Morgunblaðið - 22.04.2006, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 22.04.2006, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. APRÍL 2006 23 MINNSTAÐUR Suður-Þingeyjarsýsla | Skáklistin hefur verið í mikilli uppsveiflu í Suður-Þingeyjarsýslu í vet- ur, en töluvert hefur verið gert í því að efla áhuga ungs fólks á því að tefla. Það er skákfélagið Goðinn í Þingeyjarsveit sem stendur fyrir átakinu og hefur formað- urinn, Hermann Aðalsteinsson, ferðast í alla grunnskólana á svæðinu og sagt nemendum til í skák. Þá hefur félagið útvegað taflmenn og borð fyrir þá sem það vilja á hagstæðu verði og hafa margir notfært sér það. Í framhaldi af skákkennslunni hafa verið haldin skólamót í hverjum skóla og munu skákmeistarar allra skólanna seinna keppa um það að komast á Norðurlandsmeistaramótið í skák sem haldið verður í vor. Héraðssamband Þingeyinga hélt héraðsmót fyrir ungt fólk nú í vikunni og varð Gestur Vagn Baldursson héraðsmeistari í flokki 13–16 ára, en Björn Húnbogi Birnuson varð héraðs- meistari í flokki 7–12 ára. Allir þátttakendur fengu viðurkenningarskjöl fyrir þátttökuna og héraðsmeistararnir fengu verðlaunaskjöl. Krakkarnir segja skákina skemmtilega og góða afþreyingu og nú er það svo að oftar en áður er gripið í tafl í frímínútum skólanna. Nemendur yngstu bekkjanna horfa þá gjarnan á og læra með því mannganginn ótrúlega fljótt. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Spennandi Gestur Vagn Baldursson t.v. og Einar Þór Traustason voru jafnir að vinn- ingum þegar héraðsmótinu lauk og urðu því að tefla hraðskákeinvígi sem Gestur Vagn vann 2-0. Hér sjást þeir í lokaskákinni. Skákvakning í Þingeyjarsýslu Eftir Atla Vigfússon LANDIÐ Viðurkenningar kúabænda | Landssamband kúabænda veitti þremur mönnum viðurkenningu í tengslum við tuttugu ára afmæl- ishátíð sambandsins sem nýlega var haldin í Reykjavík. Það voru Jón Viðar Jónmundsson, Snorri Sigurðs- son og Kristján Gunnarsson. Kemur þetta fram á vef LK. Jón Viðar Jónmundsson er naut- griparæktarráðunautur Bænda- samtaka Íslands. Fram kemur í rök- stuðningi fyrir viðurkenningu LK að sambandið vilji á tuttugu ára afmæli sínu þakka Jóni Viðari frábært starf í þágu íslenskrar nautgriparæktar. Snorri Sigurðsson var fram- kvæmdastjóri Landssambands kúa- bænda til síðustu áramóta. Hann hefur auk þess verið fararstjóri í bændaferðum, meðal annars á land- búnaðarsýningar, og er far- arstjórnin sérstaklega tilgreind í rökstuðningi stjórnar LK. Kristján Gunnarsson hóf störf hjá Norðurmjólk, þá Mjólkursamlagi KEA, fyrir 25 árum. Með viðurkenn- ingu sinni vilja kúabændur þakka Kristjáni gott og faglegt starf. Suðurnes | Sorpeyðingarstöð Suðurnesja, Blái herinn og sveit- arfélögin efna til hreinsunarátaks á Suðurnesjum í næstu viku í til- efni af því að dagur umhverfisins er 25. apríl. Athyglinni er sér- staklega beint að rafgeymum að þessu sinni. Íbúar og stjórnendur fyrirtækja eru hvattir til að losa sig við gamla og hættulega geyma sem hætt er að nota og koma þeim í réttan farveg til eyðingar. Liðsmenn Bláa hersins munu sækja geyma sem fólk lætur vita af og koma þeim til Kölku til eyð- ingar. Fram kemur í tilkynningu frá Sorpeyðingarstöðinni að vitað er um marga gamla og hættulega rafgeyma í umferð en sýran sem er á þeim er hættuleg umhverf- inu, dýrum og mönnum. Þeir ættu því ekki að liggja á glám- bekk, sérstaklega þar sem börn geta verið að leik. Sorpeyðingarstöðin hvetur einnig almenning og fyrirtæki að skila af sér spilliefnum sem til falla á heimilum og fyrirtækjum til gámastöðvanna eða móttöku- stöðvarinnar í Helguvík. Hirða og farga gömlum rafgeymum Hornafjörður | Sveitarfélagið Hornafjörður á fimmtán og hálft ærgildi og fram kom á bæjarstjórn- arfundi nýlega að þau væru til sölu. Kemur þetta fram á vef bæjarins, hornafjordur.is. Ærgildin mun sveitarfélagið hafa eignast með jörðinni Hafnarnesi fyrir allmörgum árum. Fram kem- ur á vefnum að ærgildin séu aðeins til á pappírunum, ekki standi lif- andi fé á bak við þau. Áætlað er að verðmæti framleiðsluréttar eins ærgildis sé 20 til 30 þúsund kr. Tek- ið er fram að helst af öllu vilji bæj- arstjórn selja þennan rétt innan héraðsins. Sveitarfélagið auglýsir 15 ærgildi til sölu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.