Morgunblaðið - 05.05.2006, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2006 15
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Ná›u flér í n‡ja Kjörvara litakorti›
Trygg›u vi›num bestu fáanlegu vörn.
Á Íslandi er allra ve›ra von.
Útsölusta›ir Málningar: Byko Kópavogi • Byko Hringbraut • Litaver Grensásvegi • Byko Hafnarfir›i • Málningarbú›in Akranesi
• Byko Akranesi • Axel fiórarinsson, málarameistari, Borgarnesi • Verslunin Hamrar, Grundarfir›i Litabú›in Ólafsvík
• Núpur byggingavöruverslun Ísafir›i • Vilhelm Gu›bjartsson, málarameistari, Hvammstanga • Verslunin Eyri, Sau›árkróki
• Byko Akureyri • Verslunin Valberg, Ólafsfir›i • Byko Rey›arfir›i • Verslunin Vík, Neskaupsta› • Byko Selfossi
• Mi›stö›in Vestmannaeyjum • Byko Keflavík • Rúnar Sig. Sigurjónsson, málarameistari, Grindavík
Allra veðra von
Viðarvörn er ekki það sama og viðarvörn. Kjörvari er
sérstaklega þróaður fyrir íslenska veðráttu þar sem
mikilvægt er að gæðin séu í lagi.
Notaðu viðarvörn sem þolir íslenskt veðurfar
● SEÐLABANKI Evrópu ákvað á fundi
sínum í gær að halda stýrivöxtum
bankans óbreyttum, 2,5%. Þetta er
annar mánuðurinn í röð sem vextirnir
eru ákveðnir 2,5% hjá Seðlabanka
Evrópu, en þeir voru lækkaðir um
0,25 prósentustig í marsmánuði síð-
astliðnum.
Óbreyttir stýrivextir
á evrusvæði
● KREDITKORTAVELTA heimila var
20,6% meiri á fyrsta ársfjórðungi
2006 en á sama tímabili í fyrra, að
því er kemur fram í Hagtíðindum
Hagstofu Íslands. Aukning síðustu
tólf mánuði er 15,5% borið saman
við tólf mánuðina á undan.
Debetkortavelta jókst um 14,5%
frá janúar til mars 2006, en síð-
ustu tólf mánuði nemur aukningin
18,9%. Samtals jókst innlend
greiðslukortavelta heimila síðustu
tólf mánuði um 17,3%.
Kreditkortavelta Íslendinga fyrir
utan landsteinana jókst um 35,2%
á fyrsta ársfjórðungi 2006 frá sama
tímabili árið áður. Erlend greiðslu-
kortavelta hér á landi jókst um
6,4% á fyrsta ársfjórðungi 2006
miðað við sama fjórðung á síðasta
ári.
Samtals voru 7.143 bílar ný-
skráðir á fyrsta ársfjórðungi 2006,
sem er 37,4% aukning frá sama
tímabili í fyrra. Tólf mánaða aukning
nýskráningar nemur 50,9%.
Velta kreditkorta
eykst um 20,6%
● SAMTALS komu 133 þúsund far-
þegar til landsins um Keflavíkur-
flugvöll á fyrsta ársfjórðungi 2006.
Miðað við sama tímabil á síðasta ári
er aukningin 15% en þá voru farþeg-
arnir 122 þúsund.
Síðastliðna 12 mánuði komu 767
þúsund farþegar til landsins sem er
aukning upp á tæp 8% miðað við tólf
mánuðina á undan.
Farþegum um
Keflavíkurflugvöll
fjölgar um 15%
● VÖRUSKIPTAJÖFNUÐUR við útlönd
var óhagstæður um 9,7 milljarða
króna í apríl, samkvæmt bráða-
birgðatölum Hagstofu Íslands. Út-
flutningur í mánuðinum var 17,7
milljarðar króna en innflutningur
27,4 milljarðar.
Vöruskiptahalli
9,7 milljarðar í apríl
AUKINN hagnaður íslensku bank-
anna á fyrsta fjórðungi þessa árs
hefur dregið úr ótta um að miklar
sveiflur í íslensku efnahagslífi það
sem af eru þessu ári hafi haft nei-
kvæð áhrif á bankana. Þessu er
haldið fram í frétt í breska við-
skiptablaðinu Financial Times.
Í fréttinni er haft eftir Tiaga
Parente, sérfræðingi hjá franska
bankanum BNP Paribas, að
niðurstöðurnar úr árshluta-
uppgjörum íslensku bankanna,
sem birtar hafa verið að und-
anförnu, séu góðar, og að bank-
arnir séu að gera það sem þeir
þurfi að gera við núverandi að-
stæður. Parente segir að íslensku
bankarnir; Glitnir, Kaupþing
banki, Landsbankinn og Straum-
ur-Burðarás Fjárfestingarbanki,
hafi sýnt að þeir geti skilað góðri
afkomu við þær sveiflukenndu að-
stæður sem verið hafi í íslensku
efnahagslífi. Þá hafi einnig komið
vel í ljós að stór hluti hagnaðar
þeirra komi erlendis frá. Ekki sé
þó hægt að draga of miklar álykt-
anir nú, því einungis sé um einn
ársfjórðung að ræða. Aðlögun í ís-
lensku efnahagslífi sé enn í gangi
og það muni taka lengri tíma fyrir
áhrifin á bankana að koma að
fullu í ljós.
Bankarnir gera það sem þeir þurfa
● FISKAFLI á fyrsta ársfjórðungi
2006, reiknaður á föstu verðlagi,
dróst saman um 18,2 % miðað við
sama tímabil í
fyrra, að því er
fram kemur í
Hagtíðindum
sem Hagstofa
Íslands gefur
út. Aflinn síð-
stliðna tólf
mánuði var
11,4% minni
en tólf mán-
uðina þar á undan.
Verð á sjávarafla í íslenskum
krónum var 4,5% hærra á
fjórðungnum en í fyrra og útflutn-
ingsverð sjávarafurða í íslenskum
krónum hækkaði um 5,3%. Með-
altal gengisvísitölunnar í íslenskum
krónum lækkaði um 0,9% milli
fyrstu ársfjórðunganna 2005 og
2006.
Fiskafli 18,2%
minni en í fyrra
● LAUNAVÍSITALA var 0,3% hærri í
mars en í fyrri mánuði. Vísitalan hef-
ur þá hækkað um 8,6% frá því í mars
2005, að því er kemur fram í Hagtíð-
indum Hagstofu Íslands. Á sama
tíma hækkaði vísitala neysluverðs
um 5,0%. Mælt á þessa kvarða var
kaupmáttur launa 3,4% meiri í mars
2006 en á sama tíma í fyrra. Með-
alkaupmáttur fyrstu þriggja mánaða
þessa árs er 3,8% meiri en á sama
tímabili á síðasta ári.
Kaupmáttur eykst
um 3,4% milli ára