Morgunblaðið - 26.03.2006, Side 2
2 SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Vika í Boston
kr. - ótakmarkaður akstur, allar tryggingar,
þjófavörn, flugvallargjald, einn tankur
af bensíni, einn auka bílstjóri og skattar.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
3
15
83
03
/2
00
6
Bíll úr flokki A
50 50 600 • www.hertz.is
Bókaðu bílinn heima fyrir 1. apríl
- og fáðu 1000 Vildarpunkta
*Verð gildir eftir 1. apríl.
Miðað við gengi 1. mars 2006
18.200Verð frá *
GÓÐ STAÐA
Halldór Ásgrímsson forsætisráð-
herra segir að þrátt fyrir nokkurt
umrót á fjármálamarkaði að und-
anförnu sé staða íslensks efnahags-
lífs góð. Í samtali við Morgunblaðið
gagnrýnir Halldór Bandaríkjamenn
fyrir einhliða ákvörðun um að kalla
varnarliðið heim.
Leitað lausna á vanda TR
Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis-
ráðherra segir að leita verði lausna á
þeim vanda sem blasi við Trygg-
ingastofnun, en umboðsmaður Al-
þingis vakti athygli ráðherra á
löngum afgreiðslutíma hjá TR og að
ekki fengist fé til að ráða nægt
starfsfólk til að afgreiða verkefni.
Ráðherra segir ekki ljóst hvort hægt
verði að veita meira fé fyrr en við
fjárlagagerð fyrir árið 2007.
Ekki framlengt
Kaupendur skuldabréfa íslensku
bankanna í Bandaríkjunum hafa
ákveðið að framlengja ekki samn-
inga að andvirði samtals rúmlega 1,5
milljarða Bandaríkjadala, sem svar-
ar 115,7 milljörðum króna. Kaup-
endur skuldabréfa Glitnis ákváðu að
endurnýja ekki samninga að and-
virði 775 milljóna dala, sem sam-
svarar 56,9 milljörðum króna. Að
sögn Ingvars H. Ragnarssonar hjá
Glitni kemur þetta þeim ekki á óvart
þar sem miklar sveiflur hafa verið á
markaði.
Aðstoðuðu Rússar Íraka?
Gögn sem Bandaríkjamenn kom-
ust yfir í Írak benda til þess að
Rússar hafi, skömmu eftir að inn-
rásin hófst 2003, látið stjórn Sadd-
ams Husseins í té upplýsingar sem
þeir komust yfir um hernaðaráform
bandamanna. Bent er á að Rússar
hafi átt mikilla fjárhagslegra hags-
muna að gæta. Írakar skulduðu
þeim mikið fé og einnig vonuðust
Rússar til að gera ábatasama olíu-
samninga við Saddam.
Fá birta fræðigrein
Tveir íslenskir málfræðingar,
Þórhallur Eyþórsson og Jóhanna
Barðdal, eru höfundar fræðigreinar
sem birtist í nýjasta tölublaði mál-
vísindatímaritsins Language. Grein
þeirra nefnist Aukafallsfrumlög:
Sameiginlegur germanskur arfur.
Þar eru færð rök fyrir því að auka-
fallsfrumlög, sem nú er aðeins að
finna í íslensku, færeysku og þýsku,
séu í raun germanskur arfur sem er
horfinn úr öðrum tungumálum.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Myndasögur 60
Hugsað upphátt 31 Dagbók 60/63
Menning35/37, 65/73 Víkverji 60
Sjónspegill 34 Velvakandi 61
Forystugrein 38 Staður og stund 62
Reykjavíkurbréf 38 Leikhús 64
Umræðan 40/50 Bíó 70/73
Bréf 50 Sjónvarp 74/75
Hugvekja 51 Staksteinar 75
Minningar 51/55 Veður 75
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson,
fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is
Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H.
Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
HARÐUR árekstur þriggja bíla
varð á Bústaðaveginum laust fyrir
klukkan tíu í gærmorgun skammt
frá gatnamótum Suðurhlíðar. Átti
atvikið sér þannig stað að tveir
bílar sem óku í austurátt rákust
saman með þeim afleiðingum að sá
fremri fór yfir umferðareyju og
hafnaði á bíl sem kom úr gagn-
stæðri átt. Að sögn lögreglunnar í
Reykjavík voru tveir ökumenn
fluttir á slysadeild með sjúkrabíl,
með brjóstverki auk þess sem
grunur lék á rifbeinsbroti.
Morgunblaðið/Júlíus
Harður árekstur
ÞVERPÓLITÍSK samstaða var um að þörf væri
á að taka upp iðkendastyrki til íþróttafélaganna í
Reykjavík með svipuðum hætti og víða hefur ver-
ið gert í nágrannasveitarfélögunum á opnum
fundi Íþróttabandalags Reykjavíkur með fulltrú-
um framboðanna í Reykjavík í sveitarstjórnar-
kosningunum í vor, en fundurinn var haldinn í
tengslum við ársþing ÍBR sem nú stendur yfir.
Fulltrúar framboðanna töldu hins vegar að
finna þyrfti bestu leiðina í þessum efnum til að
tryggja að styrkirnir kæmu að sem bestum not-
um til að tryggja jafnræði barna og unglinga til
íþróttaiðkana og hindra brottfall og þyrfti að
huga að ýmsum þáttum í þeim efnum. Miklu
skipti að tryggja sem best jafnræði í aðgengi
barna að íþróttastarfi.
Margt annað bar á góma í framsögum fulltrúa
flokkanna og í fyrirspurnum í kjölfar þeirra. Voru
fulltrúar flokkanna sammála um mikilvægi starfs
íþróttafélaganna í borginni, ekki hvað síst hvað
snertir forvarnargildi íþrótta. Var bent á að mikl-
ir fjármunir hefðu verið lagðir í uppbyggingu
íþróttamannvirkja víðs vegar um borgina und-
anfarin ár, en nú þyrfti að hyggja betur að und-
irstöðu reksturs íþróttafélaganna meðal annars
til að tryggja sem best nýtingu þessara mann-
virkja. Þá hefði reynslan af samningum um
íþróttafulltrúa á vegum félaganna verið mjög góð.
Aukið samstarf við skóla
Óskar Bergsson, Framsóknarflokki, sagði
nauðsynlegt að auka frekar á samstarf íþrótta-
félaga og skóla, sérstaklega í yngstu bekkjum
grunnskóla og taka íþróttastarfið í auknum mæli
inn í skólana.
Kjartan Magnússon, Sjálfstæðisflokki, sagði
meðal annars að hyggja þyrfti að skipulagi og
uppbyggingu íþróttaaðstöðu vegna þéttingar
byggðar. Víða skorti á slíka aðstöðu og hefðu
sjálfstæðismenn lagt til að úr því yrði bætt. Þá
hefðu þeir lagt til að slík aðstaða kæmi á slipp-
svæðinu. Einnig þyrfti að bæta aðstöðu jaðar-
íþrótta.
Ólafur F. Magnússon, Frjálslynda flokknum,
sagði að góð þverpólitísk samstaða væri um að
hlúa að íþróttastarfi í borginni. Mikilvægasta
hlutverk íþróttanna væri forvarnargildið og auka
ætti samvinnu skóla og íþróttafélaganna. Tryggja
þyrfti jafnræði í aðgengi frá fyrstu tíð.
Dagur B. Eggertsson, Samfylkingunni, sagði
að tímabært væri að reisa annað knatthús í borg-
inni. Það myndi gerast fyrr en flesta grunaði og
myndi gera það að verkum að betur yrði hægt að
þjóna vesturhluta borgarinnar í þeim efnum en
hingað til hefði verið hægt.
Svandís Svavarsdóttir, Vinstri grænum, sagði
að þeim væri mjög umhugað um að jafna aðgengi
barna og legði mikla áherslu á félagslegt réttlæti
og jöfnuð. Forvarnargildi íþrótta væri ótvírætt og
leita þyrfti leiða til að styðja börn beint og fjöl-
skyldur þeirra til iðkunar íþrótta.
Einnig var rætt á fundinum um uppbyggingu
íþróttaaðstöðu í nýjum hverfum og voru fulltrúar
flokkanna sammála um að hún þyrfti að vera
tilbúin fyrr og helst um leið og íbúarnir flyttust í
hverfin.
Þverpólitísk samstaða í
borginni um iðkendastyrki
Skemmra í knatthús í
vesturborginni en margir
hafa reiknað með
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
LUNDÚNABLAÐIÐ Times fjallar í
gær um þá ákvörðun bandarískra
fjárfesta að segja upp skuldabréfum
íslenskra banka. Vitnað var í Rich-
ard Thomas, sérfræðing hjá grein-
ingardeild fjárfestingarbankans
Merrill Lynch, sem sagði þetta
dæmigerð merki um að bankakerfið
hafi teygt sig of langt og að rauð ljós
blikki.
„Bankarnir eru verulega ber-
skjaldaðir og ljóst að viðhorfið er að
snúast gegn þeim,“ sagði Thomas.
Einnig er vitnað í Alex Birry, sér-
fræðing hjá matsfyrirtækinu Fitch
Ratings, sem segir að fjármögnunar-
kostnaður bankanna muni aukast,
sem muni takmarka frekari vöxt
þeirra.
Í frétt í danska blaðinu Berlingske
Tidende í gær sagði að brunaútsala
hafi verið á hlutabréfum í íslenskum
bönkum og á krónunni á föstudag.
Er vitnað í Jakob Brøchner Madsen,
prófessor við Hagfræðistofnun
Kaupmannahafnarháskóla, sem seg-
ir ákvörðun peningamarkaðssjóð-
anna mjög neikvæða þar sem ekki sé
hægt að selja skuldabréfin nú, sem
leiði hugann að bankakreppu.
Segir rauð ljós blikka
ALMANNAVARNAÆFINGIN
Bergrisinn er haldin nú um helgina,
en hún er lokahnykkurinn í gerð
nýrra viðbragðs- og rýmingaráætl-
ana fyrir áhrifasvæði náttúru-
hamfara frá Mýrdals- og Eyja-
fjallajökli. Æfingin er tvískipt og
fór fyrri hluti hennar fram í gær,
en þá var æfingasvæðið Vestur-
Skaftafellssýsla en í dag fer seinni
hluti æfingarinnar fram í Rangár-
vallasýslu.
Það er almannavarnadeild Rík-
islögreglustjórans sem sér um
skipulagningu æfingarinnar, en til
að tryggja samhæfingu allra þeirra
sem gegna lykilhlutverki við slíka
atburði er stjórn viðbragðsáætlana
í höndum þeirrar deildar.
Auk lögregluumdæma og full-
trúa viðbragðsaðila, stofnana og
fyrirtækja sem koma að æfingunni
eru íbúar og sumarbústaðaeigend-
ur hvattir til að taka þátt í henni.
Fá þeir SMS-boð þar sem kemur
fram að æfingin sé hafin og þeir
beðnir um að fara í fjöldahjálpar-
stöðvar á viðkomandi svæði.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Þráinn Ársælsson og Ólafur Ögmundsson frá björgunarsveitinni Víkverja
biðja Ragnhildi Ársæsldóttur í Vík að rýma hús sitt vegna æfingarinnar.
Æfa viðbrögð við
náttúruhamförum
FYRSTU lóur ársins sáust
snemma í gærmorgun við Ósland
á Höfn í Hornafirði. Það voru fé-
lagsmenn úr Félagi fuglaáhuga-
manna á Hornafirði sem komu
auga á lóuna og sagði Brynjúlfur
Brynjólfsson, fuglaáhugamaður,
að þetta væri eðlilegur komutími
fyrir fyrstu lóur ársins en síðustu
8 ár hafa fuglarnir fyrst sést á
tímabilinu 20.–31. mars. Brynj-
úlfur taldi að lóan myndi láta sjá
sig í stærri hópum í fyrstu vikum
aprílmánaðar.
Lóan er komin
Morgunblaðið/Ómar
Engu líkara er en að þessi lóa sé
að reyna að verjast ágengni ljós-
myndara Morgunblaðsins, en
hún er einn af gestum fyrri ára.