Morgunblaðið - 22.04.2006, Page 60

Morgunblaðið - 22.04.2006, Page 60
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn ÉG ER BÚINN AÐ HENGJA UPP SOKKANA OG SKILJA EFTIR MJÓLK OG SMÁKÖKUR HANDA JÓLASVEININUM HANN HLÝTUR AÐ HAFA KOMIÐ SNEMMA Í ÁR (ROP) HVAR ER MJÓLKIN OG KÖKURNAR VÁ, ÞÚ VEIST SVO MIKIÐ UM STJÖRNUR JÁ, ÉG HEF VERIÐ DUGLEGA AÐ LÆRA MÉR GENGUR ALLTAF BEST Í LANDAFRÆÐI SUMAR STJÖRNUR ERU STÓRAR OG AÐRAR LITLAR NEI, EKKI AFTUR! KALVIN ER EKKI EINS OG HANN Á AÐ SÉR AÐ VERA. HANN SKORTIR ÚTLIMI OG ER ALLUR SLÍMUGAR ÞAR SEM KALVIN ER ÁN HANDA OG FÓTA ÞÁ VERÐUR HANN AÐ SKRÍÐA FRAM ÚR RÚMINU HVERNIG STEN- DUR Á ÞVÍ AÐ ÞÚ ERT SVONA HÆGFARA Á MORGNANA? VIÐ MEGUM EKKI GEFAST UPP!!! HVERNIG FÖRUM VIÐ AÐ ÞVÍ? VIÐ ERUM HLEKKJAÐIR Á HÖNDUM OG FÓTUM NÆST ÞEGAR VÖRÐURINN KEMUR, ÞÁ SKULUM VIÐ ULLA Á HANN VIÐ VERÐUM AÐ HALDA ÁFRAM AÐ BERJAST! DÝRA LÆKNIRINN SAGÐI MÉR AÐ GRÍMUR VÆRI TOGNAÐUR Í SKOTTINU EFTIR AÐ HAFA VAGGAÐ ÞVÍ OF MIKIÐ ÁI! HANN MÁ EKKI VAGGA SKOTTINU Í MÁNUÐ HVERNIG STENDUR Á ÞVÍ AÐ ÞÚ TOGNAÐIR Í SKOTTINU? ÆTLI ÞAÐ SÉ EKKI LASSÍ MYNDA MARAÞONINU AÐ KENNA ÁI! VARLEGA! GLEÐILEGA HÁTÍÐ, ELSKAN MÍN! „PUFFBUDDY“, EINMITT ÞAÐ SEM MIG LANGAÐI Í TAKK MAMMA! ÞAKKAÐU PABBA ÞÍNUM LÍKA. ÞAÐ VAR ERFITT AÐ FINNA „PUFFBUDDY“ EN PABBI ÞINN GAFST EKKI UP HVAÐ ERTU AÐ GLÁPA GLERAUGNA- GLÁMUR? KANNSKI VORU ÞETTA MISTÖK LÉSTU FJÖLMIÐLA VITA AF ÞESSUM FUNDI? AUÐVITAÐ, ÞÚ VERÐUR AÐ VENJAST SVIÐSLJÓSINU KANNTU EKKI BARA ÁGÆTLEGA VIÐ ÞETTA? JÚ ÞETTA ER ÁNÆGJULEGT FRÚ PARKER, ERTU TIL Í AÐ KLAPPA KETTINUM Dagbók Í dag er laugardagur 22. apríl, 112. dagur ársins 2006 Víkverji býr í snotrufjölbýlishúsi í Hafnarfirði og á skrautlega nágranna. Það væri synd að segja að kærleikurinn svífi yfir vötnum í hús- inu. Allt logar í ill- deilum og verður Vík- verji æ fráhverfari hugmyndum um þétt- ingu byggðar: Í landi þar sem fólk kann svona illa að búa í ná- býli hvað við annað er ekki skrítið að það sé margra manna heit- asta ósk að eiga sitt prívat-einbýlishús með sem stærstri lóð á milli sín og næsta nágranna. Víkverja þætti ágætt að hafa eins og hektara til að skilja sig frá vitleys- unni sem nágrannar hans taka stundum upp á. Einn í húsinu á hund, og Víkverji á ketti. Einn er duglegur að halda uppi fjörinu fram á laugardags- morgun og annar á það til að skilja eftir sig sígarettustubba. Svo eru hinir sem halda sig syndlausa en gleyma að reiðin er synd og eru úr hófi uppstökkir yfir vanköntum ná- granna sinna, og þreytast ekki á að láta hunda, ketti, sígarettustubba og partíhald fara í taugarnar á sér. Ef einhver setur grill inn í hjóla- geymslu fer þetta fólk á límingunum. Ef ein- hver í húsinu geymir annað en bílinn sinn í bílageymslunni rignir eldi og brennisteini. Ef einhver hendir sínu rusli í þeirra rusla- tunnur jaðrar það við helgispjöll. Um daginn sauð síð- an óvænt upp úr þegar nokkrir nágrannar mættust fyrir hend- ingu á húsveröndinni og jusu í hálftíma skömmunum hvor yfir annan. – Og Víkverji lét sig dreyma um einbýlishús. Víkverji sér helst tvær lausnir til að laga ástandið í húsinu: a) að kalla til andasæringamann eða b) halda grillveislu. Kannski það væri brillj- ant diplómatík að kalla nágrannana saman yfir grillinu og sjá hvort and- inn mildist ekki þegar magar eru mettir af kótlettum og bjór og ná- grannarnir geti byrjað að fagna fjöl- breytni hver annars. Þá sjá þeir kannski að það er ekki hægt að forðast ónæði þegar búið er nálægt öðrum, en ósætti er nokkuð sem má forðast, ef menn vilja. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is         Mosfellsbær | Myndlistarskólinn í Mosfellsbæ opnar í dag sýningu á verkum fullorðinna nemenda í húsnæði skólans í Álafosskvosinni – nánar tiltekið við Álafossveg 23. Um er að ræða verk nemenda sem hafa lært olíumálun undir handleiðslu myndlistarmannanna Soffíu Sæmundsdóttur og Þuríðar Sigurð- ardóttur. Er Morgunblaðið bar að garði í gær voru þær, ásamt Ásdísi Sig- urþórsdóttur, í óðaönn að koma sýningunni upp, en opið verður fyrir gesti og gangandi í dag og á morgun frá tvö til sex. Morgunblaið/RAX Uppskeruhátíð myndlistarnema MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins : Ég segi yður: Þannig verður fögnuður með englum Guðs yfir einum syndara, sem gjörir iðrun. (Lúk. 15,10).

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.