Morgunblaðið - 25.03.2006, Síða 22

Morgunblaðið - 25.03.2006, Síða 22
22 LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT myndi þýða, að hún yrði forsætis- ráðherra á ný. Tímósjenkó lenti upp á kant við Jústsjenkó á síðasta ári, hann rak hana úr forsætisráðherrastólnum og keppir hún því nú við flokk forset- ans um annað sætið í þingkosning- unum. Talsmaður flokks Jústsjenkós, Roman Bezsmertniy, hefur nú fylgt fordæmi Tímósjenkó og lýst því yfir að samstarf við flokk Janúkóvítsj komi ekki til greina. En fréttaskýr- endur höfðu áður ljáð máls á þeim möguleika að Jústsjenkó myndi ganga til samstarfs við Janúkóvítsj í því skyni að stuðla að sáttum milli tveggja fylkinga í landinu: þeirra sem vilja horfa til vesturs, og hinna, sem vilja halda fast í tengslin við Rússland. Haldi menn fast við þessar yf- Kíev. AP, AFP. | Skoðanakannanir benda til þess að Viktor Janúkóvítsj og flokkur hans, sem hlynntur er nánum tengslum við Rússland, hljóti flest atkvæði í þingkosning- unum sem fara fram í Úkraínu um helgina. Ekki er þó víst að þetta þýði að flokkurinn fari í ríkisstjórn því að báðir flokkarnir, sem stóðu að „appelsínugulu“ byltingunni í land- inu hitteðfyrra, hafa að því er virðist útilokað samstarf við Janúkóvítsj. Janúkóvítsj tapaði fyrir Viktor Jústsjenkó í forsetakosningunum í Úkraínu í desember 2004 en barátta þeirra snerist að hluta til um það, hvort horfa ætti til vesturs eða hvort áfram ætti að byggja á tengslum við Rússland og stjórnvöld í Moskvu. Hin „appelsínugula“ bylting sem fólst í sigri Jústsjenkós hefur hins vegar ekki breytt lífi landsmanna til batnaðar með áþreifanlegum hætti, vinsældir Jústsjenkós hafa farið úr 70% í 20% og Janúkóvítsj hefur sótt í sig veðrið og tekist að lagfæra ímynd sína, að sögn BBC með að- stoð bandarískra kosningasérfræð- inga. Virðist hann líklegur til að fara fyrir stærsta flokknum á úkraínska þinginu, að kosningunum um helgina afloknum. En kannanir benda hins vegar ekki til að flokkur hans nái hreinum meirihluta á þingi. Sameinast „byltingarfólk“ á ný? Júlía Tímósjenkó, sem var einn helsti bandamaður Jústsjenkós í forsetakosningunum 2004 og sem hann skipaði forsætisráðherra að þeim kosningum afloknum, hét því í vikunni að hún myndi aldrei mynda ríkisstjórn með flokki Janúkóvítsj; jafnvel þó að slíkt samkomulag irlýsingar þýðir það í reynd að ef takast á að mynda ríkisstjórn í land- inu – en þingið í Úkraínu velur for- sætisráðherra – þurfa þau Tímósj- enkó og Jústsjenkó að slá striki yfir ósætti sitt og taka upp samstarf á ný. Slíkt mun þó ekki takast áreynslulaust, enda hafa flokkar þeirra gagnrýnt hvor annan harka- lega í kosningabaráttunni. Ekki er heldur langt síðan Jústsjenkó árétt- aði þá skoðun sína, að hann teldi Tímósjenkó óalandi og óferjandi. Bezsmertniy sagðist sannfærður um að Tímósjenkó kæmi aftur til liðs við menn Jústsjenkós en frétta- skýrendur vilja þó ekki útiloka, að Jústsjenkó kjósi þegar öllu er á botninn hvolft samstarf við Janúkó- vítsj. „Ef Jústsjenkó lýsir því yfir að hagsmunir Úkraínu krefjist þess, að slík samsteypustjórn sé mynduð, þá munu þeir láta slag standa,“ sagði Oles Doniy, forsvarsmaður Mið- stöðvar um stjórnmálarannsóknir í Kíev. Deilt um stöðu efnahagsmála Ástand efnahagsmála hafa verið efst á baugi í kosningabaráttunni í Úkraínu en Janúkóvítsj hefur gagn- rýnt stjórn Jústsjenkó og segir, að forsvarsmenn „appelsínugulu“ bylt- ingarinnar stefni með landið í ógöngur; þvert á yfirlýsingar þeirra í hitteðfyrra um að breyttar áherslur í stjórnmálum landsins myndu þýða aukinn hagvöxt og efnahagslega uppsveiflu. Jústsjenkó hefur hins vegar sagt í kosningabar- áttunni, að staða efnahagsmála hafi aldrei verið betri, kaupmáttur launa hafi aukist og dregið hafi úr verð- bólgu. AP Júlía Tímósjenkó, fyrrverandi forsætisráðherra Úkraínu, talar á útifundi í höfuðborginni Kíev. Taka erkifjendurnir Jústsjenkó og Janúkóvítsj upp samstarf? Þingkosningar fara fram í Úkr- aínu um helgina BENDT Bendt- sen, efnahags- málaráðherra Danmerkur, telur að Danir ættu að íhuga að reka rót- tæka múslíma- klerka úr landi. Kom þetta fram í sjónvarpsviðtali við ráðherrann en hann er leiðtogi Íhaldsflokksins, sem er í stjórn með Venstre, flokki And- ers Fogh Rasmussen forsætisráð- herra. Þau ummæli múslímaklerks- ins Ahmed Akkari að sprengja ætti þingmanninn Naser Khader í loft upp, yrði hann einhvern tíma ráð- herra, hafa vakið mikla reiði. „Þegar uppþotið vegna Múham- eðsteikninganna verður um garð gengið ættum við að skoða rétt músl- ímaklerkanna til landvistar,“ sagði Bendtsen. Þá sagðist hann telja að fólk sem hagaði sér eins og Akkari ætti ekki heima í landinu og ætti að fara annað. Akkari er fæddur í Líbanon en er með danskan ríkisborgararétt. Ein- ungis er hægt að svipta danska rík- isborgara ríkisfangi hafi þeir verið fundnir sekir um landráð eða hryðju- verk gegn ríkinu. Akkari er einn þeirra dönsku múslímaleiðtoga sem fóru til Mið-Austurlanda til að vekja athygli múslíma á Múhameðsteikn- ingum Jyllands-Posten. Í gærkvöldi birti danska sjónvarp- ið myndband með Akkari þar sem hann spyr á arabísku hvort ekki væri réttast að sprengja Khader og ráðu- neyti hans í loft upp verði hann ein- hvern tíma ráðherra innflytjenda- mála. Akkari segir ummælin hafa verið sett fram í gamni. Khader, sem er hófsamur múslími og liðsmaður miðjuflokksins Radikale Venstre, hefur farið fremstur í flokki danskra múslíma sem hafa viljað leita sátta í kjölfar teikningadeilunnar. Vill vísa klerkum úr landi Bendt Bendtsen GORDON Brown, fjármálaráðherra Bretlands og líklegur arftaki Tonys Blair forsætisráðherra, hefur verið bendlaður við lánahneyksli Verka- mannaflokksins. Sætir þetta tíðind- um, enda hafa andstæðingar Browns hingað til ekki náð að tengja nafn hans við málið sem hefur verulega skaðað ímynd Blairs. Þetta kemur fram í forsíðufrétt í breska dagblaðinu The Times í gær. Þar er fjallað um mál Rod Aldridge, sem veitti Verkamannaflokknum óuppgefið lán að jafnvirði um 127 milljóna íslenskra króna fyrir síð- ustu kosningar, í embætti forstöðu- manns 19 milljarða króna samfélags- verkefnis, sem Brown hefur fylgt eftir, nokkrum vikum síðar. Telur blaðið að tímasetningin á skipuninni bendi til að ráðherrann hafi vitað af óuppgefnum lánum til flokksins. Vegna þess skaða sem orðspor hans hlaut af láninu til Verkamanna- flokksins fyrir síðustu kosningar lét Aldridge af starfi stjórnarmanns tæknifyrirtækisins Capita í fyrra- dag. Fyrirtækinu hefur verið úthlut- að samningum upp á hundruð millj- arða íslenskra króna eftir að flokkurinn komst til valda. Óhætt er að segja að ásakanirnar hafi gert illt verra fyrir Blair, en á síðustu vikum hefur stjórnarand- staðan sakað stjórn hans um að hafa selt sæti í lávarðadeildinni og ýmsar orðuveitingar til auðmanna í staðinn fyrir fjárframlög. Tekjustofnar flokka breytast Málið byrjaði að vinda upp á sig fyrir skömmu þegar upp komst um 12 óuppgefin lán auðmanna að jafn- virði um 1.700 milljóna króna til flokksins fyrir síðustu kosningar. Síðan hafa fjórir þessara manna hlotið opinberar stöðuveitingar, þ.á m. Aldridge, en málið hefur rýrt trúverðugleika Blairs sem lofaði kjósendum heiðarlegum stjórnar- háttum í kosningunum 1997. Dagblaðið The Independent segir að línur kunni að skýrast frekar í málinu þegar Levy lávarður, per- sónulegur fjáröflunarmaður Blairs, verður á næstu vikum yfirheyrður í beinni útsendingu sjónvarps. Vikuritið The Economist fjallar í nýjasta hefti sínu um lánamálið og segir að það sé til marks um að skráðum félagsmönnum flokkanna, sem margir greiddu félagsgjöld, hafi fækkað mjög og að stórfyrirtæki haldi nú að sér höndum í kosninga- framlögum, m.a. vegna nýrra laga um gegnsæi slíkra framlaga. Af þessum sökum telur vikuritið að stóru flokkarnir séu í síauknum mæli farnir að reiða sig á lítinn hóp auðmanna og framlög þeirra. Brown tengdur við lánahneykslið Reuters Tony Blair forsætisráðherra (t.v.) og Gordon Brown fjármálaráðherra. Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is ALLS hafa nú liðlega 100 manns dá- ið úr fuglaflensu, langflestir í Aust- ur-Asíu. Óttast er að mjög mann- skæður faraldur geti komið upp ef stökkbreyting veldur því að veikin fari að smitast milli manna. Kínversk yfirvöld staðfestu í gær að 29 ára gömul kona í Shanghai hefði látist úr mannskæða afbrigðinu af fugla- flensu, H5N1. Heimsfaraldur myndi hafa marg- víslegar afleiðingar en afar erfitt er að spá fyrir um manntjónið. Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn, IMF, varaði ný- lega við því að faraldur gæti haft al- varleg áhrif á efnahag þjóða heims og leitt til framleiðslutaps. Endurtryggingafélög gera einnig ráð fyrir þungum skelli, mörg þeirra hafa þegar þurft að greiða háar fjár- hæðir vegna tjóns af fellibyljunum sem herjuðu á Bandaríkin í fyrra. Fjórða stærsta fyrirtækið á þessu sviði, Hannover Re, sagði í gær að kæmi upp slæmur heimsfaraldur á árinu mætti reikna með að fyrirhug- aður 125 milljóna evra hagnaður þess af endurtryggingum á líftrygg- ingum myndi minnka um helming. Segja sérfræðingar á sviði endur- trygginga að beiti menn sama mæli- kvarða og Hannover Re megi gera ráð fyrir að alls yrðu endurtrygg- ingafélög að borga 10 milljarða evra. Er það þrisvar sinnum hærri fjár- hæð en áður hefur verið nefnd í því samhengi. Spá miklu efnahags- tjóni af faraldri KÍNVERSKUR leiðtogi glæpa- hrings í Bretlandi var í gær dæmd- ur fyrir að hafa með „glæpsamlegri vanrækslu“ gerst sekur um mann- dráp. 21 skeljatínslumaður, fólk sem starfaði fyrir hann, fórst und- an ströndum Lancashireflóa í febr- úar 2004. Var maðurinn, sem heitir Lin Liang Ren og er búsettur í Liv- erpool, dæmdur fyrir að bera ábyrgð á drukknun tínslumann- anna, sem voru ólöglegir innflytj- endur frá fátækum héruðum í Kína. Umræddir innflytjendur, sem höfðu flust til Norður-Englands til að starfa við ábatasama skelja- tínslu á svæðinu, drukknuðu eftir að hafa lokast af á rifi á háflóði. Telja lögregluyfirvöld að raunveru- leg tala látinna í slysinu hafi verið 23, en lík tveggja hafa aldrei fund- ist. Aðeins einn komst lífs af. Á meðal fórnarlambanna var Guo Bin Long. „Segðu fjölskyldunni að biðja fyrir mér,“ sagði Long við eiginkonu sína þegar ljóst var í hvað stefndi. „Ég er að deyja.“ Að sögn lögreglu reyndi Ren að leyna ábyrgð sinni á drukknun fólksins með því að þvinga aðra starfsmenn til að ljúga til um kringumstæður slyssins, ellegar yrðu fjölskyldur þeirra sendar aft- ur til Kína. Unnusta Rens, Zhao Xiao Qing var einnig dæmd fyrir brot á inn- flytjendalögum, líkt og frændi hans, Lin Mu Yong. Ábyrgur fyrir dauða 21 manns ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.