Morgunblaðið - 09.05.2006, Side 33

Morgunblaðið - 09.05.2006, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2006 33 MINNINGAR 1982, fyrst sem leikskólastjóri í Hamraborg en síðar varð hún deild- arstjóri fagdeildar og við skipulags- breytingar yfirmaður sálfræði- og leikskólaráðgjafar leikskólanna. Hluti af starfi hennar var þátttaka í und- irbúningi bygginga leikskóla og lagði hún þannig með störfum sínum fram mikilvægan skerf í þeirri miklu upp- byggingu á leikskólastiginu sem varð á síðasta áratung síðustu aldar í Reykjavík. Skömmu eftir að yfir- stjórnir leik- og grunnskóla samein- uðust síðastliðið vor og til varð menntasvið Reykjavíkurborgar varð Margrét Vallý tímabundið aðstoðar- maður sviðsstjóra menntasviðs þar til hún veiktist seint á síðasta ári. Áður en Margrét Vallý kom til starfa hjá Reykjavíkurborg hafði hún verið leikskólastjóri í heimabyggð sinni á Dalvík. Þannig helgaði hún sig alla starfsævi sína velferð og uppeldi ungra barna, en hún var menntaður leikskólakennari. Margrét Vallý hafði sérlega hlýja og fágaða framkomu. Traust og elju- semi einkenndu öll hennar störf og samstarfsmenn nutu yfirsýnar henn- ar og þekkingar á sviði leikskóla- starfs. Fyrir hönd menntasviðs Reykja- víkurborgar er Margréti Vallý þakk- að mikilvægt framlag til uppeldis ungu kynslóðarinnar í Reykjavík um árabil. Við sendum eftirlifandi eigin- manni hennar, Páli Magnússyni, og börnum innilegar samúðarkveðjur. Gerður G. Óskarsdóttir, sviðsstjóri menntasviðs Reykjavíkurborgar. Fyrstu kynni mín af Margréti Vallý voru árið 1982, þegar hún var ráðin í starf leikskólastjóra í Hamraborg. Var eftir störfum hennar sóst og þeim sem að ráðningunni komu og þekktu til starfa hennar fyrir norðan þótti hún happafengur fyrir leikskóla Reykjavíkur. Reyndist það æ svo en árið 1988 réðst hún til starfa á skrif- stofunni fyrst sem leikskólaráðgjafi og síðar eða árið 1990 sem deildar- stjóri fagdeildar. Varð hún yfirmaður leikskólaráðgjafa og sérfræðiþjón- ustu leikskóla Reykjavíkur og dag- gæsluráðgjafa og var ásamt fjármála- stjóra nánasti samstarfsmaður framkvæmdastjóra og leikskólaráðs. Á þessum árum var mikil aukning í allri starfsemi leikskóla, nýir leikskól- ar voru byggðir og öðrum var breytt að kröfum nýrra tíma. Hafði Margrét Vallý umsjón með faglegum þáttum sem sneru að byggingunum fyrir hönd stofnunarinnar og leysti þau störf með sóma. Endurskoðuð lög um starfsemi leikskóla voru samþykkt árið 1991 og aftur árið 1994. Var leikskólinn þar gerður að fyrsta skólastigi barnsins og miklar kröfur gerðar um faglegt starf, áætlanagerð og endurmat á starfsemi leikskóla. Mikið starf hvíldi því á fagdeild í ráðgjöf og mótandi starfi í leikskólum Reykjavíkur. Rækti Margrét Vallý öll þau störf með lipurð og reisn og má segja að frábær niðurstaða í skoðanakönnun- um meðal foreldra barna í leikskólum gefi bestan vitnisburð um það hvernig til tókst í starfi leikskólanna í Reykja- vík með stuðningi frá fagdeild og öðru starfsfólki á skrifstofunni. Þó oft gustaði um vinnustaðinn okkar var þar samt ávallt gott og vin- samlegt andrúmsloft. Við áttum sam- an margar gleðistundir en einnig var sýndur samhugur þegar á bjátaði. Þar átti hún Margrét Vallý sinn þátt með hófsamri og fallegri framkomu og góðri nærveru. Fyrir allt þetta vil ég þakka á þess- ari stundu sem kom svo allt of fljótt. Ég sendi Páli og öllum öðrum að- standendum samúðarkveðjur. Bergur Felixson. Nú er komið að kveðjustund. Góð- ur samferðamaður og veiðifélagi er kvaddur. Fyrir rúmum 20 árum kynntist ég Páli og Vallý er við fórum að veiða saman norður í Laxá í Þingeyjar- sýslu, þau hjón höfðu stundað þar veiðiskap um Jónsmessuna í áraraðir, en í eitt skipti komst Vallý ekki með og fékk ég að koma í staðinn. Þannig hófst félagsskapur okkar um veiðiferðir og útivist. Á þessum árum var tjaldað við ár- bakkann og dvöldum við viku í senn. Þau Páll og Vallý höfðu komið sér upp ágætu tjaldi og öðrum búnaði til úti- vistar svo að í hléum við veiðarnar, dvöldum við í fortjaldinu þeirra, snæddum og hlógum saman. Fyrir þessa samverustundir verðum við Kristín ævinlega þakklát. Við nýgræðingarnir í veiðinni lærð- um mikið af þeim hjónum við árbakk- ann. Virðing þeirra og hógværð gagn- vart umhverfinu og lífinu í ánni er aðdáunarverð. Á göngu okkar niður Hofstaðaey las Páll ána en Vallý skynjaði frekar flóruna og umhverfið í heild sinni. Hún átti það til að staldra við á göngunni til að hlúa að sjaldséðu blómi sem með vanmætti var að brjóta sér leið upp úr sinu vetrarins. Örnefni sveitarinnar vöfðust ekki fyrir henni frekar en heiti flóru lands- ins og var nóg að spyrja Vallý ef efi hvarflaði að. Á löngum tíma höfum við Kristín farið víða með Páli og Vallý og skal helst nefna Bjarnarfjarðará á Ströndum, Skálmardalsá og Veiði- vötn og fleiri staði, hver ferðin ann- arri betri og skemmtilegri, að ónefnd- um Svarfaðardalnum, Kóngsstaðir, gamla ættarsetrið hennar, en þangað þótti henni gott að koma. Ég man er við gengum þar öll upp í fjall í berjamó og er komið var niður í hús var séð að eftirréttur kvöldmál- tíðar þessa dags yrði nokkuð hressi- legur. Vallý hins vegar tíndi einnig sveppi og ýmsar kryddjurtir sem hún notaði við matargerð þessa eftir- minnilega dags. Hún var frumleg á því sviði og hafði þann eiginleika að setja saman ólíka hluti á óhefðbund- inn hátt svo undrun sætti og orð fór af og sannast best er ég rakst á grein í tímariti þar sem fjallað var um henn- ar færni í matargerðarlist og kom engum á óvart sem til þekktu. Í okkar huga var Vallý lífsins lista- maður, hún kunni að njóta þess sem umhverfið bauð upp á hverju sinni og gaf þannig af sér til okkur hinna. Seinna fórum við að ferðast erlend- is og minnumst við helst er við fórum til Kyoto. Það var ánægjulegt að upp- lifa þessa ferð með Vallý því áhuginn hennar á siðum í landinu, á garðrækt Japana, Zen búddisma og matargerð var með þeim hætti að ánægjulegt var að fylgjast með. Það má með sanni segja að Vallý var góður ferðafélagi og samferða- maður. Nú drúpum við Kristín höfði af virðingu og vinsemd og vottum Páli og öðru venslafólki samúð okkar. Eyjólfur Bragason, Kristín Kristmundsdóttir. Við kynntumst Vallý Jóhannsdótt- ur fyrir um 25 árum þegar hún og Páll bróðir okkar rugluðu saman reytum sínum. Kynni okkar urðu hægfara, enda allir meira og minna á ferð og flugi og mishlédrægir og óframfærn- ir. En þau uxu smám saman. Vallý var hógvær og hafði hægt um sig, en var ein traustasta og besta manneskja sem við höfum kynnst. Samleið með einni manneskju í ríf- lega hálfa ævi manns hefur mikil áhrif á lífið. Marga litlar athafnir sem mað- ur framkvæmir næstum daglega bera mark af Vallý og síðustu daga og vik- ur þegar minningarbrotin eru alltaf að hoppa upp í kollinn á manni gerir maður sér allt í einu grein fyrir þessu. Salatgerð, silungsveiði, Unimog, Fjóla dúkka og fínu fötin hennar og stofublómin kveikja mynd með til- finningu í huganum. Eitt svona myndskeið sem kemur upp í hugann er laugardagseftirmið- dagur á Bragagötu. Svosum hversdagslegt, en tilfinn- ingin sem fylgir er vellíðan. Svona á lífið að vera. Klukkan hálffjögur. Læri kryddað með rósmarín. Grænmeti skorið í stóra bita. Kartöflur, laukur, paprika, sellerí og púrra. Teningur leystur upp í vatni. Allt sett í eldfast fat og í 100° heitan ofn. Á meðan lærið er í ofninum er klippt svolítið af trjánum í garðinum, rótað í beðunum, eða farið í göngutúr. Spjallað við tengdamóðurina á neðri hæðinni. Öðru hvoru kíkt á lærið og ausið yfir það soðinu. Um sexleytið, farið inn, opnuð rauðvínsflaska. Sest í góðan stól. Lærið tekið út úr ofninum og hann stilltur á grill (250° opinn ofn). Grænmetið tekið frá eða álpapp- ír settur á það svo það brenni ekki. Lærið sett inn og látið brúnast á báð- um hliðum ca 5 mínútur á hvorri hlið. Slökkt á ofninum og látið standa í 10 mínútur og jafna sig. Matarins notið. Vallý kunni að meta náttúru og úti- veru, og stundaði ásamt Palla bróður ferðalög og silungsveiðar. Athvarfið þeirra og ættaróðal Vallýjar, Kóngsstaðir í Skíðadal, var staður sem var þeim báðum kær og þau dvöldu á um tíma hvert sumar. Þessi þröngi og gróðursæli dalur með gamla húsinu og reynitré við gaflinn geymir fjölskyldusögu Vallýjar marg- ar kynslóðir aftur í tímann. Þar er sælureitur. Úr dalnum var líka ættað heima- reykta hangikjötið sem borðað var saman á hverri Þorláksmessu með laufabrauði og baunum. Þann sið úr heimahéraði sínu innleiddi Vallý hjá okkur, og þessar samkomur á heimili þeirra hjóna hafa lengi verið mikil- vægur hluti jólahalds í fjölskyldum okkar systkinanna. Þar var hægt að ganga að því vísu að mæta hlýju og vinarhug, og þar var þáttur Vallýjar stór. Hún var einstaklega sterk manneskja, hlý, dugleg og æðrulaus. Við samhryggjumst innilega Páli bróður okkar, Friðriku, Elísabetu, Bjarka og Hlyni og fjölskyldum þeirra. Sigurveig Magnúsdóttir, Pétur Magnússon, Tumi Magnússon. Mild röddin, heillandi norðlenskur framburður, prúð en frjálsleg fram- koma, mjúkar hreyfingar og glettni í brosinu eru persónueinkenni þeirrar ágætu konu sem við kveðjum í dag. Þetta er stúlkan sem kom norðan frá Dalvík og settist á skólabekk í Fóstruskóla Sumargjafar árið 1967. Stúlkan sem helgaði börnum starfs- krafta sína alla ævi. Margrét Vallý öðlaðist mikla reynslu í störfum sínum sem leik- skólakennari og leikskólastjóri. Hún fór í framhaldsnám bæði hér heima og erlendis og starfaði um árabil sem faglegur ráðgjafi og síðar deildar- stjóri fagdeildar Leikskóla Reykja- víkur. Hún var einn af stofnendum Félags leikskólafulltrúa á Íslandi 1997 og var formaður þess félags í nokkur ár. Leikskólafulltrúar höfðu þá verið starfandi í nokkrum sveitar- félögum á landinu um skeið. Í starfi leikskólafulltrúa felst fagleg og rekstrarleg ráðgjöf við starfsfólk leikskóla. Margrét Vallý var fulltrúi stærsta sveitarfélags landsins og hafði því miklu að miðla til okkar hinna. Hún hafði yfirburða sýn yfir leikskólamálaflokkinn og upplifði í starfi sínu gríðarlegar breytingar í leikskólamálum. Leikskólafulltrúarn- ir héldu hópinn og studdu hver annan í störfum sínum og báru saman bæk- ur sínar. Fundir voru haldnir með reglulegu millibili og oftar en ekki voru fundir haldnir úti á landi, Akra- nesi, Akureyri, Húsavík, Vestmanna- eyjum og víðar. Þessar ferðir verða okkur félögunum eftirminnilegar og samheldnin jókst. Margrét Vallý hafði ávallt eitthvað gott til málanna að leggja og var tilbúin að rökræða og skýra málin af festu og ákveðni en þó með sínum milda hætti. Leikskólafulltrúar minnast Mar- grétar Vallýjar með virðingu og þökk. Við sendum eiginmanni hennar og fjölskyldu innilegar samúðarkveðjur. Lifi minningin um góða stúlku að norðan. Fyrir hönd Félags leikskólafulltrúa Hrafnhildur Sigurðardóttir, Sesselja Hauksdóttir. Okkur skólasysturnar sem út- skrifuðust saman úr Fóstru- skóla Sumargjafar langar að þakka fyrir samveruna og all- an þann ágæta tíma sem við áttum í skólanum forðum daga. Einnig allar góðar og skemmtilegar stundir síðan. Við geymum minningar um góðan félaga. Við vottum öllum ástvinum, okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning Margrétar Vallýar. Útskriftarhópurinn 1969. HINSTA KVEÐJA Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN BÆRINGSDÓTTIR fyrrum húsfreyja á Tilraunastöðinni að Keldum, lést föstudaginn 5. maí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Þórunn Gunnarsdóttir, Maurice Deeley, Elísabet Gunnarsdóttir, Dagbjört Gunnarsdóttir, Bjarni Gunnarsson, Paul Griggs, Carol Meriwether, Caitlin og Ásdís Griggs. Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir, sonur, afi og langafi, ATLI ELÍASSON, Suðurgerði 2, Vestmannaeyjum, lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja að morgni laugardagsins 6. maí. Útför fer fram frá Landakirkju í Vestmanna- eyjum laugardaginn 13. maí kl. 14.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans, er bent á líknarsjóð Kiwanisklúbbsins Helgafells í Vestmanna- eyjum. Kristín Frímannsdóttir, Atli Freyr Hjörleifsson, Aldís Atladóttir, Kristinn Ævar Andersen, Elías Atlason, Geirþrúður Þórðardóttir, Freyr Atlason, Eva L. Þórarinsdóttir, Sigurdís Ösp, Jón Valgeir, Hlynur Már, Hulda Sif, Birgir Hannes, Elín Björk, Davíð, Þórður Jón, Elva, Aldís Freyja, Daníel Ingi og Tanja Björt. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, HALLDÓR ERLINGUR ÁGÚSTSSON vélstjóri, Ljósheimum 20, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 4. maí. Jarðarförin auglýst síðar. Sigurjón Ólafur Halldórsson, Linda Björg Halldórsdóttir, Kristín Ásta Halldórsdóttir, Pétur Eyvindsson, Diljá Catherine Þiðriksdóttir. Elskulegur eiginmaður minn, ÁRMANN LEIFSSON frá Bolungarvík, Kirkjusandi 5, Reykjavík, lést á Landspítalanum v. Hringbraut föstudaginn 5. maí. Útförin fer fram frá Langholtskirkju fimmtudaginn 11. maí kl. 13.00. F.h. aðstandanda, Bára Benediktsdóttir. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, GUÐNÝ FRIÐRIKSDÓTTIR, Hjallalandi, Skagafirði, lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudag- inn 7. maí. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugardag- inn 13. maí kl. 11. Jarðsett verður á Reynistað. Sveinn Jónsson, Jón Pétur Sveinsson, Sigurveig Friðgeirsdóttir, Sigríður Halldóra Sveinsdóttir, Eymundur Þórarinsson, Una Sveinsdóttir, Gígja Sveinsdóttir, Hallfríður Sveinsdóttir, Guðmundur Helgi Helgason, Anna Sveinsdóttir, Steven Passburg, Sigurður Sveinsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.