Morgunblaðið - 25.03.2006, Side 28

Morgunblaðið - 25.03.2006, Side 28
Daglegtlíf mars „ÉG HEF haft brennandi áhuga á öllu sem við kemur Íslandi alveg frá því ég var smábarn og það hef- ur ágerst eftir að ég heimsótti land- ið,“ segir hinn þrettán ára gamli Peter Streich sem nú er í annað sinn í heimsókn á Íslandi en hann býr ásamt fjölskyldu sinni á bónda- bæ í Wisconsin í Bandaríkjunum. Peter er ekkert venjulegur strákur því hann hefur kynnt sér íslenska menningu af slíkum ákafa að þekk- ing hans er á við það sem gerist hjá fræðimönnum. Einnig tók hann upp á því að læra íslensku fyrir ári og kennsluna sér hann sjálfur um. Þegar hann les upphátt úr íslenskri bók hljómar það nánast lýtalaust og er með ólík- indum hversu miklum árangri hann hefur náð á svo skömmum tíma. Orð eins og harðfiskur og hákarl sem gjarnan vefjast fyrir útlend- ingum, hljómuðu kórrétt hjá hon- um. Og hann kunni líka vel við bragðið af hákarlinum þó svo hann væri í sterkari kantinum. „Faðir minn er vel að sér í þýskri menningu og kunnátta hans varð mér mikil hvatning til að forvitnast um framandi menningarheima og hann hefur líka verið mér innan- handar með íslensku málfræðina, því hann talar þýsku. Ég hef líka verið að dunda mér við að þýða um tuttugu íslenskar barnabækur yfir á ensku til að æfa mig og þá notast ég við orðabok.is á netinu,“ segir þessi hógværi strákur sem á um fjörutíu bækur á íslensku en hann er mikill bókasafnari og bækurnar sem hann hefur sankað að sér í gegnum tíðina eru nú orðnar um eitt þúsund. „Þær er frá mörgum löndum, enda hef ég alltaf verið heillaður af menningu og tungu- málum framandi landa.“ Vill flytja til Íslands Í safni Peters eru til dæmis bæk- ur frá Afríku og þá sérstaklega Eþíópíu, einnig frá Indlandi og Armeníu, nokkrar á hann skrifaðar á tungumáli indíána og eskimóa og margar bækur frá Evrópulöndum, sérstaklega Þýskalandi, Frakk- landi, Spáni, Ítalíu, Grikklandi, Pól- landi og Rússlandi. Svo á hann líka mjög margar bækur frá Japan, en Peter talar svolitla japönsku enda hefur hann sérhæft sig í öllu sem viðkemur Japan. „En núna beinist áhugi minn allur að Íslandi og hér langar mig að eiga heima í einhvern tíma þegar ég verð eldri. Ég hef þegar kynnt mér ýmislegt um það hvað ég þarf að gera til að svo megi verða. Ísland er fallegt land og fólk- ið hér er mjög vinsamlegt, vilja- sterkt og víðsýnt. Bóklestur er greinilega almennur og það kann ég vel við. Mér líkar betur við menn- inguna hér en heima í Bandaríkj- unum og fámennið á líka vel við mig.“ Heimakennsla Peter hefur þá sérstöðu að hann gengur ekki í skóla heldur sér móð- ir hans um að kenna honum og tveimur systkinum hans heima. „Það er alveg frábært, því mér fannst ég alls ekki læra nógu mikið í venjulegum skóla. Heima læri ég svo mikið umfram það sem nám- skráin segir til um og ég get líka sjálfur haft frumkvæðið og einbeitt mér að mínum hugðarefnum. Bróð- ir minn, sem er einu og hálfu ári eldri en ég, er nú þegar farinn að sækja tíma í háskóla, svo þetta gef- ur okkur gott forskot.“ Joel, faðir Peters, segir það hafa verið lítið mál að fá leyfi til að kenna börn- unum heima. „Það er langalgengast að fólk kenni börnum sínum heima af trúarlegum ástæðum eða vegna þess að skólinn sem þeim stendur til boða er ekki nógu góður skóli. En hjá okkur var það hvorug þess- ara ástæðna sem réði því að við ákváðum að kenna okkar börnum heima, heldur var það vegna þess að við viljum gjarnan að börnin okkar verði sjálfstæð og læri meira en eingöngu það sem kennt er í skólum. Svo er auðvitað frábært að hafa krakkana heima.“ Faðir hans segir að á ferðalagi þeirra feðga um Ísland gefi Peter sig stundum að fólki og fari að tala íslensku og hann segist verða mjög stoltur af syni sínum þegar hann sér brosin sem færast yfir andlit þeirra Íslendinga sem heyra hversu góðum tökum hann hefur náð á tungumálinu.  ÁHUGAMÁLIÐ | Peter Streich talar lýtalausa íslensku eftir eins árs sjálfsnám Harðfiskur og hákarl hljóma kórrétt í munni hans Heillaður af bókum. Í Íslandsheimsókninni fer Peter tvisvar á dag í bókabúð Máls og menningar og grúskar í bókum. Morgunblaðið/ÞÖK Peter heldur mikið upp á þessa bók Sigrúnar Eldjárn, af því að í henni er svo mikið um þjóðlegan fróðleik og honum finnst hún líka skemmtileg. Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is IKEA biður þá við- skiptavini sem keypt hafa Tassa- eða Sniglar- barnarúm af stærðinni 55 cm x 112 cm í ágúst á síð- asta ári eða síðar og sem hafa merkinguna ID No 15333 og Made in Poland á rúmbotninum að skila rúmbotninum til versl- unarinnar þar sem þeir munu fá nýjan rúmbotn afhentan. Engin önnur barnarúm eiga hlut að máli. Þau lönd sem þetta á við eru Belgía, Tékkland, Danmörk, Finnland, Innköllun á rúmbotnum frá Ikea  NEYTENDUR Bretland. Austurríki, Ítalía og Þýskaland hafa einungis selt Sniglar-barnarúm. Önnur lönd eiga ekki hlut að máli. Á Íslandi hafa sex rúm verið seld af gerðinni Tassa og Sniglar sem bera fyrrgreindar merk- ingar á umræddu tíma- bili. Í fréttatilkynningu frá Ikea kemur fram að vegna villu í framleiðslu hafa sumir rúmbotn- arnir ekki verið límdir saman á réttan hátt og getur það þar af leiðandi leitt til þess að þeir fullnægi ekki kröfum sem gerðar eru og greint er frá í evrópsku örygg- isstöðlunum fyrir barnarúm. Frakkland, Ungverjaland, Ís- land, Holland, Noregur, Pólland, Rússland, Slóvakía, Svíþjóð og SVOKÖLLUÐ „húsasýki“ kann að vera rangnefni þar sem ein- kenni hennar benda í rauninni fremur til vinnutengdrar streitu en heilsuspillandi vinnuum- hverfis, samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem gerð var í Bretlandi. Í ljós kom að þurrt loft og heitt umhverfi jók á ein- kennin, þ. á m. hósta og slen, en mikilvægasti áhrifaþátturinn var streita. Frá þessu greinir fréttavefur breska ríkisútvarpsins, BBC, en niðurstöður rannsóknarinnar eru birtar í vísindaritinu Occ- upational and Environmental Medicine. Fjögur þúsund op- inberir starfsmenn í 44 skrif- stofubyggingum í London tóku þátt í rannsókninni. Hugtakið „húsasýki“ hefur verið notað sem samheiti yfir kvilla í augum, höfði, önd- unarvegi og húð. Hefur verið talið að þessa kvilla mætti að einhverju leyti rekja til slæmrar hönnunar húsnæðis. Sérfræð- ingar hafa haldið því fram að húsasýki kosti fyrirtæki árlega háar fjárhæðir. En höfundar bresku rannsóknarinnar segja að marga þessa kvilla megi rekja til vinnustreitu fremur en gallaðs húsnæðis. Í rannsókn- inni kom í ljós að þeim sem mikl- ar kröfur voru gerðar til í starfi, en fengu lítinn stuðning, var hættara en öðrum við kvillum, einkum þeim sem höfðu lítil sem engin völd til ákvarðanatöku. Vinnustreita frekar en húsasýki  HEILSA ZAPPA PLAYS ZAPPA miðasala 2. apríl www.rr.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.