Morgunblaðið - 02.05.2006, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2006 27
MINNINGAR
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
HELGA JÓNSDÓTTIR,
Hrafnistu,
áður til heimilis í
Grundargerði 2,
verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju miðviku-
daginn 3. maí kl. 13.00.
Sigurður Jón Einarsson, Árný Runólfsdóttir,
Anna Einarsdóttir, Guðmundur Jakobsson,
Einar Einarsson, Margrét Lillian Skúladóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ELÍN GUÐMUNDSDÓTTIR,
áður til heimilis
í Mávahlíð 1,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík
miðvikudaginn 3. maí kl. 15.00.
Erlingur Kristjánsson, Anna Sigurðardóttir,
Sigrún Kristjánsdóttir,
Kristján G. Kristjánsson, Guðrún Kristinsdóttir,
barnabörn og langömmubörn.
HAUKUR EGGERTSSON
útvarpsvirkjameistari
og fv. forstjóri Plastprents hf.,
Barmahlíð 54,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju miðvikudag-
inn 3. maí kl. 13.00.
Lára Böðvarsdóttir,
Eggert Hauksson, Sigríður Teitsdóttir,
Ágústa Hauksdóttir, Jónas Ingimundarson,
Ása Guðmundsdóttir
og fjölskyldur.
Okkar elskulega móðir, tengdamóðir og amma,
SIGRÍÐUR ARNFINNSDÓTTIR,
Hraunbæ 170,
Reykjavík,
sem lést á heimili sínu þriðjudaginn 18. apríl,
verður jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju
miðvikudaginn 3. maí kl. 13.00.
Grétar Tryggvason, Elfa Jónsdóttir,
Stefán Tryggvason, Inga Margrét Árnadóttir,
Ragnheiður Tryggvadóttir, Jón J. Hjartarson,
Unnur Ósk Grétarsdóttir, Jón Tómas Grétarsson,
Tryggvi Sturla Stefánsson, Árni Steinar Stefánsson,
Þórir Steinn Stefánsson, Arnaldur Starri Stefánsson,
Hjörtur Jóhann Jónsson, Sigríður Láretta Jónsdóttir.
Elskuleg konan mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
SIGURBJÖRG PETRA HÓLMGRÍMSDÓTTIR,
Sifa,
Flyðrugranda 16,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn
4. maí kl. 15.00.
Sigurður Guðmundsson,
Hólmgrímur Rósenbergsson, Sólveig Þóra Jónsdóttir,
Indriði Rósenbergsson, Guðlaug Ósk Gunnarsdóttir,
Magni Þór Rósenbergsson, Sigurborg Magnúsdóttir,
Þuríður Lilja Rósenbergsdóttir, Björn Valur Gíslason,
Finnur Guðni Rósenbergsson, Anna Kristín Jörundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
gagni. Og nú þarf að fylgja henni
sjálfri til grafar. Það geri ég með
söknuði en þó fyrst og fremst þökk-
um fyrir góð kynni og gagnleg og
hugheilum kveðjum til fólksins
hennar frá mér og mínum. Gengin
er kona sem afrekaði margt og
gleymist seint.
Garðar.
Við vitum að það er staðreynd að
eitt sinn skal hver deyja en það er
samt alltaf erfitt og sárt að kveðja í
hinsta sinn þá sem manni þykir
vænt um og hafa fylgt manni alla
tíð. Þannig er það með Stínu
frænku sem nú er látin á 84. ald-
ursári.
Hún var stóra systir hans pabba
og á milli þeirra var alla tíð mjög
kært.
Það bjó „stórfjölskylda“ á Fálka-
götu 28. Það voru Anna og Pálmar
ásamt þremur sonum sínum, Helga,
Gunnari og Óskari og fjölskyldum
þeirra.Við fjölskyldan í litla bak-
húsinu við Fálkagötu 28b vorum
svo lánsöm að vera hluti af þessu
litla fjölskyldusamfélagi.
Við bjuggum þar fyrstu ár æv-
innar við aðstæður sem þættu frek-
ar frumstæðar í dag t.d. kolakynd-
ing og ekkert bað svo eitthvað sé
nefnt. Þá var nú gott að eiga
frænku í næsta húsi þar sem við
vorum alltaf velkomin og fengum
að fara í bað hvenær sem okkur
hentaði. Börnin á Fálkagötu 28
voru mörg í þá daga, heill krakka-
skari sem fyllti annan tuginn. Það
var eðlilega mikill samgangur á
milli þessara fjölskyldna og allt
öðruvísi bragur en gengur og gerist
í fjölbýlishúsum í dag enda ekki
venja að stórfjölskylda byggi sér
fjölbýlishús saman. Mömmurnar
voru heimavinnandi því það var
fullt starf að hugsa um heimili og
börn. Allt öðruvísi líf en börn í dag
eiga að venjast.
Minningarnar eru margar og
skemmtilegar. Fallegt og myndar-
legt heimili þeirra Stínu og Óskars
sem voru mjög samhent í heim-
ilishaldi og barnauppeldi og skiluðu
svo sannarlega vel því hlutverki
sínu að koma níu börnum til manns.
Sláturgerðin í vaskahúsinu á
haustin þegar allar húsmæðurnar
Stína, Sigga, Soffa, mamma og
Anna ættmóðirin tóku slátur saman
og við krakkarnir fengum að sauma
vambir og horfðum andaktug á
Soffu hræra í blóðinu upp að öxlum.
Og margt margt fleira.
Stína og Óskar voru ein af þeim
fyrstu í götunni að fá sér sjónvarp
og var það í tíð Kanasjónvarpsins.
Það var oft og iðulega margt um
manninn fyrir framan sjónvarpið
hjá Stínu frænku og þá sérstaklega
þegar „Rawhide“ og „Bonanza“ var
sýnt. Þá var stofan hjá Stínu pakk-
full af fólki, bæði fullorðnum og
börnum og setið í öllum krókum og
kimum og líka á gólfinu.
Við vorum alltaf velkomin til
Stínu frænku, hvort sem það var að
leika við Ásdísi, Óla, Imbu og Dóru
eða þá bara til þess að horfa á
barnaefnið í sjónvarpinu eld-
snemma á laugardagsmorgnum.
Svo gerist það eins og gengur
þegar fólk ekki býr á sömu þúfunni
að samverustundum fækkar. Fólk
eldist, börn vaxa úr grasi o.s.frv.
En taugin var sterk milli þeirra
systkinanna pabba og Stínu. Pabbi
og mamma héldu alla tíð miklu
sambandi við Stínu og börnin og
nutum við systkinin góðs af því
líka.
Það sem stendur upp úr þegar
við minnumst Stínu frænku er ein-
stök hlýja og velvild hennar í okkar
garð. Þótt Stína væri skapstór kona
og lægi ekkert á skoðunum sínum
þegar það átti við var hún okkur
ávallt mjög góð og reyndist okkur
vel í einu og öllu.
Nú hefur hún lokið sínu hlutverki
í þessu lífi með miklum sóma. Hún
var kærleiksrík stóra systir, móðir,
amma, langamma og frænka. Við
þökkum henni samfylgdina og vel-
vildina.
Ef það er eitthvað hinum megin,
bíður hennar Stínu glæsileg mót-
tökunefnd og víst er að um mikla
fagnaðarfundi verður að ræða.
Ólöf, Loftur og Ingibjörg.
✝ Guðlaugur Guð-mundsson fædd-
ist í Reykjavík 6.
janúar 1920. Hann
var einkasonur
hjónanna Guðrúnar
Kristínar Bjarna-
dóttur, f. 20. sept-
ember 1893, d. 19.
október 1931, og
Guðmundar Guð-
mundssonar, f. 24.
apríl 1882, d. 18.
ágúst 1952. Guðrún
var ættuð úr Dýra-
firði en Guðmundur
úr Holtum í Rangárvallasýslu.
Guðlaugur bjó alla tíð í Reykja-
vík, lengst af á Baldursgötunni.
Hann vann við verslunarstörf hjá
Kjötbúð Tómasar á horni Lauga-
vegar og Skólavörðustígs og hjá
Silla og Valda í Aðalstræti. Einn-
ig vann Guðlaugur við iðnað hjá
Halldóri Jónssyni-Lystadún og
hjá Prentsmiðjunni Leiftri.
Á yngri árum stundaði Guð-
laugur fimleika hjá
Glímufélaginu Ár-
manni.
Frá andláti móð-
ur sinnar hélt hann
heimili með föður
sínum og einnig síð-
ar með Soffíu Hall-
gerði Ólafsdóttur
ættaðri frá Fells-
strönd, f. 28. nóv-
ember 1884, d. 27.
apríl 1979. Einka-
dóttir hennar var
María Guðbjörg Jó-
hannesdóttir, f. 21.
janúar 1920, d. 4. september
2000. Guðlaugur var ókvæntur
og barnlaus en sterk fjölskyldu-
og vinabönd mynduðust milli
hans og afkomenda Soffíu Hall-
gerðar og fjölskyldna þeirra.
Héldust þessi bönd allt til æviloka
hans.
Útför Guðlaugs verður gerð
frá Kirkju Óháða safnaðarins í
dag og hefst athöfnin klukkan 15.
Í dag kveðjum við kæran frænda
og vin, Lauga. Laugi var uppeldis-
bróðir föðurömmu minnar, en ég
þekkti hann bara sem Lauga
frænda. Það var skrýtinn draumur
sem mig dreymdi tveimur dögum
fyrir andlát hans. Þegar við fengum
svo tilkynningu um andlátið þá fékk
ég staðfestingu á þeim skilaboðum
sem þú sendir mér, en ég ætla ekki
að tíunda þau hér. En ég veit að
pabbi hefur tekið þér opnum örmum,
þar sem hann stóð álengdar í
draumnum og fylgdist með. Laugi
reyndist fjölskyldu minni ákaflega
vel, hann hélt tryggðaböndum við
stórfjölskylduna. Aldrei sá maður
Lauga skipta skapi, hann var alltaf
mjög rólegur og með góða nærveru.
Þau voru ófá skiptin sem hann gekk
frá Baldursgötunni þar sem hann bjó
lengst af og alla leið inn í Gnoðarvog
til ömmu, þá kominn á áttræðisaldur.
Hvar sem Laugi kom og börn voru
nálægt þá soguðust þau að honum og
iðulega var fang hans fullt af börn-
um, þetta lýsir Lauga í hnotskurn.
Þegar hann svo fékk okkur tvær
frænkurnar til að kaupa jólagjafirn-
ar handa frændsystkinum okkar
þótti það nú ekkert smá að fá þetta
hlutverk. Við mættum galvaskar á
Baldursgötuna, þar sem Laugi tók á
móti okkur eins og hans var von og
vísa, og við fórum svo í bæinn og
kláruðum verkið. Síðan var haldið til
baka og hjálpuðumst við að við að
pakka inn gjöfunum.
Svo eru ótaldar allar ferðirnar
með stórfjölskyldunni, þá aðallega
inn í Þórsmörk. Þar lét Laugi sig
ekki muna um að fara í gönguferðir
kominn á áttræðisaldur, þó oft væri
ekki auðvelt yfirferðar. Einnig lifir í
minningunni þegar Laugi varð sjö-
tugur, þar sem hann átti afmæli á
þrettándanum. Þá voru allir mættir
fyrir utan húsið á laugardagsmorgni
kl. 8 með freyðivín til að skála og
stjörnuljós. Við komum þér svo gjör-
samlega á óvart, þar sem þú komst
til dyra nývaknaður og tókst á móti
afmæliskveðjum frá okkur. Þetta
gladdi þig og okkur óendanlega. Það
er endalaust hægt að skrifa og rifja
upp góðar minningar en ég læt hér
staðar numið og geymi minningarn-
ar með sjálfri mér og fjölskyldu
minni.
Elsku Laugi, ég, Valur, Guðmar,
Guðmundur Sævar og Haukur Andri
kveðjum þig með bæninni hennar
ömmu og þökkum þér samfylgdina í
gegnum tíðina.
Vertu guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn
svo allri synd ég hafni.
(Hallgr. Pét.)
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Megi guð varðveita þig og okkur
sem eftir sitjum og syrgjum góðan
vin og frænda.
Þín
María og fjölskylda.
Margar góðar minningar á ég um
Lauga frænda, bara góðar minning-
ar. Frá því ég man eftir mér hefur
hann verið nálægur. Spenningurinn
að hitta hann í fjölskylduboðum þar
sem við frændsystkinin fengum alla
athygli hans og alltaf lumaði hann á
einhverju góðgæti í vasanum. Í boð-
um hjá ömmu var hann alltaf til í að
spila og spjalla. Alltaf hógvær. Hann
átti óþrjótandi spennandi sögur um
dýr og náttúru. Ógleymanlegar voru
ferðirnar í Þórsmörk og lágum við
frændsystkinin andvaka yfir hrotum
Lauga en svo hló hann með okkur og
gantaðist þegar við skemmtum okk-
ur yfir hrotunum næsta dag. Hann
tók þátt í öllu með okkur í leik og
söng. Þess vegna var Laugi vinur
okkar frá fyrsta degi.
Þakka þér, Laugi minn, fyrir sam-
veruna, hlýju faðmlögin og plássið á
handleggnum þínum.
Kolbrún B. Snorradóttir.
GUÐLAUGUR
GUÐMUNDSSON
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgun-
blaðið í fliparöndinni – þá birtist
valkosturinn „Senda inn minning-
ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs-
ingum).
Minningar-
greinar