Morgunblaðið - 26.03.2006, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 25
framtíðarstöðu Kósóvó, því það sé
margskonar „sannleikur“ á sveimi
um það hvað raunverulega gerðist í
stríðinu. Að þá þurfi að ræða,
sætta. Hvað áttu við með þessu?
„Það er gífurleg afneitun í gangi,
bæði á meðal Serba og Albana um
hvað gerðist í stríðinu og af hverju
þetta stríð var háð. Afneitunin er
nánast svo mikil að það er eins og
menn séu að tala um sitthvort stríð-
ið. Í öllum átökum þegar miðlun
frétta hrynur og orðrómurinn tekur
við, eru sögur smíðaðar bæði eftir
bestu upplýsingum en einnig eftir
hentugleika. Orðrómurinn verður
síðan að sannleika og þannig byggja
menn skoðun sína á „hinum“. Sann-
leikurinn er því ekki bara saman-
safn staðreynda, heldur frekar túlk-
un á staðreyndum og orðrómum.
Þetta ferli, hvernig staðreynd verð-
ur að sannleika, þarf að rífa niður
og endurskoða, annars verður af-
neitunin ekki brotin niður. Og svo
komum við, alþjóðasamfélagið, og
segjum Albönum og Serbum hvern-
ig allt gerðist og hverjum það sé að
kenna, við vitum þetta allt vegna
þess að við lásum bókina.
Alþjóðasamfélagið þarf því einnig
að skoða hvernig það nálgast lausn-
ir. Svona nefnd myndi safna saman
staðreyndum um stríðið og ástæður
þess, á trúverðugan hátt, til dæmis
með vitnisburði fórnarlamba og
þeirra sem frömdu glæpi. Þannig
má draga úr orðrómum sem hafa
umbreytt sér í staðreyndir um hvað
„hinir“ eru mikil illmenni og hvers
vegna þeir séu réttdræpir.“
Sjálfstæðisumræða Svartfjallalands
gerir Serbum erfiðara fyrir
Við höfum talað um slíka nefnd í
tengslum við þróun í átt til sjálf-
stæðis Kósóvó, en ef ákveðið verður
að Kósóvó verði hérað innan Serb-
íu? Það er óneitanlega þrýstingur í
þá áttina í ljósi þess að Svartfell-
ingar, sem nú eru í ríkjasambandi
við Serbíu, ætla að ganga til þjóð-
aratkvæðagreiðslu í maí næstkom-
andi um sjálfstæði frá Serbíu?
„Sjálfstæðisumræða Svartfjalla-
lands gerir Serbum erfiðara fyrir,
en Kósóvó skiptir þá meira máli. Ef
ákveðið verður að Kósóvó verði hér-
að innan Serbíu er nokkuð ljóst að
það verður annað stríð. Þá er líka
mikilvægt að sannleiks- og sátta-
nefnd verði síðar sett á laggirnar. Í
augum sumra Kósóvó-Albana eru
flestir Serbar stríðsglæpamenn og
eiga ekkert erindi í Kósóvó. Jafnvel
þótt þeir séu fæddir þar og aldir
upp, og hafi aldrei gert neinum
mein. Hvernig getum við ætlast til
að Serbar snúi aftur til Kósóvó þeg-
ar þessi skoðun er uppi? Hvers kon-
ar lýðræði getum við haft þegar
meirihlutinn hatar minnihlutann?
Hvernig stofnanir getum við byggt
upp þegar minnihlutahópar fá ekki
aðgang að þeim, eða er gert mjög
erfitt fyrir? Get ég sem Serbi sent
barnið mitt í skóla þar sem því er
bannað að tala serb-
nesku og kennt að
Serbar hafa að
markmiði sínu að út-
rýma Albönum? Ef
okkur tekst ekki að
auka skilning á milli
hópa og draga úr
hatrinu þá er sagan
að endurtaka sig.
Þetta er ein af
ástæðunum fyrir því
að menn vilja ekki
gefa Kósóvó fullt sjálfstæði, því
menn treysta ekki Kósóvó-Albönum
til að veita minnihlutahópum vernd.
En ef Albanar myndu setja svona
nefnd sem skilyrði fyrir sjálfstæði,
– að þeir ætli að tryggja réttindi
minnihluta með virkum hætti,
myndi það styrkja þeirra rök-
semdafærslu og róa gagnrýnisradd-
ir. En til þess þarf að vera einlægur
vilji.“
Þú segir flesta leiðtoga sem hafa
reynt að byggja „réttlátt samfélag“
að loknum vopnuðum átökum, við-
urkenna nauðsyn þess að sáttaum-
leitanir séu miðlægar í uppbygging-
arstarfi eftir stríð. Svo segirðu
„hins vegar getur verið erfitt að
selja gildi fyrirgefningarinnar og
pólitísk skilaboð sem því fylgja“.
Geturðu útskýrt þetta nánar?
„Eftir átök sem þessi er þjóðern-
ishyggja oft miklu betri söluvara en
sættir. Þú færð fleiri atkvæði fyrir
að boða hefndir en að reyna að
segja fólki sem hefur horft upp á
ættingja sína myrta og hús sín
brennd að nú verði allir að kyssast
og vera vinir. Stjórnmálamenn
missa ekki bara atkvæði fyrir slíkan
boðskap, þeir missa líf sitt. Ein-
göngu mjög sterkir leiðtogar geta
sent út slíkan boðskap. Ég man um
morguninn þegar átöku brutust út í
Kósóvó í mars 2004, þá kepptust
leiðtogar Kósóvó-Albana um að
réttlæta aðgerðirnar, sem eðlilega
útrás fyrir reiði og brostna þolin-
mæði. Nema Ramush Haradinaj,
síðar forsætisráðherra, hann skar
sig úr og bað menn um að sýna
stillingu, ofbeldi væri ekki rétta
leiðin. Sama er að segja núna um
Agim Ceku. Hluti af ræðunni hans,
þegar hann tók við embætti for-
sætisráðherra Kósóvó nú á dögun-
um, var á serbnesku þar sem hann
sagði við Serba að Kósóvó tilheyrði
öllum íbúum héraðsins, – líka Serb-
um, og að saman myndu þau skapa
samfélag sem tryggir frelsi og jafn-
rétti. Að Serbar ættu að berjast
með Albönum fyrir framtíð Kósóvó
með því að taka þátt í stjórnmálum.
Báðir þessir menn börðust gegn
Serbum í Kósóvó, og Ceku einnig í
Króatíu. Báðir eru álitnir stríðs-
glæpamenn í Belgrad. En þeir eru
nógu sterkir til að geta sent þessi
skilaboð.“
Hvað segir það okkur fyrir sjálf-
stæðisumræðuna að Ceku, stríðs-
glæpamaður, er orðinn forsætisráð-
herra?
„Þetta var auðvitað eins og köld
vatnsgusa framan í Serba. En
Oliver Ivanovic, leiðtogi Serba í
Kósóvó, útilokaði alls ekki að starfa
með Ceku, sem hefur mikil völd
meðal Kósóvó-Albana, er einn af
þeirra frelsishetjum. Ivanovic sagð-
ist vilja sjá verkin tala áður en hann
gæti lofað einhverju um frekara
samstarf.“
Hvernig sérðu þessa hugmynd,
um sannleiks- og sáttarnefnd, fyrir
þér í ljósi þess að Milosevic er lát-
inn, áður en mikilvægum réttar-
höldum yfir honum er lokið?
„Umræðan um sannleiks- og
sáttanefnd hefur aldrei verið brýnni
en núna. Vonin um að Milosevic
réttarhöldin myndu varpa einhverju
ljósi á hvað gerðist í Kósóvó er svo
til úti. Sjálfstæði hlýtur að vera
bundið skilyrðum um virðingu fyrir
minnihlutahópum, sem verður vart
að raunveruleika nema skilið sé á
milli staðreynda og orðróms um
hvað gerðist í stríðinu.“
Lýðræði er afstætt
Nú hefur Javier Solana krafist
þess fyrir hönd Evrópusambands-
ins að regla um 55% meirihluta
verði að ráða úrslitum þjóðarat-
kvæðagreiðslunnar í Svartfjalla-
landi. Verði þetta ekki gert myndi
Evrópusambandið ekki viðurkenna
úrslitin og Solana sagðist muna
þrýsta á um að ÖSE fylgdist ekki
með kosningunum. Þetta skilyrði
hefur verið sam-
þykkt af þinginu í
Svartfjallalandi og
í leiðara Morgun-
blaðsins var þetta
harðlega gagnrýnt.
Þar var sagt að að-
ferðir Solana beri
vitni um „hroka og
valdníðslu og segja
margt um það hvað
er að marka mál-
flutning ESB um
lýðræði og lýðræðisvæðingu á Balk-
anskaga þegar á reynir“. Hvað
finnst þér um þetta?
„Lýðræði er afstætt, það hefur
mismunandi þýðingu við mismun-
andi aðstæður. Kosning um aðskiln-
að Svartfjallalands frá Serbíu er
mikilvægari en til að mynda kosn-
ing um lengingu opnunartíma sölu-
staða. Það verður að vera skýrt að
niðurstaðan sé studd af skýrum
meirihluta þeirra sem taka afstöðu.
Stöðugleiki á svæðinu er í húfi. Mér
sýnist að Solana sé að tryggja að
Svartfellingar hafi skýran vilja og
að þeir sýni þennan vilja í kosning-
unum. Í Kósóvó eru til að mynda
reglur um fjármál stjórnmálaflokka
og stjórnmálamanna sem yrðu aldr-
ei samþykktar á Íslandi. Hroki og
valdníðsla? Kannski, kannski rétt-
lætanleg í augum Solana og kannski
réttlætanlegt undir þessum kring-
umstæðum. Mér finnst hins vegar
eðlilegt að nota reglur sem henta
’Í augum sumraKósóvó-Albana
eru flestir Serbar
stríðsglæpamenn
og eiga ekkert er-
indi í Kósóvó.‘
Skráningardagur
Kauphöll Íslands hf. hefur samflykkt a› skrá víxla MP Fjárfestingarbanka hf., vi› útgáfu
hvers flokks enda uppfylli fleir skilyr›i skráningar. Útgáfa víxlanna ver›ur tilkynnt í
fréttakerfi Kauphallar Íslands hf. hverju sinni en fleir eru rafrænt skrá›ir hjá
Ver›bréfaskráningu Íslands hf. Flokkar MPB 06 0417, MPB 06 0516 og MPB 06 0616 ver›a
skrá›ir flann 29. mars 2006.
Skráningarl‡sing og önnur gögn sem vitna› er til í l‡singunni er hægt a› nálgast hjá MP
Fjárfestingarbanka hf. og á heimasí›u félagsins www.mp.is
Au›kenni Útgáfudagur Gjalddagi ISIN númer
MPB 06 0417 16.01.2006 17.04.2006 IS0000011971
MPB 06 0516 16.02.2006 16.05.2006 IS0000011989
MPB 06 0616 16.03.2006 16.06.2006 IS0000011997
MPB 06 0717 17.04.2006 17.07.2006 IS0000012003
MPB 06 0816 16.05.2006 16.08.2006 IS0000012011
MPB 06 0918 16.06.2006 18.09.2006 IS0000012029
MPB 06 1016 17.07.2006 16.10.2006 IS0000012037
MPB 06 1116 16.08.2006 16.11.2006 IS0000012045
MPB 06 1218 18.09.2006 18.12.2006 IS0000012052
MPB 07 0116 16.10.2006 16.01.2007 IS0000012060
MPB 07 0216 16.11.2006 16.02.2007 IS0000012078
MPB 07 0316 18.12.2006 16.03.2007 IS0000012086
Skráning víxla
MP Fjárfestingarbanka hf.
í Kauphöll Íslands hf.
Útgáfa víxla á árinu 2006
Skipholti 50d | 105 Reykjavík | sími 540 3200 | www.mp.is
Skilmálar víxlanna
Víxlarnir eru vaxtalausir og óver›trygg›ir.