Morgunblaðið - 05.05.2006, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2006 57
SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI
FRÁ J.J.ABRAMS, HÖFUNDI LOST OG ALIAS
AF MÖRGUM TALIN VERA
BESTA MISSION IMPOSSIBLE MYNDIN TIL ÞESSA.
FYRSTA STÓRMYND SUMARSINS ER KOMIN
MI : 3 kl. 4 - 5:20 - 8 - 10:40 B.I. 14.
MI : 3 LÚXUS VIP kl. 5:20 - 8 - 10:40
SCARY MOVIE 4 kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 B.I. 10
FAILURE TO LAUNCH kl. 4 - 6 - 8 - 10:10
FIREWALL kl. 6 - 8:15 - 10:40 B.I. 16.
LASSIE kl. 4
MI : 3 kl. 3 - 5:30 - 8:15 - 10:50 B.I. 14
INSIDE MAN kl. 5:30 - 8 - 10:40 B.I. 16
SCARY MOVIE 4 kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.I. 10
LITLI KJÚLLIN M/- ÍSL TAL. kl. 3:50
SÝND Í
STAFRÆNNI
ÚTGÁFU,
MYND OG HLJÓÐ
POWER SÝNING
KL. 10:40 Í SAMBÍÓUNUM
ÁLFABAKKA
POWER SÝNING
KL. 10.20 Í SAMBÍÓUNUM
AKUREYRI OG KEFLAVÍK
POWER DIGITAL
SÝNING KL. 10.50 Í SAMBÍÓUNUM
KRINGLUNNI
ÞITT ERVALIÐ
Ummmm...
BAGUETTE
Nýtt ogbrakandi ferskt!
SMÁRALIND • ESSO ÁRTÚNSHÖFÐA • ESSO FOSSVOGI
N
ÝT
T
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
13
3
5
Útgáfutónleikar Halla Reynisfara fram í kvöld og á morgun
á Cafe Rosenberg. Halli sem gaf á
dögunum út plötuna Leiðin er löng
hyggst leika plötuna er í heild sinni
og taka svo eitthvað af nýjum og
gömlu lögum Í kvöld er það Íris
Guðbjartsdóttir, ung og upprenn-
andi tónlistarkona, sem sér um að
hita upp tónleikagesti en á laug-
ardeginum verður það Hilmar Garð-
arsson sem kemur fram á undan
Halla Reynis. Aðgangseyrir á hvora
tónleikana er 1.000 krónur.
Fólk folk@mbl.is
Morgunblaðið/Sverrir
Hvað segirðu gott?
Allt svo gott enda maí einn af mínum uppáhalds-
mánuðum!
Hvað fer mest í taugarnar á þér? (Spurt af síðasta
viðmælanda, Birgittu Haukdal)
Þegar ég sef of lengi og missi af deginum – alveg óþol-
andi!
Kanntu þjóðsönginn?
Já og fer meira að segja á landsleiki í fótbolta!
Hvenær fórstu síðast til útlanda og hvert?
Í mars til Genfar.
Uppáhaldsmaturinn?
Íslenskur matur; fiskur, lamb, aðalbláber, hundasúrur
og fjallagrasamjólk – namminamm.
Bragðbesti skyndibitinn?
Egg og beikon með öllu tilheyrandi á Gráa kettinum.
Besti barinn?
Ölstofan.
Hvaða bók lastu síðast?
Rigning í nóvember eftir Auði Ólafsdóttur.
Hvaða leikrit sástu síðast?
Manntafl þar sem Þór Tulinius fór á kostum.
En kvikmynd?
Ég horfði á Some Like It Hot með Marilyn Monroe
sem sýnd var á RÚV.
Hvaða plötu ertu að hlusta á?
Við Karl Kristján sonur minn hlustum aðallega á Út-
varp Latabæ þessa dagana sem kemur okkur alltaf í gott
skap – sérstaklega þegar Halli og Laddi eiga í hlut.
Uppáhaldsútvarpsstöðin?
Rás 1 og 2.
Besti sjónvarpsþátturinn?
Krakkar á ferð og flugi, Upp í sveit og Litla stundin
með Skoppu og Skrítlu – ekki spurning!
Gætirðu hugsað þér að taka þátt í raunveru-
leikaþætti í sjónvarpi?
Æ nei.
G-strengur eða venjulegar nærbuxur?
Eða bara síðar í góðri útilegu í ágúst þegar byrjar að
kólna.
Helstu kostir þínir?
Kappsfull og framkvæmdasöm.
En gallar?
Oft með mörg járn í eldinum.
Besta líkamsræktin?
Sund, sund, sund enda íslenskar sundlaugar þær
bestu í heimi.
Hvaða ilmvatn notarðu?
Það heitir hvorki meira né minna en Be Delicious
DKNY.
Ertu með bloggsíðu?
Nei, ég er tölvublind.
Pantar þú þér vörur á netinu? Nei.
Flugvöllinn burt?
Þessi umræða er mjög viðkvæm á mínu heimili þessa
dagana þar sem ég vil flugvöllinn burt en maðurinn minn
ekki.
Hvers viltu spyrja næsta viðmælanda?
Í hvaða sæti lendum við í Eurovision?
Íslenskur aðall | Linda Ásgeirsdóttir
Tölvublind sunddrottning
Morgunblaðið/ÞÖK
„Við Karl Kristján sonur minn hlustum aðallega á Út-
varp Latabæ þessa dagana sem kemur okkur alltaf í
gott skap.“
Aðalsmaður vikunnar er leikkona
sem hefur nóg að gera þessa dag-
ana. Hún leikur bæði Sollu stirðu í
Latabæ og Skoppu í Litlu stundinni
með Skoppu og Skrítlu sem Sjón-
varpið frumsýnir á morgun. Þá
framleiðir hún þættina Upp í sveit
og er að leikstýra nýrri heimilda-
mynd fyrir Sjónvarpið sem hefur
hlotið vinnuheitið Kúrekastelpan.