Morgunblaðið - 09.05.2006, Page 21

Morgunblaðið - 09.05.2006, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2006 21 MINNSTAÐUR Suðurnes | Söngsveitin Víkingar heldur sína árlegu vortónleika í vikunni. Sungið verður í Sandgerði, Keflavík og Garði. Efnisskráin er létt og skemmti- leg, blanda af íslenskum og erlend- um lögum frá ýmsum tímum, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Fyrstu tónleikarnir verða á morgun, miðvikudag, í Safn- aðarheimilinu í Sandgerði. Á fimmtudag verður með tónleika í Reykjanesbæ, í Duushúsum, og á föstudag í Gerðaskóla í Garði. Allir tónleikarnir hefjast klukkan 20. Stjórnandi er sem fyrr Sigurður Sævarsson. Bassaleikari er Rebekka Björnsdóttir, Vignir Berg- mann leikur á gítar, Einar Gunn- arsson og Ólafur Eyjólfsson á harmonikku, Einar Gunnarsson á túbu og Þorvaldur Halldórsson á slagverk. Víkingarnir syngja inn vorið Árborg | Menningar- og mann- lífshátíðin Vor í Árborg verður hald- in í fjórða sinn 11.–14. maí. Í upp- hafi hátíðarinnar verður Menn- ingarviðurkenning Árborgar 2006 afhent við hátíðlega athöfn og verð- ur örleikritið Geirþrúður og Hamlet sem nýverið var sýnt í Borgarleik- húsinu einnig sýnt. Á hátíðinni gefst kostur á að skoða sýningu á næfistaverkum úr fórum Áslaugar G. Harðardóttur og Jóns Hákons Magnússonar þar sem sýnd verða verk eftir alla helstu næfista landsins. Nýstofnuð Stór- sveit Suðurlands heldur djass- tónleika ásamt Djasskvartett Krist- jönu Stefánsdóttur og dixieland- hljómsveitinni Sýlumönnunum. Tónlistarmenn koma fram í Sund- höll Selfoss og verður til dæmis skemmtilegt að sjá og heyra Kór Fjölbrautaskóla Suðurlands syngja ofan í lauginni. Á Eyrarbakka geta menn lesið ljóð og texta á ljósastaurum, litið inn á þorpsmarkað við Rauða húsið, farið á bókamarkað í Verslun Guð- laugs Pálssonar eða fylgst með leir- brennslu utanhúss og fleira. Á Selfossi verða hugmyndir Sig- rúnar Ólafsdóttur að listaverki á hringtorgið við Ölfusárbrú til sýnis og menn ætla að dansa afródans fyrir framan verslunina Afró- butique þar sem einnig verður fjár- og fatasöfnun fyrir Gana. Unga fólkið mætir í poppsmiðju hjá hljómsveitinni Á móti sól, í Hólmarastarhúsinu á Stokkseyri og lýkur deginum með hljóm- sveitakeppni. Myndlista- og ljósmyndasýningar verða víða í sveitarfélaginu og opið hús á vinnustofum fjölmargra lista- og handverksmanna. Þá eru glugga- sýningar í mörgum verslunum og þjónustustofnunum þar sem mynd- list, hönnun, handverk og ljós- myndir eru til sýnis. Dagskráin er birt á vef sveitarfélagsins, arborg.is. Sýnd verk eftir helstu næfista landsins Vor í Árborg Vorið er komið á Eyrarbakka. Akranes | Undirritaður hefur verið kaupsamningur á milli Fasteigna- félags Akranesbæjar og Smáragarðs ehf. þar sem Fasteignafélag Akra- nesbæjar kaupir hluta af verslunar- miðstöðinni á Dalbraut 1, miðbæjar- svæði, fyrir Bóka- og skjalasafn Akraness. Hér er um að ræða um það bil 1300 fermetra húsnæði sem verður afhent kaupanda til afnota 1. októ- ber. Í verslunarmiðstöðinni verða til húsa ný matvöruverslun Kaupáss og fleiri smærri verslanir og fyrirtæki. Myndin var tekin við undirrit- unina, f.v. Guðmundur Halldór Jóns- son framkvæmdastjóri Smáragarðs, Brynja Halldórsdóttir fram- kvæmdastjóri Norvikur, Jón Helgi Guðmundsson forstjóri, Guðmundur Páll Jónsson bæjarstjóri og Jón Pálmi Pálsson bæjarritari. Kaupa hús- næði fyrir bókasafn LANDIÐ ♦♦♦ Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.