. Gengisvísitala
krónunnar er nú í morgun um 123
stig en var að meðaltali 108,6 í
fyrra. Veikingin nú kemur talsvert
fyrr en við reiknuðum með. Fram-
legð í rekstri hjá sjávarútvegsfyr-
irtækjum mun batna samfara veik-
ingunni. Á móti kemur að
gengismunur af erlendum skuldum
verður mjög neikvæður á fyrsta
fjórðungi ef gengið breytist ekki frá
því sem nú er.
Sem dæmi um þróun afurðaverðs
lækkaði verð á sjófrystum botnfisk-
afurðum mælt í erlendri mynt um
1,1% í febrúar. Sjófrystar botnfisk-
afurðir eru nú 20,4% verðmeiri en í
febrúar í fyrra. Landfrystar botn-
fiskafurðir lækkuðu einnig í verði,
eða um 1% í febrúar, og er verð
þeirra 5,4% hærra en fyrir ári síðan.
Mjöl hækkaði hins vegar í verði, eða
um 4,1% á milli mánaða, og stendur
mjög hátt miðað við fyrri ár.“
Verð á fiskafurðum
lækkaði í febrúar
Lækkun á gengi krónunnar leiðir þó til
verðhækkunar í íslenskum krónum
VERIÐ
STANGVEIÐIFÉLAGIÐ Lax-á hefur gengið frá samn-
ingum um leigu á Svartá í Húnavatnssýslu til næstu fimm
ára, sem og samningi um öll fjögur veiðisvæði Blöndu.
Lax-á hefur haft neðstu þrjú svæðin á leigu en bætir nú
við því efsta. Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur haft
Svartá á leigu síðustu árin.
Að sögn vefmiðilsins votnogveidi.is var Svartá ekki í út-
boði heldur bauð Lax-á í ána á samningstíma SVFR og
svaraði SVFR með því að bjóða á móti, ekki bara í Svartá,
heldur í Blöndu að auki. Talsverð óánægja mun vera innan
stjórnar SVFR með lyktir mála, ekki aðeins yfir að hafa
misst Svartá, sem er rómuð fluguveiðiá, heldur einnig
hinu, að tilboði þeirra var aldrei svarað af hálfu stjórnar
veiðifélagsins.
Bjarni Júlíusson, formaður SVFR, sagði að vissulega
væri eftirsjá af Svartá. „Það þýðir hins vegar ekkert að
svekkja sig á þessum málalokum, heldur ætlum við hjá
SVFR einfaldlega að horfa fram á veginn og reyna að
finna ársvæði sem geta komið í stað Svartár.“ Hann bætti
síðan við að kannski væri kominn tími til að hagsmuna-
samtök í geiranum, Landssamband stangaveiðifélaga og
Landssamband veiðifélaga, komi að útboðs- og samninga-
málum og móti sameiginlega einhvers konar vinnureglur
sem sátt geti ríkt um.
SVFR hefur hins vegar náð samkomulagi um leigu á
efri hluta Haukadalsár í Dölum til næstu fimm ára. Renn-
ur áin í Haukadalsvatn, í henni veiðist sjóbleikja og stöku
lax, og hefur veiðin oft verið 600 til 900 fiskar. Veitt er á
tvær stangir og fylgir gott veiðihús.
Hefst netaveiði aftur í Borgarfirði?
Fyrr í vikunni fór fram á Alþingi fyrsta umræða um
nýtt lagafrumvarp landbúnaðarráðherra um lax- og sil-
ungsveiði. Eins og fram hefur komið í fréttum vilja margir
þingmenn sjá þá breytingu á 27. lið frumvarpsins að net-
veiði á laxi verði bönnuð, og hefur sjónum einkum verið
beint í því sambandi að Ölfusá/Hvítá. Á sama tíma hafa
netabændur og fulltrúar veiðifélaganna í bergvatnsánum í
Borgarfirði átt í viðræðum um framlengingu á samningum
sem hefur haldið netunum frá Hvítá í Borgarfirði síðustu
árin.
Sporður ehf., leigutaki Þverár/Kjarrár, reið á vaðið og
samdi við netabændur á dögunum. Samkvæmt heimildum
votnogveidi.is er um að ræða greiðslu upp á 16,5 milljónir,
auk vísitöluhækkana frá síðasta ári.
Í kjölfarið gerðu netabændur öðrum veiðifélögum tilboð
um áframhaldandi upptöku neta og byggðist tilboðið á
samkomulaginu við Sport ehf. Töldu margir að þar hefði
verið hoggið á hnútinn í viðræðunum, sem voru komnar í
strand. Tilboðinu var hins vegar hafnað og mun bilið milli
málsaðila vera breitt, og alls óljóst hver útkoman verður.
Nýir leigutakar að Brunná
Hópur sem kallar sig Hugdjarfa hefur gengið frá samn-
ingi um leigu Brunnár í Öxarfirði til næstu fimm ára.
Brunná er falleg og fjölbreytileg silungsveiðiá, kunn fyrir
vænar bleikjur og urriða í bland.
Að sögn Þorsteins Geirssonar hjá Smartkortum, sem er
í forsvari fyrir sexmenningana sem skipa hópinn, er ætlun
þeirra að fækka stöngum úr fjórum í þrjár og þá hafa þeir
keypt fallegt 90 fermetra veiðihús sem verður komið upp
nærri ánni í vor. Hingað til hefur ekkert veiðihús verið við
Brunná.
„Við ætlum að bæta aðstöðuna við ána, hún er svo sann-
arlega falleg fyrir en í samvinnu við veiðifélagið langar
okkur að byggja hana enn betur upp og gera dvöl veiði-
manna við hana enn notalegri,“ segir Þorsteinn. „Við vilj-
um að menn njóti þess að veiða í Brunná og klappi við-
kvæmri náttúrunni í stað þess að traðka á henni.“ Settur
verður kvóti á veiði í ánni og veitt og sleppt að mestu.
Frekari upplýsingar má fá í netfanginu thorsteinn-
@smartkort.is.
STANGVEIÐI
Lax-á leigir Svartá
og öll svæði Blöndu
Morgunblaðið/Einar Falur
Veiðimaður glímir við vænan tveggja ára lax í Blöndu.
veidar@mbl.is
KRAFA tveggja banka um að við-
skiptavinur sem ætlaði að skipta pen-
ingum í gjaldeyri þyrfti að gefa upp
kennitölu, samrýmist ekki
10. gr. laga nr. 77/2000 þar sem
fram kemur að öflun kennitölu er
óheimil þjóni hún ekki málefnalegum
tilgangi og sé nauðsynleg til að
tryggja örugga persónugreiningu.
Þetta kemur fram í nýlegu áliti Per-
sónuverndar.
Tilefni álitsins var kvörtun frá ein-
staklingi sem reynt hafði að skipta
peningum í gjaldeyri í tveimur bönk-
um en var þá beðinn um kennitölu
sína. Bankarnir töldu sér heimilt að
biðja ávallt um kennitölu gjaldeyris-
kaupenda og vísuðu einkum til skyldu
sinnar samkvæmt lögum um peninga-
þvætti til að kalla eftir skilríkjum við-
skiptavina.
Persónuvernd benti hins vegar á að
umrædd lagaákvæði mæla aðeins fyr-
ir um skyldu til að láta viðskiptavini
sanna á sér deili þegar viðskipti fara
fram úr tiltekinni upphæð eða ástæða
er til að ætla að þau tengist tiltekinni
refsiverðri háttsemi. Einnig var af
hálfu fjármálafyrirtækjanna vísað til
ákvæðis í umræddum lögum um það
þegar ástæða er til að ætla að við-
skipti fari fram í þágu þriðja manns.
Segir að þá skuli viðskiptamaður
krafinn upplýsinga um hver sá þriðji
maður sé. Benti Persónuvernd á að í
þessu ákvæði er ekki mælt fyrir um
skyldu til að krefja viðskiptamanninn
sjálfan um kennitölu sína.
Þegar viðskipti féllu ekki undir
framangreind lagaákvæði taldi Per-
sónuvernd að líta yrði til 10. gr. laga
nr. 77/2000 þar sem fram kemur að
öflun kennitölu er óheimil þjóni hún
ekki málefnalegum tilgangi og sé
nauðsynleg til að tryggja örugga per-
sónugreiningu. Því taldi Persónu-
vernd ekki löglegt að krefja viðskipta-
menn ávallt um kennitölu sína við
kaup á gjaldeyri. Það gæti þó verið
lögmætt þegar ástæða væri til að ætla
að viðskipti ættu uppruna sinn að
rekja til brots eða færu fram í þágu
þriðja manns. Gæti það átt við þegar
upphæðir væru háar. Öðru máli
gegndi þegar upphæðir væru lágar.
Var niðurstaða Persónuverndar sú
að ekki lægi fyrir að krafa bankanna
tveggja um kennitölu kvartanda í
tengslum við umrædd gjaldeyriskaup
samrýmdist 10. gr. laga nr. 77/2000.
Ekki löglegt að
krefja viðskiptavini
ávallt um kennitölu
GÆSLUVARÐHALD yfir tveimur
útlendingum sem voru handteknir á
Keflavíkurflugvelli með 100 þúsund
evrur á leið úr landi síðastliðinn föstu-
dag, hefur verið framlengt um tvær
vikur.
Mennirnir, sem eru búsettir á
Spáni, eru grunaðir um svonefnd Níg-
eríufjársvik en talið er að nokkrir Ís-
lendingar tengist einnig málinu. Tveir
Íslendingar voru yfirheyrðir vegna
málsins en þeim var sleppt að loknum
yfirheyrslum þar sem rannsóknar-
hagsmunir þóttu ekki krefjast þess að
þeim yrði haldið áfram en þeir hafa þó
réttarstöðu sakborninga í málinu.
Frekari upplýsingar um málið hafa
ekki fengist hjá lögreglu þar sem
rannsókn þess stendur enn yfir en
rannsókninni mun þó miða vel áfram.
Gæsluvarðhald framlengt