Morgunblaðið - 26.03.2006, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 31
Það fór þó aldrei svo að her-inn færi ekki úr landi.Eftir að hafa staðið af séralls kyns úlfúð, slag-orðaglamur og umtalsvert
hark í gönguskóm svo áratugum
skipti lítur út fyrir að ameríski her-
inn sé um það bil hættur og farinn
frá Íslandi.
Það kaldhæðnislega við það er að
hann skuli fara einmitt núna, löngu
eftir að úlfúðin vék fyrir einskæru
áhugaleysi, slagorðin urðu krútt-
legur hluti af retrótískunni og
gönguskórnir öðluðust nýtt og heil-
brigðara líf á fjöllum.
Herinn sem málefni var í raun
fallinn í þvílíka gleymsku að það er
með herkjum að hörðustu Keflavík-
urgöngugarpar nenni að eyða orðum
að þessu.
Þetta eru líka stórum verri tíðindi
fyrir yfirlýsta vildarvini Bandaríkja-
stjórnar. Þeir
búnir að verja
þetta herlíki
suður á Velli
með ráðum og
dáð í alls kyns
samtökum, í ræðu og riti frá því á
menntaskólaárunum, loksins komnir
til æðstu metorða og farnir að sigla
lygnan varnarmálasjó, eða að
minnsta kosti næstum mótbáru-
lausan, og þá fer hann bara.
Meira að segja eftir að þeir skráðu
þjóðina í sjálfan bandaríska innrás-
arherinn í Írak. Þetta eru þakkirnar.
Er nema von að þeim sárni? Í kjölfar
þessara mestu hernaðartíðinda á Ís-
landi síðan 10. maí 1940 hef ég verið
að leita í sarpi minninganna að
reynslu til að deila með komandi
kynslóðum um veru bandaríska
hersins á Keflavíkurvelli. Þar reyn-
ist fátt um fína drætti. Sannast
sagna hefur návist hinnar voveiflegu
hernaðarmaskínu Bandaríkjanna
mikið til farið framhjá mér. En þó
ekki alveg.
Ég man eftir hliðinu við völlinn
þar sem þurfti að stoppa og íslensk
og amerísk lögga veifuðu til manns.
Ég man líka eftir vegatollbúrinu á
Keflavíkurveginum þar sem al-
íslenskur embættismaður tók við
greiðslu fyrir að hleypa okkur út úr
Hafnarfirði.
Ég man líka eftir að hafa séð hið
menningarfjandsamlega Kana-
sjónvarp nokkrum sinnum þar sem
ég kom í æsku sem gestur á heimili
fólks sem átti sjónvarpstæki. Man
eftir fjölbragðaglímukappanum
Bobo Brazil og rúnum ristu stríðs-
görpunum úr Combat, Vic Morrow
og Ricky Nelson. Á mínu sjálfstæð-
isheimili var ekkert sjónvarp fyrr en
það íslenska hóf útsendingar.
Svo rámar mig í að ég hafi fundið í
útvarpinu bæði Kanann og Radio
Luxembourg á táningsaldri. Það eft-
irminnilegasta af þeim vettvangi var
viðtal sem ég heyrði í Kanaútvarp-
inu við lagasmiðinn góða, Gunnar
Þórðarson, þáverandi meðlim Kefla-
víkurbítlanna Hljóma, sem lýsti því
fyrir áhugasömum Bandaríkjamanni
að þverflautan væri hljóðfæri sem
væri erfitt að komast inn í. Ég hafði
heyrt lögin þeirra í Lögum unga
fólksins í útvarpinu en þetta var í
fyrsta sinn sem ég heyrði talað við
einhvern úr íslenskri popp-
hljómsveit sem málsmetandi mann.
Þetta er nú allt og sumt. Varn-
arliðið kenndi mér sem sagt hvað
fjölbragðaglíma og leikið sjónvarps-
efni er, sýndi mér fram á að sá sem
spilar rokk eða popp getur líka haft
frá einhverju að segja og gerði mér
ljóst að löggur eru mjög svipaðar
þegar þær veifa út um glugga, frá
hvaða landi sem þær koma.
Ég mun ekki kveðja herinn með
söknuði, né heldur hlakka yfir brott-
för hans.
Flest annað skiptir meira máli.
Líka á sviði utanríkis- og varn-
armála.
Her minninganna
HUGSAÐ
UPPHÁTT
Eftir Sveinbjörn I.
Baldvinsson
Bridsfélag
Borgarfjarðar
Mánudaginn 20. mars spiluðu
Borgfirðingar tvímenning með þátt-
töku 16 para. Jón H. Einarsson úr
Borgarnesi hefur lengi glatt okkur
Borgfirðinga með nærveru sinni. Nú
mætti hann með konu sína Guð-
björgu Andrésdóttur og hafi frétta-
ritari gripið það rétt þá var hún að
mæta í fyrsta sinn í keppnisbridge.
Ekki var nú að sjá neinn byrjanda-
brag á handbragðinu né heldur að
hún bæri virðingu fyrir andstæðing-
um sínum. Það var í það minnsta
ekki að sjá þegar hún doblaði Lárus
Pétursson í hæpnum spaðasamningi
og uppskar topp fyrir vikið og bæði
bros og hrós frá makker. Fór svo að
lokum að þau hjón tryggðu sér
glæsilega annað sætið. Úrslit urðu
annars sem hér segir:
Sveinbjörn Eyjólfss.– Lárus Pétursson 246
Jón H. Einarss. – Guðbjörg Andrésdóttir 220
Guðmundur Kristinss. – Ólafur Flosason 189
Jón Eyjólfsson – Baldur Björnsson 187
Anna Einarsdóttir – Kristján Axelsson 184
Næsta mánudag verður spilaður
einmenningur. Til hægðarauka fyrir
formenn er þess óskað að menn skrái
sig fyrirfram hjá formanni, Jóni á
Kópareykjum.
Bridsfélag Kópavogs
Þriggja kvölda Butler-tvímenn-
ingi lauk með öruggum sigri þeirra
Ragga Björns. og Sigga Sigurjóns.
Lokastaðan:
Ragnar Björnss. – Sigurður Sigurjónss. 127
Heimir Tryggvas. – Leifur Kristjánss. 96
Björn Jónsson – Þórður Jónsson 75
Jón Páll Sigurjónss. – Stefán R Jónss. 56
Loftur Péturss. – Eiríkur Kristóferss. 52
Hæsta skor síðasta spilakvöld:
Jón Páll Sigurjónss. – Stefán R Jónss. 71
Ármann Lárusson – Eggert Bergsson 60
Georg Sverrisson – Ragnar Jónsson 37
Björn Jónsson – Þórður Jónsson 32
Næsta keppni er þriggja kvölda
hraðsveitakeppni. Skráning hjá
Lofti í s. 897 0881.
Gullsmárabrids
Bridsdeild FEBK í Gullsmára
spilaði tvímenning á 14 borðum
fimmtudaginn 13. marz. Beztum ár-
angri náðu í NS:
Guðm. Magnússon - Kristinn Guðmss. 351
Inga L. Guðmundsd. - Jóna Magnúsd. 310
Dóra Friðleifsd. - Jón Stefánsson 291
Þorsteinn Laufdal - Tómas Sigurðss. 288
AV
Karl Gunnarss. - Gunnar Sigurbjörnss. 332
Guðmundur Pálss. - Stefán Friðbss. 306
Óli Gíslason - Guðni Þorsteinss. 303
Páll Guðmundss. - Filip Höskuldsson 303
Bridsdeild FEB í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl, fimmtud. 23.3.
Spilað var á 9 borðum. Meðalskor
216 stig.
Árangur N-S
Ragnar Björnss. - Pétur Antonsson 256
Júlíus Guðmss. - Rafn Kristjánsson 255
Bragi Björnsson - Albert Þorsteinss. 251
Árangur A-V
Oliver Kristóferss. - Magnús Halldórss. 272
Viggó Nordqvist - Einar Einarsson 263
Björn Péturss. - Gísli Hafliðason 257
Bridsfélagið Muninn
og Bridsfélag Suðurnesja
Hafin er þriggja kvölda hrað-
sveitakeppni þar sem pör voru dreg-
in saman í sveitir.
Mörg pörin voru brokkgeng í nýju
umhverfi en staða efstu sveita er
þessi:
Sveit Dags Ingimundarsonar 567
Sveit Lilju Guðjónsdóttur 551
Sveit Grethe Iversen 481
Mótinu verður fram haldið nk.
miðvikudagskvöld.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Fréttir í tölvupósti
gullmolinn á höfuðborgarsvæðinu
Akraland ehf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík
sími 599 4000, fax 599 4001
hz
et
a
6
4
2
9
7
5
3
1
10
8
6
4
2
9
7
5
3
1
12
10
8
6
4
2
7
5
3
1
9
2
4
6 1
3
5
7
9
2
4
6
8
10
1
3
5
7
9
8
6
4
2
1
3
5
Da
lak
ur
Gó
ða
ku
r
Vesturakrar
Br
eið
ak
ur
By
gg
ak
ur
Frj
óa
ku
r
Gu
lla
ku
r
Nánari upplýsingar um lóðirnar, stærð
þeirra og nýtingu ásamt upplýsingum um
hvernig væntanlegir kaupendur bera sig að
við tilboðsgerð er að finna á vefsíðu
Akralands, www.akraland.is
Mikilvægt er að tilboðsgjafar kynni sér vel
öll tilboðsgögn, s.s. tilboðsskilmála,
tilboðsskrá, sölu- og skipulagsskilmála en
öll tilboð taka mið af þessum skilmálum.
Akraland ehf. er nú að hefja sölu lóða í 2. áfanga Akra-
hverfis í Garðabæ. Um er að ræða 35 lóðir undir einbýlis-
hús. Framkvæmdir og uppbygging í Akrahverfinu hófust
2005. Þar er að rísa glæsilegt hverfi þar sem mikill
metnaður ræður ríkjum varðandi hönnun, arkitektúr og
alla uppbyggingu í metnaðarfullu sveitarfélagi.
Lóðirnar eru frábærar eignarlóðir og hverfið er vel stað-
sett á grónu svæði á besta stað í Garðabæ. Þetta eru
góðar byggingarlóðir á frjósömu svæði mjög miðsvæðis
á höfuðborgarsvæðinu. Þær eru staðsettar rétt við greiðar
og fljótfarnar umferðaræðar sem liggja til allra átta.
Tilboðum í lóðirnar skal skila eigi síðar en 6. apríl 2006
kl. 15:00. Tilboðunum skal skila á skrifstofu Akralands í
Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík þar sem allar nánari
upplýs- ingar eru veittar um lóðirnar. Fasteignasalan
Borgir mun einnig annast milligöngu um sölu lóðanna
og geta þeir sem hafa áhuga snúið sér þangað.
Tilboðsfrestur 6. apríl, kl.15.00w w w . a k r a l a n d . i s