Morgunblaðið - 26.03.2006, Page 44
44 SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Hvort sem þú þarft að selja eða leigja
atvinnuhúsnæði, þá ertu í góðum
höndum hjá Inga B. Albertssyni.
Nú er góður sölutími framundan,
ekki missa af honum.
Vandaðu valið og veldu fasteignasölu
sem er landsþekkt fyrir traust og
ábyrg vinnubrögð.
Franz Jezorski, hdl. og lögg. fasteignasali
ATVINNUHÚSNÆÐI
HAFÐU
SAMBAND
Brekkubyggð 61 - Gbæ - sérinng.
Opið hús í dag frá 14 til 16
Nýkomin í einkasölu sérlega
falleg 3ja herb. neðri sérhæð í
þessu vinsæla hverfi. Íbúðin er
um 60 fm, fallega innréttuð
og mjög vel um skipulögð, sér-
garður, tvö svefnherb., rúm-
góð stofa, flísalagt baðherb.,
allt sér. Verð 16,8 millj. Laus
strax. 98491
Þórdís býður ykkur velkom-
in.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Byggingalóðir
Stórikriki í Mosfellsbæ
Höfum fengið til sölu 5 ein-
býlishúsalóðir við Stóra-
krika í Mosfellsbæ. Lóð-
irnar eru hlið við hlið í suð-
urjaðri hverfisins. Standa
þær því nokkuð hátt og er
lega bakgarða í suður og
suðaustur. Frábært tæki-
færi. Verð 60 milljónir allar
saman eða 12,5 milljónir
hver lóð án gatnagerðargjalda. Lóðirnar eru um 900 fm hver lóð.
Hér er um frábært tækifæri að ræða.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigfús í síma 898 9979.
Sumarhús Kjalbraut Vaðnesi
Stórglæsileg heilsárshús á þessum
frábæra stað í landi vaðness í
Grímsnesi. Húsið er 60 fm og er
innréttað smekklega og fylgir því
allt innbú. 3 svefnherbergi, stofa,
eldhús, baðherbergi og geymsla.
Rúmgóð verönd og heitur pottur.
Gott aðgengi og frábær
staðsetning. Stutt í alla þjónustu og
útivist. Hentar vel fyrir félagasamtök
eða einstaklinga. Nánari upplýsingar
veitir Hraunhamar fasteignasala
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Sigurður Óskarsson og Sveinn Óskar Sigurðsson lögg. fastsalar
SÖLUTURN TIL SÖLU !
Kjörið tækifæri fyrir samheldna fjölskyldu.
Söluturninn 107 Reykjavík. Mjög hagstætt verð.
Sölumaður: Vigfús, gsm: 698-1991
ÁRIÐ 2001 átti ég þess kost að
ferðast í mánuð á milli ólíkra borga í
Norður-Ameríku í boði bandaríska
utanríkisráðuneytisins.
Tilefnið var þátttaka
mín í kynningarverk-
efni um stöðu þeirra í
umhverfismálum undir
heitinu „Urban Envi-
ronmental Solutions“
eða umhverfislausnir í
borgarsamfélagi. Það
svið sem ég hef tals-
vert sinnt starfs míns
vegna er skipulagsmál
og voru þau mér efst í
huga í þessari ferð.
Það er skemmst frá því
að segja að í hnotskurn
er stærsta skipulagsvandamál þessa
heimshluta dreifð byggð eða það
sem kallað er „Urban sprawl“. Þetta
skipulagsvandamál er jafnframt
þeirra stóra umhverfisvandamál því
öll þjónusta, vegir og veitur þurfa að
liggja um mun lengri leið en ella.
Rót vandans er sú að margir vilja
búa í stórum einbýlishúsum á risa-
stórum lóðum með langa heim-
keyrslu frá húsagötunni. Þar sem
þetta er „vilji“ meirihluta fólksins er
eðlilegt að stjórnmálamenn lúti þeim
vilja við skipulagningu nýrra hverfa.
Niðurstaðan verður mjög einangrað
samfélag, með lélegri nærþjónustu
og stórt og plássfrekt stofnbraut-
arkerfi sem springur á
álagstímum kvölds og
morgna þegar stærstur
hluti borgarbúa þarf að
komast í og frá vinnu.
Allt of stór hluti af
verðmætum tíma fólks
fer í að sækja vinnu og
almenna þjónustu. En
er þetta örugglega það
sem meirihlutinn vill?
Umhverfissinnar eru
mjög meðvitaðir um af-
leitar afleiðingar þessa
samfélagsmynsturs og
æ stærri hópur fólks
flyst inn í þéttari hluta borganna til
að fá aukin lífsgæði. Dreifbýl svæði
borganna ganga í endurnýjun líf-
daga og þétting byggðarinnar nýtir
land, stofnbrautir og veitur sem best
íbúunum til hagsbóta. Þar sem þétt-
ing byggðar hefur tekist hvað best
að mínum dómi eru hverfi sem
skipulögð hafa verið með þéttri og
lágri byggð gjarnan að evrópskri
fyrirmynd. Danir og Hollendingar
hafa einkum verið framarlega í
flokki með þróun slíkra þriggja til
fimm hæða íbúðahverfa. Þannig ná
menn sambærilegri nýtingu lands
og með byggingu háhýsa, en áhrif á
skuggavarp, skjólmyndun og nota-
legt borgarrými er mun jákvæðara.
Einn mikilvægasti þátturinn í slíku
skipulagi er að horfa til þess að að-
stæður til útiveru séu sem bestar;
ganga, skokka, grilla, spjalla eða
bara leika sér. Á Íslandi hafa útsýn-
isturnar verið vinsælir en því miður
komið óorði á hugtakið þétting
byggðar. Oft skemma þeir meira en
það sem þeir leysa með kaldrana-
legu umhverfi og umgjörð. Þeir eru
bóla sem ég tel að muni ganga sér til
húðar með minnkandi vinnufíkn
landans og aukinni áherslu á frítíma.
Íbúð með skjólsæla og sólríka ytri
umgjörð í nálægð við vinnustað mun
verða sett í öndvegi með aukinni vel-
ferð. Ég hef fullan skilning á því að
íbúar í gróinni byggð láti í sér heyra
til að koma í veg fyrir að háhýsi taki
af þeim veðursældina og sólina. Það
er hinsvegar merki um afdala-
mennsku þegar hópur íbúa sem
þykjast vera umhverfissinnar veldur
fjaðrafoki og heimtar „Urban
sprawl“ að hætti Bandaríkjamanna í
stað þéttrar lágrar byggðar með
evrópskri fyrirmynd. Þetta erum við
því miður enn þann dag í dag að
hlusta á í okkar samfélagi en þar er
á ferðinni úlfur í sauðargæru sem
okkur ber að varast. Þegar svæð-
isskipulag höfuðborgarsvæðisins var
í mótun tóku sveitarfélögin sem að
því standa, sig saman um stefnu-
breytingu til þéttingar byggðar. Það
hefur sýnt sig að mun meiri skiln-
ingur er fyrir kostum slíkrar stefnu
en ég þorði að vona. Þróunin frá
gildistöku svæðisskipulagsins 2001
hefur verið leifturhröð. Við kannski
sjáum ekki miklar breytingar frá
degi til dags en þessi tímamót í um-
hverfismálum á höfuðborgarsvæð-
inu, munu verða augljós þegar horft
verður til baka á næstu áratugum.
Um þéttingu byggðar
Sigurður Einarsson
fjallar um skip ulagsmál
’Við kannski sjáum ekkimiklar breytingar frá degi
til dags en þessi tímamót í
umhverfismálum á höf-
uðborgarsvæðinu, munu
verða augljós þegar horft
verður til baka á næstu
áratugum.‘
Sigurður Einarsson
Höfundur er arkitekt.
MANNAUÐUR er ein af auðlind-
um Háskólans á Akureyri, en mann-
auður byggir á ást, gagnkvæmri virð-
ingu, skilningi og vilja til góðra verka.
Nemendur, kennarar
og starfsfólk Háskól-
ans á Akureyri hafa í
sameiningu byggt upp
einingu sem byggir á
þessum gildum. Við há-
skólann er mikið og ný-
stárlegt námsframboð,
framúrskarandi há-
menntaðir kennarar,
öflugar rannsóknar-
stofnanir og frábært
starfsfólk. Sem nem-
andi við Háskólann á
Akureyri langar mig
að koma á framfæri
nokkrum staðreyndum
um þá starfsemi sem þar fer fram
ásamt viðhorfi til menntunar.
Á þeim tæpum fjórum árum sem
ég hef stundað nám við Háskólann á
Akureyri hefur stofnunin vaxið og
dafnað líkt og gróður að vori. Við vit-
um að gróður þarf að vökva svo hann
vaxi og eins er það með menntastofn-
anir, þær þurfa næringu til að halda
lífi. Það hafa komið tímar sem gróður
hefur lamast vegna þurrka eða ótíma-
bærs kuldakasts, það hefur ekkert að
gera með eðli gróðursins heldur eru
það utanaðkomandi óviðráðanleg
áhrif. Líkt er komið fyrir Háskól-
anum á Akureyri í dag. Hann gengur
í gegnum tímabæra erfiðleika sem
ekkert hafa að gera með innviði hans,
heldur orsakast af ótímabæru kulda-
kasti að vori.
Á Íslandi njótum við þeirra forrétt-
inda að geta menntað
okkur í ríkisreknum há-
skólum, án skólagjalda.
Það rekstrarform trygg-
ir öllum jafnan rétt til
náms þannig að ein-
staklingar hafa val um
að mennta sig eða ekki.
Einnig viðheldur háskóli
án skólagjalda fjöl-
breytni nemenda á há-
skólastigi. Það eitt gefur
háskólanum ákveðna
breidd. Hátt hlutfall
menntunar á Íslandi
gagnast landinu öllu, en
fjárfesting í menntun er
oft vanmetin. Hugsanleg ástæða þess
er að arður menntunar skilar sér ekki
í beinhörðum peningum, heldur í rík-
ara samfélagi. Ef val almennings um
jafnan rétt til náms yrði afnumið með
tilkomu skólagjalda myndi það leiða
til ójöfnunar, einsleitni nemenda á há-
skólastigi og fjölbreytileiki menntaðs
vinnuafls í landinu myndi minnka.
Það er því mikilvægt að halda uppi
ríkisreknum menntastofnunum í
landinu og gefa þeim þá næringu sem
þær þurfa til að vaxa.
Val mitt fyrir tæpum fjórum árum
var að mennta mig. Verðmæti þeirrar
menntunar er ómetanlegt í dag, eitt
það dýrmætasta sem ég hef fengið.
Þá er ég ekki einungis að vitna í nám-
ið sjálft og þau áhrif sem það mun
hafa á framtíð mína, heldur ekki síður
að hafa hlotið þau forréttindi að
kynnast þeim hugsjónum og eldmóði
sem hefur einkennt uppbygging-
arferli Háskólans á Akureyri. Það er
stundum sagt að vilji sé allt sem þurfi
til að láta hlutina ganga upp. Viljinn
til að efla Háskólann á Akureyri er
fyrir hendi og þann vilja getur ekkert
ótímabært kuldakast drepið niður.
Háskólanám hefur gefið mér ný við-
mið og nýja trú. Trú á gildi mennt-
unar, trú á samstöðu til að ná fram
sameiginlegum markmiðum og trú á
mátt viljans til góðra verka. Það er
von mín að sem flestir fái notið sömu
forréttinda og ég, að fá að dreypa á
auðlindum háskólamenntunar.
Menntastofnunum landsins og auð-
lindum þeirra óska ég velfarnaðar.
Auðlind Háskólans á Akureyri
Linda Björk Guðrúnardóttir
fjallar um Háskólann á
Akureyri ’Það er von mín að semflestir fái notið sömu for-
réttinda og ég, að fá að
dreypa á auðlindum há-
skólamenntunar.‘
Linda Björk
Guðrúnardóttir
Höfundur er nemandi
við Háskólann á Akureyri.