Morgunblaðið - 26.03.2006, Page 33

Morgunblaðið - 26.03.2006, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 33 unnið mikið með Peter Jensen sem er danskur fatahönnuður. Peter deildi vinnustofu með Åbäke og þau hönnuðu fyrir hann ýmislegt eins og bréfsefni og nafnspjöld en fyrr en varði voru þau farin að hanna mynstur og jafnvel ýmsar flíkur inn í línu Jensen. Mynstrin eru mjög falleg og byggjast upp af dýrum sem finnast í skandinavísk- um skógum, umferðarhnútum og illmögulegum pýramídum gerðum úr mannslíkömum. Einu sinni í mánuði setja Åbäke upp veitingahús í samstarfi við Martino Gamper sem er húsgagna- hönnuður með ástríðu fyrir horn- um. Samstarfið hófst á því að Martino vantaði stað til að sýna húsgögn sín en hafði ekki ráð á að opna sitt eigið sýningargallerí. Úr varð að þau stofnuðu saman veit- ingastað sem heitir Trattoria og er opinn aðeins einu sinni í mánuði. Åbäke sér um að leggja á borð en Martino skaffar húsgögnin. Nú elda þau þar einu sinni í mánuði og fólk kemur eins og á venjulegt veit- ingahús og nýtur matarins, en skoðar um leið húsgögn Martinos. Jákvæð skemmdarverk Åbäke hélt námskeið í Fabrica á Ítalíu og námskeiðið kallaðist „See Treviso and Not Die“ Þau báðu nemana að fara út í borgina, Trev- iso, og velja sér stað sem skipti þá einhverju máli. Síðan fengu þeir verkefnið að búa til „jákvætt“ skemmdarverk á staðnum og bæta þannig við staðinn persónulegum áhrifum sínum. Markmið þeirra með námskeiðinu var að fá fólk til að hætta að bíða eftir skipunum að ofan heldur fara sjálft út og skapa sér verkefni. Einnig vildu þau fá nemendurna til að prófa nýja hluti eins og að fá þá til að skapa með höndunum sem í fyrstu var ómögulegt fyrir suma sem unnu öll sín verkefni í tölvu. Eitt verkefni sem Åbäke vinnur sem hliðarverkefni er eins konar for-ferðalag í formi póstkortaseríu. Þau heimsækja sendiráð þeirra landa sem þau er að fara til og taka myndir og senda svo út sem póst- kort. Póstkortin eru einskonar sönnun fyrir því að þau hafi þegar komið til landsins þar sem sendiráð eru sögð tilheyra landi sínu þrátt fyrir að vera í staðsett í öðru landi. Þannig for-ferðuðust þau til Sví- þjóðar þegar þau voru í London, heimsóttu Zürich áður en þau fóru til Sviss þegar þau voru í Svíþjóð og þegar þau voru í Berlín heim- sóttu þau Kanada. Þau eiga að vísu eftir að heimsækja Kanada, það er að segja alvöru Kanada, en eru að leita leiða til að koma sér þangað. Þau hafa einnig sýnt áhuga á að koma til Íslands, en ekki finnast heimildir um for-ferðalag þeirra hingað. Stuttermabolahönnun frá Kitsuné. Höfundur er vöruhönnuður. hannar@mbl.is - Kynning á dönsku leiðinni - Opin ráðstefna SI og VFÍ á Grand Hótel miðvikudaginn 29. mars: GERÐARDÓMAR Í MANNVIRKJAGERÐ Tekið er við skráningum hjá VFÍ í síma 568 8511, netfang vfi@vfi.is og hjá SI í síma 591 0100, netfang skraning@si.is Ráðstefnustjóri: Óskar Valdimarsson, forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins Samtök iðnaðarins og Verkfræðingafélag Íslands efna til ráðstefnu um gerðardóma í mannvirkjagerð miðvikudaginn 29. mars á Grand Hótel. Ráðstefnan, sem fram fer í fundarsalnum Hvammi, hefst kl. 10:00 og stendur til 12:15. Hún er öllum opin en þátttökugjald er kr. 2.000. 9:45 10:00 Dagskrá: Fyrirspurnir - Per Helwigh, framkvæmdastjóri gerðardómsins í Danmörku - Per Clausen, aðstoðarvegamálastjóri og formaður gerðardómsins í Danmörku Danska leiðin Hvernig er staðan á Íslandi? Kolbeinn Kolbeinsson, aðstoðar- framkvæmdastjóri Ístaks hf. Árni M. Mathiesen Ávarp fjármálaráðherra Setning ráðstefnu Steinar Friðgeirsson, formaður Verkfræðingafélags Íslands Skráning gesta SPARISJÓÐUR Hafnarfjarðar hefur gefið nýju heilsugæslustöð- inni í Hafnarfirði, Firði, fyrsta flokks hjartarita í tilefni af opnun stöðvarinnar 6. janúar sl. Í Firði verður veitt almenn læknis- og hjúkrunarþjónusta og slysa- og bráðaþjónusta. Heilsugæslustöðin Fjörður er um 1.000 fermetra húsnæði á þriðju og fjórðu hæð í norðurturni verslunarmiðstöðvarinnar í miðbæ Hafnarfjarðar. Myndin er frá afhendingu hjartaritans, f.v.: Páll Pálsson þá- verandi stjórnarformaður SPH, Magnús E. Magnússon sparisjóðs- stjóri, Ingibjörg Edda Ásgeirs- dóttir hjúkrunarforstjóri Fjarðar, og Guðrún Gunnarsdóttir yfir- læknir. SPH gefur heilsugæslustöð hjartarita KVENNADEILD slysavarnafélagsins Lands- bjargar á Dalvík og Sparisjóður Svarfdæla færðu nú í vikunni embætti lögreglunnar á Dalvík að gjöf nýtt sjálfvirkt hjartastuðtæki til að hafa í lögreglubílnum. Um er að ræða létt og tiltölulega einfalt tæki sem gætt er mennsku máli, þ.e. tækið greinir ástand hjart- ans og sé talin þörf á „stuði“ gefur tækið það til kynna og leiðir notandann í gegnum notk- unarferlið á íslensku. Ef um slys eða áföll er að ræða er lögreglan oft fyrst á vettvang og í sumum tilvikum geta sekúndur skipt máli varðandi það hvort viðkomandi lifir eða deyr. Hjartastuðtæki hafa margsannað gildi sitt og í raun oft bjargað mannslífum segir á dag- ur.net, sem greinir frá gjöfinni. Gáfu lögregl- unni hjarta- stuðtæki

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.