Morgunblaðið - 26.03.2006, Page 38

Morgunblaðið - 26.03.2006, Page 38
38 SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ 28. mars 1976: „Það eru fjög- ur ár síðan hin fyrri „svarta skýrsla“ íslenzkra fiskifræð- inga barst stjórnvöldum. Þá þegar var veiðisókn í íslenzka þorskstofninn talin helmingi meiri en stofnstærð hans sagði til um. Það á eftir að vekja furðu hve neikvæð við- brögð ráðandi aðila í þjóð- félaginu voru, er skýrsla þessi barst. Efnisatriði hennar urðu ekki lýðum ljós fyrr en þremur árum síðar, er fiski- fræðingar ítrekuðu nið- urstöður sínar um hrunhættu helztu nytjafiska okkar, sem efnahagslegt sjálfstæði þjóð- arinnar grundvallast á. Allar botnlægar fiskteg- undir á Íslandsmiðum eru í dag ýmist full- eða ofnýttar. Hrunhætta vofir yfir þorsk- stofninum, sem vegur þyngst í atvinnu- og efnahagslífi þjóðarinnar. Ef ekki verður brugðizt við af ábyrgð og festu um skynsamlega nýt- ingu þessarar auðlindar sjáv- ar, sem er undirstaða efna- hagslegrar velferðar okkar, er tilverugrundvelli þjóð- arinnar stefnt í bráða hættu.“ . . . . . . . . . . 31. mars 1996: „Starfsmenn Slippstöðvarinnar Odda hf. á Akureyri hafa undirritað nýj- an vinnustaðasamning við fyrirtækið. Samningurinn nær til um 130 starfsmanna í fimm stéttarfélögum. Þau eru Félag málmiðnaðarmanna, Félag byggingarmanna, Fé- lag verzlunar- og skrif- stofufólks, Verkalýðsfélagið Eining og Rafvirkjafélag Norðurlands. Ánægja er með hinn nýja samning meðal starfsmanna. Og báðir samn- ingsaðilar lofa reynsluna af vinnustaðasamningum í við- tölum við Morgunblaðið, en slíkir samningar hafa verið viðhafðir á þessum vinnustað allar götur síðan 1987. Ingi Björnsson, fram- kvæmdastjóri Odda hf., segir það höfuðkost við þetta fyrir- komulag, að allir starfshópar fyrirtækisins séu samstiga, auk þess sem fulltrúar starfs- manna komi milliliðalaust að samningsgerðinni. Hákon Hákonarson, formaður Fé- lags málmiðnaðarmanna, seg- ir og reynsluna af vinnustaða- samningum „undan- tekningarlaust mjög góða“. Orðrétt segir hann: „Í kjölfar okkar samninga voru gerðir samningar m.a. á Akranesi, í Vestmannaeyjum og á Suður- nesjum, en þeir eru byggðir í öllum grundvallaratriðum á okkar samningum …“ Hann víkur og að hugmyndum um breytingar á lögunum um stéttarfélög og segir: „Í stað þess að ræða þá um vinnu- staðafélög, yrði rætt um vinnustaðasamninga, sem eru í grundvallaratriðum allt ann- að og ég tel að vanti í lögin.““ Fory s tugre inar Morgunb laðs ins Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Þ að hefur ekki farið fram hjá ritstjórn Morgunblaðsins síðustu daga og vikur að blaðið hefur legið undir þungri gagnrýni úr banka- kerfinu og úr öðrum áttum fyrir fréttaflutning af álits- gerðum greiningadeilda er- lendra banka og fjármálafyrirtækja um ís- lenzka bankakerfið. Segja má að upp úr hafi soðið, þegar Morgunblaðið birti frétt í gær, föstudag, um uppsagnir á skuldabréfum ís- lenzku bankanna, þó fyrst og fremst Kaup- þings banka og Glitnis í Bandaríkjunum. Ástæða er til að fjalla um þessa gagnrýni og viðhorf Morgunblaðsins í þessu sambandi. Í máli viðmælenda blaðsins kemur aftur og aftur fram sú skoðun, að Morgunblaðið hafi gert alltof mikið úr þessum fréttum, slegið þeim of mikið upp og með því átt þátt í lækkun hlutabréfaverðs á Kauphöll Íslands og lækkun á gengi íslenzku krónunnar. Morgunblaðið birti fyrst íslenzkra fjölmiðla fréttir af álitsgerðum fjármálafyrirtækja í London, sem voru býsna neikvæðar í garð ís- lenzku bankanna. Þær fréttir bárust blaðinu nánast fyrir tilviljun enda hefur hingað til ekki verið talin þörf á því fyrir íslenzka fjölmiðla að vera áskrifendur að slíkum álitsgerðum. Forsvarsmenn Kaupþings banka líktu þeirri umfjöllun blaðsins við umfjöllun Morgunblaðs- ins um Heklugos en eins og landsmenn þekkja geta þau stundum verið langvinn og óhætt að fullyrða, að umræður um íslenzka bankakerfið í útlöndum hafa orðið víðtækari en nokkurn mann óraði fyrir undir lok síðasta árs. Það er hægt að spyrja þeirrar spurningar, hvort ekki hefði verið eðlilegt þegar þessar um- ræður hófust í útlöndum, að íslenzku bankarnir hefðu sjálfir frumkvæði að því að skýra frá þeim athugasemdum og gagnrýni, sem þar var að finna. Því var ekki að heilsa. Þegar Morg- unblaðið fékk ábendingu um fyrstu skýrslurn- ar voru þær a.m.k. viku gamlar og ljóst, þegar leitað var eftir umsögnum um þær, að for- ráðamönnum bankanna var vel kunnugt um þær. Hvers vegna hefur Morgunblaðið fjallað svo ítarlega um þessar skýrslur? Skýringin á því er ósköp einföld. Morgunblaðið telur að íslenzkur almenningur eigi rétt á að fá upplýsingar um þá gagnrýni og athugasemdir, sem fram hafa komið í garð íslenzku bankanna í útlöndum. Við búum í opnu þjóðfélagi. Við búum í lýðræð- islegu þjóðfélagi. Að gera kröfu til þess að markvisst sé gert lítið úr slíkum upplýsingum er tímaskekkja af því tagi, að það kemur rit- stjórn Morgunblaðsins gersamlega í opna skjöldu, að slík krafa skuli yfirleitt gerð og auðvitað ljóst, að ekki er hægt að verða við henni. Á fundi í Rotary-klúbbi fyrir skömmu sagði einn af talsmönnum greiningadeildar Kaup- þings banka að íslenzkir blaðamenn byggju ekki yfir nægilegri þekkingu til þess að fjalla um þessi mál. Það er mikið til í því enda hafa fréttir af þessu tagi aldrei í lýðveldissögunni borizt til Íslands. En jafnframt því að Morg- unblaðið hefur á að skipa á ritstjórn blaðsins blaðamönnum, sem hafa góða þekkingu á þess- um málaflokki, hefur blaðið leitað eftir sér- fræðilegri aðstoð frá upphafi til þess að lesa rétt úr skýrslum erlendu greiningadeildanna. Vegna fyrri reynslu vissi ritstjórn Morgun- blaðsins, að fljótlega mundu heyrast raddir um það, að blaðið veldi bara neikvæða þætti úr þessum álitsgerðum í fréttir sínar. Af þeim sökum var sérfróður maður fenginn til þess að þýða heilu kaflana úr skýrslunum til þess að lesendur Morgunblaðsins hefðu beinan aðgang að stórum hluta textanna í blaðinu og gætu þá borið saman efni skýrslnanna og fréttir blaðs- ins. Að auki hafa flestar skýrslurnar verið birt- ar í heild á netútgáfu blaðsins en að vísu á ensku. Þrátt fyrir þessi vinnubrögð hélt for- svarsmaður eins fjármálafyrirtækis því fram á opinberum vettvangi að Morgunblaðið veldi bara neikvæða þætti í skýrslunum í fréttir blaðsins án þess að rökstyðja þá staðhæfingu á nokkurn hátt enda ekki hægt að finna rök fyrir þeirri staðhæfingu. En er eitthvað hæft í því, að Morgunblaðið hafi gert of mikið úr þessum fréttum? Er það kannski svo, að það komi íslenzkum almenningi ekkert við, þótt fjármálafyrirtæki úti í heimi geri athugasemdir við bankana hér? Eitt helzta álitaefnið í fyrrnefndum erlendu álitsgerðum hefur verið það hvort íslenzku bankarnir muni í framtíðinni búa við þrengri aðgang að fjármagni en þeir hafa átt að venjast og hvort vextir muni hækka á því fé, sem þeir sækja til útlanda. Fyrir helgina kom það fram hjá Davíð Oddssyni seðlabankastjóra að það væri ljóst að vextir af lánum til viðskiptamanna bankanna hér mundu auðvitað hækka ef lánsfé bankanna í útlöndum yrði dýrara. Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings banka, staðfesti það í samtali við Ríkissjón- varpið í gærkvöldi, föstudagskvöld. Kemur þetta mál íslenzkum almenningi ekk- ert við? Kemur það manninum á götunni ekk- ert við ef vextir bankanna hækka? Þetta er auðvitað stórkostlegt hagsmunamál fyrir ís- lenzkan almenning og fáránlegt þegar af þeirri ástæðu að halda því fram, að Morgunblaðið hafi gert of mikið úr þessum fréttum. En þar að auki sýnir það auðvitað furðulega forræðishyggju hjá þeim, sem halda því fram, að almenningur á Íslandi eigi ekki að hafa greiðan aðgang að þessum upplýsingum. Eru þetta ekki sömu mennirnir og mest hafa gagn- rýnt forræðishyggju fyrri tíma? Hverjar eru kröfurnar? Þegar farið er ofan í saumana á gagnrýni ýmissa starfsmanna bankakerfisins á Morgunblaðið fyrir fréttaflutning þess um þessi mál er gjarnan spurt sem svo af hálfu blaðsins: hvað eruð þið að fara? Eigum við ekki að segja frá þessum álitsgerðum að ykkar mati? Eigum við að fela þessar fréttir? Eigum við að „falsa“ þær með því að láta ekki koma fram í hverju þyngsta gagnrýnin er fólgin? Auðvitað svara viðmælendur blaðsins þess- um spurningum neitandi. Auðvitað viðurkenna þeir, að sjálfsagt sé að birta fréttir um álits- gerðirnar. Auðvitað viðurkenna þeir að ekki beri að fela fréttirnar. Auðvitað viðurkenna þeir að ekki beri að falsa fréttir. Hvað þá? Er það ekki forsíðufrétt í þessu blaði ef það gerist einn og sama dag, að krónan fellur, hlutabréfin í Kauphöllinni lækka og verð á skuldabréfum bankanna fellur á erlendum mörkuðum, svo að álagið hafði fjórfaldast eða fimmfaldast frá því að það var sem hagstæð- ast? Það er erfitt fyrir gagnrýnendur Morgun- blaðsins að neita því að frétt af þessu tagi, sem birtist hér í blaðinu fyrir skömmu eigi heima á forsíðu. Og hvað þá? Er það punktastærðin í fyrirsögnum, sem gagnrýnendur blaðsins eru að gera athugasemdir við?! Þegar búið er að fara í gegnum allar þessar röksemdir með gagnrýnendum Morgunblaðs- ins stendur eitt eftir og það er þetta: þið gerið ykkur enga grein fyrir því, hvers konar áhrif þessar fréttir hafa. Fólk er að missa aleigu sína á hlutabréfamarkaðnum vegna ykkar frétta- flutnings. Þótt starfsmenn Morgunblaðsins telji sig vera að gefa út gott dagblað líta þeir þó ekki það stórum augum á blað sitt að það geti með fréttaflutningi lækkað gengi krónunnar og verð á hlutabréfum. Hér er augljóslega verið að hengja bakara fyrir smið eins og algengt er. En svo mega menn ekki tapa áttum í þessum umræðum. Sigurður Einarsson, stjórnarfor- maður Kaupþings banka, benti á það í fyrr- nefndu sjónvarpsviðtali, að þrátt fyrir lækkun á hlutabréfamarkaði að undanförnu hefðu hlutabréf í banka hans eftir sem áður hækkað um 8% frá áramótum. Það er mikil hækkun. Eða er það kannski svo að fólk sé orðið svo vant hækkunum á skömmum tíma, sem nema tugum prósenta að 8% hækkun á tæpum þrem- ur mánuðum sé ekki neitt?! Þegar Morgunblaðið birti frétt í gærmorgun, föstudagsmorgun, um að skuldabréfum ís- lenzku bankanna hefði verið sagt upp í Banda- ríkjunum, svo nam verulegum fjárhæðum varð einhvers konar sprenging í kringum blaðið, rétt eins og það væri Morgunblaðið sjálft sem hefði unnið eitthvert ódæðisverk. Ætlar ein- hver að halda því fram, að þetta hafi ekki verið mikil frétt? Ætlar einhver að halda því fram, að það sé ekki alvarlegt mál, þegar þróunin verð- ur þessi? Bankarnir hafa undanfarna mánuði gert lítið af því að leita eftir fé á Evrópumark- aði. Ástæðan er ekki sú, að þeir geti ekki fengið peninga, heldur hin, að þeir væru að þeirra mati of dýrir og þeir hafa ekki viljað festa sig í svo dýrum lánakjörum. Þetta er ein af ástæð- unum fyrir því, að þeir fóru á Bandaríkjamark- að. Ef einhverjar vísbendingar koma fram um að aðgengi að lánsfé á Bandaríkjamarkaði sé að þrengjast er það auðvitað veruleg frétt. Átti Morgunblaðið ekki að segja frá þessu? Það stóð heldur ekki á staðfestingu frá Kaupþingi banka að þetta væri rétt, þótt erf- iðara væri að fá slíka staðfestingu í öðrum bönkum. Það hefur breytzt sbr. nýja frétt í þessu tölublaði Morgunblaðsins um uppsagnir VANDI TRYGGINGASTOFNUNAR Hjá Tryggingastofnun hefurskapast ófremdarástand.Stofnunin annar ekki að svara erindum sem til hennar berast og getur tekið allt að átta mánuði að afgreiða er- indi, sem til hennar berast að því er segir í bréfi, sem umboðsmaður Alþing- is hefur sent heilbrigðis- og trygginga- ráðherra til að vekja athygli á vand- anum. Tilefni bréfs umboðsmanns er kvörtun frá einstaklingi, sem hafði ekki fengið viðbrögð frá Tryggingastofnun við andmælum vegna endurreiknings bóta frá árinu 2004. Rúmlega þúsund andmæli bárust vegna endurreiknings bóta frá 2004 og kemur fram í álitinu frá umboðsmanni að vegna manneklu og rekstrarfjárskorts væri fyrirséð að allt að 6–8 mánuðir gætu liðið þar til unnt yrði að svara þessum erindum. Í þessum efnum standa því öll spjót á Tryggingastofnun og ekki að undra. Það er ekki hægt að bjóða upp á svona vinnubrögð og Karl Steinar Guðnason, forstjóri Tryggingastofnunar, gerir sér grein fyrir því. „Staðan í dag er gjör- samlega óviðunandi fyrir aldraða og ör- yrkja, að vera boðið upp á þessi vinnu- brögð,“ segir Karl Steinar í samtali við Morgunblaðið í gær og bætir við síðar: „Auðvitað fá flestir afgreiðslu fyrr [en eftir 6–8 mánuði], en þetta er nýtt verkefni sem hefur sett stofnunina gjörsamlega á hliðina. Fólk er yfir- keyrt.“ Mergurinn málsins virðist vera sá að Tryggingastofnun hafi fengið nýtt verkefni, en ekki verið séð fyrir bol- magninu til að sjá um það. Í bréfi um- boðsmanns er bent á að Trygginga- stofnun hafi óskað leyfis hjá ráðuneytinu til að ráða fleira starfsfólk vegna þeirrar miklu manneklu, sem hjá henni væri, en ráðuneytið hafi ekki orð- ið við þeim óskum. Hvernig stendur á því að það er ekki gert? Hvernig stend- ur á því að ráðuneytið lætur það við- gangast að allt sé á öðrum endanum hjá Tryggingastofnun, erindin hrannist upp og óánægja magnist, án þess að stofnuninni sé gert kleift að sinna skyldum sínum? Það er ekki eins og þessi vandi hafi verið að koma fram í gær. Hér þarf að bregðast skjótt við. HVER ER KENNITALAN? Stundum mætti ætla að kennitölurhafi tekið við af nöfnum á Íslandi. Við ákveðin viðskipti eru einstaklingar ekki spurðir nafns, heldur beðnir um kennitölu. Hún er síðan slegin inn í tölvu og ógerningur er að vita hvaða upplýs- ingar spretta þá fram. Persónuvernd hefur nú sent frá sér álit í tilefni af kvörtun einstaklings, sem reynt hafði að skipta peningum í gjaldeyri í tveimur bönkum og var þá beðinn um kennitölu. Töldu bankarnir sér ávallt heimilt að biðja um kennitölu gjaldeyriskaupenda. Í svörum sínum til Persónuverndar vísa Samtök banka og verðbréfafyrirtækja og umræddir bankar til laga um aðgerð- ir gegn peningaþvætti og þeirra ríku skyldna, sem á fjármálafyrirtækjunum hvíli um að þekkja viðskiptavini sína og uppruna fjármuna þeirra og nýrrar Evróputilskipunar um ráðstafanir gegn því að fjármálakerfið sé notað til pen- ingaþvættis og fjármögnunar hryðju- verka. Persónuvernd kemst hins vegar að þeirri niðurstöðu að hvað sem þessum atriðum líði feli löggjöfin ekki í sér „þá reglu að ávallt skuli beðið um persónu- auðkenni viðskiptamanns, en af því leið- ir einnig að ekki þurfa öll viðskipti, sama hversu lítilfjörleg þau eru, að vera rekjanleg“. Bent er á að í tilvitnaðri til- skipun ESB um peningaþvætti þurfi að- eins að staðfesta deili á viðskiptavini við tilteknar aðstæður, til dæmis stofnun reikninga og bankabóka og þegar tilfall- andi viðskipti að upphæð 15.000 evrur eða meira eiga sér stað. Svipuð tilmæli sé að finna í aðgerðarlista OECD-ríkja gegn peningaþvætti. Persónuvernd mælist til þess að óvissu verði eytt um það hvenær fjár- málastofnunum sé heimilt að krefja við- skiptavini um kennitölu við kaup á gjaldeyri, til dæmis með setningu starfsreglna. Þessi tilmæli eru löngu tímabær og mætti taka til athugunar víðar en í bönkum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.