Morgunblaðið - 26.03.2006, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 26.03.2006, Blaðsíða 10
M ikið umtal hefur verið um íslenskan fjár- málamarkað að undan- förnu, einkum vegna greininga erlendra fjármálastofnana. Um leið hefur gengi krón- unnar veikst og orðið lækkun á íslenskum hlutabréfamarkaði. Engu að síður segir Hall- dór Ásgrímsson forsætisráðherra að í grunn- inn sé staða íslensks efnahagslífs mjög góð, ríkið standi vel og skuldir hafi aldrei verið lægri. En hann bætir við að umsvif hafi verið gífurleg hér á landi á undanförnum árum. „Einstaklingar hafa staðið í miklum fjár- festingum og sveitarfélög og bankar vaxið mjög mikið,“ segir hann. „Það er þensla í þjóðfélaginu og spurningin hefur verið sú hvenær dregur úr þeirri þenslu. Það hefur legið í loftinu lengi að gengið myndi laga sig að þessum aðstæðum. Við áttum von á því að sú gengisaðlögun kæmi seinna en nú hefur orðið. En ég tel gott að þessi aðlögun hafi átt sér stað núna. Sú umræða hefur legið alltof lengi í loftinu að gengið myndi breytast. Það hefur kallað á spákaupmennsku sem er alltaf óæskileg. Ýmislegt hefur orðið til þess að gengið hefur verið svona sterkt, m.a. mikil kaup er- lendra banka á bréfum í íslenskum krónum og vaxtahækkanir Seðlabankans. En nú er þessi tími liðinn.“ – Má ekki búast við hærri verðbólgu í kjöl- farið á veikingu krónunnar? „Það má búast við einhverjum verðbólgu- áhrifum og ég geri mér ekki grein fyrir því hversu mikil þau verða. En þá ber að hafa í huga að sterk staða krónunnar virðist ekki hafa komið fram nema að litlu leyti í verð- lækkunum. Ég geri ráð fyrir því að íbúða- verð við þessar aðstæður muni ekki hækka, fremur lækka eitthvað, sem hefur þá jákvæð áhrif á vísitöluna og vegur þannig á móti hugsanlegum áhrifum gengislækkunar.“ Dregur fyrr úr viðskiptahalla Engu að síður er sú staða sem nú er uppi alvarleg, að sögn Halldórs. „Umræðan sem hefur átt sér stað um íslenskt efnahagslíf og íslensku bankana er nokkuð sem við verðum að taka alvarlega. Umræðan er að hluta til byggð á því að staða íslenska þjóðarbúsins sé slæm. Ég tel það alrangt. En þetta verður til þess að það þrengir að bönkunum. Fjár- magnið sem þeir hafa til ráðstöfunar verður dýrara og þeir hafa úr minna fjármagni að spila. Þannig að það hlýtur að draga stórlega úr útlánum. Ég lít svo á að þetta verði til þess að það dragi úr viðskiptahallanum fyrr en gert hafði verið ráð fyrir, sem er auðvitað jákvætt. Og þess vegna muni aðlögunin, sem við gerðum ráð fyrir, eiga sér stað fyrr.“ – En telur þú að lendingin verði harkaleg? „Það tel ég ekki. Ef við berum ástandið núna saman við stöðuna árið 2001, þá er það að því leyti öðruvísi að þá vorum við með fast gengi og menn voru að reyna að halda genginu óbreyttu alltof lengi. Við sáum það eftir á. Nú hefur þegar orðið veruleg geng- isbreyting, sem ég tel af hinu góða. Hluta- bréf hafa fallið í verði, sem er að sumu leyti óeðlilegt vegna þess að í reynd ættu hluta- bréf að hækka við það að gengið veikist. Þá skánar afkoma fyrirtækjanna og framtíð- armöguleikar verða meiri. En ég held að við verðum að taka tillit til þess að gengi hluta- bréfa hefur hækkað miklu meira hér á landi en í kringum okkur. Eins og stendur er að- eins að ganga til baka sú mikla hækkun sem hefur orðið frá áramótum.“ Misvísandi skilaboð að berast En Halldór tekur fram að auðvitað viti hann ekki nákvæmlega hvað geti gerst á mörkuðum. „Það getur gripið um sig mikil taugaveiklun og þá sitja menn úti um allan heim með skjái og tölvur og það berast alls- konar skilaboð og þennan hraða ræður oft á tíðum enginn við. Danski fjármálaráðherr- ann sagði einhvern tíma að menn á fjár- málamarkaði ynnu eins og taugaveiklaðar konur og fékk afskaplega bágt fyrir þau um- mæli, enda er mín reynsla sú að við karl- mennirnir séum nú frekar taugaveiklaðir heldur en konurnar, en það er nokkuð til í því að það er oft mikið um að vera á fjármálamörkuðum. Og undanfarna daga hafa verið að berast misvísandi skilaboð. Þarna hafa verið á ferð aðilar sem þekkja nánast ekkert til íslensks efnahagslífs. Ég veit ekki til þess að Danske Bank hafi verið í miklum viðskiptum hér á landi eða menn á hans snærum þekki hér mikið til. Ég spyr: Af hverju eru þeir að gera greiningu á Ís- landi? Ég kem því ekki heim og saman. Af hverju eru menn að gefa út greiningar sem hafa varla tekið eitt einasta viðtal á Íslandi. Það hafa hinsvegar verið hér aðilar frá matsfyrirtækjum sem hafa reynslu af Ís- landi. Þeirra umsagnir hafa allar verið já- kvæðar. Þau hafa bent á hættumerki, en gera sér grein fyrir hvað íslenskt efnahagslíf er gífurlega sveigjanlegt og hvað við erum fljót að laga okkur að nýjum aðstæðum. Ég upplifði það sterkt sem sjávarútvegsráðherra hvað sjávarútvegurinn var fljótur að breyta til. Síðasta loðnuvertíð var sú lélegasta í Ekkert nýtt að aðrir séu van- trúaðir á getu lítillar þjóðar Morgunblaðið/ÞÖK Halldór Ásgrímsson segir að staða íslensks efnahagslífs sé góð og enginn hafi tapað á því að lána Íslendingum peninga. Mikið umrót hefur verið í íslensku samfélagi á undanförnum vikum og mánuðum. Pétur Blöndal talaði við Halldór Ásgrímsson forsætisráð- herra m.a. um stöðu íslensks efna- hagslífs, væntanlegt brotthvarf hersins og útkomu Framsókn- arflokksins í skoðanakönnunum. 10 SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.