Morgunblaðið - 09.05.2006, Síða 41

Morgunblaðið - 09.05.2006, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2006 41 DAGBÓK Lækjargata 2a 101 Reykjavík sími 511-5001 opið 9.00 -22.00 alla daga Skáldaspírukvöld 63. skáldaspírukvöldið verður í kvöld 9. maí, kl. 20.00 Andri Snær Magnason mun árita og lesa upp úr metsölubók sinni Draumalandið. veitin gar í boði Andri Snær Foreldrarölt í Kópavogi á sér langahefð,“ segir Hrefna Gunnarsdóttir for-maður SAMKÓP, Samtaka foreldra-félaga og foreldraráða við grunnskóla Kópavogs. Út er kominn á vegum þeirra samtaka bæklingurinn: „Við vökum yfir þér“. „Með útgáfu bæklingsins erum við sérstaklega að kynna framkvæmd og tilgang foreldraröltsins í Kópavogi öllum foreldrum í Kópavogi og hann verður notaður til að kynna verkefnið þeim for- eldrum sem bætast nýir í þennan hóp,“ segir Hrefna. En er þetta áhrifarík aðgerð? „Já, við viljum meina að svo sér. Það hefur sýnt sig að það hefur skipt miklu máli að for- eldrar láti sig málið varða. Tilgangurinn með þessu rölti er svo margþættur. Hann er ekki að- eins aðhald við lögbundinn útivistartíma og til þess að vernda börn og unglinga frá utanaðkom- andi aðilum heldur lítum við líka á þetta sem eft- irlit með sameiginlegum eigum okkar í umhverf- inu og einnig er mikilvægt að þarna er á ferðinni rölthópur með foreldrum barna úr sömu bekkj- ardeildum. Þátttaka í foreldraröltinu er kjörið tækifæri til að kynnast foreldrum vina barnanna og efla samstarf við þá.“ Hvernig starfið þið? „Fulltrúi úr hverjum hóp úr hverjum grunn- skóla Kópavogs byrjar á að fara á lögreglustöð- ina fyrir röltvaktina og sækir þangað tösku með gögnum, þar á meðal farsíma, sem fylgir hverj- um rölthóp. Með þessum símum er tryggt að rölthópurinn er í sambandi bæði við aðra rölt- hópa, lögregluna og útivakt ÍTK, Íþrótta- og tómstundaráð Kópavogs. Í hverjum rölthóp eru svona 4 til 5 foreldrar og fleiri ef mikið stendur til, svo sem eftir lok samræmdra prófa.“ Hvert er svo farið? „Rölt er um hverfi viðkomandi grunnskóla, farinn ákveðinn rúntur, hver og einn hópur ein- beitir sér að sínu skólahverfi. Það er samstarfs- hópur í kringum þetta verkefni sem hittist a.m.k. þrisvar á ári, í þeim hópi eru fulltrúar frá hverju foreldrafélagi, fulltrúar frá SAMKÓP og ÍTK, auk þess sem við erum svo heppin að eiga bæði forvarnarfulltrúa í Kópavogi og lögreglumann sem starfar að forvörnum, hinir síðastnefndu eru ómetanlegir í starfi hópsins.“ Og hvað er næst á dagskrá hjá ykkur? „Það er óvenjulega mikið rölt í tilefni af lokum samræmdra prófa sem verða núna í vikunni. Krakkarnir fara með skólum sínum í ferðalag flestir að loknum prófunum. En svo kemur helgin og við hvetjum fjölskyldur til að fagna próflokum saman enda er þetta stór stund í lífi unglingsins og fólksins hans, í vikunni senda foreldrafélögin bréf til foreldra þar sem hvatt er til þessa.“ Barnaverndarmál | Bæklingur kemur út um foreldrarölt í Kópavogi Við vökum yfir þér  Hrefna Gunnars- dóttir er formaður SAMKÓP. Hún fæddist 1964 í Reykjavík og lauk prófi frá Háskóla Íslands í viðskiptafræði og síðan löggildingu í endurskoðun. Hún starfar nú sem fram- kvæmdastjóri Trygg- ingasjóðs sparisjóða en áður starfaði hún hjá Deloitte sem endurskoðandi. Hún er gift kona og á tvö börn, annað á grunnskólaaldri og hitt í framhaldsskóla. Frambjóðendur og fátækt ÉG var að hlusta á símatíma hjá Út- varpi Sögu þar sem Grétar Mar úr Frjálslynda flokknum sat fyrir svör- um. Það hringdi inn maður og spurði af hverju flokkurinn hans og Sam- tökin gegn fátæk sameinuðust ekki fyrir kosningar. Grétar sagðist halda að margir úr þessum sam- tökum væru í sínum flokki. Auðvitað er það eins og gengur að fólk, sem er í þessum samtökum hefur sínar skoðanir í pólitík, en samtökin eru ópólitísk samtök sem stofnuð voru til að vekja athygli á aukinni fátækt og erfiðleikum þeirra sem minna mega sín. Þeir, sem í þessum samtökum eru, hugsa sig vonandi vel um áður en gengið í kjörklefann að fenginni reynslu vegna þess að þau öfl sem að R-list- anum stóðu, og eru í framboði núna þótt í sitt hvoru lagi séu, stóðu fyrir því að fjárhagsaðstoð við fátæka var skorin niður, hækkuðu húsaleigu Félagsbústaða mikið og létu einnig húsaleigubætur þessa fólks renna beint til Félagsbústaða. Og þegar búið var að þrengja að þessu fólki eins mikið og hægt var og kom að því að sumir gátu ekki borgað leiguna, þá var fólk borið út. Þetta er ansi dökk mynd liðinna ára sem við viljum ekki sjá framar í Reykjavíkurborg. Við viljum velferð fyrir alla hér í borginni okkar og líka fyrir fátæka fólkið. Það væri ljómandi gott núna að frambjóðendur myndu láta í sér heyra hvaða stefnu þeir hafi í þess- um málaflokki, því þótt það sé ágætt að tala um flugvallarmálið og Sundabraut þá þarf að ræða þetta líka. Sigrún Á. Reynisdóttir, formaður Samtaka gegn fátækt. Skattamál ÉG ÞARF að árétta þau orð Árna Gunnarssonar á ráðstefnu um skattamál. Það þarf mikinn kjark en lítið vit til að mótmæla því að skattaálögur hafa aukist á láglaunafólki en lækk- að á hátekjufólki. Björn Indriðason. Um Árbæjarsafn ÞAÐ vekur undrun mína af hverju það þarf núna allt í einu að flytja Árbæjarsafn út í Viðey! En til hvers að flytja safn út í eyju? Er einhver ástæða að baki, ef ég má spyrja? Virðingafyllst, Ólafur Jónas Sigurðsson. Velvakandi Svarað í síma 5691100 kl. 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Íslandsmótið. Norður ♠8 ♥KD5 A/Allir ♦KG982 ♣9852 Vestur Austur ♠KG10642 ♠Á973 ♥643 ♥72 ♦4 ♦1076 ♣G107 ♣D643 Suður ♠D5 ♥ÁG1098 ♦ÁD53 ♣ÁK Þótt slemma sé borðleggjandi, er ekki þar með sagt að hún sé auðveld í meldingum – aðeins 5 pör af 24 náðu að segja slemmu í rauðum lit í spilinu að ofan, sem er frá undankeppni Íslands- mótsins í tvímenningi. Sigurvegarar mótsins, Þröstur Ingimarsson og Her- mann Lárusson, voru í hópi hinna slemmusæknu: Þröstur var í suður og vakti á einu hjarta, Standard: Vestur Norður Austur Suður – – Pass 1 hjarta Pass 2 hjörtu Pass 3 lauf * Pass 3 tíglar Pass 4 tíglar Pass 4 grönd Pass 5 lauf Pass 6 hjörtu Allir pass Eftir einfalda hækkun á móti er slemma ekki líkleg og sagnlatir spilarar myndu einfaldlega segja: „Stopp – fjög- ur hjörtu“. En Þröstur ákvað að kanna málið. Hann sagði þrjú lauf, sem er á því stigi málsins áskorun í geim með veikleika í laufi – eiginlega beiðni um aðstoð í litn- um. Þröstur þurfti auðvitað enga hjálp í laufinu, en hann var að fiska eftir þriggja tígla styrkmeldingu, enda tíg- ulkóngurinn nauðsynlegur á móti til að nokkurt vit sé í slemmu. Hermann var með hámark fyrir hækkun sinni í tvö hjörtu og sagði þrjá tígla, sem Þröstur lyfti í fjóra og lét þannig framhaldið í hendur makkers. Hermann þurfti ekki meiri hvatningu, það draup smjör af hverju spili – hjarta- hjón, tígulkóngur í fimmlit og óupplýst einspil í spaða. Hann spurði um lykilspil og sagði slemmuna í kjölfarið. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is Árnaðheilla dagbók@mbl.is 90 ÁRA afmæli. Í dag, þriðjudag-inn 9. maí, er níræð Sigrún Rakel Guðmundsdóttir, fyrrverandi kennari og hreppstjóri í Grindavík. 80 ÁRA afmæli. Í dag, 9. maí, eráttræð Guðrún Ragnarsdóttir, Skúlagötu 20, Reykjavík. Hún tekur á móti ættingjum og vinum kl. 20–22 í samkomusalnum að Skúlagötu 20. Hlutavelta | Þessir duglegu krakkar í 6 SS söfnuðu 35.000 kr. til styrktar Rauða krossi Íslands, fyrir fátæk börn í Afríku. Morgunblaðið/Ásdís

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.