Morgunblaðið - 25.03.2006, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 55
DAGBÓK
Reynsla hjúkrunarfræðinga af starfi sínu ágeðdeildum“ er yfirskrift erindis semDröfn Kristmundsdóttir flytur á mánu-dag í Eirbergi, stofu 201, kl. 12.10.
Í erindi sínu fjallar Dröfn um rannsókn sem hún
vann sem hluta af mastersnámi sínu í hjúkrun við
Royal College of Nursing Institute, Manchester
University í samstarfi við Háskólann á Akureyri.
Leiðbeinandi Drafnar í náminu var próf. Sigríður
Halldórsdóttir.
Um er að ræða eigindlega fyrirbærafræðilega
rannsókn og mun Dröfn kynna bæði aðferðafræði
rannsóknarinnar og niðurstöður.
„Ég hef starfað á geðdeildum í yfir tvo áratugi,
haft mikinn áhuga á faginu og fylgst með hvernig
geðhjúkrun hefur þróast í landinu,“ segir Dröfn.
„Mér hefur virst vera helsti akkilesarhæll geð-
sviðsins að skortur er á hjúkrunarfræðingum á
geðdeildum. Þetta er sérstök hjúkrun og einkenn-
ist t.d. af mikilli breidd í menntun og bakgrunni
þeirra starfsmanna sem starfa á geðsviði. Skortur
hefur verið á sérhæfðu fagfólki á sviðinu, sér í lagi á
hjúkrunarfræðingum. Það leiðir síðan oft til þess að
álag eykst á þá sem fyrir eru. Mig langaði að at-
huga hvað það væri við geðhjúkrun, bæði eflandi og
niðurbrjótandi, sem hjúkrunarfræðingar upplifa,
með því markmiði að bæta megi það sem miður hef-
ur farið í geðhjúkrun og styrkja það sem vel er
gert.“
Rannsóknina framkvæmdi Dröfn með samræðu-
viðtölum við hjúkrunarfræðinga á geðsviði í
Reykjavík og á Akureyri: „Meginþemu niðurstaðn-
anna voru fjögur: hið fyrsta; mikilvægi stjórnanda,
bæði sem fyrirmynd og fagleg vinnubrögð s.s. við
samskipti og lausn vandamála. Í öðru lagi: sérstaða
geðhjúkrunar; en af svörum viðmælenda minna
hefur starfið mikil áhrif á einstaklingsþroska enda
fylgir því mikil ábyrgð og er þetta hjúkrun sem
unnin er mjög sjálfstætt. Einnig fylgir starfinu
mikil sjálfsskoðun og þjálfun í mannlegum sam-
skiptum. Loks voru viðmælendur mínir ánægðir
með þá þverfaglegu vinnu sem iðulega er unnin á
geðsviði.
Þriðja meginþemað: „Geðhjúkrun í kreppu“,
varðar fagvitund og innri virðingu fyrir faginu, en
einnig fjármagnsskort til hjúkrunar. Og loks fjórða
þema: vinnutengd streita, en starfið er krefjandi og
stöðugt verið að fást við mannlegar tilfinningar. Of-
beldi kemur upp á geðdeildum og því fylgir van-
máttartilfinning, sem og því þegar ekki tekst að ná
til sjúklinga með sjálfskaðandi hegðun. Starfinu
fylgir á tíðum mikil sorg, bæði hjá sjúklingum, að-
standendum og meðferðaraðilum, og oft að geð-
hjúkrunarfræðingum reynist erfitt að skilgreina
hvar ábyrgð þeirra lýkur. Það fylgir mikið vinnuá-
lag þessari hjúkrun. Þó hún krefjist ekki mikillar
líkamlegrar áreynslu í samanburði við önnur hjukr-
unarstörf er andlegt álag þeim mun meira.“
Heilsa | Erindi um áhrifaþætti í starfsupplifun hjúkrunarfræðinga á geðdeildum
Upplifun geðhjúkrunarfræðinga
Dröfn Kristmunds-
dóttir fæddist í Reykja-
vík árið 1963. Hún lauk
stúdentsprófi frá Fjöl-
brautaskólanum við Ár-
múla 1985 og BS gráðu
í hjúkrun við Háskóla
Íslands 1991. Árið
2004 lauk Dröfn
meistaranámi í hjúkrun
frá Royal College of
Nursing Institute, Man-
chester University, í samvinnu við Háskólann
á Akureyri. Hún hefur verið deildarstjori á
geðsviði frá 1992. Dröfn á þrjá syni.
80 ÁRA afmæli. Í dag, laugardag-inn 25. mars, er áttræð Björg
Jóhannsdóttir frá Steinum, A-
Eyjafjöllum, Fannborg 1. Björg er
stödd á heimili dóttur sinnar í Mos-
fellsbæ.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
60 ÁRA afmæli. Í dag, 25. mars, ersextugur Pétur Ágústsson,
skipstjóri og framkvæmdastjóri Sæ-
ferða ehf. í Stykkishólmi. Pétur verð-
ur að heiman á afmælisdaginn en þau
hjónin, Pétur og Svanborg Siggeirs-
dóttir, hafa ákveðið að halda upp á
tímamótin með fjölskyldu og vinum
síðar á árinu.
GULLBRÚÐKAUP | Í dag, 25. mars,
eiga 50 ára hjúskaparafmæli hjónin
Sigríður Þorsteinsdóttir og Sverrir
Tryggvason.
HLUTAVELTA | Þessi duglegi
drengur, Óskar Einarsson, safnaði
9.190 kr. til styrktar Rauða krossi Ís-
lands, söfnun fyrir Pakistan.
Gljúfrin þrjú í
Jangtze-fljótinu í Kína
Í AUGLÝSINGU í Fréttablaðinu,
hér um daginn, og í bæklingum frá
ferðaskrifstofunni Heimsferðir, eru
sölufærðar ýmsar ferðir vítt og
breitt um heiminn. Ein þessara
ferða er sigling um „Gljúfrin þrjú“ í
Jangtze-fljóti í Kína.
Hér er maðkur í mysunni, því
þessi gljúfur eru ekki lengur til og
því ómögulegt að sigla um þau –
nema þá í kafbáti! Þar sem þessi
frægu gljúfur voru, er nú uppistöðu-
lón 640 km langt, gert fyrir nýju
virkjunina í fljótinu.
Mér er spurn: Hvernig dettur
ferðaskrifstofu í hug að selja það
sem ekki er til? Mér finnst það mjög
ósmekklegt að lokka fólk í ferðir á
röngum forsendum, þ.e.a.s., hrein-
lega að ljúga að fólki.
Margrét Jónsdóttir,
tvöfaldur Kínafari,
Melteigi 4, Akranesi.
Óviðeigandi málsháttur
ÉG var að opna mjólkurfernu í
morgun og rak þá augun í málshátt
sem var á henni. Hann hljóðar svo:
Sæt er lykt úr sjálfs rassi. Finnst
mér þetta ekki viðeigandi máls-
háttur á mjólkurfernu. Það liggur
við að maður missi lystina á vörunni.
Það hljóta að vera margir máls-
hættir sem eiga betur við á mat-
vörum.
Kona.
Ummæli Geirs Haarde
ÉG er alveg sammála Þóri Andra
Karlssyni í Velvakanda sl. fimmtu-
dag þar sem hann vekur athygli á
niðrandi ummælum Geirs Haarde
gagnvart konum. Að líkja konum við
einhver nytjadýr er ótrúleg lítils-
virðing frá fullorðnum og að ég hélt
vel gefnum manni. Að ég tali ekki
um mann sem stendur í forystu
Sjálfstæðisflokksins og er ráðherra
að auki.
Hulda K. Guðjónsdóttir.
Verðlaunapeningur
í skák í óskilum
VERÐLAUNAPENINGUR merkt-
ur eftirfarandi: Íslandsmót barna
2006 – Fædd 1996 – 3. verðlaun.
Framan á honum er hrókur og
peð.
Þessi verðlaunapeningur kom í
umslagi merktu: Emil Sigurðsson,
en tilheyrir ekki þeim Emil er fékk
umslagið í pósti. Eigandi vinsamlega
hafi samband við Önnu í síma
823 2212.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Hugleiðingar um vörn.
Norður
♠D976
♥G108 S/NS
♦KG2
♣G105
Vestur Austur
♠1083 ♠–
♥9 ♥ÁD76542
♦107653 ♦D84
♣K842 ♣D93
Suður
♠ÁKG542
♥K3
♦Á9
♣Á76
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 spaði
Pass 2 spaðar 3 hjörtu 4 spaðar
Pass Pass Pass
Hliðarkall er sú regla í vörn sem
erfiðast er að ná utan um og skil-
greina á tæmandi hátt. Frumgerðin
er þó einföld – hún snýst um að
panta lit til baka þegar makker er
gefin stunga.
Vestur kemur út með einspilið í
hjarta gegn fjórum spöðum. Austur
tekur með ás og gefur makker sínum
stungu í öðrum slag. Nú verður vest-
ur að spila trompi hlutlaust til baka,
því hann gefur sagnhafa tíunda slag-
inn ef hann hreyfir við öðrum hvor-
um láglitnum:
Ef hann spilar tígli, hleypir sagn-
hafi á níuna, og spili vestur laufi frí-
ast þar slagur.
Spilið sem austur velur til að gefa
makker stungu er um leið kall til
hliðar – hátt spil biður um hærri lit-
inn, lágt um þann lægri. Tveir litir
eru undanskildir, trompið og liturinn
sem spilað er. Hér myndi austur því
kalla á tígul með hjartasjöunni, en
lauf með hjartatvisti.
Þessi regla flækist ekki fyrir spil-
urum þegar raunveruleg ástæða er
til að kalla í öðrum hvorum litnum.
En stundum eru hliðarlitirnir jafn
góðir eða slæmir. Þá er miðjuspil
sent til baka og makker látinn beita
dómgreind sinni.
Í þessu tilfelli ætti austur að spila
hjartafimmu í öðrum slag, sem bein-
línis neitar ás í tígli eða laufi. Ef
vestur skynjar hættuna á því að
hreyfa við öðrum hvorum láglitunum,
mun hann trompa út og þá lekur
samningurinn hægt og hljótt einn
niður.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3
dxc4 5. a4 Bf5 6. e3 e6 7. Bxc4 Rbd7
8. 0-0 Bd6 9. He1 e5 10. h3 0-0 11.
e4 Bg6 12. a5 Dc7 13. Bg5 Hfe8 14.
d5 Had8 15. Rd2 h6 16. Be3 Bc5 17.
Df3 Bd4 18. Hec1 Rc5 19. Ha2
Bxc3 20. bxc3 cxd5 21. exd5 e4 22.
Dg3 Dc8 23. d6 Kh7 24. Bd4
Staðan kom upp á opna alþjóð-
lega Reykjavíkurmótinu sem lauk
fyrir skömmu í skákmiðstöðinni í
Faxafeni 12. Hinn ungi og efnilegi
Hjörvar Steinn Grétarsson (2.046)
hafði svart gegn Fide-meistaranum
Rauan Mankeyev (2.381) frá Ka-
sakstan. 24. … e3! eftir þennan
snjalla peðsleik getur hvítur ekki
varist með góðu móti mannstapi.
Hvítur reyndi að halda í horfinu
með því að leika 25. Bxe3 en eftir
25. … Rce4 26. Df4 Rxd2! 27. Hxd2
He4 var liðstap óumflýjanlegt og
tapaði hvítur skákinni nokkru síð-
ar: 28. Hd4 Hxf4 29. Bxf4 Dc5 30.
Ha1 Re4 31. d7 Rf6 32. Be3 Dc6
33. Had1 Hxd7 34. Hxd7 Rxd7 35.
Be2 Rc5 36. Hd8 Re6 37. Ha8 Dxc3
38. Bf3 Dxa5 39. Bxb7 De1+ 40.
Kh2 a5 41. Bd5 Dd1 42. Hxa5 Dc2
43. Ha6 Rc7 44. Hc6 Df5 45. Bf3
Re6 46. Hc4 De5+ 47. Kg1 f5 48.
h4 f4 49. Bb6 Bf5 50. Ha4 Db5 51.
Ha5 og hvítur gafst upp saddur líf-
daga.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
Íbúð í 101 Skuggi óskast
Traustur kaupandi óskar eftir 110-150 fm íbúð í
101 Skuggi eða nágrenni.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson.
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Jón Stefánsson óskast
Óska eftir að kaupa olíumálverk
eftir Jón Stefánsson.
Upplýsingar í síma 896 6170.
Fréttasíminn 904 1100