Morgunblaðið - 05.05.2006, Blaðsíða 50
50 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Lýsing hefur áhrif á það hvernig hlutir
líta út. Sama landslag getur virst
drungalegt eða himneskt, allt eftir því
hvernig birtan er. Sérhvert val varpar
ljósi á umhverfi manns og þá sem eru í
því.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Foreldri sagði nautinu hugsanlega eitt
sinn að ekki væri rétt að búa til sögur,
en stundum hjálpar það manni í sam-
skiptum að kríta liðugt. Leiktu þér. Ef
þú þjálfar ímyndunaraflið laðar þú ein-
mitt að þér fólkið sem er kleift að
auðga anda þinn.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Himintunglin hjálpa tvíburanum að
verða enn betri í að leysa vandamál. Ef
þú berð ekki kennsl á vandamálið,
gagnast það þér hins vegar ekkert.
Orðaðu það sem veldur þér áhyggjum
og spáðu í það í nokkrar mínútur í dag.
Það gæti leyst á þeim tíma.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Ef þú veist hvernig á að nota það,
hjálpar innsæið þér við að taka meiri-
háttar ákvörðun í lífinu. Æfðu þig í að
sjá hluti fyrir þér. Kannski situr þú við
skrifborð, en hugurinn er á ævintýra-
slóðum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Flautaðu, syngdu eða sönglaðu við
vinnuna. Þannig nærðu að einbeita þér
þrátt fyrir margvíslegar truflanir sem
verða á vegi þínum. Allar hindranir
sem þú mætir færa þér heppni, því þær
ljá framtaki þínu persónulegri blæ.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Gamlir vinir þrá að vera í sambandi við
þig, en óttast að þú erfir ennþá gamlar
syndir við þá. Ef þú vilt eiga samskipti
við einhvern aftur skaltu stíga fyrsta
skrefið í kvöld.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
F. Scott Fitzgerald, sem var í vogar-
merki, sagði að það væri gáfumerki að
geta geymt tvær andstæðar hugmynd-
ir í kollinum á sama tíma. Það er
ósanngjarnt, enda mjög auðvelt fyrir
vogina. Gáfur þínar vekja hrifningu í
kvöld.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdrekinn er yndisleg ráðgáta í
augum einhvers sem elskar hann. Ekki
vera hissa ef einhver reynir á þessu
augnabliki að ráða í brosið sem leikur
um varir þínar á meðan þú sefur.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Haft er á orði að kossar út í loftið séu
sóun, en það er ekki rétt því þeir lenda
alltaf einhvers staðar. Bogmaðurinn
eyðir deginum í að feykja vangaveltum
sínum, athygli og ást út í vindinn. Hún
lendir á réttum stað á réttum tíma.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Spennan magnast í vinnunni. Breyt-
ingar eru yfirvofandi. Fyrst engar lík-
ur eru á því að óreiða og brjálæði fari
minnkandi í kringum þig er best að
reiða sig á skipulag sem rúmar bæði
reglu og ringulreið.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Áhyggjur sem áður voru stórbrotnar
virðast alls ekkert svo yfirdrifnar akk-
úrat núna. Það er merki um að þú
kunnir að taka lífinu með sömu léttúð
og barnið. Þess vegna gerir þú það vel.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Rótin að vanda dagsins í dag felst í
eðlislægri skoðun sem þarf ekki endi-
lega að henta þér. Ekki spá í hvort hún
sé rétt eða ekki – ef hún bætir líf þitt
skaltu halda þínu striki, ef ekki losaðu
þig þá við hana.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Tunglið er í ljóni og lætur
eins og fyrirgangssamur
skipuleggjandi sem hvetur
alla til þess að standa upp og dansa. Sól
og Júpíter eru í mótstöðu sem getur af sér
yfirdrifnar hugmyndir um hvernig við
eigum að lifa betur með hlutum sem við
njótum en þurfum ekki beinlínis á að
halda. Er það rangt?
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 eira, 4 hælbein,
7 ákæru, 8 gaul, 9 lík,
11 stillt, 13 vanþóknun,
14 frek, 15 tiginn valds-
maður, 17 að ótöldum,
20 guði, 22 hryggur,
23 kvendýrið, 24 und-
irnar, 25 hreinar.
Lóðrétt | 1 óskar ákaft, 2
rödd, 3 eyðimörk, 4 heit-
ur, 5 ungi lundinn, 6 lík-
amshlutinn, 10 veldur
ölvun, 12 blekking, 13
skelfing, 15 einn postul-
anna, 16 klettasnös, 18
svardagi, 19 mannsnafn,
20 sóminn, 21 reitt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 pennalata, 8 messu, 9 tigna, 10 mær, 11 tjara,
13 ausan, 15 atlas, 18 ógild, 21 tól, 22 kafla, 23 asnar, 24
gallharða.
Lóðrétt: 2 elska, 3 nauma, 4 letra, 5 tagls, 6 smit, 7 raun,
12 róa, 14 ugg, 15 aska, 16 lyfta, 17 stagl, 18 ólata, 19
iðnað, 20 durt.
Tónlist
Café Rosenberg | Í tilefni af útgáfu geisla-
disksins „Leiðin er löng“, mun Halli Reynis
halda útgáfutónleika á föstudags- og
laugardagskvöld.
Grensáskirkja | Lillukórinn í Húnaþingi
vestra heldur tónleika 6. maí kl. 15. Kór-
stjóri er Ingibjörg Pálsdóttir undirleikari og
stjórnandi er Guðjón Pálsson. Efnisskráin
er fjölbreytt, bæði innlend og erlend lög.
Kórinn hefur gefið út tvo geisladiska: Ég
hylli þig Húnaþing og Sendu mér sólskin.
Hafnarfjarðarkirkja | Vortónleikar kórs
Hafnarfjarðarkirkju með kór Lindakirkju,
sunnudaginn 7. maí kl. 17. Flutt verður
messa e. Gounod, verk e. Mozart o.fl. Ein-
söngvarar: Gréta Jónsdóttir, Hrönn Haf-
liðadóttir, Jóhannes A. Jónsson og Svava
K. Ingólfsdóttir. Píanó: Antonia Hevesi.
Komið og njótið. Frír aðgangur.
Íslenska óperan | Burtfararprófstónleikar
Guðbjargar Sandholt messósópran verða
kl. 20. Guðbjörg er að ljúka námi sínu við
Tónlistarskólann í Reykjavík. Á efnis-
skránni eru ýmis verk eftir t.d. Händel,
Schubert og M. de Falla. Ókeypis aðgangur
og allir velkomnir.
Loftkastalinn | Neyðarhjálp úr norðri
stendur fyrir fjölskylduskemmtun í Loft-
kastalanum laugardaginn 6. maí kl. 14.
Fram koma yfir 100 tónlistarmenn og
skemmtikraftar. Ágóði rennur til fórnar-
lamba flóða í Tékklandi. Miðaverð 1.500 kr.
og miðasala hefst í Loftkastalanum kl. 12 á
hádegi laugardaginn 6. maí.
Salurinn, Kópavogi | Tónleikar kennara
Tónlistarskóla Kópavogs laugardaginn 6.
maí kl. 13. Frönsk 20. aldar píanótónlist fyr-
ir tvo. Nína Margrét Grímsdóttir og Sólveig
Anna Jónsdóttir leika píanótónlist fyrir tvo
flygla eftir Fauré, Debussy og Milhaud.
Stúdentakjallarinn | Föstudagsdjamm
Jazzakademíunnar, djassklúbbs HÍ, kl. 16–
18. Aðgangur ókeypis. Egill er áberandi í ís-
lensku djasslífi en á háskólasvæðinu er
hann þekktari sem prófessor í rafmagns-
og tölvuverkfræði. Auk Egils leika Stefán
Stefánsson, Ari Bragi Kárason, Högni
Egilsson og Birgir Baldursson.
Myndlist
101 gallery | Steingrímur Eyfjörð – Bein í
skriðu. Til 3. júní.
Akranes | Kjartan Guðjónsson sýnir olíu-
verk í Listasetrinu Kirkjuhvoli, Akranesi til
7. maí.
Anima gallerí | Björg Örvar barnasaga/
fiskisaga – málverk. Til 21. maí.
Aurum | Sunna Dögg Ásgeirsdóttir sýnir
grafíkverkin Pá - lína sem eru prentuð á
striga til 15. maí.
Bókasafn Garðabæjar | 13 myndlistar-
nemar úr Garðabæ eru með málverkasýn-
ingu í húsnæði Bókasafns Garðabæjar.
Café Karólína | Þorvaldur Þorsteinsson –
Íslandsmyndir. Til 5. maí.
Classic Rock | Myndlistasýningin „Slettur“
á veggjum staðarins.
Energia | Kristín Tryggvadóttir – Rauður
þráður. Til 19. maí.
Gallerí Dvergur | „MUCUS“ Magnús Árna-
son myndlistarmaður flytur gjörning 6., 13.
og 17. maí kl. 20–20.30. Gjörningurinn
stendur aðeins yfir í 20 mínútur.
Gallerí Fold | Tryggvi Ólafsson sýnir mál-
verk til 14. maí.
Gallerí Húnoghún | Þorvaldur Óttar Guð-
laugsson til 5. maí.
Gallerí Sævars Karls | Graeme Finn sýnir
300 teikningar sem mynda innsetningu í
galleríinu.
Gallerí Úlfur | Torfi Harðarson er með sýn-
ingu á hestamálverkum til 7. maí. Gallerí
Boreas frá New York sýnir verk eftir Adam
Bates. Sýningin „Sögur“ il 31. maí.
Hallgrímskirkja | Sýning á olíumálverkum
Sigrúnar Eldjárn stendur til 30. maí.
Kaffi Sólon | Unnur Ýrr sýnir málverk á
striga.
Karólína Restaurant | Joris Rademaker
sýnir ný verk Mjúkar línur/ Smooth lines.
Til 6. okt.
Ketilhúsið Listagili | Sýningu Soffíu Sæ-
mundsdóttur framlengd til 7. maí.
Listaháskóli Íslands Laugarnesi | 1. og 2.
árs nemendur LHÍ sýna afrakstur nám-
skeiðsins Textíll og samtíminn undir leið-
sögn Guðrúnar Gunnarsdóttur í Kubbnum,
sýningarsal Listaháskólans í Laugarnesi til
5. maí.
Listasafn Reykjanesbæjar | Í EYGSJÓN?
Sex færeyskir málarar. Myndefnið er fær-
eysk náttúra.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Ásmundur Sveinsson – Maður og efni. Sýn-
ing á úrvali verka úr safneign Ásmundar-
safns, sem sýnir með hvaða hætti lista-
maðurinn notaði mismunandi efni – tré,
leir, stein, brons, og aðra málma – og
hvernig sömu viðfangsefni birtast í ólíkum
efnum.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Sýning fyrir unga listunnendur sem sett er
upp í tengslum við útgáfu nýrrar bókar
Eddu útgáfu um myndlist fyrir börn þar
sem kynnt eru verk úr safneign Listasafns
Reykjavíkur. Til 3. des.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Innsetningar eftir Joseph Kosuth og Ilja &
Emiliu Kabakov sem eru fremstu konsept-
listamenn heimsins í dag. Á sýningunni
vinna þau með ólík þemu úr ævintýrum
sagnaskáldsins mikla, H.C. Andersen. Hluti
sýningarinnar fer einnig fram í porti
Hafnarhússins. Til 5. júní.
Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs |
Humberto Velez, listamaður frá Panama
kemur með suður-ameríska strauma. Hann
ætlar að heimsækja skóla á Fljótsdalshér-
aði auk þess sem hann verður með vinnu-
stofu í Kompunni til 5. maí. Laug. 6. maí
verður farið í skrúðgöngu frá Kompunni kl.
13. Allir velkomnir.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos/
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
MINNUM á hina árlegu
messu Fáskrúðsfirðinga-
félagsins í Breiðholtskirkju
sunnudaginn 6. maí kl. 14.
Fáskrúðsfirðingar taka
virkan þátt í athöfninni. Þór-
ólfur Þorsteinsson spilar á
harmonikkuna og dætur
hans, Marína og Helena,
syngja. Örvar Ingi Jóhann-
esson leikur á píanó og spilar
einnig undir söng hjá Eydísi Sunadóttur. Hafdís Jónsdóttir og Guðrún
Kristinsdóttir lesa úr Ritningunni. Prestur sr. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir.
Kaffisamsæti í Safnaðarheimilinu eftir messuna.
Hvetjum Fáskrúðsfirðinga til að fjölmenna á skemmtilega sam-
verustund.
Fáskrúðsfirðingafélagið.
Fáskrúðsfirðingamessa í Breiðholtskirkju