Morgunblaðið - 26.03.2006, Side 36
36 SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
www.vitusbering.dk
NÁM Í DANMÖRKU
Í boði er:
Á ensku og dönsku
• Byggingafræði
• Byggingaiðnfræði
• Markaðshagfræði
Á dönsku
• Veltækni
• Veltæknifræði
• Landmælingar
• Tölvutæknifræði
• Aðgangsnámskeið
• Byggingatæknifræði
• Framleiðslutæknifræði
• Útflutningstæknifræði
Hjá VITUS BERING í Horsens
bjóðum við upp á margvíslega
menntun.
Frá 26. mars til 5. apríl eru fulltrúar frá
Vitus Bering, Johan Eli Ellendersen og
Jørgen Rasmussen á Hótel Plaza. Hringið
í síma 590 1400, leggið inn skilaboð og
við munum hringja tilbaka, eða hringið
beint í Johan í síma 845 8715.
UNIVERSITY COLLEGE
VITUS BERING DENMARK
CHR. M. OESTERGAARDS VEJ 4
DK-8700 HORSENS
TEL. +45 7625 5000
FAX: +45 7625 5803
EMAIL: CVU@VITUSBERING.DK
V I T U S B E R I N G D E N M A R K
U N I V E R S I T Y C O L L E G E
Eldmessa:
Málþing um séra Jón Steingrímsson
og Skaftárelda
Öskju, Sturlugötu 7, 101 Reykjavík
Sunnudagur 2. apríl 2006, kl. 13-17.
Að málþinginu standa: Kirkjubæjarstofa, Guðfræðistofnun,
Jarðvísindastofnun og Sagnfræðistofnun Háskólans ásamt
Vísindafélagi Íslendinga.
Dagskrá:
13:00 -13:15 Jón Helgason: Setning.
13:15 -13:45 Einar Sigurbjörnsson: Séra Jón Steingrímsson, hirðir í
neyð.
13:45 -14:15 Þorvaldur Þórðarson: Framvinda Skaftárelda og
hnattræn áhrif þeirra.
14:15 -14:45 Sigurður Steinþórsson: Lýsingar Jóns Steingrímssonar
á Skaftáreldum í ljósi samtíma- og síðari þekkingar.
14:45 -15:05 Hlé.
15:05 -15:15 Bréf séra Jóns Jónssonar um Skaptáreldinn 1783.
Gunnar Þór Jónsson les.
15:15 -15:45 Guðmundur Hálfdánarson: Mannfall í
móðuharðindum.
15:45 -16:15 Sveinbjörn Rafnsson: Viðbrögð stjórnvalda á Íslandi
og í Danmörku við Skaftáreldum.
16:15 -16:40 Örn Bjarnason: Jón Steingrímsson: Líkn og lækningar.
16:40 -17:00 Umræður
EUROCONFORTO komnir í sumarlitunum, 10 fallegir litir.
Einnig hinir vinsælu gull og silfur skór.
Stærðir: 35-43 • Verð: 4.400
EUROCONFORTO HEILSUSKÓRNIR
HAFA SLEGIÐ Í GEGN Á ÍSLANDI
Útsölustaðir:
Valmiki Kringlunni - Euroskór Firðinum - Kron Laugavegi -
Galenía Selfossi - Nína Akranesi - Heimahornið Stykkishólmi -
Mössubúð Akureyri - Töff föt Húsavík - Okkar á milli Egilsstöðum
- Jazz Vestmannaeyjum.
Fréttir í tölvupósti
VÍDALÍNSMESSA eftir Hildigunni
Rúnarsdóttur verður frumflutt í
Vídalínskirkju á morgun kl. 11.00.
Hildigunnur samdi messuna sér-
staklega fyrir Garðasókn en þetta er
þriðja messan sem hún semur. „Jón
Baldvinsson, organisti Vídalíns-
kirkju, talaði við mig og spurði hvort
ég væri til í að semja messu við texta
Jóns Vídalín og mér fannst það
spennandi viðfangsefni,“ segir Hildi-
gunnur. „Þetta er klassísk messa fyr-
ir kór, tvo einsöngvara og litla hljóm-
sveit og það eru kaflar á milli
klassískra messukafla með útlegg-
ingum á textum Jóns Vídalín. Textinn
er sunginn sem tenórsólóaríur og
settur fram eins og Jón sjálfur sé að
tala.“ Hildigunnur segir þetta vera
nýklassíska en mjög hlustendavæna
tónlist.
Fjölskylda Hildigunnar spilar stór-
an þátt í þessu verki. Systkini hennar,
Ólafur Rúnarsson tenór og Hallveig
Rúnarsdóttir sópran syngja einsöng
og foreldrar þeirra eru í kórnum. „Ég
er uppalin í Garðabæ svo ég hef teng-
ingu í þessa sókn. Auk þess sem ég
sjálf er söngvari og hef sungið m.a. í
kirkjukórum í langan tíma.“
Þegar Hildigunnur samdi messuna
hugsaði hún mikið um texta Vídalíns-
postillu. „Þetta er ekki aðgengileg
bók, Jón Vídalín var mjög langorður
maður og predikanir hans tóku oft
um klukkutíma. En við fundum texta
sem eiga við messuliðina.“ Messan er
samin við hefðbundinn latneskan
messutexta, þ.e. Kyrie (Miskunn-
arbæn), Gloria (Dýrðarsöngur),
Sanctus (Heilagur) og Agnus Dei
(Guðs lamb). Á milli þriggja seinni
kaflanna syngur Ólafur einsöng við
textana úr Vídalínspostillu. Í mess-
unni verða auk þess flutt tvö sálmalög
eftir Hildigunni, í upphafi og í lokin.
Hildigunnur segir þetta ekki verða
eina flutninginn á Vídalínsmessu því
það standi til að setja hana aftur upp í
vor.
Tónlist | Sungið úr Postillu hr. Jóns Vídalín
Nýklassísk messutónlist
Morgunblaðið/Kristinn
Hildigunnur Rúnarsdóttir tónskáld segir þetta vera nýklassíska en mjög
hlustendavæna tónlist.
OLGA Bergmann mun ræða um sýn-
ingu sína „Innan garðs og utan“
klukkan þrjú í dag á Listasafni ASÍ.
Olga hefur í samvinnu við hliðarsjálf
hennar doktor B. um nokkurt skeið
krukkað í möguleika erfðavísind-
anna og hugsanleg áhrif þeirra á
þróunarsöguna er til langs tíma er
litið. Á sýningunni eru m.a. vett-
vangsathuganir Olgu á atferli dýra,
postulínsstyttur og leynisafn. Verkin
á sýningunni fjalla um villta náttúru
og tamda, dýralíf og hugmyndir um
framtíðina sem meðal annars tengj-
ast ævintýrum og óljósum minn-
ingum. Aðgangur er ókeypis.
Sýningin inniheldur meðal annars
vettvangsrannsókn á dýrum.
Listamannaspjall
í Listasafni ASÍ
KYRRALÍFSMYNDIR voru hluti
af list Rómverja og Grikkja til
forna en greinin lagðist síðan af
öldum saman. List miðalda snerist
aðallega um trúarlegt myndefni og
það var ekki fyrr en á sautjándu
öld að kyrralíf varð vinsælt mynd-
efni málara og listunnenda. Ávext-
ir og blóm voru vinsæl en einnig
dauð dýr og matur og drykkur.
Sérgrein innan kyrralífsins var
nefnd vanitas og sýndi hluti sem
táknuðu hverfulleika mannlífsins,
hauskúpa var þá gjarnan til staðar
á myndinni. Kyrralífsmyndir voru
um langt skeið ekki hátt skrifaðar
og það var ef til vill ekki fyrr en á
síðari hluta nítjándu aldar og á 20.
öld að kyrralífið hlaut uppreisn
æru, þegar málverk voru síður
flokkuð eftir myndefni en meðferð
á viðfangsefninu. Impressionistar
eins og Renoir máluðu kyrralífs-
myndir, Matisse og Picasso gerðu
slíkt hið sama að ógleymdum epla-
meistaranum mikla, Cézanne, en
hann málaði mikið af kyrralífs-
myndum. Slíkt hið sama gerðu
kúbistarnir sem birtu myndefnið
þá gjarnan frá fleiri en einu sjón-
arhorni í einu.
Pétur Gautur hefur þá sérstöðu
í íslenskri málaralist að hafa ein-
göngu helgað sig kyrralífs-
myndum, þekktastar eru myndir
hans af ávöxtum á borði. Hann
sýnir nú bæði myndir af blómum
og ávöxtum. Litaval hans er nokk-
uð litríkt og afgerandi, dökkir flet-
ir minna á málverk 16. og 17. aldar
og ljá myndunum sígilda áru. Upp-
bygging verkanna er tiltölulega
abstrakt en sígild um leið, Pétur
skiptir myndum sínum jafnan af-
gerandi niður í einfalda litafleti en
gætir þess að halda jafnvægi í
myndbyggingu. Blómamyndir hans
eru nýrra myndefni, sumar þeirra
minna á málverk Eggerts Péturs-
sonar, aðrar eru hefðbundnar
myndir af t.d. túlípönum í vasa á
hvítum fleti. Að mínu mati er það
ekki myndefnið sem ræður úrslit-
um um það hvort málverk eru
áhugaverð eða ekki eins og nöfn
málaranna sem ég nefndi hér áðan
gefa til kynna. Það er því ekki sú
staðreynd að myndir Péturs sýna
ávexti og blóm sem verður til þess
að sýning hans er helst til einhæf.
Pétur sýnir töluverðan fjölda
mynda og ekki færri en 26 þeirra
eru merktar árinu 2006, það hlýtur
að teljast óvenju mikill fjöldi á
frekar skömmum tíma. Af þessu
má einnig draga þá ályktun að
Pétur sé orðinn vel sjóaður í
myndefni sínu, blómamyndir hans
gefa til kynna nýja stefnu og mið-
að við að málarahæfileikar Péturs
eru með ágætum væri ef til vill
spennandi að sjá aukna fjölbreytni
í verkum hans. Það er ekki hægt
að álasa listamanni vinnugleði en
það fer tæpast hjá því að svona
mikill fjöldi nýlegra verka veki
upp spurningar um það hvar metn-
aður listamannsins liggi. Þetta
kemur ekki í veg fyrir að verk
Péturs eru vinsælt stofustáss enda
hafa þau yfir sér kyrrlátt og þægi-
legt andrúmsloft og listamaðurinn
hefur náð ágætum tökum á þessu
viðfangsefni. Það kom mér síðan
ánægjulega á óvart þegar ég skoð-
aði sýninguna að framsetning
verka var óvenjulega vel hugsuð,
sá þáttur er ekki alltaf sterkasta
hlið íslenskra myndlistarmanna.
Við nánari athugun kom í ljós að
það var Arkitektastofan Einrúm
sem sá um uppsetningu sýning-
arinnar, vafalaust í samráði við
listamanninn og á verkið lof skilið.
Form og litir, blóm og ávextir
MYNDLIST
Hafnarborg
Pétur Gautur
Til 27. mars. Opið alla daga nema þriðju-
daga frá kl. 11–17.
Málverk
Ragna Sigurðardóttir
Morgunblaðið/Ásdís
„Pétur Gautur hefur þá sérstöðu í íslenskri málaralist að hafa eingöngu helg-
að sig kyrralífsmyndum, þekktastar eru myndir hans af ávöxtum á borði.“