Morgunblaðið - 22.04.2006, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 22.04.2006, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 22. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÚTFÖR Magneu Þorkelsdóttur biskupsfrúar var gerð frá Hallgríms- kirkju í gær. Séra Sigurður Pálsson, sóknarprestur í Hallgrímskirkju, jarðsöng. Organisti var Hörður Ás- kelsson og félagar úr Schola cantor- um sungu. Jarðsett var í Fossvogs- kirkjugarði. Líkmenn voru þau Magnea Einarsdóttir, Magnús Þor- kell Bernharðsson, Garðar Árnason, Harpa Árnadóttir, Sigurbjörn Þor- kelsson, Sigurbjörn Einarsson, Guð- jón Davíð Karlsson og Edda Kjart- ansdóttir. Morgunblaðið/Sverrir Útför Magneu Þorkelsdóttur HJARTAVERND hefur samið við þrjár rannsóknarstofur bandaríska heilbrigðisráðuneytisins um rúm- lega 60 milljóna króna styrk til handa Hjartavernd. Styrkinn á að nýta til rannsókna á svokölluðum þöglum hjartadrepum, sykursýki og æðasjúkdómum í augnbotnum. Styrkurinn mun ganga upp í kostnað við rannsóknir næstu átta mánuðina, en rannsóknirnar eru afar dýrar, segir Vilmundur Guðnason, forstöðulæknir rann- sóknastöðvar Hjartaverndar. Hann segir þó mikilvægi þeirra óumdeilanlegt, niðurstöður rann- sóknanna geti skipt fólk með hjartadrep gífurlegu máli. „Allir þeir þættir sem við getum fundið sem geta hjálpað til við að finna fólk sem er með hjartadrep án þess að vita af því geta komið í veg fyrir eða seinkað vandamálum sem fylgja hjartadrepi yfirleitt,“ segir Vilmundur. Nýlegar rannsóknir Hjarta- verndar, sem unnar voru í sam- vinnu við Öldrunarstofnun banda- ríska heilbrigðisráðuneytisins og Hjarta-, lungna- og blóðsjúkdóma- rannsóknastofnun sama ráðuneytis hafa sýnt fram á að þögul hjarta- drep eru umtalsvert algengari í öldruðum en áður hefur verið talið. Því hefur fjöldi einstaklinga fengið kransæðastíflu án þess að hafa nokkra hugmynd um það, en það getur haft afgerandi áhrif á þróun hjartabilunar. Hjartabilun er það heilsufarsvandamál meðal aldraðra sem vex hvað hraðast, og dregur umtalsverðan fjölda til dauða á ári hverju, auk þess að valda miklum óþarfa þjáningum og að vera einn af kostnaðarsamari þáttum í heilbrigðisþjónustunni. Nota segulómun og augnbotnamyndir Í kjölfar fyrri rannsókna hefur Hjartavernd samið við Hjarta-, lungna- og blóðsjúkdómarann- sóknastofnun bandaríska heil- brigðisráðuneytisins og Augnrann- sóknastofnun og Öldrunarstofnun þess um rannsóknir á þátttakend- um í öldrunarrannsókn Hjarta- verndar, þar sem beitt verður seg- ulómun til að rannsaka hjarta- vöðva og sérstökum augnbotna- myndatökum til rannsókna á æðakerfi í augnbotnum. Nýleg tækni í segulómun gerir það mögulegt að greina hjartadrep með meiri nákvæmni en áður, og er greiningaröryggi þessarar að- ferðar með því mesta sem þekkist. Hjartavernd stendur mjög fram- arlega í notkun myndgreiningar í faraldsfræði, og skipar þar sess meðal fremstu rannsóknastofnana í heimi í rannsóknum af þessu tagi. Hjartavernd fær 60 milljóna króna styrk frá bandarískum rannsóknarstofum Finna fólk með „þögult“ hjartadrep Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is KYNINGARÁTAKINU Eitt samfélag fyrir alla var hleypt af stokkunum í Kringlunni í gær, en það er Öryrkja- bandalag Íslands sem stendur fyrir átakinu. Að sögn Hafdísar Gísladóttur, framkvæmdastjóra ÖBÍ, er markmið átaksins að vekja athygli á þeirri að- greiningu sem á sér stað í samfélaginu og benti hún á að það ætti ekki einungis við um líkamlegt aðgengi fatlaðra held- ur einnig um að allir fengju að taka þátt í samfélaginu og fengju aðgang að upp- lýsingum, búsetu, atvinnu og menntun. Hafdís sagði að notast yrði við auglýs- ingar þar sem bent yrði á gamansaman hátt á fáránleikann sem fælist í því að samfélagið gerði ekki ráð fyrir því fjöl- breytta mannlífi sem í því býr og benti jafnframt á að þetta átak væri lýsandi fyrir kraft ungliðahreyfinga innan ÖBÍ, en Nýung, ungliðahreyfing Sjálfs- bjargar, Ungblind, ungliðahreyfing Blindrafélagsins, Nyms, ungliðahreyf- ing MS félagsins og Puttalingar, ung- liðahreyfing heyrnarlausra, taka einnig þátt í verkefninu. Starfsemi þessara fé- laga hefur farið vaxandi að undanförnu og eru mörg hver komin á kaf í Evrópu- verkefni. Hún sagði að almenningur hefði sýnt átakinu góð viðbrögð í Kringlunni í gær, þar sem fólki gafst tækifæri til að koma á framfæri sínum skoðunum ef það væri aðgreint innan samfélagsins. Hægt verður að gera slíkt hið sama í Smáralindinni í dag en átakið stendur yfir til 24. apríl. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Fulltrúar ungliðahreyfinga innan ÖBÍ hleypa átakinu Eitt samfélag fyrir alla af stokkunum í Kringlunni í gær. Berjast gegn aðgreiningu í mannlífinu LEIT lögreglunnar í Reykjavík að manni sem réðst á 15 ára stúlku á Holtaveginum á miðvikudagskvöld og barði hana ítrekað með kylfu hefur engan árangur borið. Hörð- ur Jóhannesson yfirlögregluþjónn segir að talsvert hafi borist af ábendingum frá almenningi eftir að lýsingu á manninum var dreift, en engin ábending hafi leitt til þess að maðurinn fyndist. Hans er áfram leitað. Enn er lýst eftir manninum, sem samkvæmt lýsing- um er dökkhærður með fremur sítt hár, 170–180 cm á hæð og var dökkklæddur. Engar vísbendingar Lögreglu hefur ekki heldur tek- ist að hafa hendur í hári tveggja manna sem stöðvuðu tæplega 19 ára konu á leið hennar til Mosfells- bæjar fyrir tæpum þremur vikum. Annar mannanna rotaði konuna og vaknaði hún þegar hann var að reyna að nauðga henni í aftursæti bílsins á meðan félagi mannsins ók bílnum út fyrir borgina. Lögreglan hefur engar vísbendingar sem leitt gætu til handtöku mannanna tveggja. Maður sem barði stúlku með kylfu ófundinn GÁMAFLUTNINGABÍLL valt á Djúpvegi, um 11 km sunnan við Hólmavík um kl. 14 í gær. Ökumaður slasaðist ekki, en farþegi á bílnum var fluttur á sjúkrahús með höfuð- meiðsli, sem þó voru ekki talin alvar- leg. Bíllinn var að flytja gám með 20 tonnum af rækju þegar slysið varð, og var unnið að því fram eftir degi að tæma gáminn. Að sögn lögreglunnar á Hólmavík var bíllinn á suðurleið, og valt hann þversum á veginum og lokaði honum. Kalla þurfti til krana- bíl til að koma bílnum í burtu, en hann er talinn mikið skemmdur eða ónýtur. Valt með 20 tonn af rækjum ♦♦♦ AFKOMENDUR Magneu Þorkelsdóttur í kvenlegg klæddust við útför hennar í gær þjóðbúningum sem hún hafði saumað handa þeim á sinni tíð, en hún var annáluð hannyrðakona og saumaði m.a. skautbúninga fyrir Alþingishátíðina 1930. Afkomendur Magneu báru einnig sjaldgæfa gerð af prjónahúfum við þjóðbúningana, sem unnar voru af Magneu. Fremstur á myndinni er Sigurbjörn Einarsson biskup, eiginmaður Magneu Þorkelsdóttur. Ljósmynd/P*aldis Skrýddust þjóðbúningum Magneu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.