Morgunblaðið - 26.03.2006, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 57
FRÉTTIR
BENS TIL SÖLU
Glæsilegur Mercedes Bens E-240, blásanseraður, til sölu, ekinn aðeins
63 þ. km. Bíllinn er eins og nýr, nýsprautaður og með nýjum hurðum,
frambrettum og skotti. Leðurinnrétting, sjálfskiptur, sóllúga, krús-
kontról, naví, rafmagn í rúðum, álfelgur, auka dekkjasett á felgum o.fl.
Verð 2.490 þús. Uppl. í síma 896 0747.
Þessir bekkir heimsóttu Morgun-
blaðið í tengslum við verkefnið
Dagblöð í skólum. Dagblöð í skól-
um er samstarfsverkefni á vegum
Menntasviðs Reykjavíkur sem
Morgunblaðið tekur þátt í á hverju
ári. Að lokinni verkefnaviku þar sem nemendur vinna með dagblöð á
margvíslegan hátt í skólanum koma þeir í kynningarheimsókn á Morg-
unblaðið og fylgjast með því hvernig nútímadagblað er búið til.
Nánari upplýsingar um verkefnið gefur Auður í netfangi audur@dag-
blod.is – Kærar þakkir fyrir komuna, krakkar! Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
7. bekkur A.Ó. Grunnskólanum Hellu.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
7. bekkur G.G. Háteigsskóla.
Morgunblaðið/Ásdís
7. bekkur A Laugalækjarskóla.
Pera vikunnar
Ferningur hefur ummálið 36 cm. Annar ferningur hefur flatarmál sem
er jafnt þreföldu flatarmáli þess fyrri.
Hve löng er hliðin í stærri ferningnum ?
Síðasti skiladagur fyrir réttar lausnir er kl. 12 mánudaginn 3. apríl
2006. Lausnir þarf að senda á vef skólans, www.digranesskoli.kopa-
vogur.is en athugið að þessi Pera verður ekki virk þar fyrr en eftir hádegi
20. mars. Þessi þraut birtist á vefnum fyrir kl. 16 þann sama dag ásamt
lausn síðustu þrautar og nöfnum vinningshafanna.
Stærðfræðiþraut
Digranesskóla og
Morgunblaðsins
NÝ stjórn Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, var kosin á aðalfundi
félagsins sem fram fór 18. mars sl., í félagsheimili Vöku. Ný stjórn hefur
þegar hafið störf. Stjórn Vöku, f.v. Jan Hermann Erlingsson, Sindri Ólafs-
son, Aldís Helga Egilsdóttir, Reynir Jóhannesson, Einar Örn Gíslason,
Katrín Amni Ajram, Magnús Már Einarsson, Andri Heiðar Kristinsson,
Gerður Guðjónsdóttir, Helga Lára Haarde og Björn Patrick Swift.
Ný stjórn kosin í Vöku