Morgunblaðið - 25.03.2006, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 43
MINNINGAR
hann í hitteðfyrra að skoða skóginn í
Brynjudal í Hvalfirði. Þar hafði hann
ekki komið (og ekki heldur ég). Ég
sem bý nánast á staðnum varð að
gráum sauði er hann þuldi sögu
þessa skógar yfir mér og bæjarnöfn
dalsins líka. Jónas hafði einnig þann
sið að skrifa dagbók um öll ferðalög
sem hann fór. Hann orðaði það þann-
ig að það væri svo skemmtilegt að
fara ferðina aftur við að lesa seinna
skrifin.
Frænda var ekki beint eiginlegt að
aka bílum. Hann átti það til að
gleyma að skipta um gír og var því
iðulega þanið til hins ýtrasta. En bíl
þurfti hann að eiga og lengi var það
Lada Sport. Hann ferðaðist um land-
ið þvers og kruss, oft henni Stínu
systur sinni til nokkurs ama. Vatns-
enda bræður þekktu aksturslag
frænda síns mæta vel því þeir skiptu
iðulega um einn til tvo kúplingsdiska
fyrir hann á ári.
Jónas var alla tíð afar hagur í
höndum og bjargaði sér sjálfur um
margt ef eitthvað þurfti að bæta eða
laga við búreksturinn. Þá hafði hann
að miklu áhugamáli að smíða ýmsa
hluti úr tré t.d. skálar og kirnur, aus-
ur og skóhorn að ógleymdum rokk-
unum sem urðu til í gamla fjósinu
sem hann hafði breitt í sitt allsherjar
tómstundaverkstæði. Þeir eiga klár-
lega eftir að verða dýrmætari innan
fjölskyldunnar eftir því sem árin líða.
Ég kveð þig, Jónas frændi, með
þökk fyrir allt og allt og óska þér
góðrar skemmtunar á ferðum þínum
um óskoðaðar slóðir.
Jón B. Sæmundsson, Galtarlæk.
Það er skrítið að hugsa til þess að
Jónas sé farinn frá okkur. Margar
bernskuminningar mínar tengjast
Gvendarstöðum og ömmusystkinum
mínum þar, þeim Jónasi og Stínu.
Við bjuggum á Gvendarstöðum
um skeið þegar ég var á sjötta ald-
ursári og langar mig að rifja upp tvö
minningarbrot frá þeim tíma. Ég var
afskaplega ánægð og hreykin af hríf-
unni minni, sem Jónas smíðaði mátu-
lega stóra fyrir lítið stelpuskott sem
fannst frábært að fá að vera með full-
orðna fólkinu í heyskapnum. Hin
minningin er frá því þegar Stína
keypti mikið auglýsta krabbasúpu.
Hún var ekki lengi á markaðnum og
var ástæðan fyrir því augljós þegar
heimilisfólk fékk sér fyrstu skeiðina.
Hún var einfaldlega óæt. Eini mað-
urinn sem lét það ekki á sig fá og
þótti ekki tiltökumál að borða alla
súpuna sína var Jónas.
Tíminn hefur flogið og lífið líka.
Áður var mikið líf á Gvendarstöðum
á sumrin, en nú eru kýrnar horfnar
úr fjósinu og smíðadótið hans Jón-
asar komið í staðinn. Sumarið er ró-
lyndistími. En eitt hafði ekki breyst,
fyrr en núna. Enn gat maður fundið
Stínu og Jónas þar. Litla hrífan mín
er löngu ónýt, en ég var svo heppin
að fá að velja mér fallega viðarkrús
með loki, sem Jónas hafði rennt, í
síðustu heimsókn til Gvendarstaða.
Því miður hafa heimsóknirnar orðið
allt of strjálar undanfarin ár, en
gömlu minningarnar lifa góðu lífi.
Elsku Stína, Rannveig amma,
Oddur, Jóa, Sæmundur og fjölskyld-
ur, megi Guð vera með ykkur þegar
við kveðjum elskaðan bróður ykkar.
Kær kveðja,
Katrín Björk.
Nærri nyrst í Mið-Kinninni þar
sem hún er hvað þrengst stendur
bærinn Gvendarstaðir. Bærinn er
efst á sléttlendu túni undir brattri
vel gróinni hlíð Kinnarfjalla. Gvend-
arstaðafjallið er ekki aðeins vel gróið
heldur „skreytt fossum í fjallshlíð“
því þrjár litlar ár hvítfossa ofan af
brún og niður með túni. Á Gvend-
arstöðum er skýlt og þangað var allt-
af hlýlegt heim að koma, að hitta
fólkið og sjá skógargróðurinn sem
þangað var kominn fyrr en á öðrum
bæjum.
Á Gvendarstöðum er vitað að
sama fólkið hefur búið þar mann
fram af manni frá því fyrir móðu-
harðindi eða væntanlega í nær tvær
og hálfa öld.
Jónas Helgason, nafni minn og ná-
granni var elstur af átta börnum,
sem ólust upp á Gvendarstöðum
fyrrihluta aldarinnar síðustu. En þau
voru af sjöunda liðnum sem þar bjó
mann fram af manni. Faðir þeirra
Helgi Jónasson og móðir Halldóra
Jónsdóttir veittu okkur nágranna-
börnunum nokkra sýn til eldri tíma
því að á Gvendarstöðum var ýmislegt
til af gömlum munum sem annars
staðar höfðu farið í glatkistu. Ungum
varð okkur e.t.v. líka starsýnt á
Helga, fríður var hann og beinn í
baki en með svo fornmannlegt skegg
og augun hvöss undir skörpum brún-
um og háu enni, og svo vissum við að
hann var grasafræðingur. Á hverju
sumri fór hann í leiðangra austur eða
vestur um sýslur og skoðaði hvers
konar jurtir og skráði þeirra fund-
arstað. Ef til vill seinkaði þetta slætt-
inum á Gvendarstöðum framan af
búskaparárum, og ábyrgðin kom þá
eitthvað fyrr á herðar elstu sonanna
Jónasar, Inga og Forna og þótt
framan af hafi e.t.v. stundum verið
þröngt í búi með börnin svo mörg
byggðu þeir bræður og systur upp og
ræktuðu í takt við það sem annars
staðar gerðist.
Jónas var þar foringinn, hagur
bæði á járn og tré og var í því öðrum
veitandi sem síður voru búhagir.
Snemma kom fyrsta heimilisrafstöð-
in að Gvendarstöðum, sem svo all-
nokkru síðar var endurbyggð og
stækkuð, allt af útsjónarsemi og hag-
leik Jónasar þótt nokkra hafi hann
fengið hjálp sveitunga sem lengra
voru komnir í þeim fræðum.
Jónas gerðist góður þegn í öllum
félagsmálum sveitarinnar. Ég minn-
ist hans sem formanns ungmenna-
félagsins, sem heitir því góða nafni
„Gaman og alvara.“ Þá voru nokkrar
viðsjár með fólki í sveitinni, eins og
títt er í löngum og mjóum sveitum,
þær geta orðið brothættar. Nafni
minn beitti sanngirni og hyggindum
og fékk málið leyst svo allir urðu
sáttir.
Þá hefur Jónas verið 17 ára þegar
girt var skógræktargirðing, um einn
hektari lands, í túnhorninu nyrst
uppi við fjallið. Þetta var árið 1935 og
okkur þótti mikið til um, en að það
væri þó eðlilegt að grasafræðingur-
inn og gróðurvinurinn Helgi á
Gvendarstöðum yrði fyrstur til að
hefja skógrækt. Við vissum það vel
börnin og unglingarnir af kvæðum í
skólaljóðunum okkar að það átti að
rækta skóg, „komið grænum skógi
að skrýða skriður berar sendna
strönd“ og að menningin hún átti að
vaxa í lundum nýrra skóga. Meðan
aðrir bændur girtu tún og engjagirð-
ingar girti Helgi sinn skógarreit.
Öll hafa börnin lagt hönd að gróð-
ursetningu í reitinn. Þangað kom
fjölbreyttari trjágróður en annars
staðar tíðkaðist. Fyrst var hann
stækkaður niður að ánni, og svo síðar
upp í hlíðina í tungunum á milli ánna.
Ár frá ári fetaði lerkiskógurinn sig
ofar og ofar í hlíðina. Þá voru þau
orðin að mestu ein systkinin Kristín
og Jónas, en eftir því sem árunum
fjölgaði óx skógurinn, þaðan komu
vænir gagnviðir, og smíðaviður og
jólatré voru sótt í Gvendarstaði.
Nú var þetta í okkar huga skóg-
urinn hans Jónasar, sem langt var
kominn með „að klæða fjallið“.
Jónas var öðru umhverfi sínu góð-
ur nágranni og góður sveitungi og
samfélagsþegn. Stöðugt var hann
boðinn og búinn til sjálfboðliðsstarfa,
fyrir ungmennafélagið, skógræktar-
félagið eða til annarrar samhjálpar.
Fróður maður var Jónas og ger-
hygginn og fátt var skemmtilegra en
að fá hann í heimsókn, eða heim-
sækja hann og setjast niður og
spjalla um landsins gagn og nauð-
synjar.
Við Siva sendum systkinum Jón-
asar og systkinabörnum, okkar inni-
legustu kveðjur um leið og við minn-
umst góðs drengs og
ræktunarmanns.
Jónas Jónsson.
Ef funktionalistiskur og minimal-
istiskur lífsstíll átti sér einhverntíma
spámann á Íslandi þá gekk hann til
feðranna með Jónasi Helgasyni
bónda á Gvendarstöðum í Kinn.
Hann stendur í stofunni á leiðinni á
fund hjá áfengisvarnanefnd. Kominn
í betri fötin, bláköflótta flannels-
skyrtu og stakan yrjóttan ullar-
jakka. Riffluðu flauelsbuxurnar ör-
lítið slitnar og kirfilega festar um
miðjuna með ljósbláu baggabandi. Í
augum Jónasar Helgasonar var eng-
in afgerandi munur á leðurbelti og
snæri. Hvort tveggja jafn gott til að
halda buxunum uppi.
Síðastliðið sumar sátum við saman
fyrir utan fjósið á Gvendarstöðum
sem Jónas hafði breytt í smíðaverk-
stæði. Höfðum hlaðið okkur grill úr
grjóti og brenndum lamb. Jónasi
þótti mikið við haft. Gaman að sitja
úti og spjalla, um dulspeki og nafna
sinn og vin frá Hriflu, en óttalega
kjánalegt að pukra þetta yfir hlóðum
úti á hlaði með þessa fínu eldavél í
eldhúsinu. Ég reyndi að sannfæra
hann um að þetta bragðaðist mun
betur svona. Hvort hann myndi ekki
eftir lambinu sem ég hafði grillað of-
aní hann hér um árið? „Gleymt er þá
gleypt er“, svaraði Jónas og rúllaði
errið að vanda eins og hann væri að
skola hálsinn, hló lágmælt og brosti
út undir eyru.
Á efri árum gerðist Jónas stórtæk-
ur í skógrækt og fetaði þar í fótspor
Helga Jónassonar grasafræðings,
föður hans, sem var brautryðjandi í
skógræktarmálum á Íslandi. Skóg-
ræktin var Jónasi hjartfólgin og það
var afskaplega gaman að ganga með
honum um skóginn þar sem hvert tré
átti sína sögu.
Jónas kom aldrei til útlanda en var
víðsýnni en flestir. Hann elskaði að
lesa dulspeki og var dyggur áskrif-
andi Ganglera, tímarits Guðspeki-
félagsins. Hann kenndi sig aldrei við
neina stefnu eða trúarbrögð en var
opinn fyrir öllum möguleikum. Hann
var náttúrubarn. Heimspekin var
honum eðlislæg. Ég kveð þig gamli
vinur eftir fjörutíu ára kynni. Við
synir míni, Hugi og Muni, lítum við
hjá þér í litla grafreitinn í skógrækt-
inni á Gvendarstöðum næst þegar
við erum heima á Íslandi.
Ásgeir R. Helgason.
Ég kasta nú hinstu kveðju á Jónas
á Gvendarstöðum í Kinn. Kynni okk-
ar tókust fljótlega eftir að ég hóf
störf sem sveitarstjóri Þingeyjar-
sveitar árið 2002. Hann kom alltaf til
mín í viðverutíma mína í Ljósvetn-
ingabúð, bara svona til að tryggja að
ég sæti þar ekki einn! sagði hann
kankvíslega. Og eftirminnilegt er að
hafa komið heim í Gvendarstaði til
hans og Stínu, sitja þar við eldhús-
borðið og spjalla um heima og geima.
Það var nefnilega bæði fróðlegt og
gaman ræða við Jónas sem alltaf var
með á nótunum þrátt fyrir háan ald-
ur og slæma heyrn. En hann var líka
hagleikssmiður. Það eru til dæmis
aðeins tæp tvö ár síðan hann smíðaði
fyrir mig spunarokk úr birki og kom
akandi í Laugar til að afhenda grip-
inn, sannkallaða listasmíð manns
sem þá var 86 ára að aldri. Rækt-
arsemi hans við náttúruna og um-
hyggja fyrir samferðarfólki sínu í líf-
inu var aðdáunarverð og ég kveð
Jónas með söknuði og virðingu.
Jóhann Guðni Reynisson.
Elsku föðurbróðir minn og vinur
hefur nú kvatt þetta jarðneska líf.
Viljum við Ragnar þakka honum fyr-
ir alla þá hlýju, sögur og fræðslu sem
hann lét okkur í té er við litum við til
þeirra systkina á Gvendarstöðum.
Það var alltaf gaman og fróðlegt
að ræða við Jónas því hann fylgdist
vel með öllum málum og var víðles-
inn og hafði skoðanir á flestum hlut-
um. Alltaf bauð hann okkur að koma
með sér út í útihús og sjá hvað hann
var að smíða hverju sinni. Oftar en
ekki leysti hann okkur út með gjöf-
um sem hann var nýlega búinn að
smíða.
Smíðarnar voru eitt af hans helstu
áhugamálum síðustu æviárin. Allur
efniviður var fenginn úr heimaskóg-
ræktinni en hún var einnig hans líf
og yndi. Oftar en ekki bauð hann
okkur að koma með sér upp í skóg-
rækt en í þeim ferðum máttum við
hafa okkur öll við til að fylgja honum
eftir því hann fór hratt yfir þótt kom-
inn væri á háan aldur. Hann þekkti
sögu skógarins og sögu hverrar
plöntu.
Guð blessi minningu hans og send-
um við Ragnar öllum aðstandendum
Jónasar okkar bestu samúðarkveðj-
ur.
Halldóra.
✝ Valgard Jörg-ensen fæddist í
Reykjavík, 25.
mars 1931. Hann
lést á Landspítal-
anum 1. mars síð-
astliðinn. Foreldr-
ar hans voru
Carsten Jörgensen
og Sigurfljóð Jak-
obsdóttir. Valgard
átti þrjú eldri
systkini, Ólöfu sem
er látin, Guðrúnu
og Kai.
Valgard kvænt-
ist Lydíu Bertu Jörgensen árið
1961. Börn þeirra eru Hanna
Kristín og Kolbrún Ósk, f. 1960,
Sólveig María, f.
1962, Anton Karl,
f. 1970, og Margrét
Sigurfljóð, f. 1971.
Fyrir átti Valgard
einn son, Valdimar,
f. 1950. Dóttir Ly-
díu af fyrra hjóna-
bandi er Guðrún
Barbara Tryggva-
dóttir, f. 1958.
Barnabörnin eru
17, og barnabarna-
börn 4. Valgard
nam málaraiðn
1947 og fékk síðar
meistararéttindi í þeirri iðn.
Útför Valgards var gerð í
kyrrþey að ósk hins látna.
Elsku pabbi minn.
Það er svo erfitt að trúa því að ég
hafi ekki pabba minn lengur hjá mér,
samt veit ég að þú ert hjá góðum Guð
og heldur verndarhendi yfir okkur.
Ég er kannski svona eigingjörn og
mundi frekar vilja hafa þig hjá mér
til að heyra röddina þína heilsa mér
þegar ég kem inn úr dyrunum og sjá
hlýja brosið þitt sem læknaði öll
mein.
Þú kvaddir okkur svo snögglega
og mér finnst það svo erfitt því að
það er svo margt sem ég hefði viljað
segja þér áður er þú fórst.
En það sem ég hef eru minning-
arnar um þig, til dæmis hvað ég var
örugg þegar ég sat í fanginu þínu lítil
stúlka og bakaði fyrir þig á hverjum
degi til að hafa handa þér köku þegar
þú komst heim í kaffitímanum þínum
þegar þú varst að mála, og alltaf
borðaðir þú þær með bestu lyst jafn-
vel þótt þær væru fullar af eggja-
skurn og jafnvel fallnar og ég varð
svo stolt af sjálfri mér og það hvatti
mig alltaf til að gera meira fyrir þig,
elsku pabbi minn. Það er svo margs
að minnast og svo margs að sakna.
Ég er svo þakklát fyrir að hafa feng-
ið að vera hjá þér alveg þangað til yf-
ir lauk, ég elska þig og sakna þín svo
sárt, elsku pabbi minn, og ég get
best lýst því með þessum orðum.
Stöðvið allar klukkur, slökkvið á símum
haldið hundum frá því að gelta yfir
safaríku beini
þaggið niður í píanóunum og með
hljóðlátum trommuslætti
komið með kistuna, leyfum syrgjendunum
að koma
Látið flugvélar hringsóla stynjandi yfir
höfðum okkar
tístandi í skýin, hann er látinn
látið hvítar slaufur um hálsa dúfnanna
látið lögreglumennina vera með hvíta
silkihanska
Hann var norðrið mitt, suðrið mitt, austrið
mitt og vestrið
vinnuvikan mín og sunnudagshvíldin
hádegið mitt, miðnættið mitt, mitt tal og
minn söngur
ég hélt að þetta myndi vara að eilífu, en
það var rangt
Það þarf ekki stjörnurnar lengur, slökkvið
á hverri og einni
pakkið saman tunglinu og takið í sundur
sólina
hellið í burtu hafinu og sópið í burtu sólinni
því ekkert getur nokkurn tíma aftur orðið
eins.
(W.H.Auden.)
Þín elskandi dóttir,
Margrét.
Elsku afi minn, ég hugsa stans-
laust um þig.
Það er mjög erfitt að hafa þig ekki
lengur, afi, sem ég get talað við þeg-
ar eitthvað er að. Og ég mun alltaf
hugsa vel um þig og til þín. Ég elska
þig og mun alltaf sakna þín og ég
mun alltaf fara vel með munnhörp-
una sem ég fékk frá þér og alltaf
muna það sem þú sagðir: „Maður
spilar og spilar og verður alltaf góð-
ur sama hvað maður spilar á.“
Ég vona að þér líði vel þar sem þú
ert og í kringum þig séu þeir sem
hugsa vel um þig og elska þig.
Ég elska þig og sakna þín.
Afi fer, afi kemur, afi elskar, afi
sér. Það sem þú sérð – sér afi minn.
Guð veri með þér, afi minn.
Saknaðarkveðja,
Róbert Freyr.
VALGARD
JÖRGENSEN
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Önnumst alla þætti útfararinnar
Þegar andlát ber að höndum
Arnór L. Pálsson
framkvæmdastjóri
Ísleifur Jónsson
útfararstjóri
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Svafar Magnússon
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Halldór Ólafsson
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta