Morgunblaðið - 26.03.2006, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 26.03.2006, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 45 UMRÆÐAN Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali SELBRAUT - SELTJARNARNES Fallegt einbýlishús ásamt innbyggðum bíl- skúr. Húsið stendur innarlega á Selbraut- inni og er í botnlangakrók út frá götunni. Húsið skiptist í anddyri, eldhús, tvær stof- ur, fjórar snyrtingar, geymslu, þvottahús, sex svefnherbergi og mögulegt er að út- búa tvær litlar íbúðir, eina í hvorum enda húsins. Fjórir inngangar eru í húsið. Mikið skjól er við húsið sunnan megin. V. 65,0 m. 5696 101 SKUGGI - LINDARGATA Um er að ræða einstaka fullbúna glæsi- lega 129 fm íbúð í hinu nýja Skuggahverfi, ásamt sérbílastæði í bílageymslu. Íbúðin er staðsett á 8. hæð og er með stórkost- legu útsýni á þrjá vegu. Allar innréttingar eru frá Trésmiðjunni Borg og öll gólfefni eru sérvalin. Íbúðin er mjög björt með hærri lofthæð en almennt gerist. Sérstök hljóðeinangrun er milli íbúða. Húsið er ein- angrað að utan og klætt með zinki og steinflísum. Íbúðin skiptist í anddyri, hol, stofu, borðstofu, (samliggjandi) eldhús, baðherbergi, þvottahús og þrjú svefnher- bergi. Í sameign er sérgeymsla og hjólageymsla. V. 70,0 m. 5699 ÖLDUGATA - GLÆSILEG ÍBÚÐ Glæsileg stór risíbúð í húsi sem búið er að endurinnrétta að mestu leyti. Húsið hýsti áður augnlæknastofur en hefur nú verið innréttað sem íbúðarhúsnæði. Íbúðin skipt- ist í hol, borðstofu, eldhús, stofu, svefnher- bergi, baðherbergi og geymslu í kjallara. Húsið lítur vel út og útsýni frá íbúðinni er glæsilegt. V. 27,9 m. 5703 MARÍUBAUGUR - GRAFARHOLT Vel staðsett og falleg 3ja herbergja, 103 fm íbúð á þriðju og efstu hæð í húsi, þar sem aðeins ein íbúð er á hæð og aðeins þrjár íbúðir í stigagangi. Íbúðin skiptist í hol, tvö herbergi, stofu, eldhús, baðher- bergi, þvottahús og geymslu. Frábært út- sýni. Suðursvalir. V. 21,0 m. 5701 SÓLVALLAGATA - GAMLI VESTURBÆRINN Falleg og björt 103 fm rishæð með útsýni til allra átta. Íbúðin er í fallegu húsi sem hefur verið mikið endurnýjað, m.a. sprunguviðgert og málað, auk þess sem skipt hefur verið um þak. Stór suðurgarð- ur bak við hús með fallegum gróðri. V.33,5 m. 5704 OPIÐ HÚS - VEGHÚS 7 2.H.H MJÖG FALLEG 4RA HERBERGJA ÍBÚÐ Á ANNARRI HÆÐ Í LITLU FJÖLBÝLI. Húsið lítur mjög vel út og sameign nýlega teppa- lögð og máluð. Íbúðin skiptist í anddyri, hol, eldhús, þrjú svefnherbergi, þvottahús, baðherbergi, stofu og geymslu í risi. EIGNIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG (SUNNUDAG) FRÁ KL. 13-15. V. 23,9 m. 5676 KJARRMÓAR - VEL STAÐSETT Fallegt 110 fm raðhús á 2 hæðum á mjög rólegum og góðum stað. Húsið skiptist þannig: Á jarðhæð eru tvö svefnherb., baðherb., eldhús og stofa. Á 2. hæð er stórt baðstofuloft og svefnherb. Mikið geymslurými er undir súð. Suðurgarður. Mjög stutt er í alla þjónustu, s.s. leikskóla, dagheimili, grunnskóla, verslanir o.fl. V. 30,0 m. 5705 BÓLSTAÐARHLÍÐ - GÓÐ STAÐSTAÐSETNING Falleg 2ja herbergja, 54 fm íbúð á 2. hæð í blokk, sem nýbúið er að taka í gegn að utan. Eignin skiptist í hol, stofu, eldhús, baðherbergi og herbergi. Í kjallara er sameiginlegt þvottahús og sérgeymsla. V. 14,5 m. 5597 LAUGARNESVEGUR - Á EFSTU HÆÐ M/BÍLSKÝLI Glæsileg 87,6 fm íbúð á 5. hæð og efstu hæð í nýlegu álklæddu fjölbýlishúsi byggðu af ÍAV ásamt stæði í bílskýli. Sér inngangur af svölum. Íbúðin skiptist í stofu, borðstofu, eldhús, svefnherbergi, baðher- bergi og sér þvottahús í íbúð. Húsið er byggt 2002. Laus við kaupsamning. V. 28,5 m. 5571 Nýkomin í einkasölu sérlega gott ca 500 fm atvinnuhús- næði auk ca 200 fm milli- lofts. Innkeyrsludyr, stór lóð malbikuð, byggingarréttur. Leigusamningur við seljanda fylgir. Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is Eyrartröð Hf. - Atvinnuhús ÞEGAR sonarsonur okkar var rúmlega 5 ára, þurfti amma hans að liggja á sjúkrahúsi. Eftir ákveðinn tíma var hún síðan út- skrifuð. Ég sagði þeim stutta, að nú væri amma hans útskrifuð að sjúkrahúsinu. Þá sagði hann: ,,Afi, og er hún þá alveg ólasin“? Þetta fannst mér stórsnjallt orð yfir það, að vera orðin heil- brigður. Ég vissi, að þarna var kom- ið nýtt orð í okkar mál. En það eru ekki allir jafn snjallir, að búa til ný orð, eins og þessi snáði. Það fékk ég að sjá nokkru seinna. Eitt kvöld þegar ég var að horfa á sjónvarpið, þá kom allt í einu auglýs- ing, sem hljóðaði þannig: ,,Gullvild“, og síðan fyrir neðan, með smærra letri: ,,vertu góðu vanur“. Þetta var frá Íslandsbanka (sem nú heitir Glitnir). Það munaði engu, að ég missti kvöldmatarlyst- ina. Ég er nú vanur að vera góður, þegar málin standa þannig og góðu vanur, þegar því er að skipta. Ætli greining- ardeild hafi engin af- skipti af þessu? Annars er þetta orð ekki það fyrsta sem þeir hnoða saman af vanefnum. Fyrir nokkrum árum varð til hjá bönkunum annað orð, sem var miklu skemmti- legra, það var orðið greiðsluflýting- arlán, í einu orði. Þetta orð var hugs- að þannig, að ef þú ætlaðir að taka stórt lán, gastu fengið minna lán, á meðan var beðið eftir afgreiðslu á stærra láninu. En gullvildin hefur smitað frá sér, því nú eru einhverjir sparisjóðir farnir að herma þetta eftir, og bjóða vildar þjónustu. Þó að orðið gullvild sé ekki til í ís- lensku máli er til góðvild og velvild, en þetta er varla til í bankamáli, því ekki lækka vextirnir þrátt fyrir milljarða gróða. Að lokum, eftir allar þessar vangaveltur þá kýs ég frekar að vera ólasinn heldur en góðu van- ur. Nýyrði og íslenskt mál Óskar Björnsson fjallar um íslenskt mál Óskar Björnsson ’Þó að orðið gullvild séekki til í íslensku máli er til góðvild og velvild, en þetta er varla til í banka- máli, því ekki lækka vext- irnir þrátt fyrir milljarða gróða.‘ Höfundur er eftirlaunaþegi og safnari á Norðfirði. SÍMENNTUN starfsmanna er lykill fyrirtækja að betra starfs- umhverfi, aukinni framleiðni og styrkir samkeppnis- stöðu þeirra. Það er hagur fyrirtækis í dag að starfsmenn sæki sér aukna menntun á sem hagkvæmastan hátt og þá ekki síst að þeir sem hafa haft lítil tök á að mennta sig fái að njóta tækifær- anna. Starfsafl er fræðslu- sjóður fyrir ófaglært verkafólk og fyrirtæki þess á höfuðborgar- svæðinu og Reykja- nesi. Sjóðurinn er fyr- ir félagsmenn Eflingar – stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis og þau fyrirtæki SA sem þessir félagsmenn starfa hjá. Starfsafl var stofnað í samningum þessara verkalýðsfélaga og Sam- taka atvinnulífsins árið 2000. Hlut- verk hans er að efla símenntun og starfsmenntun félagsmanna, sem eru nú 16.300. Markmiðin sem Starfsafl hefur haft að leiðarljósi frá upphafi er frumkvæði í þróun- arverkefnum í starfsmenntun, að leggja áherslu á kynningar- og hvatningarstarf og kanna þörf at- vinnulífsins fyrir starfsmenntun ófaglærðs verkafólks. Jafnframt leitar Starfsafl eftir viðræðum við stjórnvöld um fyrirkomulag full- orðinsfræðslu. Starfsafl styrkir nýjungar í námsefn- isgerð og endur- skoðun námsefnis, rekstur námskeiða og veitir einstak- lingum og fyrir- tækjum styrki vegna starfsmenntunar samkvæmt nánari reglum. Fjármögnun Starfsafls kemur í gegnum Atvinnuleys- istryggingasjóð á samningstímabilinu 2000–2007. Í samn- ingum SA og Flóa- bandalagsins í mars 2004 var sam- þykkt að atvinnurekendur greiði 0,05% frá 1.1. 2006 og 0,15% frá 1.1. 2007 af greiddum launum í starfsmenntasjóð og um leið hætt- ir atvinnuleysistryggingasjóður fjármögnun sjóðsins. Nýjar reglur, meiri möguleikar Í febrúar síðastliðnum tók stjórn Starfsafls þá ákvörðun að hækka styrki til félagsmanna og auka styrk til þeirra sem hafa ekki nýtt sjóðinn undanfarin þrjú ár en vilja sækja sér starfsrétt- indi. Þar er verið að hugsa um nám sem tekur skamman tíma en gefur starfsréttindi í viðkomandi fagi. Upplýsingar um fyrir- komulag styrkja er hægt að nálg- ast á vefsetri Starfsafls, www.starfsafl.is. Hvatt til að nýta réttindin Að undanförnu hefur Starfsafl lagt áherslu á að fara í fyrirtækja- og vinnustaðaheimsóknir þar sem stjórnendum og starfsfólki eru kynntar reglur sjóðsins og það hvatt til þess að nýta sér framlag Starfsafls til símenntunar. Það er von aðstandenda Starfsafls að sem flestir félagsmenn nýti sér þau góðu tækifæri sem í boði eru til starfsmenntunar og geri sig um leið að verðmætari starfskrafti. Með því að hafa samband við skrifstofu Starfsafls getur fyr- irtæki óskað eftir að fá heimsókn starfsmanna Starfsafls. Starfsafl til þjónustu við verka- fólk og framleiðslufyrirtæki Kolbrún Stefánsdóttir fjallar um símenntun Kolbrún Stefánsdóttir ’Starfsafl er fræðslusjóð-ur fyrir ófaglært verka- fólk og fyrirtæki þess á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi.‘ Höfundur er forstöðumaður Starfsafls.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.