Morgunblaðið - 25.03.2006, Qupperneq 26
26 LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
Selfoss | „Sóknarbörn Selfosskirkju
eru að nálgast það að verða sex þús-
und talsins og fer ört fjölgandi.
Þetta er nokkuð annasamt presta-
kall og starfsemi kirkjunnar fjöl-
breytt,“ sagði séra Gunnar Björns-
son, sóknarprestur Selfosskirkju, en
kirkjan fagnar 50 ára vígsluafmæli
sínu núna um helgina.
Það var á pálmasunnudag, 25.
mars 1956, sem herra Ásmundur
Guðmundsson biskup vígði kirkjuna
í góðu veðri að viðstöddu miklu fjöl-
menni. „Þá voru liðin 23 ár frá því
fyrst var hreyft hugmyndinni um
kirkju í gróskumikilli framtíðar-
byggðinni og 11 ár frá því að sam-
þykkt var að kirkja skyldi reist. Íbú-
ar á Selfossi voru í árslok 1956 1.412
talsins. Bæði fyrr og nú hafa menn
lokið upp einum munni um það að
Selfosskirkja sé fagurt guðshús,“
segir séra Gunnar meðal annars í
ágripi af sögu kirkjunnar í bæklingi
sem gefinn er út af Selfosskirkju í
tilefni afmælisins.
Um helgina er afmælinu fagnað
með tíðasöng klukkan 10 og aftur kl.
11.30 í dag, laugardag, og samkomu í
dag klukkan 16.30. Heitt verður á
könnunni mestallan tímann. Á
sunnudag er barna- og fjölskyldu-
samkoma klukkan 11 og hátíðar-
messa klukkan 14 og öll sóknarbörn
og aðrir boðnir velkomnir. Eftir at-
höfnina er öllum viðstöddum boðið í
veislukaffi á Hótel Selfossi. Sunnu-
daginn 2. apríl er síðan konsert-
messa klukkan 11.
Fyrsta skóflustungan
7. júní 1952
Selfosshreppur var stofnaður með
lögum 1. janúar 1947 úr brotum
þriggja hreppa, Sandvíkurhrepps,
Hraungerðishrepps og Ölfushrepps.
Þá voru íbúar hins nýja hrepps-
félags 714 talsins. Selfoss hlaut
kaupstaðarréttindi 2. maí 1978 og
varð þá níundi stærsti kaupstaður
landsins með 3.199 íbúa. Íbúar á Sel-
fossi áttu kirkjusókn að Laugar-
dælakirkju og þótti það langur
kirkjuvegur á þeim tíma þegar fæst-
ir áttu bifreiðar. Það var 26. desem-
ber 1941, að samþykkt var á safn-
aðarfundi í Laugardælakirkju að
byggja kirkju á Selfossi og árið eftir
fékkst land undir kirkju og kirkju-
garð. Nýi kirkjugarðurinn var vígð-
ur 2. janúar 1945. Árið eftir var
fengin kirkjuteikning af timbur-
kirkju, en hún þótti óhentug og var
þá leitað til Bjarna Pálssonar (1912–
1987) skólastjóra Iðnskólans og hon-
um falið að gera nýja teikningu og
var kirkjan byggð eftir henni.
Kirkjukór Selfoss var stofnaður
fyrir forgöngu Önnu Eiríksdóttur
(1904–1980) frá Sandhaugum í
Bárðardal og Ingólfs Þorsteinssonar
(1899–1980) framkvæmdastjóra
Flóaáveitunnar. Fyrsti stjórnandi
kórsins var Guðmundur Gilsson
(1926–1992) organisti sem var ráð-
inn til kirkjunnar haustið 1955.
Einar Sigurðsson (f. 1922) organisti
stjórnaði kórnum 1970–1972. Núver-
andi stjórnandi kórsins er Glúmur
Gylfason (f. 1944) organisti og hefur
verið mikill hvatamaður að tónlistar-
starfi í kirkjunni og átt þátt í að gera
hana að eins konar miðstöð tónlistar
í byggðarlaginu.
Árið 1950 var reist klukknaport
(sáluhlið) við kirkjugarðinn og sama
ár fékkst leyfi frá fjárhagsráði ríkis-
ins til að grafa grunn undir kirkju-
skipið með því skilyrði að ekki yrði
reistur turn eða aðrar viðbyggingar.
Hinn 7. júní 1952 var tók biskup Ís-
lands herra Sigurgeir Sigurðsson
(1890–1953) fyrstu skóflustunguna
að kirkjubyggingunni og bað nýju
guðshúsi allrar blessunar. Í kjölfarið
hófu þrjátíu menn að grafa fyrir
kirkjunni. Guðmundur Sveinsson (f.
1923), húsasmíðameistari á Selfossi,
var yfirsmiður við kirkjubygginguna
og múrverk annaðist Friðrik Sæ-
mundsson múrarameistari á Selfossi
(1927–2005.)
Starfið er lífleg lífsreynsla
Fyrsti sóknarprestur kirkjunnar
var síra Sigurður Pálsson (1901–
1987) síðar vígslubiskup Skálholts-
stiftis. Síra Sigurður Sigurðarson
þjónaði Selfossprestakalli frá 1971
til 1994, er hann var skipaður vígslu-
biskup í Skálholtsstifti. Síra Þórir
Jökull Þorsteinsson var sóknar-
prestur á Selfossi 1994–1998. Síra
Gunnar Björnsson núverandi sókn-
arprestur hefur þjónað prestakall-
inu frá 1. júní 2002.
„Það er gefandi að eiga samskipti
við allt það fjölmarga fólk sem kem-
ur við sögu í daglegu starfi kirkj-
unnar. Það er ánægjulegt að kynn-
ast foreldrum skírnarbarna, ferm-
ingarbörnum og foreldrum þeirra og
fólki, sem er að ganga í hjónaband,
og síðast en ekki síst er þakklátt að
reyna að hlúa að þeim, sem eiga um
sárt að binda,“ sagði séra Gunnar
þegar rætt var við hann um starf
hans. „Svo er hér við kirkjuna ágætt
starfsfólk og ég hef áður haft það á
orði, að það munaði miklu að fá hing-
að djákna til starfa, fyrst sr. Guð-
rúnu Eggertsdóttur, sem nú hefur
tekið prestsvígslu, og síðan Eygló J.
Gunnarsdóttur.
Svo sem gildir um mörg önnur
störf, er álagið einkum af tvennum
toga; í fyrsta lagi þarf að skipuleggja
starfsdaginn, en að hinu leytinu að
bregðast við því óvænta, sem alltaf
kemur upp á. Prestur þarf alltaf að
vera viðbúinn því að þurfa að koma
til skjalanna. En það er t.d. ómetan-
legt, þegar tilkynna þarf um sviplegt
andlát, jafnvel að næturþeli, að hafa
þá lögreglumann eða lækni með í
för,“ sagði séra Gunnar. Þegar hann
var síðan spurður hvernig það væri
að vera prestur sagði hann: „Síra
Sigurður Pálsson, fyrsti sóknar-
presturinn hér, var af Guðmundi
Daníelssyni, rithöfundi, spurður
þessarar spurningar í blaðaviðtali
sumarið 1962. Hann svaraði svona:
„Preststarfið er stöðug þjáning og
barátta, með nokkrum skærum ljós-
blettum.“ Ég vildi, með allri virð-
ingu, leyfa mér að bæta við, að ljós-
blettirnir eru margir, og að baki
þeim öllum er einn, sem er óslökkv-
andi, og mjög stór, hlýr og skær.
Það er alltaf bjart yfir starfi prests-
ins vegna þess erindis sem á að
knýja alla hans viðleitni. Hér ræðir
um traust og trú á það, að lífið sé
dásamlegt og óviðjafnanlegt og okk-
ur beri að reyna lifa því í kærleika,
lofgjörð og þakklæti.“
Stoltur af fermingarbörnunum
„Ég er svo heppinn að hafa tóm-
stundaiðju til að dreifa huganum og
það geri ég með því að fara í bíltúra
með konu minni, Ágústu Ágústs-
dóttur, gönguferðir og morgunsund.
Svo spila ég líka dálítið á selló. Það
fylgir því mikil slökun. Að ógleymd-
um lestri góðra bóka.
Það er engin ástæða til annars en
bjartsýni. Það er gleðiefni, að ungir
foreldrar eru mjög áfram um að láta
skíra börn sín. Fermingarbörnin eru
glöð og áhugasöm. Og fólk, sem ætl-
ar að ganga í hjónaband, biður um
helgi og fyrirbæn.“
Síra Bernharður Skálholtsrektor
ritaði sóknarnefnd hér og Vallaskóla
bréf, eftir að fermingarbörnin fóru
upp eftir um daginn. Þar segir m.a.:
„Unga fólkið var kurteist, hlustaði
vel og var einstaklega skapandi og
skemmtilegt í öllum vinnubrögðum
sínum enda skorti ekkert á lífskraft-
inn og lífsgleðina … Maður nokkur
kom til mín á skrifstofuna og spurði
hvaða kirkjukór væri að æfa, það
væri svo vel sungið og raddirnar
bjartar. Þá var verið að syngja þjóð-
sönginn af hjartans gleði undir
stjórn og við undirleik séra Gunnars.
Það er samdóma álit alls starfs-
fólksins að þessir hópar (frá Sel-
fossi) hafi verið til fyrirmyndar á all-
an hátt og til mikils sóma fyrir
heimili sín, söfnuð og skóla. Veri þau
ævinlega velkomin aftur. Við þökk-
um heimsóknina og minnumst þess-
ara daga með gleði,“ skrifar rektor.
Gunnar Björnsson er sóknarprestur í Selfosskirkju sem fagnar fimmtíu ára vígsluafmæli um helgina
Alltaf bjart yfir starfi
prests vegna erindis hans
Eftir Sigurð Jónsson
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Sóknarprestur Séra Gunnar Björnsson framan við Selfosskirkju sem á fimmtíu ára vígsluafmæli í dag.
Keflavík | „Ég hef starfað mikið með samtök-
unum og þegar ég sá að framkvæmdastjórinn
væri að hætta sóttist ég eftir starfinu,“ segir
Bergur Sigurðsson, sviðsstjóri á umhverfis-
sviði Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja. Hann
hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Land-
verndar í stað Tryggva Felixsonar sem tekið
hefur við starfi á skrifstofu Norrænu ráð-
herranefndarinnar í Kaupmannahöfn.
Bergur tekur við nýja starfinu 1. maí næst-
komandi, að afloknum aðalfundi samtakanna
sem boðaður hefur verið 29. apríl.
Hefur starfað með Landvernd að gerð
umsagna um umhverfisáhrif álvera
Bergur hefur starfað við mengunareftirlit á
Suðurnesjum og umhverfiseftirlit á varnar-
svæðum í sex ár og segist því þekkja nokkuð
vel til regluverksins sem um þetta fjallar. Það
muni nýtast honum í nýja starfinu en um leið
sé starfssviðið mun víðara. Bergur hefur starf-
að með Landvernd, meðal annars komið að
gerð umsagna samtakanna
um mat á umhverfisáhrif-
um álvera. Þá hefur hann
starfað í frjálsum félaga-
samtökum og verið virkur í
umræðu um umhverfismál.
„Jú, þetta er gjörólíkt nú-
verandi starfi mínu og mikil
áskorun. Landvernd eru
traust samtök sem hafa í
gegn um tíðina látið gott af
sér leiða. Þau hafa starfað frá árinu 1969 og
hvíla á góðum grunni. Ég er viss um að þau
eiga bjarta framtíð enda finn ég að það er mik-
ill meðbyr í umhverfismálum almennt,“ segir
Bergurm þegar hann er spurður að því hvort
ekki felist mikil breyting í því að fara úr
öruggu starfi hjá ríkinu í starf hjá frjálsum
félagasamtökum.
Hann vekur athygli á því að samtökin starfi
á breiðum grunni og nefnir fræðslu í skólum,
starf með almenningi að vistvernd í verki, bláf-
ánann og fræðslusetrið Alviðru. „Þessi verk-
efni eru hornsteinar í starfinu og þess eðlis að
allir ættu að geta verið sammála um þau. Til
viðbótar koma virkjunar- og skipulagsmálin og
þátttaka í umræðum um þau. Þar getur vissu-
lega stundum verið ágreiningur uppi enda
gríðarlegir hagsmunir í húfi og oft verið að
taka ákvarðanir um inngrip í náttúruna sem
ekki verða aftur tekin af komandi kynslóðum.
Þátttaka Landverndar í þeirri umræðu hefur
þó ávallt verið fagleg, yfirveguð og málefnaleg
og svo verður áfram,“ segir Bergur.
Hann hefur ekki hug á því að umbylta nú-
verandi starfi Landverndar enda segir hann að
samtökin njóti trausts og tekið sé mark á um-
sögnum þeirra og ábendingum í umhverfis-
málum.
Hálfnaður með skemmtilegt nám
Bergur lærði umhverfisfræði og efnafræði
við Oslóarháskóla og nú leggur hann stund á
MBA-nám við Háskóla Íslands með vinnu.
„Þetta er mjög skemmtilegt nám en jafnframt
tímafrekt,“ segir Bergur. Hann er að verða
hálfnaður með námið og segir að væntanlega
muni álagið ekki minnka þegar hann hefur
tekið við framkvæmdastjórastarfinu hjá Land-
vernd.
Nýráðinn framkvæmdastjóri Landverndar hefur brennandi áhuga á málefninu
Finn að það er mikill meðbyr
með umhverfismálum almennt
Bergur Sigurðsson
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
SUÐURNES
Garður | Bæjarráð Garðs hefur áhuga á því
að kaupa eða taka á leigu Sæborgu, stórt hús
í miðju bæjarins, og nota fyrir félagsstarf
aldraðra.
Sóknarnefnd Útskálakirkju á húsið og
ákvað bæjarráð að óska eftir viðræðum við
nefndina um leigu eða kaup. Fram kemur í
greinargerð með tillögu F-listans að nauð-
synlegt sé að hefja undirbúning að því að
bæta aðstöðu fyrir aldraða. Rifjað er upp að
ákveðið hafi verið að taka upp viðræður við
Búmenn um byggingu þjónustukjarna og
íbúða fyrir aldraða í nágrenni Garðvangs.
Það sé lausn til lengri tíma.
Nauðsynlegt sé að bæta aðstöðu félags-
starfs aldraðra strax og auka fjölbreytni
starfsins. Telja fulltrúarnir að húsnæði Sæ-
borgar myndi henta vel fyrir félagsstarfið.
Tónlistarskólinn í Garði er nú til húsa í Sæ-
borgu og er ekki ætlunin að breyta því.
Vilja fá Sæborgu fyrir
félagsstarf aldraðra
Njarðvík | Vélaleiga A.Þ. ehf. átti læsta tilboð
í gatnagerð og lagnir í nýju Ásahverfi í Ytri-
Njarðvík. Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur
samþykkt að taka tilboði fyrirtækisins.
Kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir að verkið
myndi kosta 244 milljónir kr. Tilboð A.Þ. ehf.
hljóðaði upp á 189 milljónir sem er 77,5% af
kostnaðaráætlun, og munar 55 milljónum á
tilboði og áætlun. Þrjú önnur fyrirtæki buðu í
verkið og voru öll undir kostnaðaráætlun.
Lægstir í Ásahverfi