Morgunblaðið - 26.03.2006, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 59
Upledger höfuðb. og spjald-
hryggjarmeðf. Kynningarnám-
skeið á Upledger höfuðbeina og
spjaldhryggjarmeðferð verður
haldið 22. apríl næstkomandi í
Reykjavík. Upplýsingar í síma 466
3090 eða á www.upledge
Fermingar
Góð fermingargjöf - 20% kynn-
ingarafsláttur. Góður hæginda-
púði. Notast t.d. við höfðagafl í
rúmi við lestur, horfa á sjónvarp
og fleira. Margir litir. Bólstrun
Elínborgar, s. 555 4443.
www.siggi.is/elinborg
Viðskipti
Viltu skapa þér algjört fjár-
hagsfrelsi? Sé svo skaltu kynna
þér frábært námskeið þar sem
fagfólk kennir þér að búa til
hörkutekjur í heimavinnu.
Skoðaðu www.Kennsla.com fyrir
allar nánari upplýsingar.
Viltu hafa miklu hærri tekjur?
Langar þig til þess að vinna sjálf-
stætt, stjórna þínum vinnutíma og
öðlast algjört tímafrelsi sem og
fjárhagsöryggi?
Kannaðu málið nánar á
www.Fagmennska.com
Leitar þú að góðri og öruggri
tekjuleið? Áttu tölvu? Ertu í net-
sambandi? Af hverju þá ekki að
læra sjálfstæð netviðskipti? Frá-
bær leið til að margfalda tekjurn-
ar. Kynntu þér málið á
www.Hagnadur.com.
Eru stafrænu myndirnar þínar
í ólestri? Finnur þú ekki uppá-
halds myndirnar? Gætu þær glat-
ast? Námskeið þ. 1.4. 2006 um
geymslu og skráningu stafrænna
mynda, hugbúnað, gott verklag.
www.myndaskraning.net
Dulspekinámskeið - www.tar-
ot.is. Tarotnámskeið og Talna-
spekinámskeið. Fjarnám - bréfa-
skóli. Þú lærir hvar og hvenær
sem er. Uppl. og skrán. á vef eða
í s. 868 0322. Skrán. daglega.
Byggingar
Arkitektúr Verkfræði Skipulag
Leysum öll vandamál hvað varðar
byggingar og skipulag.
Arkitekta og Verkfræðistofan
VBV, fast verð. Allur hönnunar-
pakkinn s 557 4100 824 7587 og
863 2520.
Námskeið Vélar & tæki
Flísasagir í miklu úrvali frá
6.900. Mikið úrval af Einhell flísa-
sögum ásamt flísaskerum & bor-
um, góð gæði á góðu verði. Verk-
færasalan ehf., sími 568 6899,
Síðumúla 11, 108 Reykjavík.
Bílar
Ttilboð! Nissan Terrano II 2.4
bensín árg. 1995, beinskiptur, 33"
breyting. Verð 580 þ. Tilboð 380
þ. stgr. Upplýsingar í síma 567
4000. Vantar nýlega bíla á skrá
vegna mikillar sölu.
Toyota Landcruiser 90 VX, árg.
1997, 3.0 dísel. Ek. 211 þús. V.
1.690 þús. Uppl. í síma 567 4000.
Vegna mikillar sölu vantar okkur
nýlega bíla á skrá og á plan.
Tilboð! Nissan Patrol GR 2.8
dísel árg. 1991. Beinskiptur, ekinn
ca 70 þ, á vél, nótur fylgja. Verð
570 þ. Tilboð aðeins 380 þ. stgr.
Upplýsingar í síma 567 4000.
Vantar nýlega bíla á skrá vegna
mikillar sölu.
Nýr bíll - frábært verð - Chrysl-
er PT Cruiser 2005.
Ekinn 4 þús. 2,4 vél, sjálfskiptur,
framhjóladrif, 17" krómfelgur og
breið dekk + aukadekk. Verð 2,1
millj. Upplýsingar í síma 899
2005.
Nissan Patrol árg. '99, ek. 197
þús. km. 35". Leður, topplúga.
Áhv. lán. S. 893 0271.
Mitsubishi Pajero (Montero)
3.5 Limited árg. '01, ek. 82 þús.
km, ssk., 32" dekk, leður, cd
magasín, krókur, filmur o.fl. Einn
með öllu! Ásett verð 3.150 þ.
Uppl. í síma 699 2649.
Jeppar
Toyota Landcruiser 3,0 diesel
sjálfsk., '99. Til sölu vel með farin
Landcr. GX, ek. 204 þ. km, reglul.
viðhald, dr.krókur, sumar-vetr-
ard., nýl. ryðv. Ath. skipti á ód. bíl,
tjaldv., fellihýsi. V. 1.890 þ. kr.
Uppl. 694 7597.
Húsviðhald
Lyftuþjónusta. Hámarksþjónusta
á lágmarksverði. Sérfræðiþjón-
usta fyrir LM og H&S lyftur. Ára-
tuga reynsla. Sími 588 8180. Fax
588 9180. orms@simnet.is
www.lyftur.is.
Kerrur
Til sölu notaðar lyftur á góðu
verði. JLG 2646 skæralyfta.
Vinnuhæð 10 metrar. Árgerð 2000
(nóv.) Verð 990.000 + vsk.
Lyfta.is - Sími 421 4037.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
FRÉTTIR
ODDFELLOWSTÚKAN Leifur heppni hefur afhent
Krabbameinsfélagi Íslands eina milljón króna að gjöf
til kaupa á stafrænum röntgentækjum, en stúkan var
stofnuð þennan dag fyrir tíu árum.
Í gjafabréfi frá stúkunni kemur fram að tilgangur
Oddfellowreglunnar sé meðal annars að styðja við góð
verk í samfélaginu og að það sé von gefenda að þessi
gjöf færi Krabbameinsfélagið nær því marki sem það
stefnir að.
Þegar gjöfin var afhent sagði Guðrún Agnarsdóttir,
forstjóri Krabbameinsfélags Íslands, að félagið væri af-
ar þakklátt Leifi heppna fyrir þessa gjöf sem kæmi að
mjög góðum notum. Félagið stefnir að því að geta gefið
íslenskum konum kost á stafrænum myndatökum af
brjóstum sem fyrst og er að safna fé til tækjakaupa fyr-
ir Leitarstöðina.
Á myndinni eru Reynir Matthíasson, Arnfinnur Unn-
ar Jónsson og Ásgeir Þormóðsson frá Oddfellowstúk-
unni Leifi heppna nr. 19, Guðrún Agnarsdóttir, for-
stjóri Krabbameinsfélags Íslands, og Anna Björg
Halldórsdóttir, Börkur Aðalsteinsson og Baldur F. Sig-
fússon, læknar á röntgendeild Krabbameinsfélagsins.
Morgunblaðið/Ómar
Gaf eina milljón til Krabbameinsfélagsins
Aðalfundur
Krabbameins-
félags Reykjavíkur
AÐALFUNDUR Krabbameins-
félags Reykjavíkur verður haldinn
næstkomandi mánudagskvöld, 27.
mars. Fundurinn hefst kl. 20 og fer
fram í húsi Krabbameinsfélagsins
við Skógarhlíð 8 í Reykjavík.
Fundurinn hefst með venjulegum
aðalfundarstörfum, m.a. skýrslu
stjórnar, afgreiðslu reikninga og
stjórnarkjöri. Að loknum aðalfund-
arstörfum flytur Vilhelmína Har-
aldsdóttir, sviðsstjóri lækninga á
lyflækningasviði II á Landspítala –
háskólasjúkrahúsi, erindi. Nefnir
hún það þjónusta við krabbameins-
sjúklinga á nýjum Landspítala. Að
loknu erindi Vilhelmínu verður
unnt að varpa fram fyrirspurnum.
Boðið verður uppá veitingar á
fundinum.
Aðalfundur
Nýrrar lífsjónar
AÐALFUNDUR Nýrrar lífsjónar,
sem eru samtök fólks sem vantar á
útlimi, verður haldinn mánudaginn
3. apríl nk. kl. 20 á lofti Grafarvogs-
kirkju (2. hæð). Hvetur stjórn fé-
lagsins félagsmenn til að mæta og
taka með sér gesti.
Veitingar verða í boði.
Vilja málefni
eldri borgara til
sveitarfélaga
AÐALFUNDUR 60+ í Hafnarfirði,
sem haldinn var sunnudaginn 19.
mars 2006, telur að ríkisstjórnin
hafi alls ekki sinnt málefnum eldri
borgara á þann hátt sem þeir eigi
skilið.
Í ályktun fundarins segir: „Aðal-
fundurinn krefst þess að nú þegar
verði ákveðin og tímasett fjölgun
hjúkrunarrýma á landinu og þá
fyrst þar sem þörfin er mest, þ.e.a.s.
á höfuðborgarsvæðinu. Það hefur
sýnt sig að nærþjónusta er eldri
borgurum til hagsbóta og sömuleið-
is að það er fráleitt að málefni eldri
borgara heyri ekki öll undir sama
ráðuneyti. Þess vegna krefst fund-
urinn þess að nú þegar verði allur
málaflokkur eldri borgara settur til
sveitarfélaga landsins jafnframt því
að velferðarmálin verði sett undir
eitt ráðuneyti.
Við krefjumst þess að eldri borg-
urum séu tryggð laun til jafns við
kjör almennings í landinu. Einnig
krefst fundurinn þess að skattamál
eldri borgara verði stórlega bætt og
að lífeyristekjur verði skattlagðar á
svipaðan hátt og fjármagnstekjur,
en verði ekki tví- eða þrískattaðar.“
Yfirlýsing B-listans
í Reykjavík
„Einföld
Sundabraut?
Nei, takk!“
B-LISTINN í Reykjavík gagnrýnir
harðlega yfirlýsingu sem fram kom
hjá oddvita Samfylkingarinnar um
Sundabraut á íbúafundi á Kjalarnesi
sl. fimmtudagskvöld. „Dagur B. Egg-
ertsson lýsti því þar yfir að eina vitið
væri að leggja Sundabraut alla í ein-
um áfanga en hafa hana einfalda, í
stað þess að leggja tvöfalda braut upp
í Grafarvog í fyrsta áfanga,“ segir í yf-
irlýsingu frá B-listanum.
„B-listinn í Reykjavík mótmælir yf-
irlýsingum af þessu tagi. Einföld
Sundabraut væri mjög slæmur kost-
ur út frá öryggissjónarmiðum, heild-
arkostnaði við framkvæmdina og
væri án efa skipulagsslys ef þetta yrði
niðurstaðan.
Það er óviðunandi að formaður
skipulagsráðs í Reykjavík skuli leggja
til einfalda brú í Reykjavík árið 2006.
B-listinn í Reykjavík vill að Sunda-
braut verði lögð í göng á ytri leið.
Einföld Sundabraut væri til þess
fallin að auka enn frekar á vaxandi
umferðarvanda í höfuðborginni og
ber vott um skort á framtíðarsýn. Á
sama tíma og rætt er um nauðsyn
þess að tvöfalda Hvalfjarðargöng og
jafnvel að tvöfalda Vestfjarðagöng á
að bjóða Reykvíkingum upp á ein-
falda brú. Þessi yfirlýsing er ótrú-
verðug og í hróplegu ósamræmi við
allt sem sagt hefur verið um Sunda-
braut. Þetta bendir til þess að fram-
kvæmdin sé ekki ofarlega á forgangs-
lista Samfylkingarinnar,“ segir í
yfirlýsingu frá B-listanum.
DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur
endurskipulagt frá grunni rafræna
þjónustu sína sem mun hafa áhrif á
starfsemi fjörutíu stofnana og um
þrettán hundruð starfsmenn á veg-
um ráðuneytisins. Í átaksverkefni
sem hefur staðið yfir frá árinu 2004
hefur verklag, stjórnskipulag og um-
hverfi upplýsingatæknimála verið
endurskoðað og grunnur þannig
lagður að frekari uppbyggingu raf-
rænnar þjónustu hins opinbera.
Hluti af endurskipulagningunni er
flutningur þjóðskrár frá Hagstofu Ís-
lands til dóms- og kirkjumálaráðu-
neytis. Þjóðskrá mun taka við
ábyrgðarhlutverki Útlendingastofn-
unar varðandi útgáfu vegabréfa og
með því verður starfsemin styrkt og
grunnur lagður að frekari tæknivæð-
ingu varðandi auðkenningu.
„Ein af forsendum rafrænnar
þjónustu á netinu er auðkenning ein-
staklinga, en dæmi um einfalda auð-
kenningu er t.d. notendanafn og lyk-
ilorð fyrir aðgang að heimabanka.
Betri lausn varðandi auðkenningu
eru svonefnd rafræn skilríki eins og
bankarnir eru nú að skoða,“ segir
Þorsteinn Helgi Steinarsson, verk-
efnisstjóri átaksverkefnisins. Raf-
ræn skilríki eru skrár sem innihalda
gögn svo hægt sé að undirrita raf-
rænt. Þessi rafrænu skilríki auð-
kenna eiganda sinn eins og önnur
skilríki.
Á einum stað
„Þjóðskrá gegnir veigamiklu hlut-
verki varðandi almenna auðkenningu
Íslendinga þar sem þar er skráning
kennitölu og lögheimilis en auk þess
varðandi útgáfu nafnskírteina og
brátt einnig vegabréfa. Athuga þarf
hvernig útfæra á aðkomu Þjóðskrár
þegar kemur að rafrænni auðkenn-
ingu á netinu,“ sagði Þorsteinn Helgi.
Grunnur hefur einnig verið lagður
að svokölluðu rafrænu þjónustulagi
sem gerir fyrirtækjum og stofnunum
kleift að nálgast opinbera þjónustu á
einum stað með stöðluðum hætti og
tryggir auðkenningu notenda, að-
gangsheimildir, öryggismál og gjald-
töku með samræmdum hætti.
Þorsteinn Helgi sagði að dæmi um
þjónustu sem veitt yrði á næstunni
um rafrænt þjónustulag væru ýmis
leyfi sem sótt væru til lögreglu, svo
sem skemmtanaleyfi og veitingaleyfi.
Í framhaldi af því yrði bætt við ýmsu
sem varðaði afgreiðslu Þjóðskrár,
svo sem flutningi lögheimilis, skrán-
ingu sambúðar og fleiru. Það grunn-
starf sem nú þegar hefur verið unnið
leiðir til þess að ráðuneytið getur af
meira öryggi en áður flutt ýmis verk-
efni til annarra stofnana og þar með
aukið sérhæfni þeirra.
Rafræn þjónusta dómsmálaráðuneytis endurskipulögð
Þjónusta við almenning bætt