Morgunblaðið - 25.03.2006, Side 52

Morgunblaðið - 25.03.2006, Side 52
52 LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ Atvinnuauglýsingar Starf í apóteki Í boði eru góð kjör og vinalegt starfsumhverfi. Þjónustulund, lipurð í samskiptum og bílpróf skilyrði. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Uppl. gefur Hanna María í síma 893 3141/ hanna@apotek.is Raðauglýsingar 569 1100 Fundir/Mannfagnaðir Aðalfundur LVF Aðalfundur Loðnuvinnslunnar hf., Fáskrúðs- firði, verður haldinn í Félagsheimilinu Skrúði föstudaginn 31. mars 2006 kl. 18.30. Fundarefni: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) Heimild til LVF að eignast eigin hluta- bréf eins og lög leyfa með vísan til 8. gr. samþykkta félagsins. 3) Önnur mál. Loðnuvinnslan hf., Fáskrúðsfirði. Nauðungarsala Uppboð Framhald uppboðs á neðangreindri eign í Bolungarvík verður háð á henni sjálfri miðvikudaginn 29. mars 2006 kl. 15:00. Þjóðólfsvegur 9, fastanr. 212 1769, þingl. eig. Soffía Vagnsdóttir og Roelof Smelt, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Landssími Íslands hf., innheimta, sýslumaðurinn í Bolungarvík og Vátryggingafélag Íslands hf. Sýslumaðurinn í Bolungarvík, 24. mars 2006. Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Barðastaðir 13, 223-5590, Reykjavík, þingl. eig. Héðinn Ingi Þorkelsson og Landsbanki Íslands hf., lögfrd., gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Landsbanki Íslands hf., aðalstöðv., fimmtudaginn 30. mars 2006 kl. 11:00. Flétturimi 7, 204-0160, Reykjavík, þingl. eig. Stíghús ehf. (Ice Beauty Ltd), gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, fimmtudaginn 30. mars 2006 kl. 11:30. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 24. mars 2006. Tilkynningar Bókaveisla í Kolaportinu (Hafnarmegin í húsinu) 30% afsláttur af öllum bókum aðeins þessa helgi. Félagslíf Skíða- og gönguferð á Skjald- breið sunnudaginn 26. mars. Brottför frá FÍ, Mörkinni 6 kl. 9.00. Takið með ykkur nesti og góðan búnað. Fararstjóri Leifur Þorsteinsson, leiðsögn Pétur Þorleifsson, verð kr. 2500, inni- falið rúta og fararstjórn. Göngugleði sunnudaginn 26. mars kl. 10.30. Brottför frá Mörk- inni 6, gengið í nágrenni Reykja- víkur, þátttaka ókeypis, allir vel- komnir. Páskar í Landmannalaugum, sjá heimasíðu FÍ, www.fi.is Gönguferðir í Þórsmörk, sjá heimasíðu FÍ, www.fi.is Nú er rétti tíminn til að bóka í sumarleyfisferðir FÍ. 26.3. Sunnudagur - Keilir. Brottför frá BSÍ kl. 10:30. Farar- stjóri Gunnar Hólm Hjálmars- son. V. 2.300/2.700 kr. 30.3.-2.4. Hofsjökull - Langj- ökull - Jeppaferð. Fararstj. Jón Viðar Guðmundsson. V. 7.100/ 8.200 kr. 1.-2.4. Fimmvörðuháls - Eyja- fjallajökull. Brottför kl. 9:00. Fararstj. Reynir Þór Sigurðsson. V. 13.600/15.800 kr. 3.4. Myndakvöld í Húnabúð, Skeifunni 11, kl. 20:00. Sýndar verða myndir úr ferð um fáfarn- ar slóðir á ysta hluta Tröllaskaga og ferð yfir Fimmvörðuháls að vestan. Aðgangseyrir kr. 700. 5.4. Aðalfundur Útivistar kl. 20:00 á Laugavegi 178. Á dag- skrá eru venjuleg aðalfundar- störf. Sjá nánar á www.utivist.is SKÁKSAMBAND Íslands bauð skákunnendum til mikillar skákhá- tíðar fyrstu þrjár vikur þessa mán- aðar. Fjörið byrjaði með fjölmenn- asta skákmótinu, sem árlega er teflt á Íslandi, Íslandsmóti skákfélaga. Eftir eins dags hvíld var tekið til við alþjóðlega Reykjavíkurskákmótið, hið 22. í röðinni. Mótið var það fjöl- mennasta frá upphafi og líka það skrautlegasta, í bestu merkingu þess orðs. Þátttakendur komu alls staðar að úr heiminum, mjög sterkir meist- arar, óvenjumargar skákkonur og margir kornungir skákmenn. Á loka- degi mótsins bættust tvær af skær- ustu stjörnum á skákhimninum, An- and og Polgar, í hóp sterkra skák- manna, sem dvöldu í Reykjavík, og tóku þátt í Glitnismótinu í hraðskák, Minningarmóti um Harald Blöndal, sem hófst daginn eftir. Það er líklega fjölmennasta hraðskákmót, sem teflt hefur verið á Íslandi og var mikil skemmtun, bæði fyrir skákmennina og áhorfendur. Tveim dögum síðar var svo hald- inn óvenjulegur lokaatburður á há- tíðinni, er bandaríski stórmeistar- inn, Maurice Ashley, eini blökku- maðurinn, sem ber titil stórmeistara, hélt fyrirlestur um skákkennslu sína í Harlem-hverfinu í New York og þá miklu uppeldislegu þýðingu, sem skákin hefur fyrir unga fólkið í stór- borginni. Á eftir lék einn af nemend- um hans, Kasaun Henry, á píanó. Það má kannski segja, að það hafi verið táknrænt fyrir hátíðarhöldin, að á fyrri degi Glitnismótsins í hrað- skák, undirrituðu Einar Sveinsson, stjórnarformaður Glitnis, og Guð- fríður Lilja Grétarsdóttir, forseti Skáksambandsins, tveggja ára sam- starfssamning bankans og sam- bandsins. Skáksambandið hefur með því fengið til liðs við sig sterkan stuðningsaðila fyrir framtíðarstarf til sóknar í skákinni. Nú kasta skákunnendur mæðinni og þá reikar hugurinn aftur til Reykjavíkurskákmótsins og árang- urs íslensku keppendanna þar. Hannes Hlífar Stefánsson, stór- meistari, varð efstur Íslendinga, í 11. sæti, af 102 keppendum. Næstir komu stórmeistararnir Þröstur Þór- hallsson og Henrik Danielsen. Allir áttu þeir góða spretti, án þess að ná að fóta sig í efstu sætunum. Af öðr- um Íslendingum má nefna góða tafl- mennsku alþjóðlega meistarans Héðins Steingrímssonar, en mikið ólán í tveimur síðustu umferðunum gerði vonir hans um stórmeistara- áfanga að engu. En ef miða á við stig íslensku keppendanna og andstæðinga þeirra, þá stóð hinn 12 ára gamli, Hjörvar Steinn Grétarsson sig best af þeim öllum. Hann fór fyrir hópi kornungra íslenskra skákmanna, sem nú þreyttu frumraun sína á al- þjóðlegu Reykjavíkurskákmótunum og stóðu sig vel. Hjörvar hækkaði sig um 29 stig á mótinu og lauk því með helmingi mögulegra vinninga, í 53. sæti, eða 39 sætum fyrir ofan stöðu hans meðal keppenda, miðað við stig. Þessi árangur sýnir okkur enn einu sinni, að Hjörvar er mesta skák- mannsefni, sem komið hefur fram á Íslandi í langan tíma. Hann hefur unnið sér rétt til að tefla í landsliðs- flokki á Skákþingi Íslands næsta haust og verður gaman að fylgjast með honum þar. Við skulum nú sjá skák Hjörvars úr 1. umferð, við FIDE-meistara, sem hefur 340 stigum meira en Hjörvar. Hvítt: Rauan Mankejev (Kaz- akhstan) Svart: Hjörvar Steinn Grétarsson Slavnesk vörn 1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 dxc4 5. a4 Bf5 6. e3 e6 7. Bxc4 Rbd7 8. 0–0 Bd6 9. He1 e5? (Venjulega er leikið hér 9. …Re4 10. Bd3 Rxc3 11. bxc3 Bxd3 12. Dxd3 0–0 o.s.frv.) 10. h3? – (Eftir 10. Db3! 0–0 11. Dxb7 hefði hvítur unnið peð, án þess að svartur fengi mikið mótspil, t.d. 11. – exd4 12. exd4 Rb6 13. Ba2 Rfd5 14. Bg5 Db8 15. Dxb8 Haxb8 o.s.frv.) 10. …0–0 11. e4 Bg6 12. a5 Dc7 13. Bg5 Hfe8 14. d5 Had8 15. Rd2 h6 16. Be3 Bc5 17. Df3 Bd4 18. Hec1 Rc5 19. Ha2 Bxc3 20. bxc3 cxd5 (Önnur leið er 20. – Rcxe4 21. Bxa7 Dd6 22. Rxe4 Bxe4 23. De3 Bxd5 og svartur á gott peð yfir.) 21. exd5 e4 22. Dg3 Dc8? (Hjörvar hefur yfirspilað and- stæðing sinn í miðtaflinu, en slakar nú aftur á klónni. Eftir 22. …Dxg3 23. fxg3 Rd3 hefði hann haldið mun betra tafli.) 23. d6 Kh7 24. Bd4? – (Yfirsést næsti leikur svarts. Eftir 24. Hd1 er staðan flókin, t.d. 24. – Rh5 25. Dh2 f5 26. Bb5 He6 o.s.frv.) 24. …e3! (Með þessum snjalla leik rýmir Hjörvari e4-reitinn og fær unnið tafl.) 25. Bxe3 Rce4 26. Df4 Rxd2 27. Hxd2 He4 28. Hd4 – (Í örvæntingu sinni ákveður hvít- ur að gefa frekar drottninguna, fyrir hrók, en að tapa biskupnum á c4 bótalaust.) 28. …Hxf4 29.Bxf4 Dc5 30. Ha1 Re4 31. d7 Rf6 32. Be3 Dc6 33. Had1 Hxd7 34. Hxd7 Rxd7 35. Be2 Rc5 36. Hd8 Re6 37. Ha8 Dxc3 38. Bf3 Dxa5 39. Bxb7 De1+ 40. Kh2 a5 41. Bd5 Dd1 42. Hxa5 Dc2 43. Ha6 Rc7 44. Hc6 Df5 45. Bf3 Re6 46. Hc4 De5+ 47. Kg1 f5 48. h4 f4 49. Bb6 Bf5 50. Ha4 Db5 51. Ha5 og hvítur gafst upp. (Hann á gjörtapað tafl, eftir 51. …Dxb6 52. Hxf5 Db1+ 53. Kh2 Dxf5 o.s.frv.) Bragi Kristjánsson Að lokinni skákhátíð SKÁK Skákviðburðir 3.–18. mars Morgunblaðið/Ómar Hjörvar Steinn Grétarsson FRÉTTIR BANDALAG kvenna í Reykjavík hélt nýlega 90. ársþing samtakanna á Hótel Sögu. Á þinginu var lýst yfir áhyggjum af fækkun kvenna á Al- þingi og samþykkt var áskorun til kvenna almennt um að gefa kost á sér í efstu sæti á listum fyrir næstu alþingiskosningar. Fram kom að sjónarmiða og gild- ismats kvenna þótti gæta allt of lítið í þjóðfélaginu og þess vegna skipti miklu að fá fleiri konur á þing sem og í nefndir og til stjórnunarstarfa. Ennfremur voru málefni aldraðra rædd. Samþykkt var áskorun til við- komandi stjórnvalda um verulegar úrbætur einkum fyrir þá sem þurfa á hjúkrun og sjúkrarými að halda. Lög Bandalagsins eru í endur- skoðun svo og starfsemin, með það að markmiði að móta enn frekar sam- eiginleg markmið og efla slagkraft og samtakamátt kvenna eins og tilgang- urinn var í upphafi fyrir 90 árum. Gestur þingsins var frú Vigdís Finnbogadóttir og hélt hún erindi sem hún nefndi „Tungumál alheims- ins.“ Bandalag kvenna í Reykjavík var stofnað 1917. Það samanstendur af fjórtán aðildarfélögum, sem hvert um sig vinnur að sjálfstæðum verk- efnum, en innan bandalagsins vinna þau sameiginlega að hag kvenna á menningar- og félagssviði. Meðal annars er bandalagið stuðn- ingsaðili við Hússtjórnarskóla Reykjavíkur og skipar skólanefnd. Það veitir einnig árlega styrki úr starfsmenntunarsjóði sínum til stuðnings ungum konum í sérnámi. Þingi lauk með kvöldverði og skemmtiatriðum. Ný stjórn Bandalags kvenna í Reykjavík, talið frá vinstri: Þorbjörg Daní- elsdóttir ritari, Ragnhildur Jónasdóttir gjaldkeri, Margrét Albertsdóttir varaformaður, Ingveldur Ingólfsdóttir formaður, Helga Kristinsdóttir meðstjórnandi og Kolbrún Benjamínsdóttir meðstjórnandi. Á myndina vantar Hörpu Hannibalsdóttur meðstjórnanda. BKR lýsir áhyggjum af fækkun kvenna á Alþingi RÁÐSTEFNA um vöktun og við- brögð vegna farsótta verður haldin í hátíðarsal Háskóla Íslands mánu- daginn 27. mars, kl. 13 - 17. Franski sendiherrann á Íslandi, Nicole Michelangeli, setur ráðstefn- una og fundarstjóri verður Stefán B. Sigurðsson forseti læknadeildar Há- skóla Íslands. Erindi halda: dr. Denis Coulomb- ier, framkvæmdastjóri vaktana og viðbragða, ECDC, Dr. Isabelle Bon- marin farsóttafræðingur, Jarle Reiersen, dýralæknir alifuglasjúk- dóma og Haraldur Briem, sóttvarna- læknir. Davíð Á. Gunnarsson ráðu- neytisstjóri stjórnar panelumræðum. Ráðstefna þessi er í boði franska sendiráðsins á Íslandi í samvinnu við læknadeild Háskóla Íslands og sótt- varnalækni hjá Landlæknisembætt- inu og fer fram á ensku. Ráðstefna um vöktun og viðbrögð vegna farsótta

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.