Morgunblaðið - 25.03.2006, Page 24
24 LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
LANDIÐ
Ólafsvík | „Ég hef alltaf haft áhuga
á þessari starfsemi. Reksturinn
hafði verið auglýstur til sölu og ég
ákvað að slá til,“ segir Hjörleifur
Guðmundsson, skipstjóri og fyrrver-
andi útgerðarmaður, sem ásamt
konu sinni, Fríðu Sveinsdóttur, hef-
ur keypt Ísverksmiðjuna í Ólafsvík.
Hjörleifur hefur verið á sjó í tutt-
ugu ár og þar af með eigin útgerð í
fimmtán ár. Þau hjónin seldu Geisla
SH fyrir nokkru. „Ég vildi breyta til,
skoða málin aðeins öðru vísi. Það er
ekki úr mörgu að velja hér úti á
landsbyggðinni þegar maður þarf að
velja sér ný verkefni en ég hef alltaf
haft áhuga á þessari starfsemi,“ seg-
ir Hjörleifur þegar hann er spurður
hvers vegna þau hafi hætt í útgerð
og keypt ísverksmiðjuna.
Hjörleifur viðurkennir að það sé
mikil breyting að fara í land eftir öll
þessi ár og segir að í raun sé ekki
farið að reyna á það til fulls. Hann
segir það kost að í þessu starfi sé
hann áfram í sambandi við sinn
gamla starfsvettvang.
Þarf að fylgjast með
aflabrögðum og veðri
Ísverksmiðjan var tekin í notkun
fyrir fimm árum í húsi sem sér-
staklega var byggt utan um fram-
leiðsluna. Framleiðslugeta hennar
er 20 tonn á sólarhring. Hjörleifur
starfar einn við fyrirtækið.
Hjörleifur segir að miklar sveiflur
séu í sölunni. Hún fari eftir árstíma,
aflabrögðum og veðri. „Ég verð að
fylgjast grannt með veðrinu og fisk-
iríinu,“ segir hann. Janúar, febrúar
og mars eru venjulega bestu mán-
uðir ársins en þá er veðrið líka leið-
inlegast. Vel hefur gengið að und-
anförnu. Ólafsvíkurbátar hafa aflað
vel og salan hjá ísverksmiðjunni því
verið yfir meðallagi.
Seldu bæði bát og kvóta og keyptu
rekstur ísverksmiðjunnar í Ólafsvík
„Vildi breyta til“
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Nýr vettvangur Fríða Sveinsdóttir og Hjörleifur Guðmundsson ásamt sonunum Hjörvari og Arnleifi við ísverk-
smiðjuna. Það var mikil ákvörðun hjá Hjörleifi að hætta á sjónum og leita sér að nýjum verkefnum í landi.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
AKUREYRI
BROSKALL myndast á nýjum
hraðaskynjara þegar ökumenn aka
hjá á löglegum hraða. Þetta nýja
tæki, hraðaskynjarinn, hefur nú
verið tekið í notkun á Akureyri, það
mælir hraða ökutækja og gefur
ökumönnum til kynna hvort ekið
hafi verið of hratt eða ekki. Það eru
Sjóvá, Vegagerðin, Akureyrarbær
og Lögreglan á Akureyri sem gert
hafa með sér samkomulag um kaup
og notkun þessa tækis í þeim til-
gangi að auka öryggi í umferð í
bænum.
„Þetta var mikið hjartans mál hjá
Steina P,“ sagði Björn Jósef Arn-
viðarson sýslumaður þegar tækið
var formlega tekið í notkun og átti
þar við lögreglumanninn Þorstein
Pétursson.
Þorsteinn kvaðst vona að tækið,
sem er á kerru og því hægt að stað-
setja þar hvar svo sem menn vilja,
hefði þau áhrif að ökumenn myndu
draga úr hraðanum. „Forvarnar-
gildi tækisins felst einmitt í því að
það er hreyfanlegt, við munum
flytja það frá einum stað til annars,
innan bæjar og utan,“ sagði Þor-
steinn. Menn hættu fljótt að taka
mark á tækjum sem alltaf væru föst
á sama staurnum og allir vissu af.
Einkum mun verða reynt að fá
ökumenn til að draga úr ökuhraða í
námunda við skóla og á þeim stöð-
um þar sem slysatíðni er há.
Hættulegustu gatnamót á Akureyri
eru mót Glerárgötu og Þórunnar-
strætis, þar verða flest slys í um-
ferðinni. Einnig er árekstratíðni há
við nokkur gatnamót á Þingvall-
astræti og við Skógarlund.
Tækinu verður komið fyrir í veg-
kanti, það mælir ökuhraða bifreiða
og gefur ökumönnum til kynna á
stórum skjá hvort hann sé undir
hraðatakmörkunum, þá birtist
broskallinn. Fýlukallinn svokallaði
mun hins vegar góna til þeirra sem
fara yfir hraðamörk. Tækið skráir
fjölda bifreiða og ökuhraða þeirra
og mun sú mæling koma sér vel
bæði fyrir Akureyrarbæ og Vega-
gerðina, en skráning gagna úr tæk-
inu verður í höndum starfsmanna
þeirra.
Mun skila árangri
Jón Birgir Guðmundsson útibús-
stjóri Sjóvár á Akureyri vonast til
að tækið muni nýtast vel í samfélag-
inu, það muni auka öryggi bæjar-
búa í umferðinni og fækka slysum.
Líkur á alvarlegu líkams- og eigna-
tjóni í umferðaróhöppum, ykjust í
takt við aukinn hraða. „Við munum
klárlega sjá árangur af þessu tæki
innan skamms,“ sagði Jón Birgir.
Nýr hraðaskynjari tekinn í notkun
Á að hvetja
ökumenn til að
draga úr hraða
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hraðaskynjari Þess er vænst að nýr hraðaskynjari sem tekinn hefur verið
í notkun á Akureyri muni leiða til þess að ökumenn dragi úr hraðanum. Á
myndinni eru frá vinstri: Björn Jósef Arnviðarson sýslumaður, Birgir Guð-
mundsson frá Vegagerðinni, Jón Birgir Guðmundsson frá Sjóvá-Almenn-
um og þeir Jónas Vigfússon og Ármann Jóhannsson frá Akureyrarbæ.
Fýlukall Þarna hefur einhver ekið
of greitt fram hjá skynjaranum.
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur
maggath@mbl.is
Bæjarráð Akureyrar
Vilja eina
af þyrlum
gæslunnar
norður
BÆJARRÁÐ Akureyri bendir í bók-
un sem samþykkt var á fundi ráðsins
á mikilvægi þess að ein af þyrlum
Landhelgisgæslunnar verði staðsett
á Akureyri. Á fundinum lagði bæjar-
stjóri, Kristján þór Júlíusson fram
bókun í framhaldi af þeirri stöðu sem
upp er komin vegna ákvörðunar
Bandaríkjastjórnar um brottflutning
á björgunarþyrlum varnarliðsins af
Keflavíkurflugvelli.
Bæjarráð bendir á mikilvægi þess
að a.m.k. ein af þyrlum Landhelgis-
gæslunnar verði staðsett á Akureyri.
„Með brotthvarfi eldsneytisflugvéla
af Keflavíkurflugvelli er ljóst að öll
lengri flug til björgunar norður og
austur af landinu verða mun erfiðari
en verið hefur frá suðvesturhorninu,“
segir í bókun bæjarráðs og ennfrem-
ur að á Akureyri sé nú þegar miðstöð
sjúkraflugs á Íslandi, hátækisjúkra-
hús, sérþjálfað teymi vegna sjúkra-
flugs og sólarhringsvakt á flugvelli.
„Þyrla staðsett á Akureyri yki öryggi
vegna sjúkraflugsins enn frekar. Í
erfiðum veðrum þyrfti ekki að fljúga
yfir hálendið til að sinna björgunar-
málum norður og austur af landinu-
.Tíminn er dýrmætur ef hættu ber að
höndum og af framansögðu má ljóst
vera að bjargir á norðaustursvæðinu
yrðu skilvirkari ef því svæði væri
sinnt frá Akureyri.“
Bæjarráð óskar því eftir eftir við-
ræðum við ríkisstjórn Íslands um
uppbyggingu björgunarstarfs Íslend-
inga í kjölfar brottflutnings þyrlu-
sveitar varnarliðsins.ÞAU ráðast ekki á garðinn þar sem
hann er lægstur, krakkarnir í kór-
um framhaldsskóla bæjarins, MA og
VMA auk félaga í leikfélagi þess síð-
arnefnda. Nú í kvöld frumsýna þau,
um 60 manna hópur, rokkóperuna
Jesús Kristur Súperstjarna í Kvos
Menntaskólans.
Erla Þórólfsdóttir er leik- og
söngstjóri og segir um mjög viða-
mikla uppfærslu að ræða. „Það hef-
ur verið draumur minn að setja
þetta verk upp mjög lengi,“ segir
hún, en rokkóperan um síðustu dag-
ana í lífi Jesús Krists var skrifuð ár-
ið 1970 og fyrst sýnd ári síðar, 1971,
„það eru 35 ár núna á þessu ári frá
því hún var frumsýnd á Broadway,“
segir Erla. Í fyrstu voru menn tregir
við að setja þessa sýningu upp, en
eftir að tvöföld plata með lögunum
kom út og skaust svo að segja beint í
fyrsta sæti vinsældalistanna kom
annað hljóð í strokkinn. Nú er þessi
ástsæla rokkópera sett upp víða um
heim, er alltaf einhvers staðar í
gangi. Erla sá 25 ára hátíðarsýn-
ingu á verkinu í Lundúnum árið
1996, glæsilega sýningu, segir hún,
og hefur hana til hliðsjónar í sinni
uppfærslu að einhverju leyti, eða
þar sem hægt er að koma því við.
Sviðið er fulllítið, segir hún, fyrir
svona stóra sýningu, en dugir þó.
„Þetta var stærsta sviðið sem við
höfðum völ á og það dugar okkur,“
segir Erla og lofar litríkri og
skemmtilegri sýningu.
Alls er áætlað að sýna verkið 7
sinnum nú fyrir páska, en ef aðsókn
verður góð er hugsanlegt að þráð-
urinn verði tekinn upp að nýju eftir
páskaleyfi. „Þetta er mjög metn-
aðarfull sýning og mikil vinna í hana
lögð, ég vona að bæjarbúar kunni að
meta það,“ segir Erla.
Sýna Jesú Krist Súperstjörnu í Kvosinni
Metnaðarfull og skemmtileg sýning
Jesús Kristur Eyþór Ingi Gunn-
laugsson fer með hlutverk Jesú
Krists í sýningunni.
Vortónleikar | Kvennakór Ak-
ureyrar heldur sína árlegu vor-
tónleika á sunnudag, 26. mars kl. 17 í
Akureyrarkirkju. Þetta eru fimmtu
vortónleikar kórsins síðan hann hóf
starfsemi á vordögum árið 2001. Að
þessu sinni hefur kórinn fengið til
liðs við sig söngkonuna góðkunnu,
Andreu Gylfadóttur, sem nú fer með
eitt af aðalhlutverkunum í Litlu
hryllingsbúðinni hjá Leikfélagi Ak-
ureyrar.
Söngskrá kórsins er að venju fjöl-
breytt, þar eru velþekkt íslensk lög í
bland við erlendar perlur. Stjórn-
andi kórsins er Arnór B. Vilbergs-
son en undirleikarar eru Eyþór Ingi
Jónsson og Snorri Guðvarðsson.
Ferðaþjónusta | Málþingið Svæð-
isbundin áhrif ferðaþjónustu á Ís-
landi verður haldið í Oddfellowhús-
inu við Þórunnarstræti á þriðjudag,
28. mars, á vegum Ferðamálaseturs
Íslands og Ferðaþjónustuklasa
VAXEY. Þar verða kynntar nið-
urstöður rannsóknar um hagræn
áhrif ferðaþjónustu á ólíkum svæð-
um landsins.
Tónleikar | Styrktartónleikar fyrir
minningarsjóð um Garðar Karlsson
tónlistarkennara sem lést fyrir aldur
fram í desember 2001 verða haldnir í
Tónlistarhúsinu Laugarborg á
sunnudag, 26. mars kl. 14. Sjóðurinn
verður formlega stofnaður í haust til
styrktar nemendum Tónlistarskóla
Eyjafjarðar. Fram koma bæði nem-
endur og kennarar skólans auk
Auðrúnar Aðalsteinsdóttur söng-
konu og Teits Birgissonar saxófón-
leikara, en þau eru bæði fyrrverandi
nemendur skólans. Miðasala er við
innganginn