Morgunblaðið - 26.03.2006, Síða 50
50 SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Um er að ræða ca 140 fm
mikið endurnýjaða efri hæð,
ásamt lítilli íbúð í kjallara.
Íbúð er öll endurnýjuð á
mjög vandaðan hátt með
vönduðum innréttingum og
gólfefnum. Mjög gott útsýni
er úr íbúðinni, flísalagðar
suðursvalir. Íbúðin er laus
fljótlega. V. 34,8 milljónir.
Hermann og Helga taka á móti gestum frá kl. 14-16 í dag.
Opið hús í dag kl. 14-16
að Efstahjalla 1B Kópavogi
www.valholl.is
www.nybyggingar.is
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.30.
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast. Sími 588 4477
Nýkomin í einkasölu falleg
ca 90 fm íbúð á 3. hæð
(efstu) í góðu fráb. vel stað-
settu húsi rétt við Spöngina
og grunn- og leikskóla.
Fallegt útsýni. Gott skipu-
lag. Íbúðin er laus samkv.
samkomulagi.
Verð aðeins 16,9 millj.
Lillian og Þorsteinn taka á móti gestum í dag frá kl. 14-16
Opið hús í dag kl. 14-16
Gullengi 29-31 íbúð 0303
sérinngangur af svalagangi
Í einkasölu mjög góð ca
110 fm 4ra herb. íb. á 2. h.
sem er efsta hæð í góðu
vel staðs. húsi. Nýl. parket
á flestum gólfum, þvotta-
hús í íb. Góð mjög vel
skipul. íb. Stutt í t.d. skóla,
leikskóla og verslunarmið-
stöð. Verð 22,9 millj.
Sveinn og Dagný taka á móti gestum í dag frá kl. 14-16.
Opið hús í dag kl. 14-16
Mosarimi 11, íb. 0203 - Sérinng.
Í einkasölu glæsileg nýmál-
uð og yfirfarin 107 fm 4ra
herb. íbúð á 2. hæð í vönd-
uðu steniklæddu fjölb. Ný-
standsett flísalagt baðher-
bergi með þvottaðstöðu.
Gott eldhús með nýlegum
tækjum. Parket. Góðar
suðvestursvalir. Stæði í ný-
standsettu bílskýli fylgir. V. 19,2 millj. Íbúðin er laus strax. Mjög
góð eign á góðum stað. Áhugasamir geta skoðað íbúðina í
dag sunnudag frá kl. 12-15.
Opið hús í dag kl. 12-15
Fífusel 41, íb. 0201
glæsileg íbúð m. bílskýli
Opið hús verður í dag frá
kl. 14-16 á þessu glæsilega
202 fm raðhúsi sem staðsett
er á frábærum stað í lokuð-
um botnlanga. Góður jeppa-
bílskúr. Húsið er tilb. til inn-
réttinga að innan og sand-
sparslað. Glæsilegt útsýni
yfir golfvöllinn. 4 góð svefn-
herbergi. Frábært skipulag.
Mjög gott barnahverfi. Óskað er eftir tilboðum í húsið.
Opið hús í dag kl. 14-16
Þorláksgeisli - glæsilegt raðhús
Til afhendingar strax
LAUGAVEGUR 168 - TIL SÖLU
Vorum að fá í einkasölu stærsta hluta hússins nr. 168 við Laugaveg. Húsið stendur á
eftirsóttum stað á horni Laugavegs og Nótatúns með góðu auglýsingagildi. Eignin er á
tveimur hæðum, samtals u.þ.b. 1080 fm og skiptist í verslunar- og skrifstofuhúsnæði.
Eignin er öll í útleigu í dag. Góð staðsetning á áberandi stað sem hentar vel fyrir fjárfesta og
undir ýmiss konar starfsemi. Byggingarréttur að þremur hæðum. 5706
Nánari upplýsingar veita Sverrir og Óskar.
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
SVÖR óskast!
Þegar Hæstiréttur Íslands dæmir
fólk í refsimálum og byggir niður-
stöðu sína á grundvelli vitnaleiðslna
úr héraðsdómi, þá er um lögbrot að
ræða. Hæstiréttur Íslands verður að
kalla til vitni sjálfur og hlusta á þau
ef rétturinn ætlar að dæma fólk til
refsingar á grundvelli vitnaleiðslna.
Mannréttindadómstóll Evrópu
hefur dæmt íslenska ríkið fyrir að
fara ekki eftir þessum lögum. Það
gerðist árið 2003 vegna svokallaðs
„Vegas“ máls. Ég veit ekki annað en
að óbreytt vinnuferli sé enn við lýði.
Í framhaldi af þessu fýsir mig að
vita:
1) Af hverju eru ekki kölluð til vitni
fyrir Hæstarétti Íslands í refsimál-
um?
2) Af hverju er fólk sett í sakbend-
ingu hjá lögreglu og svo er ekki farið
eftir henni við dómsuppkvaðningu?
Ef Hæstiréttur hefði farið að lög-
um gæti líf mitt og minna verið öðru-
vísi í dag.
Ég vil fá svör frá ofangreindum
aðilum!
Einnig langar mig að vita hversu
lengi í viðbót ég þurfi að bíða eftir að
komast að í Hæstarétti með mál son-
ar míns. Frestur til að áfrýja í
Hæstarétt rann út 12. nóvember
2005 og enn er málið ekki komið á
dagskrá Hæstaréttar.
KRISTÍN B.K. MICHELSEN,
Melabraut 23, Seltjarnarnesi.
Dómsmálaráðherra,
Hæstiréttur og
Lögmannafélag Íslands
Frá Kristínu B.K. Michelsen:
ALLIR sem segja að Ísland verði
fyrst að verða aðili að EB áður en
hægt sé að taka upp evru og að það
séu engin fordæmi fyrir því að ríki
utan EB taki upp evru ættu að lesa
sér til um evruna.
Varðandi fordæmi, þá eru það
Vatíkanið, Mónakó, San Marínó,
Andorra og Svartfjallaland, sem eru
utan EB með evruna sem gjald-
miðil. Þau fyrstu þrjú slá eigin mynt
með leyfi EB.
Svo eru til ríki utan EB sem eru
með fasttengingu við evruna, þau
eru: Bosnía Herzegóvína, Búlgaría,
Grænhöfðaeyjar, Miðbaugsgínea,
Gabon, Kamerún, Lýðveldið Kongó,
Tsjad, Mið-Afríkulýðveldið, Benin,
Búrkína Fasó, Fílabeinsströndin,
Gínea Bissá, Malí, Níger, Senegal,
Tógó.
Svo eru til sjálfstjórnarsvæði sem
tilheyra Frakklandi utan EB sem
nota evru: Mayotte, Saint-Pierre og
Miquelon, og þau sem eru að skipta
úr tengingu við evru yfir í evru,
Franska-Pólýnesía, Nýja-Kaledónía
og Wallis og Futunaeyjar.
Síðasta svæði sem ég veit um sem
er utan EB og notar evru er Kó-
sóvó.
Sem sagt eru mörg dæmi um ríki
og sjálfstjórnarsvæði sem standa ut-
an EB en annaðhvort nota evruna
beint sem gjaldmiðil eða hafa tengt
sinn gjaldmiðil fastan við evruna.
Flest gera það með samþykki EB.
Ég get varla ímyndað mér að EB
mundi neita okkur um evruna; jafn-
vel leyfa okkur eftir aðlögunartíma
formlegt samstarf með sæti í evr-
ópska seðlabankanum.
Spurningin er ekki hvort við get-
um tekið upp evru heldur hvort við
viljum taka upp evru.
JOCHUM M. ULRIKSSON,
Sunnubraut 20, 200 Kópavogi.
Varðandi tengingu
við eða upptöku evru
Frá Jochum M. Ulrikssyni:
NÚ ER hvatt til umræðu um þá
hugmynd að gefa þegnum þessa
lands kost á að kaupa sér heil-
brigðisþjónustu framhjá biðlistum
tryggingakerfisins, að því tilskildu
að það lengi ekki biðtíma annarra.
Hugmyndin að baki þessu er sú
að sjúkrahús og aðgerðarstofur í
einkaeign eru vannýtt vegna tak-
markaðara fjárframlaga úr trygg-
ingakerfinu.
Frá mínum bæjardyrum séð
yrði þetta til þess að biðlistar
yrðu styttri en ella og því myndu
allir hagnast á slíkri ráðstöfun.
Þeir sem vildu og gætu varið fjár-
munum sínum í læknisaðgerðir
framhjá biðröðum með nefndum
hætti, færu ekki í biðröðina, en
væru þar annars, bið hinna yrði
því styttri sem þeim fjölda næmi.
Kostnaður tryggingakerfisins yrði
óbreyttur en tekjur þó nokkrar.
Auk þess er líklegt að nokkuð
sparist í lyfja-, læknis-, hjúkr-
unar- og vistunarkostnaði vegna
þeirra sem ekki þurfa á slíku að
halda vegna þess að þeir hafa
fengið læknisþjónustu fram hjá
tryggingakerfinu.
Mér hefur skilist að það séu
helst þeir sem telja sig vera mál-
svara lítilmagnans sem setja sig
upp á móti þessum möguleika, en
það er meinbægni, því þeir eru í
raun að lengja biðtíma og kvala-
tíma skjólstæðinga sinna með
þessari afstöðu!
Um daginn var haft eftir for-
sætisráðherra að hann væri á
móti svona kerfi og nú er það
sama haft eftir heilbrigð-
isráðherra. Þar sem hvatt hefur
verið til umræðu almennings um
málið, finnst mér að ráðherrar
ættu að bíða með að tjá sig um
það um hríð.
SIGURÐUR ÞORKELSSON,
fyrrverandi ríkisféhirðir
og ellilífeyrisþegi.
Vesturbergi 93, Reykjavík.
Mein-
bægni
Frá Sigurði Þorkelssyni: