Morgunblaðið - 26.03.2006, Síða 46
46 SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
EINS og lesendur Morgunblaðs-
ins ættu að vera farnir að kannast
við af á þriðja tug greina Jakobs
Björnssonar, fyrrum orkumála-
stjóra, um umhverfislega dásemd
þess að bræða ál á Ís-
landi gengur boð-
skapur hans út á að
gerast kaþólskari en
sjálfur páfinn í nátt-
úruvernd; yfirbjóða þá
sem lýsa áhyggjum af
staðbundnum um-
hverfisáhrifum stór-
iðjustefnunnar og lýsa
þá óábyrga og eig-
ingjarna gagnvart
sameiginlegum og
meiri umhverfishags-
munum jarðarbúa.
Þessa siðgæðis-
umvöndun styður Jakob með marg-
endurtekinni kenningu sinni um að
annars vegar dragi notkun áls í
smíði vélknúinna farartækja úr
mengun – vegna léttleika síns – og
hins vegar dragi bræðsla áls á Ís-
landi úr framleiðslu þess með raf-
magni frá mengandi orkuverum
annars staðar.
Nú er skemmst frá því að segja
að þessi röksemdafærsla stenst
ekki. Í fyrsta lagi veldur aukinn
léttleiki farartækja aukinni heild-
arnotkun þeirra og þau áhrif eru lík-
leg til að vega ríflega upp orku-
sparnaðinn sem af léttleikanum
hlýst í hverju farartæki fyrir sig.
Nægir þar að nefna flugvélar en
þær væru hverfandi farkostur án áls
eða sambærilegra léttefna en sama
gildir, þótt í öðrum hlutföllum sé,
um bíla og járnbrautarlestir. Í öðru
lagi væru þetta ekki rök fyrir
bræðslu áls á Íslandi
sérstaklega, þótt rétt
væri, því öll álbræðsla
hefði þá þessi jákvæðu
umhverfisáhrif óháð
staðsetningu. Í þriðja
lagi veldur aukin ál-
framleiðsla að öðru
jöfnu verðlækkun á áli
og við það lækkar verð
á bílum, járnbraut-
arlestum og flugvélum
sem aftur eykur notk-
un þeirra og þar með
heildarmengun frá
þeim. Í fjórða lagi
hægir tilvist ódýrs áls á þróun ann-
arra léttefna sem væru skaðminni í
framleiðslu en álið. Í fimmta lagi
eru ekki bein tengsl á milli aukinnar
álframleiðslu á Íslandi og sam-
dráttar framleiðslunnar annars
staðar. Því aðeins dregst álfram-
leiðsla saman utan Íslands við
aukna álbræðslu hér að sú verð-
lækkun sem af aukningunni hlýst að
öðru jöfnu knýi aðra framleiðendur
til samdráttar. Og þótt slíkt gerist
er engin sérstök ástæða til að ætla
að álbræðslur sem nota raforku frá
mengandi orkuverum verði fremur
fórnarlömb verðlækkunarinnar en
bræðslur sem nota rafmagn frá
hreinni orkugjöfum.
Af þessu leiðir að ekki er hægt að
halda því fram nema í öfugmælum
að bræðsla áls á Íslandi sé happ fyr-
ir lofthjúp jarðarinnar eins og Jak-
ob hefur boðað um árabil. Síðasta
innslag hans í þeirri síbylju birtist á
síðum Morgunblaðsins 16. mars síð-
ast liðinn. Þar reynir hann að verj-
ast, að hans sögn, fyrstu málefna-
legu gagnrýninni á kenningasmíð
sína með því að hnika til efnahags-
lögmálum. „Heimsframleiðslan á áli
leitast ávallt við að laga sig að
heimseftirspurninni eftir áli“, skrif-
ar Jakob. Gott og vel, en hvernig
gerist sú aðlögun? „Menn framleiða
helst ekki ál svo neinu nemur til að
setja á lager. Það er of dýrt,“ út-
skýrir hann. Sjálfsagt laukrétt en
skýrir ekki samband framboðs og
eftirspurnar. „Af þessu leiðir að það
ál sem á hverjum tíma er framleitt á
Íslandi dregur úr því sem ella væri
framleitt með rafmagni úr eldsneyti
annars staðar á sama tíma.“ Röng
niðurstaða! Hvað nákvæmlega veld-
ur slíkum samdrætti? Það er spurn-
ingin sem Jakob horfir framhjá.
Fikt Jakobs við efnahagslögmálin
felst í því að eftirspurn eftir áli virð-
ist hjá honum óháð sjálfu verði þess
og verð áls virðist reyndar óháð
bæði eftirspurninni og framboðinu.
Álverð lúti semsagt ekki lögmálum
framboðs og eftirspurnar. Í raun-
inni myndist ekki markaðsverð á áli.
Því eigi framleiðendur ekki annarra
kosta völ en að draga úr framleiðslu
sinni þegar Íslendingar láta til sín
taka á álmarkaðnum. Síðan vilji svo
heppilega til að það séu einmitt ál-
bræðslur utan Íslands sem pakka
saman við þau tíðindi en ekki t.d. ál-
verið í Straumsvík þegar Fjarðaál
hefur starfsemi sína! Jakob virðist
ekki vilja taka með í reikninginn þá
einföldu staðreynd að aukið fram-
boð áls vegna bræðslu þess á Íslandi
dregur því aðeins úr framleiðslu
þess annars staðar að sú aukning
valdi að öðru jöfnu verðlækkun.
Taka verður áhrif slíkrar verðlækk-
unar inn í heildardæmið svo einhver
lágmarks-glóra fáist í niðurstöðuna.
Þessi röksemdafærsla Jakobs
sem nokkrir stjórnmálamenn hafa
bergmálað er ekki boðleg og enn
síður er boðleg sú siðferðispredikun
sem henni er ætlað að styðja, að Ís-
lendingar eigi að skammast sín fyrir
að neita heimsbyggðinni um að
bræða fyrir hana ál á kostnað fall-
vatna landsins og jarðhitasvæða.
Jakob lætur sem honum sé náttúra
landsins að vísu mjög kær en af um-
hyggju fyrir lofthjúpi jarðar og vel-
ferð jarðarbúa sætti hann sig til-
neyddur við þá afmyndun á
náttúrufari Íslands sem stór-
iðjustefnan veldur. Til að þjóna
þessum málatilbúnaði sínum skirrist
hann ekki við að sniðganga almenna
rökvísi og grunnkenningar hagfræð-
innar.
Ég legg til að Jakob láti þeim það
verk eftir, sem hræsnislaust eru að
reyna að meta hvaða hagsmunir eru
í húfi í framkvæmd stóriðjustefn-
unnar, að fjalla um umhverfislegar
skyldur Íslendinga við heimsbyggð-
ina og þá skyldu fyrsta sem þjóðinni
var af örlögunum lögð á herðar: Að
vernda náttúrufar landsins.
Rökleysur enn
um vistvæn álver
Gunnlaugur Sigurðsson svarar
grein Jakobs Björnssonar ’Þessi röksemdafærslaJakobs sem nokkrir
stjórnmálamenn hafa
bergmálað er ekki boðleg
og enn síður er boðleg sú
siðferðispredikun sem
henni er ætlað að
styðja…‘
Gunnlaugur Sigurðsson
Höfundur er lektor við
Kennaraháskóla Íslands.
Áhugaverður fjárfestingakostur
Enni á Kjalarnesi
6,9 hektara jörð á Kjalarnesi, Reykjavík. Á jörðinni er fallegt einbýlishús
með bílskúr. Jörðin er fyrir neðan þjóðveg og nær út að sjó. Afar fallegt
útsýni er yfir til Reykjavíkur og allt umhverfi mjög fallegt. Með mögulegri
tilkomu Sundabrautar er um áhugaverðan fjárfestingarkost að ræða.
Óskað er eftir tilboðum í jörðina og þær eignir sem henni fylgja.
Viðar Böðvarsson viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali
Þjónustusími sölumanna eftir lokun 694 1401
Laugavegi 170, 2. hæð.
Opið virka daga kl. 8-17.
Sími 552 1400 ● Fax 552 1405
www.fold.is ● fold@fold.is.
Glæsilegt og nánast algjörlega endurbyggt um 172 fm einbýlishús sem er kjallari
og tvær hæðir. Eignin skiptist m.a. í eldhús með fallegum nýlegum beykiinnrétting-
um, vönduðum tækjum og stórri eyju, rúmgóðar og bjartar samliggjandi stofur,
sex herbergi, sjónvarpshol og tvö glæsilega endurnýjuð baðherbergi. Nýjar svalir
til suðurs út af efri hæð og aukin lofthæð á efri hæð hússins í mæni. Öll endurnýj-
un hússins hefur verið gerð með húsfriðunarsjónarmið í huga og reynt að halda
eigninni í sínum upprunalega stíl. Gler og gluggar endurnýjaðir, vatns- og raflagnir
og tafla og allt járn á húsi að utan sem og á þaki o.fl. Tvö sér bílastæði eru á lóð
hússins og hellulögð verönd. Verð 39,9 millj.
Eignin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-16.
Verið velkomin.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali.
Smyrlahraun 4 - Hafnarfirði
Glæsilegt, endurbyggt einbýlishús
Opið hús frá kl. 14-16
Glæsileg efri sérhæð við
Gnípuheiði í Kópavogi, klasa-
hús (endaíbúð), samtals 144,3
fm, sérinng, forstofa, skápur,
flísar. Sjónvarpssk., björt stofa,
útgangur út á suðursvalir.
Glæsilegt eldhús með vönduð-
um innr., flísar á gólfi í eldhúsi
og á milli skápa, vönduð tæki í
eldhúsi. Bjartur útsýnisskáli við
eldhús, útgangur út á svalirnar.
Gott þvottah. með skápum og vaskaborði. Mjög fallegt baðh., baðkar
með sturtu, góður sturtuklefi, vönduð innr., flísar á gólfi og veggjum,
gluggi. Rúmgott svefnh. með skáp upp í loft. Tvö góð barnaherb. Parket
á gólfum stofu, sjónvarpsskála og herbergjum. Hiti í gólfi útsýnisskála og
baðherbergi. Góður bílskúr, rúmgóð sérgeymsla í sameign. Óvenju glæsi-
legt útsýni. Frábær staðsetning. Myndir á netinu.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Suðurhlíðar Kópavogs sérh.
Suðurlandsbraut 54,
við Faxafen, 108 Reykjavík,
sími 568 2444, fax 568 2446.
Ingileifur Einarsson, lögg. fasteignasali.
Til sölu mjög vel staðsett steinhús sem er kjallari, hæð og ris, samtals 222,2 fm auk
31,2 fm bílskúrs. Á aðalhæð hússins er m.a. stórt eldhús, snyrting og stór stofa og
borðstofa. Í risi eru 4-5 stór svefnherbergi og baðherbergi. Í kjallara er 2ja herb.
mjög góð íbúð með sérinngangi auk þvottaherbergis og geymslu. Ræktuð lóð með
stórri verönd. Verð 49,5 millj.
HVAMMSGERÐI - TVÆR ÍBÚÐIR
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Ægir Breiðfjörð, löggiltur fasteignasali
SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG
Sérlega falleg og vel búin 3ja her-
bergja íbúð á jarðhæð í 12 hæða
lyftuhúsi við Ársali 1 í Kópavogi.
Hús og sameign er til mikillar fyrir-
myndar. Íbúðin skiptist í: Forstofu,
hol, hjónaherbergi, baðherbergi,
þvottahús, svefnherbergi, eldhús,
borðstofu og setustofu. Gólfefni
eru flísar á forstofu, baðherbergi
og þvottahúsi og gegnheilt jat-
oba-parket á öðrum gólfum.
V. 23,5 m.
ÁRSALIR 1 - KÓPAVOGI
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-16