Morgunblaðið - 26.03.2006, Síða 22
22 SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Sjálfsagt rifjast atburðirnir,kenndir við 11. september,upp fyrir bíógestum, þegarV for Vendetta rúllar afstað. Þeir sjá Þinghúsið –
The House of Parliament, tákn vest-
rænnar siðmenningar og Lundúna-
borgar sprengt í tætlur. Verknaðinn
fremja svartklæddir uppreisnar-
menn með grímu fyrir andlitinu.
Vaffið í titlinum stendur fyrir eina
aðalpersónu myndarinnar V, eða
William Rockwood (Hugo Weaving),
grímuklæddan leiðtoga hryðjuverka-
samtaka sem berjast gegn yfirvöld-
um á Bretlandseyjum. Þær eru undir
stjórn þýskra fasista, sigurvegara
þriðju heimsstyrjaldarinnar, sem lok-
ið er í náinni framtíð.
Önnur aðalpersóna er stúlkan
Evey Hammond (Natalie Portman),
sem V bjargar frá pínu og kvöl yf-
irvaldanna og tekur undir sinn vernd-
arvæng. Um sama leyti hefst morð-
alda í hinu nýja, „Greater Britain“,
eða „Stærra Bretlandi“ eins og Bret-
landseyjar nefnast þegar hér er kom-
ið sögu. Drápin tengjast innbyrðis og
líta út fyrir að vera blóðhefndir. Í al-
ræðisríkinu fullvissa stjórnvöld
íbúana um að hefndarmorðin séu
hluti af umsátri „hryðjuverkamanns-
ins“, V. Hinn leyndardómsfulli leið-
togi andstöðunnar kemur hinsvegar
þeim skilaboðum til landa sinna að
þeir séu fórnarlömb fasistanna. Hið
nýja, Stærra Bretland sé ein, risavax-
in prísund og eyjarskeggjar í raun
allir fangar í eigin landi. Línan á milli
hetju og skúrka er glögg.
Öðruvísi teiknimyndasagnahetjur
Myndin er byggð á einni rómuð-
ustu teiknimyndasögu Alans Moore,
sem margir telja fremstan slíkra
penna (The League of Extraordinary
Gentlemen, From Hell, o.fl.). Fram-
leiðandinn Joel Silver (Lethal Weap-
on- og Matrix-bálkarnir), festi kaup á
bókinni þegar hún kom út fyrir 15 ár-
um. Þegar hann taldi tímabært að
kvikmynda söguna leitaði hann til
Wachowski-bræðra með handrits-
gerðina, en það varð úr að Matrix-
þrennan var sett framar í forgangs-
röðina.
Bræðurnir, sem eru meðframleið-
endur V for Vendetta, hófust handa
við handritsgerð teiknimyndasög-
unnar árið 2004 og ákváðu fljótlega
að láta þar við sitja en gefa James
McTeigue tækifæri til að leikstýra
verkinu. McTeigue var aðstoðarleik-
stjóri bræðranna við gerð Matrix-
myndanna og Star Wars: Episode II
– Attack of the Clones (’02), þar sem
hann var nánasti aðstoðarmaður
Georges Lucas. Hann hafði því hlotið
umtalsverða reynslu og hefur fengið
mikið lof fyrir byrjendaverkið.
Tökur á V for Vendetta hófust fyrir
réttu ári í Babelsberg-kvikmynda-
verinu í Berlín. Bræðurnir gerðu
ýmsar breytingar á sögunni til að
laga hana að kvikmyndinni, en gættu
þess að halla hvergi á hina dularfullu
söguhetju, V. Hann er enn eitt, en
öðruvísi, ofurmenni þessa feyki vin-
sæla bókmenntageira til kvikmynd-
unar. Andfélagslega sinnaður, hálf-
geggjaður, andófsmaður Orwellsks
stjórnkerfis sem beitir m.a. lyfjagjöf-
um til að halda andstæðingunum í
láginni; óviðjafnanlegur bardaga-
maður með groddahúmor sem hefur
orðið að þola fangelsanir og pynting-
ar af hálfu stjórnenda einræðisríkis-
ins.
V hefur notað krafta sína til að
blekkja fjölmiðla, koma harðstjórun-
um fyrir kattarnef á hugmyndaríkan
hátt og sprengja byggingar í loft upp.
(Glottandi gríman sem hann ber, mun
vera gerð eftir myndum af Guy
nokkrum Fawkes – sem vann sér það
helst til frægðar að gera mislukkaða
tilraun til að sprengja breska þing-
húsið í loft upp árið 1605.)
Hinn svartklæddi refsivöndur er
að hefja hefndaraðgerðir gegn ger-
mönskum kvölurum sínum og bresku
þjóðarinnar sem ráðið geta úrslitum.
Hann er ábúðarmikill leiðtogi sem
hvetur samborgarana til blóðugrar
andstöðu, til að taka virka afstöðu
gegn kúgurum sínum.
Bókaflokkurinn um V er óbærilega
myrkur, umhverfið ömurleg framtíð-
arsýn Stóra Bretlands, sem komið er,
líkt og í Fatherland, eftir Robert
Harris, undir harðstjórn og einræði
Húnanna handan Ermarsundsins
Viðfangsefni við hæfi bræðranna
Það liggur í augum uppi hvers-
vegna sagan höfðar til bræðranna
Larrys og Andys Wachowski. Líkt og
Matrix-myndirnar fjallar V for Ven-
detta um valdabaráttu og frelsi þegna
úr ánauð í spennuhlöðnum og háska-
legum framtíðartrylli. Slíkar sögu-
slóðir þekkja þeir manna best.
Framleiðandinn, Joel Silver hafði
gert margar og misjafnar spennu-
myndir áður en röðin var komin að
Matrix, sem breytti viðhorfum hans
til greinarinnar – hann komst að því
að hinn almenni bíógestur vill eitt-
hvað bitastæðara en vanabundnar
harðhausamyndir. Keanu Reeves var
kallaður til leiks og áður en yfir lauk
höfðu Matrix-myndirnar skilað yfir
600 milljónum dala í kassann í Banda-
ríkjunum einum og einum milljarði til
viðbótar á heimsvísu. Slík auðæfi
myndast ekki öðru vísi en að menn
taki áhættu.
Eftir Matrix-æðið var kominn tími
til að dusta rykið af handritinu V for
Vendetta og ákveða að nú væri þess
tími kominn. Sem fyrr segir ákváðu
bræðurnir að umbuna sinni dyggu,
hægri hönd meðan á vandasamri
gerð Matrix-myndanna stóð, og gáfu
McTeigue stóra tækifærið. Með því
sýndu þeir hvílíkt traust þeir bera til
hans því ljóst er að verkefnið er ekki á
hvers manns færi.
Viðfangsefnið bauð upp á margvís-
leg, óvenjuleg og ögrandi atriði. T.d.
gengur V með grímu og hárkollu út
alla myndina, sem var meira en leik-
arinn James Purefoy þoldi, en hann
var fyrsta val bræðranna í hlutverkið.
Hann gafst upp eftir mánuð og Mat-
rix-leikarinn Weaving tók við. Hann
stóðst þolraunina og eyddi miklum
tíma í tilraunir að kanna hvort þessi
grímuklædda persóna virkaði betur
með þessu móti eða öðru, á tjaldinu.
Aðrar og ekki síður krefjandi
lausnir varð að finna á mörgum hug-
myndafræðilegum vandamálum sem
skutu upp kollinum. Fyrir það fyrsta
er V for Vendetta mynd um hetju
sem er hryðjuverkamaður. Þó svo að
áhorfandinn viti að hann vinnur gegn
einræðisherrum í ógnarstjórn kúgaðs
framtíðarríkis þar sem hverskyns
fordómar og spilling veður uppi, er
þetta samt sem áður náungi sem hag-
ar sér eins og illvirkjar samtíðarinn-
ar. Sprengjandi sögufrægar bygging-
ar í heimsborginni London – og nýtur
þess fram í fingurgóma. Slík hegðun
var yfrið nógu andstyggileg þegar
Moore skrifaði bækurnar – tveimur
áratugum fyrir 11. september, hvað
þá í dag. Ekki batnaði innihaldið eftir
sprengjutilræðin í London á síðasta
sumri.
Áhættusöm kvikmyndagerð
Margir efuðust um að gerð rán-
dýrrar myndar um hryðjuverk og
eyðileggingu sögulegra kennileita
stórborga væri siðferðilega réttlæt-
anleg. Aukinheldur þar sem hetjan er
hryðjuverkamaður sem birtist
íklæddur vesti, áþekku þeim sem
sjálfsmorðsbrjálæðingar nota til að
sprengja sig og aðra í Austurlöndum
nær. Framleiðendurnir voru í vafa
fram að frumsýningardegi hvort
bandarískir bíógestir væru almennt
tilbúnir til að kaupa slíka kvikmynda-
hetju. Aðsóknartölurnar sýndu að
óttinn var a.m.k. ástæðulítill, því að-
sóknarlega bar V for Vendetta höfuð
og herðar yfir keppinautana yfir
frumsýningarhelgina. Móttökur
gagnrýnenda voru engu síðri.
Eftir þessi góðu viðbrögð reikna
framleiðendurnir með að framtíðar-
sýn þeirra fái jafnvel enn betri við-
tökur í Evrópu og gangi vel á öðrum
markaðssvæðum.
Aðeins sjötta mynd bræðranna
Lukkan hefur leikið til þessa við þá
Larry og Andy, sem báðir eru á besta
aldri. Sá fyrrnefndi aðeins fertugur,
hinn tveimur árum yngri. Eins og
nafnið bendir til eru þeir af pólsk-
bandarísku foreldri, fæddir og upp-
aldir í Chicago. Móðir þeirra var
hjúkrunarkona en faðirinn starfaði í
viðskiptaheiminum. Bræðurnir
stunduðu nám við ýmsa skóla í borg-
inni en hvorugur lauk menntaskóla-
stiginu. Bekkjarsystkinin minnast
þeirra sem latra námsmanna með lif-
andi áhuga á leiklist, kvikmyndagerð
og leikaraskap. Þeir unnu við sjón-
varp og leikhús skólans áður en þeir
hættu, og Andy hélt til Boston þar
sem hann innritaðist í kvikmynda-
skóla. Kennararnir minnast hans sem
afburðanemanda sem hvarf á braut
þegar hann féll á prófi. Larry hélt til
Bard-skólans í New York-fylki og var
ferill hans hliðstæður.
Bræðurnir hafa verið einstaklega
samýndir frá fyrstu tíð og lentu í
besta bróðerni í ýmsum hremming-
um áður en velgengnin tók við í kvik-
myndaheiminum. Að lokinni enda-
sleppri skólagöngunni komu þeir m.a.
við í teppaiðnaðinum í fæðingarborg-
inni, meðfram vinnu við gerð teikni-
myndasagna þar sem frumdrögin að
Matrix urðu til.
Sléttur áratugur er liðinn síðan
nafnið Wachowski heyrðist á vestur-
ströndinni, er þeim lánaðist að selja
Silver og leikstjóranum Richard
Donner handritið Assassin, sem úr
varð auðgleymd hasarmynd með
Sylvester Stallone árið 1995.
Ári síðar varð til fyrsta mynd
bræðranna, þeir voru báðir titlaðir
handritshöfundar og leikstjórar
Bound, ógleymanlegrar, bleksvartrar
kómedíu sem var engri annarri lík.
Aðalpersónurnar eru tvíkynhneigðar
kvenmerar (frábærlega leiknar af
Jennifer Tilly og Ginu Gershon); maf-
íósar og smákrimmar (í stórkostleg-
um meðförum Joeas Pantoliano og
Johns P. Ryan.)
Myndin hlaut afbragðs dóma og
bræðurnir komu Matrix-æðinu á
kreik árið 1999. Alls urðu bíómynd-
irnar í bálknum þrjár talsins, auk
fjölda sjónvarpsmynda, teiknimynda
og tölvuleikja. Wachowski-bræður
voru komnir á beinu brautina.
Þessir hæfileikaríku bræður hafa
ætíð gætt þess vel að vernda einka-
lífið. Andy er giftur og ráðsettur, en
málin eru flóknari hvað Larry snert-
ir. Hann skildi við konu sína og æsku-
unnustu fyrir fjórum árum og býr
með Karin Winslow og búa þau í
sadómasókísku sambandi. Þar á ofan
hyggur Larry á enn frekari breyting-
ar, er í hormónameðferð og eins gott
að menn búi sig undir að kalla per-
sónuna Lönu eða Laurencu Wach-
owski.
Hvað sem því líður eru uppi sögu-
sagnir um að breytingarnar sem orð-
ið hafa í lífi Larrys að undanförnu,
eigi eftir að draga dilk á eftir sér.
Hann á gnótt fjár og hefur dregið sig í
hlé. Iðnaðurinn hefur ekki grænan
grun um hvort, né hvenær, Larry,
Lana eða Laurenca hefur störf að
nýju. Fyrir allnokkrum árum gerði
Johnny Depp B-myndaleikstjórann
Ed Woods ódauðlegan í samnefndri
mynd. Vonandi verða örlög Larrys
ekkert á borð við söguhetju kunnustu
myndar Woods, Glen & Glenda.
Hvað sem segja má um framhaldsmyndirnar Reloaded og Revolutions var Matrix (’99) eitt merk-
asta kvikmyndaafrek ofanverðrar síðustu aldar. Sæbjörn Valdimarsson hefur, líkt og aðrir bíógestir,
beðið spenntur eftir næsta verki Wachowski-bræðra, en V for Vendetta er frumsýnd um helgina.
Myndin var í efsta sæti vestan hafs fyrir viku og hlaut óspart lof gagnrýnenda og bíógesta.
saebjorn@heimsnet.is
Evey Hammond (Natalie Portman),
sem V bjargar frá pínu og kvöl.
V, eða William Rockwood (Hugo Weaving), leiðtogi hryðjuverkasamtakanna, sést aldrei án grímunnar.
Big Ben ásamt
breska þinghúsinu ,
tákni Lundúnaborgar,
er sprengdur í tætlur.
H fyrir hefnd