Morgunblaðið - 22.04.2006, Page 6

Morgunblaðið - 22.04.2006, Page 6
6 LAUGARDAGUR 22. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR UMHVERFISSTOFNUN fagnar því að sveitarstjórn Mýrdalshrepps skýri afstöðu sína til tímabundinnar lokunar Dyrhólaeyjar yfir varptíma fugls í eynni, og reiknar forstjóri stofnunarinnar með því að fundað verði með sveitarstjórninni til að komast að viðunandi niðurstöðu þeg- ar í næstu viku. Sveitarstjórnin sendi stofnuninni bréf í fyrradag, þar sem fram kom að lagst væri gegn því að Dyrhólaey yrði lokað um varptímann í ár, eða á tíma- bilinu 1. maí til 25. júní. Telur sveit- arstjórnin svo víðtæka lokun óþarfa og hagsmuni ferðaþjónustu fyrir borð borna. Davíð Egilson, forstjóri Umhverf- isstofnunar, segir að hingað til hafi Mýrdalshreppur, sem er stærsti landeigandinn í Dyrhólaey, ekki lagst gegn lokun. Raunar hafi sveitar- stjórnin alls ekki sett fram sín sjón- armið um það hvort Dyrhólaey eigi að vera opin eða lokuð um varptím- ann fyrr en nú. Því sé það fagnaðar- efni að þeir setji sína afstöðu fram. Tekjur af fuglavarpi og ferðamönnum Undanfarna áratugi hafa tvenns konar sjónarmið togast á varðandi nýtingu Dyrhólaeyjar, annars vegar þeirra sem nýta fuglavarp í eynni og hins vegar þeirra sem vilja hafa tekjur af ferðamönnum sem þangað sækja, segir Davíð. Umhverfisstofn- un hafi það hlutverk að standa að verndun dýralífs og náttúru, og innan þess ramma þurfi að komast að sam- komulagi við hagsmunaaðila. Umhverfisstofnun hefur nú gert skriflegt samkomulag við nytjarétt- hafa um að í stað þess að miða lokun eyjarinnar við ákveðna dagsetningu verði hér eftir stuðst við mat óháðs sérfræðings á því hvenær varp fugla sé nægilega langt komið til að hægt sé að opna fyrir umferð út í Dyrhóla- ey. Davíð segir að nytjarétthafar hafi sett fram sterk rök um að þegar um- ferð sé hleypt í eyna, sem þrátt fyrir nafnið er landföst, valdi það talsverðu raski á æðarvarpinu. „Það er ekki ólíklegt að þetta hafi víðtæk áhrif, og ég held að það almenna sjónarmið að leyfa óhefta umferð á svona stöðum muni klárlega hafa áhrif á fuglalífið. Hins vegar standa deilur um það hvort þau áhrif séu varanleg eða hvort fuglinn flytji sig bara til.“ Sérfræðingar telja að ferðamenn raski ekki mikið lífríki á hærri hluta eyjarinnar. Sá hluti er kallaður Háey, en þar eru klettar þar sem sílamáfur og lundi verpa. En til að komast í hærri hluta eyjarinnar þarf að fara yfir lægri hlutann, Lágey, í gegnum æðarvarp sem er viðkvæmt fyrir um- ferð. Davíð segir þær hugmyndir hafa komið fram að leysa málið með því að hafa einhvers konar gæslu sem tryggi að ferðamenn fari beina leið upp á Háey. Þó sé ljóst að miðað við núverandi fjárveitingar hafi Um- hverfisstofnun engin tök á að greiða fyrir slíkt. Skaði vegna óhefts aðgangs Dyrhólaey var lokuð yfir varptím- ann allt til ársins 1997. Það ár var hún höfð opin, og segir Davíð að nytja- rétthafar á æðarvarpi í eynni hafi tal- ið sig hafa orðið fyrir verulegum skaða vegna þessa. Á árunum 1998– 2001 hafi eynni því aftur verið lokað frá 1. maí til 25. júní. Hann segir að tíminn sem lokað var hafi svo verið styttur um ein- hverja daga, árin 2002–2003 hafi Dyr- hólaey verið opnuð 10. júní, og árið 2004 14. júní. Í fyrra hafi svo ástand lífríkisins almennt verið metið svo slæmt að lokað hafi verið til 25. júní. Umhverfisstofnun fundar um lokun Dyrhólaeyjar með sveitarstjórn Mýrdalshrepps Hagsmunir æðarbænda og ferðamennsku togast á Vegurinn út í Dyrhólaey liggur þvert í gegnum æðarvarp á leiðinni upp á hæsta hluta eynnar. Kortið var unnið vegna aðalskipulags Dyrhólaeyjar. Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Sveitarstjórn Mýrdalshrepps leggst gegn lokun Dyrhólaeyjar um varptímann. Málaferlum gegn Hann- esi Hólmsteini frestað MÁLAFERLUM í máli Jóns Ólafssonar gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni var frestað fram til 2. júní í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Ástæða frestunarinnar er að lögmenn Hannesar í Bretlandi eru að vinna að því að fá málið tekið upp að nýju þar í landi. Breskir dómstólar dæmdu Hannes fyrir meiðyrði gegn Jóni sem birtust á vef Hann- esar. Hannes tók ekki til varna í málinu ytra, en var dæmdur til að greiða Jóni um 11 milljónir króna í skaðabætur. Heimir Örn Herbertsson, lögmaður Hannesar, segir í samtali við Morgunblaðið að málið hafi frestast ítrekað í Bretlandi. Taka hafi átt málið fyrir þar í byrjun mars, en þá hafi lögmenn Hannesar óskað eftir fresti vegna gagnaöflunar. Síðar hafi lög- menn Jóns einnig beðið um slíkan frest. Líklegt sé að lögmenn Jóns leggi fram sín gögn eftir helgi, og þá verði reynt að finna tíma til að taka málið fyrir hjá dómstólum. MIKIL gleði ríkti á Sólheimum í Grímsnesi á sumardaginn fyrsta að lokinni frumsýningu Sólheimaleik- hússins á leikritinu Vatnsberunum eftir Herdísi Egilsdóttur. Fjölmenni var á sýningunni og var mál manna að vel hefði tekist til. Leikritið fjallar um þá sem eru ,,öðruvísi“ og það viðmót sem þeir verða fyrir af þeim sökum. Tónlist er ríkuleg í verkinu og um undirleik sér tónlistarfólk á Sól- heimum. Næstu sýningar verða 22. apríl kl 17 og 23. apríl kl. 15. Síðustu sýn- ingar eru 29. apríl kl. 17 og 30. apr- íl kl. 15. Frumsýn- ingargleði á Sólheimum Ferðamenn hrekja æðarfuglinn úr hreiðrum BÆNDUR sem hafa nytjarétt á æðarvarpi í Dyrhólaey segja oft búið að sýna fram á að það að opna eyna fyrir ferðamönn- um meðan á varpi stendur hafi gríðarlega slæm áhrif á fugla- líf í eynni. Æðarfuglinn yf- irgefi hreiður sín í stórum stíl, enda liggi vegurinn upp á hæsta hluta eyjarinnar í gegn- um mitt æðarvarpið. „Dyrhólaey er friðlýst svæði, sem þýðir annars vegar að þar má hvorki skaða fugla- líf né valda skaða á náttúrufari á svæðinu, og hins vegar að hefðbundnar nytjar bænda haldist, þar á meðal af æð- arrækt,“ segir Þorsteinn Gunnarsson, bóndi á Vatns- endahólum, og einn nytjarrétt- hafa. Hann segir æðarvarpið hafa verið byggt markvisst upp undanfarin ár, og er ósátt- ur við að sveitarstjórn Mýr- dalshrepps hafi ákveðið að mótmæla þeirri ákvörðun Um- hverfisstofnunar að loka eynni á varptímanum í ár. Þorsteinn segir verndun æð- arvarpsins hafa mikil áhrif á annað fuglalíf á svæðinu, sem og gróðurinn í Dyrhólaey, ekki sé hægt að horfa framhjá því. „En Dyrhólaey er líka áfanga- staður ferðamanna, ferða- menn koma þangað til að njóta óspilltrar náttúru, fjölskrúð- ugs fuglalífs og gróðurs, en ekki til að sjá auðn eða fuglalíf sem búið er að valda á óbæt- anlegu tjóni.“ Allir sem þekkja til sjálf- bærrar ferðaþjónustu vita að vernda þarf náttúruna sem ferðamenn skoða til að vernda langtímahagsmuni ferðaþjón- ustunnar, segir Þorsteinn. Hann segir að undanfarin ár hafi Umhverfisstofnun tekið tillit til sjónarmiða æðarbænda með því að loka eynni á meðan varp stendur yfir, en jafnframt hafi óháðir sérfræðingar fylgst með gangi æðarvarpsins og tekið ákvörðun um að opna Dyrhólaey fyrr en ráð var fyr- ir gert sé æðarvarp langt kom- ið. Þorsteinn bendir á að Dyr- hólaey sé ekki stór, og bestu varplönd æðarfugls á eynni séu einmitt við akveginn út í eyjuna, sem er raunar land- föst. Vegurinn liggi meðfram tjörn, og í kringum tjörnina sé besta varpstæðið fyrir fuglinn. Það sé því ekki möguleiki að opna Dyrhólaey nema með því að fara þar í gegn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.