Morgunblaðið - 26.03.2006, Qupperneq 63
er til lausn! Samtök hömlulausra skuldara.
Askja – Náttúrufræðihús Háskóla Íslands
| Í næsta fræðsluerindi Hins íslenska nátt-
úrufræðifélags mun dr. Guðmundur A. Guð-
mundsson dýravistfræðingur á Nátt-
úrufræðistofnun Íslands flytja erindi um
vetrarútbreiðslu íslenskra andfugla í ljósi
fuglaflensu sem hann nefnir; Vorboðar eða
vágestir. Fer fram 27. mars kl. 17.15–18.15.
Eirberg | Reynsla hjúkrunarfræðinga af
starfi sínu á geðdeildum, eflandi og nið-
urbrjótandi þættir starfsins, eru efni fyr-
irlestarar Drafnar Kristmundsdóttur hjúkr-
unarfræðings í málstofu
Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði,
stofu 201, 2. hæð Eirbergi, hjúkr-
unarfræðideild HÍ. Fer fram 27. mars kl. 12–
13.
Ýmir | Aðalfundur Karlakórs Reykjavíkur
verður haldinn 26. mars kl. 15, í Ými við
Skógarhlíð. Venjuleg aðalfundarstörf.
Þjóðminjasafnið | Ráðstefnan myndhvörf í
minningu Þorsteins verður í Þjóðminjasafn-
inu 26. mars kl. 10–16.30. Að henni standa
þeir sem rökræddu myndhvörf í málstofu
íslenskuskorar haustið 2004 og Ritið,
Tímarit hugvísindadeildar. Ráðstefnan er
helguð minningu Þorsteins Gylfasonar sem
kynti sleitulaust undir rökræðunum. Nánari
dagskrá á www.hugvis.hi.is
Fréttir og tilkynningar
Aðalþjónustuskrifstofa Al-Anon | Upplýs-
ingar um fundarstaði og tíma almennra
funda, sporafunda og nýliðafunda er á
heimasíðunni, www.al-anon.is Al-Anon og
Alateen er félagsskapur karla, kvenna og
unglinga sem hafa orðið fyrir áhrifum af
drykkju ættingja eða vinar.
GA-fundir (Gamblers Anonymous) | Er
spilafíkn að hrjá þig eða þína aðstand-
endur? Hægt er að hringja í GA-samtökin í
síma: 698 3888.
Seltjarnarneskirkja | Messa og aðalfundur
Grunnvíkingafélagsins í Reykjavík verður í
Seltjarnarneskirkju kl. 11. Að messu lokinni
verður hádegisverður og kaffi í boði félags-
ins. Að borðhaldi loknu hefst aðalfundur fé-
lagsins. Messan er öllum opin en fundurinn
ætlaður félagsmönnum eingöngu.
Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands | Há-
skóli Íslands heldur 12. maí nk., hin al-
þjóðlegu DELE-próf í spænsku. Innritun fer
fram í Tungumálamiðstöð HÍ sem staðsett
er í kjallara Nýja Garðs. Frestur til innrit-
unar rennur út 7. apríl. Nánari upplýsingar
um prófin og innritun: http://www.hi.is/
page/dele
Frístundir og námskeið
Mímir – símenntun ehf. | Jóhanna Krist-
jónsdóttir blaðamaður heldur námskeið hjá
Mími – símenntun sem ber yfirskriftina „Ír-
an í hundrað ár“. Námskeiðið verður haldið
30. mars kl. 20–22. Nánari upplýsingar og
skráning hjá Mími – símenntun í s.
580 1800 eða á www.mimir.is.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MARS 2006 63
DAGBÓK
ÍKennaraháskóla Íslands fer fram veglegtmálþing um náttúrufræðimenntun dagana31. mars og 1. apríl. „Megintilgangurinnmeð málþinginu er að efna til umræðu um
náttúrufræðimenntun á Íslandi, horfa til fram-
tíðar og spyrja hvert við viljum stefna,“ segir
dr. Hafþór Guðjónsson, dósent í kennslufræðum
og formaður undirbúningsnefndar málþingsins.
„Rannsóknir á sviði náttúrufræðimenntunar
gefa til kynna að staða ungs fólks í raungreinum
er víða heldur bágborin og erfiðleikum bundið
að ná til ungs fólks með þessar greinar. Má í
þessu sambandi nefna bæði TIMSS rannsóknina
sem gerð var fyrir nokkrum árum og PISA
rannsóknina, sem báðar gefa til kynna að huga
þurfi betur að náttúrufræðimenntun á Íslandi
líkt og annars staðar.“
Málþingið er tileinkað minningu Ólafs Guð-
mundssonar kennara en hann var mikill áhuga-
maður um raungreinakennslu og hafði einstakt
lag á að vekja áhuga nemenda með athugunum
og tilraunum. Á málþinginu eru bæði í boði
fræðileg erindi sem og vinnustofur, og nær dag-
skráin til allra skólastiga: „Annars vegar verður
greint frá rannsóknum á sviði náttúrufræði-
menntunar, en hins vegar kynna kennarar af
öllum skólastigum verkefni sem þeir hafa þróað
í sínum skólum,“ segir Hafþór. „Vert er að
vekja sérstaka athygli á góðum gesti sem við
fáum á málþingið á laugardag, en það er Guð-
mundur Eggertsson, prófessor emeritus, sem
heldur erindi sem hann kallar „Erfðafræði á 21.
öld“. Í upphafi 21. aldar er búist við áframhald-
andi framförum í erfðafræði og erfðatækni, en
margir eru uggandi um afleiðingar þessara
framfara. Guðmundur mun í fyrirlestri sínum
fjalla um þekkingu og vanþekkingu á erfðum og
reynir að spá um hvers má vænta af erfðafræð-
inni á næstu áratugum.“
Málþingið er opið öllum sem áhuga hafa á
náttúrufræðimenntun og aðgangur ókeypis.
Dagskránni lýkur með pallborðsumræðum, þar
sem fjallað verður um tilgang náttúrufræði-
kennslu í skólum. Þar taka þátt Sigríður Ólafs-
dóttir, lífefnafræðingur hjá Lyfjaþróun, Svan-
borg R. Jónsdóttir, kennari í Þjórsárskóla,
Þorsteinn Vilhjálmsson eðlisfræðiprófessor,
Helgi Gíslason, skólastjóri og námsefnishöf-
undur og Sandra Seidenfaden, nemandi í Álfta-
mýrarskóla. Pallborðsstjóri er Ólafur Páll Jóns-
son heimspekingur.
Nánari upplýsingar um málþingið og ítarlega
dagskrá auk korts af húsakynnum má finna á
slóðinni http://natturufraedi.khi.is/natting. Þar
er einnig hægt að skrá þátttöku.
Menntun | Fjölbreytt dagskrá í KHÍ um náttúrufræðikennslu á öllum skólastigum
Málþing um náttúrufræðimenntun
Hafþór Guðjónsson
fæddist í Vest-
mannaeyjum 1974.
Hann lauk stúdents-
prófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík
1967 og bakkalárgráðu
í efnafræði frá Háskól-
anum í Ósló 1974. Haf-
þór lauk mastersprófi í
lífefnafræði frá Háskól-
anum í Tromsö 1976 og
doktorsprófi í kennslufræðum frá Háskólanum
í Bresku Kólumbíu 2002. Hafþór starfaði sem
lífefnafræðingur við Raunvísindastofnun HÍ,
kenndi síðan við Menntaskólann við Sund frá
1979 til 1999. Stundakennari í kennslufræði
raungreina við HÍ frá 1990 og aðjúnkt við KHÍ
1999, síðar lektor og loks dósent frá 2005.
Hafþór er kvæntur Þorgerði Hlöðversdóttur
grunnskólakennara, og eiga þau samanlagt
fjögur börn.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Í HARÐNANDI samkeppni við
aukið framboð síðari áratuga á
hvers kyns afþreyingu hefur einnig
hið klassíska tónleikaform fundið
fyrir viðleitni til endurnýjunar.
Ýmislegt hefur verið reynt aukreit-
is til að krydda með tónflutninginn,
þó ekki muni ég beinlínis eftir sjón-
rænum leiktilþrifum unnum úr ævi
og starfi klassískra meistara.
E.t.v. eigum við það enn eftir.
A.m.k. gat fyrirkomulagið í Salnum
á laugardag gefið hugboð um það,
þó hvorki væru upplesarar farðaðir
og í búningum né töluðust við í
beinum samræðum. Né heldur var
sýningartjaldið notað undir bak-
grunnsmyndir, og einu leiktjöldin
voru lítil kaffiborð á sínum hvorum
sviðsvæng (hvort prýtt andlits-
mynd af sínu Schumannhjónanna)
hvar við sátu upplesarar kvöldsins.
Komst sú umgjörð þó langt með að
galdra fram lifandi svipmynd af lífi
og ástum þeirra Clöru, jafnvel þótt
textinn byggði nær alfarið á bréfa-
samskiptum hjónanna 1835–55 og
bréfum Brahms til Clöru – er hunz-
aði síðar meir kröfu hans um að
brenna þau líkt og hann eyddi öllu
rituðu sem frá henni kom.
Hinn þaulreyndi leikari Arnar
Jónsson fór með ljónspart upplest-
urs af fyrirsjáanlegum bravúr, en
Hulda Björk Garðarsdóttir skilaði
einnig prýðisgóðum texta þá sjald-
an mælt var fyrir munn Clöru, er
ásamt Fanny Mendelssohn var
meðal hæfileikaríkustu tónskáld-
kvennna 19. aldar en, líkt og systir
Leipzigmeistarans, vængstýfð í
flugtaki af íhaldssemi tímans gagn-
vart hlutverki húsmæðra.
Hulda söng fyrst Feldeinsamkeit
Brahms Op. 86,2, tvö lög eftir
Clöru og eitt úr Frauenliebe Ro-
berts af einlægni. Hún komst þó
fyrst á fullan skrið eftir hlé með
þróttbjartri túlkun á Widmung
(Op. 25,1) og angurværri en blæ-
brigðaríkri meðferð á Nu hast du
mir den ersten Schmerz getan
(Frauenl. nr. 8; hvoru tveggja eftir
Robert) ásamt Heineljóði Clöru,
Sie liebten sich beide. Píanóleikur
Steinunnar Birnu var líflega
fylginn og í góðu jafnvægi. Það var
sumpart hálfopnu flygilloki að
þakka, þó ekki dygði það alltaf til í
samleik píanós og fiðlu í Þrem róm-
önzum Clöru Op. 22 (t.a.m. heyrð-
ist varla pizzicatoplokk fiðlunnar í
nr. 3).
Hlutlaus ómvist Salarins gerði
raunar lítið fyrir fiðlutóninn, er í
mínum eyrum verkaði stundum
heldur hvass. Á móti vó fjörug
snerpa og spilagleði Auðar Haf-
steinsdóttir í hröðu þáttum Sónötu
Roberts í a Op. 105. Furðuástríðu-
fullu „Scherzói“ Brahms fyrir fiðlu
og píanó (Op. posthum.) hefði á
hinn bóginn ekki veitt af meira
rúbatói í sammótun.
Hjón í tali og tónum
TÓNLIST
Salurinn
Verk eftir Robert & Clöru Schumann og
Brahms. Auður Hafsteinsdóttir fiðla og
Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanó. Upp-
lestur: Arnar Jónsson. Hulda Björk Garð-
arsdóttir sópran: einsöngur og upplestur.
Laugardaginn 18. marz kl. 17.
Kammertónleikar
Ríkarður Ö. Pálsson
LEIKFÉLAGIÐ Hugleikur hefur í
vetur staðið fyrir mánaðarlegum
uppákomum í Þjóðleikhúskjall-
aranum undir yfirskriftinni
„Þetta mánaðarlega“. Í kvöld,
sunnudagskvöld, verður Hug-
leikur á sínum stað en á dag-
skránni að þessu sinni eru sex
einþáttungar, þar af eru fimm
frumfluttir. Flutt verða verkin
„Latexdrottningin“ eftir Ármann
Guðmundsson, „Leki“ eftir Guð-
mund Erlingsson, „Í öruggum
heimi“ eftir Júlíu Hannam, „Frið-
ardúfan“ eftir Unni Guttorms-
dóttur, og loks „Kratavar“ og
„Hannyrðir“ eftir Sigurð H. Páls-
son.
Eins og nöfn einþáttunganna
gefa til kynna eru viðfangsefni
þeirra margvísleg og víða farið í
verkunum. Höfundar og leik-
stjórar eru úr röðum félags-
manna Hugleiks.
Dagskráin hefst kl. 21 en húsið
er opnað kl. 20.30.
Þetta
mánaðarlega
með Hugleik
KOMIÐ er að síðasta
sunnudeginum í dag-
skránni „Söngur og
sund“ sem Menningar-
miðstöðin Gerðuberg
hefur staðið fyrir. Að
þessu sinni verða sung-
in lög eftir hið ástsæla
tónskáld Jón Ásgeirs-
son en hann mun einnig
heiðra samkomuna
með nærveru sinni.
Ingveldur Ýr mun að venju kenna gestum
undirstöðuatriðin í raddbeitingu og söng-
tækni auk þess sem hún mun flytja tvö af
lögum Jóns. Gróa Hreinsdóttir leikur með
á píanó.
Dagskráin hefst stundvíslega kl. 13 og
boðið er upp á heitt te á undan til að liðka
raddböndin. Aðgangseyrir er kr. 500 og
síðan er frítt í Breiðholtslaugina fyrir þá
sem vilja fá sér sundsprett eða slaka á í
heita pottinum eftir sönginn.
Jón Ásgeirsson í Gerðubergi
Jón Ásgeirsson
„MYNDHVÖRF í minningu
Þorsteins“ er yfirskrift
ráðstefnu um myndhvörf
sem haldin er í fyrirlestr-
arsal Þjóðminjasafnsins í
dag, sunnudag. Að ráð-
stefnunni standa Ritið,
tímarit Hugvísindastofn-
unar og þátttakendur í
málstofu íslenskuskorar
um myndhvörf haustið
2004, en Þorsteinn Gylfa-
son kenndi á því námskeiði.
Bergljót S. Kristjánsdóttir er
skipuleggjandi ráðstefnunnar:
„Þorsteinn var einn af fáum Íslend-
ingum sem hafði sérstakan áhuga á
myndhvörfum (metafórum). Við
héldum saman málstofuna haustið
2004 og áhugi hans var slíkur að
þótt hann hafi aðeins átt að kenna í
tveimur af þrettán lotum mætti
hann í hvern einasta tíma og hélt
uppi líflegum umræðum í
tímum, í frímínútum og
jafnvel úti á götu þegar
nemendurnir urðu á vegi
hans,“ gantast Bergljót.
„Í framhaldi málstof-
unnar ákváðum við að
halda ráðstefnu til að
reyna að kveikja áhuga á
fyrirbærinu myndhvörfum.
Okkur langaði að rökræða
ákveðna grunnþætti og fá
bæði nemendur og kennara til að
koma, hvern með sitt framlag til
umræðunnar. Til stóð að halda ráð-
stefnuna á útmánuðum en Þor-
steinn dó í haust og höldum við ráð-
stefnuna þess vegna í minningu
hans, og í anda hugsjóna hans um
samvinnu kennara og nemenda.“
Dagskráin hefst kl. 10 og verða
fimm málstofur haldnar, til kl.
16.30.
Rætt um myndhvörf
Þorsteinn
Gylfason
Í HEIMSÓKN hér á landi um
þessar mundir er enski stúlkna-
kórinn Schola Cantorum of
Calne. Kórinn hefur þegar
ferðast um norðurland og haldið
tónleika þar en í dag, sunnudag,
syngur kórinn í messu í Lang-
holtskirkju kl. 11 og heldur tón-
leika í kirkjunni kl. 16 í með
Gradualekór Langholtskirkju.
Stjórnandi kórsins er Geoffrey
Field en hann er skólastjóri St.
Mary’s tónlistarskólans í Calne.
Á efnisskrá tónleikanna eru verk
eftir Brahms, Handel og Elgar
auk útsetninga á sígildum dæg-
urlögum. Aðgangur að tónleik-
unum er ókeypis.
Enskur stúlknakór í heimsókn
Scola Cantorum of Calne-stúlknakórinn ásamt Geoffrey Field.