Morgunblaðið - 26.03.2006, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 49
UMRÆÐAN
Engjavellir - Hf. - Laus strax
Í sölu mjög góða 92,4 fm 4ra
herbergja íbúð á góðum stað í
nálægð við skóla og leikskóla í
Vallarhverfi í Hafnarfirði. Eign-
in er með sérinngang og skipt-
ist í forstofu, hol, eldhús, stofu,
tvö barnaherbergi, hjónaher-
bergi, baðherbergi, þvottahús
og geymslu. Fallegar innrétt-
ingar og gólfefni eru parket og
flísar. Eignin er laus strax.
Verð 21,5 millj.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Laugavegi 170, 2. hæð.
Opið virka daga kl. 8-17.
Sími 552 1400 ● Fax 552 1405
www.fold.is ● fold@fold.is
Þjónustusími eftir lokun er 694 1401.
Viðar Böðvarsson, viðskiptafr. og lögg. fasteignasali.
7,3 hektara jörð á Kjalarnesi, Reykjavík. Á jörðinni er fallegt einbýlishús, tvöfaldur bílskúr, lítið hesthús og
alifuglahús. Jörðin er fyrir neðan þjóðveg og nær út að sjó.
Afar fallegt útsýni er yfir til Reykjavíkur og allt umhverfi er mjög fallegt. Með tilkomu Sundabrautar er um
áhugaverðan fjárfestingarkost að ræða.
Óskað er eftir tilboðum í jörðina og þær eignir sem henni fylgja.
Áhugaverður fjárfestingarkostur
Kristján Ólafsson hrl. og löggildur
fasteignasali
www.klettur.is
Mjög falleg og björt 4ra herbergja 128 fm íbúð á fyrstu hæð með
suðursvölum í glæsilegu 3ja-4ra hæða fjölbýlishúsi með lyftu. Íbúðinni
fylgir sérstæði í bílageymslu og sérgeymsla í sameign. Komið er inn í
forstofu með flísum á gólfi og fataskáp. Hol með eikarparketi á gólfi og
halogenlýsingu, eins lýsing og parket í allri íbúðinni. Svefnherbergi með
parketi á gófi og fataskáp. Hjónaherbergi með parketi og fataskáp.
Þvottaherbergi með flísum á gólfi og vaskborði. Baðherbergið er
flísalagt í hólf og gólf, baðkar og vaskinnrétting. ÁSETT VERÐ: 32,9 m.
EIGENDUR TAKA Á MÓTI GESTUM, ALLIR VELKOMNIR
OPIÐ HÚS
Í DAG MILLI KL. 14.00 OG 16.00
ÁLFKONUHVARF 19 - ÍBÚÐ 0101
DOUGLAS DC-4
Skymaster var einn
glæsilegasti farkost-
ur háloftanna þegar
Loftleiðir eignuðust
slíka vél árið 1946.
Danir urðu vitaskuld
gulir og grænir af
fögnuði þegar Íslend-
ingar komu á
Heklunni til Kastrup
því sambandsflug-
félag þeirra, Norð-
manna og Svía, SAS,
átti enga fjögurra
hreyfla flugvél um
þær mundir.
Danir reyndust
ákaflega hjálplegir
og voru stundum svo
liðlegir að kveikja
ekki lendingarljósin á
Kastrup þegar Alfreð
Elíasson og félagar
ætluðu að lenda þar í
myrkri. Neyddust
þeir til að sveima yfir
flugvellinum þar til
SAS-flugvél bar að
og lenda strax á eftir
henni áður en slökkt
var aftur. Loft-
skeytasamband við
flugturninn á Kastrup var líka oft
grunsamlega slæmt.
Dagblöðin þeirra voru einnig
stórmannleg. Í Extrabladet var
fullyrt að danska loftferðaeftirlitið
teldi eftirlit með Heklunni ábóta-
vant og treysti sér ekki til að bera
ábyrgð á henni. Er íslensk flug-
málayfirvöld spurðust
fyrir um málið hjá
þeim dönsku, kunnu
þau enga skýringu á
„fréttaflutningi“ Ext-
rabladet og sögðu
enga gagnrýni hafa
komið frá þeim varð-
andi Heklu.
Sama bróðurlega
hugarþelið er nú að
finna hjá greining-
ardeild Danske Bank
sem greint hefur
minnkandi markaðs-
hlutdeild til Íslend-
inga og birtir því
skáldlega greiningu
um að kreppa sé yf-
irvofandi á Íslandi.
Fólskuleg viðbrögð
Dana gagnvart Loft-
leiðum þá og við-
skiptalífinu nú sýna að
með aukinni velgengni
má búast við æ
ómerkilegri árásum.
Það er því ástæða til
að fagna „greiningu“
Danske Bank. Hún er
ótvírætt merki um að
styrkur Íslendinga er
orðinn raunverulegur.
Áfram Ísland!
Danska
heygarðshornið
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
fjallar um Loftleiðir,
bankamál og samskipti
Dana og Íslendinga
Sigurgeir Orri
Sigurgeirsson
’Fólskuleg við-brögð Dana
gagnvart Loft-
leiðum þá og við-
skiptalífinu nú
sýna að með auk-
inni velgengni
má búast við æ
ómerkilegri
árásum.‘
Höfundur er að gera heimildar-
mynd um Alfreð Elíasson og
Loftleiðaævintýrið.
TILKYNNING bandarískra
stjórnvalda um brotthvarf orr-
ustuflugvéla þeirra frá Keflavík í
haust hristi upp í Ís-
lendingum og ekki að
ósekju. Brotthvarf
hersins þýðir að við
þurfum að horfast í
augu við og skilgreina
varnarþarfir þjóð-
arinnar á forsendum
heimsmyndar sem er
gjörólík þeirri sem
uppbygging og starf-
semi Keflavíkurstöðv-
arinnar hvíldi á.
Þegar þessi orð eru
skrifuð er enn allt
óljóst um framhaldið.
Næstu skref virðast í höndum
embættismanna NATO og banda-
rískra stjórnvalda – svo virðist
sem beðið sé eftir tilboði og til-
lögum frá þeim aðilum til að hægt
sé að meta hvaða kostir séu í
stöðunni. Íslendingar virðast van-
máttugir til að stýra umræðunni á
eigin forsendum, mögulega vegna
áratuga dvalar á brjósti Banda-
ríkjahers. Það er hins vegar ekki
endilega svo að aðrir viti hvað er
okkur fyrir bestu.
Skort Íslendinga á frumkvæði í
varnarmálum má vafalítið rekja
til herleysis okkar; þjóðar-
einkennis sem við stærum okkur
af en staðreyndar sem gerir okk-
ur jafnframt háð öðrum þjóðum.
Eða það höfum við að minnsta
kosti talið hingað til. Hér er því
aftur á móti haldið fram að Ís-
lendingar geta sýnt frumkvæði og
sinnt eigin vörnum án þess að
hervæðast. Hvað er því til fyr-
irstöðu að Ísland verði mögulega
fyrsta ríkið í heiminum til að vera
með borgaralegar varnir?
Íslendingar sinna nú þegar víð-
feðmu öryggisstarfi og annast
með borgaralegri starfsemi flest
svið öryggismála sem herdeildir
gegna annars staðar. Með sjálf-
boðastarfi mönnum við viðbragðs-
sveitir um allt land sem bregðast
við hörmungaástandi
svo sem jarðskjálft-
um, snjóflóðum og
eldgosum. Í flestum
öðrum ríkjum hvíla
slík viðbragðsstörf á
herðum hersins.
Embætti ríkislög-
reglustjóra sinnir
hættunni af alþjóð-
legri glæpastarfsemi,
hryðjuverkum og
tölvuglæpum með öfl-
ugu alþjóðastarfi og
auknum og skýrari
lagaheimildum.
Hættunni af útbreiðslu kjarna-
vopna getum við tæpast sinnt
öðruvísi en í gegnum starfsemi
utanríkisráðuneytisins á alþjóða-
vettvangi. Landlæknisembættið
og aðrar stofnanir sinna hættu-
mati og vinna viðbragðsáætlanir
vegna mögulegrar útbreiðslu
fuglaflensunnar. Sýslumenn og
tollgæsla sinna eftirliti með flug-
völlum og höfnum og Landhelg-
isgæslan, síðast en ekki síst, sinn-
ir björgunar- og eftirlitsstörfum á
höfum úti. Landhelgisgæslan er í
raun okkar sjóher, hún veitir eft-
irfylgd, dregur í land eða jafnvel
siglir á skip sem eru óvelkomin
inni í landhelginni. Varðskipin eru
vopnuð en sjaldan sem aldrei hef-
ur þurft að hleypa af skoti. Land-
helgisgæslan lýtur enda borg-
aralegri stjórn.
Tvö meginatriði breytast með
brotthvarfi hersins frá Keflavík,
eftirlitsflugi með lofthelgi Íslands
lýkur og björgunarstörf á sjó og
landi eru ótryggari en áður. Með
hliðsjón af ofangreindu ætti ekk-
ert að vera því til fyrirstöðu að
Landhelgisgæslan eða önnur sam-
bærileg, borgaraleg stofnun taki
að sér þessi hlutverk. Það myndi
vissulega kosta mikið fjármagn,
flugvélar og þyrlur sem um ræðir
eru gríðarlega dýrar í innkaupum
og rekstri. En hvernig verðleggj-
um við fullveldið? Það eru engir
auðveldir kostir í stöðunni og öllu
fylgir tilkostnaður, pólitískur
jafnt sem fjárhagslegur. Því má
ekki gleyma að við höfum verið
tilbúin til að kosta ýmsu til að
halda í starfsemina í Keflavík.
Íslendingar leggja mikið upp úr
herleysi sínu, þeir stæra sig af
því að vera friðsæl og velmegandi
þjóð sem ekki hefur barist síðan á
Sturlungaöld. Það er okkar val að
vera háð erlendum herliðum um
eftirlit með lofthelgi landsins og
það getur einnig verið okkar val
að annast slíkt eftirlit sjálf, á eig-
in forsendum.
Hættan á innrás erlends herliðs
hefur nánast horfið í kjölfar loka
kalda stríðsins og ef svo ólíklega
færi að slíkt hættumat breyttist
skipti litlu máli hvaðan eftirlits-
flugi væri sinnt. Meira þyrfti til
og til þess erum við í varnabanda-
laginu NATO.
Íslenskt samfélag þykir fyrir
margt sérstakt á alþjóðavett-
vangi: smæðin, náttúran, jarð-
orkan, tónlistin, sagan. Með hlið-
sjón af ógnum núverandi
heimsmyndar virðist fátt því til
fyrirstöðu að Ísland gæti einnig
skapað sér sérstöðu með því að
verða fyrsta ríkið í heiminum með
herlausar varnir.
Borgaralegar lausnir
fyrir herlaust land?
Birna Þórarinsdóttir
fjallar um brottför
varnarliðsins og ný viðhorf ’Með hliðsjón af ógnumnúverandi heims-
myndar virðist fátt því
til fyrirstöðu að Ísland
gæti einnig skapað sér
sérstöðu með því að
verða fyrsta ríkið í
heiminum með her-
lausar varnir.‘
Birna Þórarinsdóttir
Höfundur er stjórnmálafræðingur.