Morgunblaðið - 09.05.2006, Qupperneq 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Þuríður Hólm-fríður Sigurjóns-
dóttir fæddist í Heið-
arbót í Reykjahverfi
29. október 1914.
Hún lést á Heilbrigð-
isstofnun Þingey-
inga 1. maí síðastlið-
inn. Foreldrar henn-
ar voru Sigurjón
bóndi í Heiðarbót
Pétursson, f. 7. maí
1893 á Núpum í Að-
aldal, d. 29. október
1982, og fyrri kona
hans Jónína sauma-
kona og húsmóðir Sigurðardóttir,
f. í Heiðarbót 4. desember 1879, d.
1. júlí 1937. Systkini Þuríðar eru
Sigurður, f. 1913, Helga, f. 1916,
Stefán Pétur, f. 1918, Hreiðar, f.
1920, og Sigtryggur, f. 1943, sam-
feðra. Helga er ein á lífi þeirra
systkina.
Hinn 28. október 1963 giftist
Þuríður eftirlifandi
manni sínum Þor-
móði Jónssyni trygg-
ingafulltrúa, f. 28.
mars 1918 á Húsa-
vík. Þau bjuggu á
Húsavík, lengst í
Fensölum, eða til
1991 en þá fluttu þau
í Brekkuhvamm þar
sem þau bjuggu
þangað til þau flutt-
ust á dvalarheimilið
Hvamm í ágúst 2005.
Þuríður stundaði
fatasaum í Reykja-
vík, í Heiðarbót og á Húsavík. Hún
var ráðskona hjá föður sínum eftir
lát móður sinnar, síðar á Sjúkra-
húsi Húsavíkur og loks hjá bræðr-
um sínum eftir að flutt var frá
Heiðarbót til Húsavíkur.
Þuríður verður jarðsungin frá
Húsavíkurkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Æskuárin í Heiðarbót í Reykja-
hverfi mótuðu án efa að miklu leyti
Þuríði föðursystur mína, eða Duddu
frænku eins og við höfum alltaf kallað
hana. Að alast upp í torfbæ er eitt-
hvað sem við yngra fólkið getum ekki
gert okkur í hugarlund, það er ekkert
líkt því sem við þekkjum og búum við
í dag.
Í Heiðarbót bjuggu systurnar Jón-
ína amma og Sigríður ásamt mönnum
sínum og samtals níu börnum. Jörð-
inni var skipt, en öll bjuggu þau í
sama torfbænum allt til 1939. Hvor
fjölskylda hafði eitt herbergi fyrir sig
og svo var sameiginleg stássstofa út
timbri, það var gestastofan og börnin
fengu mjög sjaldan að fara þangað
inn og ekki nema í fylgd fullorðinna.
Eldhúsið var einnig sameiginlegt,
eldað á sömu vél, en matartilbúningur
aðskilinn. Þó borðuðu báðar fjöl-
skyldur oft á sama tíma.
Dudda minntist æskuáranna í
Heiðarbót með hlýju og sagði okkur
oft skemmtilegar sögur af þeim
frændsystkinum sem ólust þar upp
saman.
Við systkinabörn hennar héldum
ættarmót í Reykjahverfinu 23. júlí á
síðasta ári. Þá var gaman að vera með
þeim systrum, Duddu og Lóu og
Gunnu frænku, en þær ólust allar upp
í Heiðarbót.
Við fengum að koma í Heiðarbót og
skoða æskuslóðirnar, þar rifjuðu þær
frænkur margt upp og fræddu okkur
hin. Hópurinn er ekki stór því við
systkinabörn Duddu erum ekki nema
11 talsins.
Dudda var hetja okkar frænkn-
anna. Hún var lengi ólofuð, sjálfstæð,
ákveðin og afar stjórnsöm. Hún var
einstaklega góð við okkur stelpurnar.
Hún leyfði okkur að gera margt sem
við fengum ekki heima, og ekki alltaf í
þökk mæðra okkar. En eins og hún
sagði svo oft, hafði hún mikla ánægju
af þessum litlu frænkum sínum og var
stolt af þeim.
Alltaf var hún sjálfri sér samkvæm,
var mjög vinnusöm, orðheppin, glað-
vær og áhugasöm um það sem henni
féll að skapi. Hún lærði fatasaum og
saumaði mikið, saumaði út, og prjón-
aði dúka og var mjög vandvirk á allt
sem hún gerði. Margir eiga hand-
prjónaða dúka eftir hana, einnig út-
saum.
Allar eigum við frænkur fína prjón-
aða dúka sem hún gaf okkur þegar við
vorum búnar að koma okkur upp
heimili.
Dudda stundaði nám í Hússtjórn-
arskólanum á Laugum.
Hún var rúmlega tvítug þegar
móðir hennar lést, þá tók hún við
stjórnun á heimilinu.
Síðan flutti hún til Húsavíkur og
var ráðskona á Sjúkrahúsinu þar um
tíma, einnig gerðist hún ráðskona hjá
bræðrum sínum er þeir fluttu til
Húsavíkur, þar héldu þau heimili
saman.
Það kom fljótlega að því að Stefán
og Hreiðar gengu út, og þeir byggðu
saman stórt hús á Uppsalaveginum
nr. 9 og 11, fyrir sig og konur sínar.
Dudda og Sigurður bjuggu á neðri
hæðinni hjá Hreiðari í mörg ár. Þá
var oft fjör í húsinu, þegar við krakk-
arnir vorum að fara á milli og mikið
var sungið og gantast.
Síðar byggði Sigurður gott hús á
Uppsalavegi 10, og Dudda stjórnaði
þar til 1962 er hann gifti sig.
Á þessum árum lærði ég að baka
pönnukökur hjá henni, líklega 11 eða
12 ára gömul, síðan að gera soðbrauð
og kleinur og margt fleira tengt mat-
reiðslu.
Einnig kenndi hún mér að sníða og
sauma á saumavél, hún var óþreyt-
andi við að styðja mig við þessi
áhugamál mín og á örugglega sinn
þátt í því, hvað ég fór að læra.
Sumarið áður en ég fór í kennara-
nám (þá 18 ára) hjálpaði hún mér að
sníða og sauma mjög fína dragt á mig.
Það var skemmtilegur tími sem við
áttum þá saman eins og svo oft síðar.
Hlutskipti hennar var ekki alltaf
auðvelt eða sársaukalaust. Hún var
ein af þeim fjölmörgu Íslendingum
sem veiktust af berklum, þeim mikla
vágesti. Ég held að það hafi verið
sumarið 1957 sem hún veiktist og var
send á berklahælið í Kristnesi. Hún
þurfti að liggja þar mjög veik í marga
mánuði. Þar kynntist hún ýmsum
raunum og því að lífið er ekki sjálf-
gefið. Hún var ein af þeim síðustu hér
á landi sem fóru í mikla lungnaaðgerð
(þá sem kallað var að höggva fólk).
Hún sagði mér að eftir slíka aðgerð
mundi ekki vera heppilegt að reyna
að ganga með börn. Ef til vill hefur
þetta haft sín áhrif á umhyggju henn-
ar fyrir okkur systkinabörnunum.
Dudda var mikið dansfífl alla tíð
eins og hún sagði sjálf, hafði einstak-
lega gaman af því að fara á böll og
dansa við góða dansherra, því hún var
flink að dansa.
Á fullorðinsárum tók hún bílpróf,
keypti Fólksvagninn og ók eins og
herforingi fram undir nírætt.
Það var árið 1962 sem Sigurður
bróðir hennar giftir sig og flytur sína
konu inn á heimilið. Þar með voru
þeir bræður allir gengnir út, og ráðs-
konustaðan ekki lengur í boði. Þá
vildi svo vel til að um þær mundir tók-
ust náin kynni með Duddu og Þor-
móði Jónssyni, tryggingafulltrúa á
Húsavík, og þau giftu sig árið 1963, þá
bæði nærri fimmtugu. Þau keyptu
Fensali, gamla sýslumannshúsið á
Húsavík, og settu þar upp mjög fal-
legt heimili með fallegum garði, þar
sem þau höfðu bæði ánægju af að
stússast.
Það var yndislegt að koma til
þeirra í Fensali. Þau tóku öllum fagn-
andi, spurðu frétta og Dudda talaði
meira en Þormóður og var háværari,
en hann kom sínu að í rólegheitunum.
Bæði voru þau kát og glöð.
Veitingarnar voru bornar fram
með miklum myndarbrag og af stolti
hinnar nýgiftu húsmóður sem naut
líðandi stundar.
Það kom sér vel bílprófið hennar
Duddu, því Þormóður hafði ekki bíl-
próf. Þau ferðuðust ótrúlega mikið
um landið á næstu árum og Dudda ók
farsællega alla tíð
Á árunum sem þau bjuggu í
Brekkuhvammi tóku þau þátt í starf-
semi félags eldri borgara og ferðuð-
ust eitthvað með þeim, einnig söng
hún í kór aldraðra og hafði mikla
ánægju af.
Á 90 ára afmælinu hennar héldum
við veislu fyrir hana og nánustu ætt-
ingja. Það þótti henni afar vænt um
og yngstu frændsystkinin, barnabörn
Sigurðar, skemmtu með söng og
hljóðfæraleik.
Það var henni erfitt að þurfa að
flytja frá heimili sínu síðastliðið haust
inn á dvalarheimilið Hvamm, en þar
fengu þau litla íbúð. Það átti ekki við
hana að láta í minni pokann fyrir elli
kerlingu og verða háð þjónustu frá
öðrum, en það er nokkuð sem við
verðum öll að gera þegar þar að kem-
ur.
Þeim hjónum hefur liðið afar vel í
Hvammi, þar er góð þjónusta og fólki
sýnd mikil umhyggja.
Hún lá í tæplega sólarhring inni á
sjúkrahúsinu á Húsavík áður en hún
lést. Þormóður gisti þar hjá henni síð-
ustu nóttina og dauðinn aðskildi þau
að morgni dags.
Ég þakka frænku minni fyrir langa
samferð, fyrir að umvefja okkur
frænkur með eftirlæti þegar við vor-
um litlar stelpur og langt fram eftir
aldri, og fyrir vináttu við mig og fjöl-
skyldu mína alla tíð. Hún sofnar inn í
sumarið sátt við Guð og menn.
Við sem nutum kærleika hennar og
umhyggju þökkum samfylgdina.
Innilegar samúðarkveðjur til Þor-
móðs og annarra syrgjenda.
Hjördís Stefánsdóttir.
ÞURÍÐUR
HÓLMFRÍÐUR
SIGURJÓNSDÓTTIR
Elskuleg systir mín, mágkona og frænka,
SIGRÍÐUR ÞORSTEINSDÓTTIR,
hjúkrunarheimilinu Skjóli,
áður Álfheimum 26,
sem lést miðvikudaginn 3. maí verður jarðsungin
frá Fossvogskapellu miðvikudagnn 10. maí
kl. 13.00.
Sæmundur Þorsteinsson, Emilía Baldursdóttir
og börn.
GUÐBJÖRG HULD MAGNÚSDÓTTIR
frá Dölum, Fáskrúðsfirði,
síðar Bakka í Kelduhverfi,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju miðviku-
daginn 10. maí kl. 15:00.
Björg Gunnlaugsdóttir, Sverrir Ólafsson,
Erla Óskarsdóttir,
Magnús Gunnlaugsson, Ríkey Einarsdóttir,
Aðalbjörg Gunnlaugsdóttir, Stefán Óskarsson,
Hulda Gunnlaugsdóttir, Gunnar Einarsson,
Hildur Gunnlaugsdóttir, Páll Steinþórsson,
Valdís Gunnlaugsdóttir, Vignir Sveinsson
og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐRÚN ÁGÚSTA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Kleppsvegi 24,
Reykjavík,
sem lést miðvikudaginn 26. apríl, verður jarð-
sungin frá Laugarneskirkju föstudaginn 12. maí
kl. 15.00.
Ólöf Soffía Jónsdóttir,
Guðríður Eyrún Jónsdóttir, Viggó Þorsteinsson,
Guðrún Ágústa Viggósdóttir, Helgi Hólm Kristjánsson,
Rannveig Rúna Viggósdóttir, Gunnar Þórðarson,
Agnes Viggósdóttir, Júlíus Þór Jónsson,
Salome Herdís Viggósdóttir, Baldur Pétursson,
Jón Bachmann Viggósson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma,
ÞORBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
svæfingalæknir,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum,
verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju miðviku-
daginn 10. maí kl. 11.00
Sigríður Hrafnkelsdóttir, Richard Korn,
Ísak Ríkharðsson.
Elskuleg móðir mín, amma okkar og langamma,
SIGÞRÚÐUR KRISTÍN THORDERSEN
(Dúa),
áður til heimilis í Drápuhlíð 10,
sem lést að dvalarheimilinu Kumbaravogi laugar-
daginn 29. apríl síðastliðinn, verður jarðsungin frá
Grafarvogskirkju fimmtudaginn 11. maí kl. 11.
Margrét Thordersen Andreassen,
Sigþrúður Þorfinnsdóttir, Egill Þorfinnsson,
Vala Margrét Hjálmtýsdóttir, Stefán Barði Egilsson.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim er sýndu
okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og
útför
ÁGÚSTS KOLBEINS SIGURLAUGSSONAR,
Hornbrekkuvegi 12,
Ólafsfirði.
Olga Albertsdóttir,
Albert Ágústsson, Ragnhildur Gunnarsdóttir,
Guðný Ágústsdóttir, Ægir Ólafsson,
Kolbeinn Ágústsson, Jónína Guðbjartsdóttir,
Ólöf Ágústsdóttir, Marteinn Halldórsson,
Sigurlaugur Valur Ágústsson, Nanna Árnadóttir,
Geir Hörður Ágústsson, Anna Rósa Vigfúsdóttir,
Elínborg Ágústsdóttir, Kristinn Steingrímsson,
Sæbjörg Ágústsdóttir, Jóakim Freyr Ólafsson,
afabörn og langafabörn.
Ástkær faðir okkar, tengafaðir og afi,
GEIR GARÐARSSON,
Skálateigi 1,
áður Ægisgötu 3,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju fimmtu-
daginn 11. maí kl. 13:30.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartaheill,
landssamtök hjartasjúklinga.
Garðar Geirsson, Leah Ann Mauzey,
Hörður Geirsson,
Ósk Geirsdóttir,
Ómar Geirsson,
Emma Geirsdóttir, Kristján Grétarsson,
Sólveig Jóna Geirsdóttir, Pálmar G. Edvardsson
og barnabörn.