Morgunblaðið - 25.03.2006, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 59
MENNING
Landsbankinn er stoltur bakhjarl sýningarinnar.
MIÐASALA: WWW.MIDI.IS OG Í IÐNÓ S. 562 9700
laugardagur
laugardagur
föstudagur
25.03
01.04
07.04
ALLRA
SÍÐUS
TU
SÝNIN
GAR
UPPSELT
UPPSELT
SÍÐASTA SÝNING
UPPSELT
Nýlega hófust tökur á kvik-myndinni Mýrin eftir sam-nefndri metsölubók Arn-
aldar Indriðasonar. Það má segja
að þessi bók, eða titill hennar, sé
ákveðið íkon fyrir nýlegt saka-
málaæði þjóðarinnar. Það hefur
þar af leiðandi myndast mjög sér-
stakt og spennuþrungið andrúms-
loft varðandi gerð þessarar mynd-
ar. Rannsóknarlöggan Erlendur
og fylgdarlið hans eru fyrir löngu
orðin þjóðþekktar persónur eftir
útgáfur Arnaldar og eflaust marg-
ir farnir að velta fyrir sér hvernig
leikararnir Ingvar E. Sigurðsson,
Björn Hlynur Haraldsson, Ágústa
Eva Erlendsdóttir og Elva Ósk
Ólafsdóttir munu taka sig út í hlut-
verkunum. Almenning þyrstir í
fregnir af tökustað, eða allavega
mig.
Að vissu leyti er það áhugavertað maður skuli verða sér-
staklega spenntur yfir því að bók
sem heillaði mann sé kvikmynduð.
Ég þekki söguna og ég veit hvern-
ig hún endar en engu að síður
verð ég að sjá hana í bíó. Kannski
er það vegna þess að það vantaði
einfaldlega hljóð og mynd í bók-
ina. Sagan nái þannig fullkomnun
á hvíta tjaldinu með látum og lit-
um. Er þá ekki æðsta takmark
bókarinnar að verða kvikmynduð,
að sagan sé leyst úr viðjum hug-
arheims lesendans og raungerð á
hvíta tjaldinu. Ég held ekki. Bókin
hefur náttúrulega svo margt ann-
að á móti. Og svo ég hljómi enn
klisjulegri þá er bókin þrátt fyrir
allt persónulegri þar sem sagan og
persónurnar verða til í þínum eig-
in hugarheimi. Engu að síður get
ég ekki beðið eftir að sjá Erlend
raungerðan.
Þó að það sé alltaf mikil eft-irvænting hér á landi þegar
íslenskar metsölubækur eru á ann-
að borð kvikmyndaðar þá hlýtur
Mýrin að teljast nokkuð sérstakt
tilvik að því leytinu til að verið er
búa til harðkjarna sakamálamynd
sem á engar sínar líkar í íslenskri
kvikmyndagerð. Það hafa að vísu
verið gerðar ófáar íslenskar mynd-
ir sem fjalla um sakamál en ekki
eftir þessari uppskrift. Það hefur
ekki fyrr hefur verið grundvöllur
fyrir mynd um íslenska rannsókn-
arlöggu að fást við íslensk saka-
mál fyrr en nú. Fyrir nokkrum ár-
um þóttu slíkar sögur einfaldlega
ekki nógu sannfærandi þar sem
þær þóttu falla mjög illa að ís-
lenskum veruleika. Hugmyndin að
íslenskri löggumynd hefur þar af
leiðandi fram að þessu þótt hálf-
hlægileg enda er eina eiginlega ís-
lenska löggumyndin grínmyndin
Löggulíf sem Þráinn Bertelsson
leikstýrði um árið. Núna aftur á
móti hafa rithöfundar skapað góð-
an grundvöll fyrir slíka kvik-
myndagerð hér á landi og greitt
leiðina fyrir kvikmyndagerðafólk
með því að skapa sannfærandi
sakamálasögur. Nú þegar er í bí-
gerð önnur kvikmynd eftir bók
Arnaldar og ljóst að Mýrin er ein-
ungis byrjunin. Núna er tíminn
kominn á okkar Morse eða Tagg-
art. Og það er hann Erlendur okk-
ar.
Hann Erlendur
okkar
’Hugmyndin að íslenskrilöggumynd hefur fram að
þessu þótt hálfhlægileg
enda er eina eiginlega ís-
lenska löggumyndin grín-
myndin Löggulíf.‘
Morgunblaðið/Árni SæbergÁ tökustað Mýrinnar.
thorri@mbl.is
AF LISTUM
Þormóður Dagsson
MYNDLISTAMAÐURINN Kristján Stein-
grímur Jónsson opnar í dag sýningu á jarðhæð
Safns á Laugaveginum. Sýningin ber titilinn
„Teikningar“ og sýnir teikningar sem Kristján
gerði á árunum 2004 til 2006.
„Þetta eru teikningar á pappír og striga og
eru ákveðið framhald af því sem ég hef verið að
gera. Verkin eru unnin út frá náttúrulegum fyr-
irbærum og fjalla að eitthverju leyti um merk-
ingu. Ég er að kanna merkingu með því að
skoða hvað gerist ef táknin hverfa,“ segir Krist-
ján Steingrímur sem auk þess að vera listamað-
ur er deildarforseti Myndlistardeildar Listahá-
skóla Íslands.
Viðfangsefni Kristjáns í listinni er náttúran
og reynsla okkar af henni. „Ég er að taka fyrir
það smæsta sem finnst í náttúrunni, þetta eru
eiginlega uppstækkaðar agnir. Ég hef áður unn-
ið með agnir með því að setja þær í víðsjá og
ljósmynda en núna er ég að prófa að teikna þær
milliliðalaust, beint frá huga til handar, og
skoða svolítið hvaða merkingu það gefur okk-
ur.“
Á sýningunni eru fimm stórar teikningar á
striga og fimmtán á pappír. „Striginn er ekki
teiknaður heldur fræsa ég í gegnum yfirborð
hans. Þá nota ég handfræsara og ríf yfirborð
strigans, ég teikna með því að taka af í staðinn
fyrir að bæta á.“
Kristján hefur ekki sýnt í Reykjavík í þó-
nokkurn tíma en haldið sýningar erlendis og á
landsbyggðinni.
Sýningin verður opnuð laugardaginn 25. mars
kl. 16.00 í Safni, Laugavegi 37. Safnið er opið frá
14:00-18:00 miðvikudaga til föstudaga en frá
14:00 til 17:00 um helgar. Aðgangur er ókeypis.
Myndlist | Kristján Steingrímur Jónsson sýnir teikningar í Safni
Fræsaður strigi með stórum ögnum
Kristján Steingrímur Jónsson fyrir framan
eitt verka sinna á sýningunni.
STOPPLEIKHÓPURINN fagnar
um þessar mundir 10 ára leikafmæli
sínu. Á þessu tímabili hefur leik-
hópurinn frumsýnt 18 ný íslensk
leikrit, sem eru sérstaklega ætluð
börnum og unglingum.
Í tilefni 10 ára afmælisins frum-
sýnir leikhópurinn nýtt íslenskt
leikrit í Iðnó í dag, sem nefnist
Emma og Ófeigur, og er höfundur
þess Árni Ibsen.
Verkið segir frá ungmennunum
Emmu og Ófeigi. Þegar leikritið
hefst er Emma nýbúin að missa
móður sína og önnur kona, Geir-
þrúður, komin í hennar stað á heim-
ilið. Emma er miður sín og ein-
mana, þar sem faðir hennar er
upptekin af nýju konunni og veitir
henni litla athygli. Emma grunar
ennfremur nýju konuna um græsku
og finnur að eitthvað er ekki eins
og það á að vera – að eitthvað er
rotið í Danaveldi, eins og stundum
er sagt. Síðar kynnist hún Ófeigi
sem er myndarpiltur og töff gæi, en
margt á eftir að gerast áður en
tjaldið fellur.
Eins og ef til vill er ljóst af þess-
ari lýsingu er verkið byggt á einu
þekktasta verki leikhúsbók-
menntanna, Hamlet eftir William
Shakespeare, þó hlutverkum hafi
verið snúið við. Í útfærslu sýning-
arinnar er blandað saman tónlist,
leik, dansi og trúðstækni og er hún
hugsuð jafnt sem ferðasýning sem
fyrir fast svið – og ætluð ungmenn-
um í grunn- og framhaldsskóla.
Hamlet strax í hugann
Árni Ibsen er eitt vinsælasta og
þekktasta leikskáld þjóðarinnar og
verk hans hafa verið sett upp við
góðar undirtektir víða um heim. Á
síðasta ári setti Hafnarfjarðarleik-
húsið til dæmis leikverkið Himna-
ríki eftir Árna á svið til að fagna 10
ára afmæli sínu, en það var fyrsta
leiksýning hússins á sínum tíma og
var verkið sýnt alls 100 sinnum fyr-
ir fullu húsi.
Árni hefur nú samið nýtt verk
fyrir Stoppleikhópinn í tilefni af-
mælisins og í samtali við Morg-
unblaðið segir hann hugmyndina að
verkinu hafa vaknað í samtölum við
Stoppleikhópinn. Verkið tók síðan á
sig núverandi mynd í desember og
janúar. En hafði hann lengi gengið
með það í maganum að semja leik-
rit byggt á Hamlet? „Ég veit það
ekki, líklega,“ segir Árni. „Þegar
Stoppleikhópurinn bað um leikrit
fyrir unglinga þá kom Hamlet strax
upp í hugann og vildi ekki fara.
Hamlet er mikið í uppáhaldi hjá
mér.“
Hann segir söguna af Hamlet þó
ekki mjög greinilega í sýningunni,
enda sé markmiðið ekki að kynna
Shakespeare og verk hans sér-
staklega. „Þetta er bara eitt af
mörgum leikritum og sögum upp úr
Hamlet. Annað dæmi er sagan 101
Reykjavík,“ segir hann.
Unglingar geta
Að sögn Árna er boðskapurinn í
verkinu fyrst og fremst sá að ung-
lingar geti. En aðspurður um hvort
það sé ólíkt að skrifa fyrir börn og
unglinga annars vegar og fullorðna
hins vegar segist hann ekki geta
svarað því. „Er einhver munur?“
spyr hann á móti.
Þegar Árni Ibsen á í hlut – með
hin vinsælu leikrit sín að baki – er
ekki úr vegi að spyrja hver gald-
urinn að góðu leikverki sé. En hann
svarar af hógværð og segist ekki
vita það og bendir blaðamanni enn-
fremur á að heilu bækurnar hafi
verið skrifaðar um einmitt þessa
spurningu.
Aðspurður um Stoppleikhópinn á
tíu ára afmæli hans segir Árni að
þetta sé góður hópur. „Þau eru að
vinna mjög þarft verk. Ég óska
þeim til hamingju með afmælið.“
Leiklist | Rætt við Árna Ibsen um nýtt verk hans í tilefni 10
ára afmælis Stoppleikhópsins
„Hamlet er mikið í
uppáhaldi hjá mér“
Emma og Ófeigur verður frumsýnt
í Iðnó í dag kl. 15.
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur
ingamaria@mbl.is
Morgunblaðið/KristinnLeikritið Emma og Ófeigur eftir
Árna Ibsen verður frumsýnt í með-
förum Stoppleikhópsins í Iðnó í dag.
Stoppleikhópurinn fagnar 10 ára
afmæli um þessar mundir.
eftir Árna Ibsen
Aðstoð við handrit og leik-
stjórn: Vala Þórsdóttir
Leikarar: Eggert Kaaber,
Katrín Þorkelsdóttir og Sig-
urþór Albert Heimisson
Leikmynd og búningar:
Guðrún Öyahals
Tónlist: Björn Thorarensen
Leikstjóri er Ágústa Skúla-
dóttir
Emma og
Ófeigur